Morgunblaðið - 18.09.2012, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.09.2012, Qupperneq 2
FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2013 kemur fram að velferðar- ráðuneytið hyggst spara 220 milljónir með því að hætta greiðsluþátttöku í metýlfenidat- lyfjum fyrir fullorðna enda séu „lyfin einungis ætluð börnum og unglingum samkvæmt klínískum leiðbeiningum“. Staðreyndin er hins vegar sú að embætti land- læknis hefur gefið út klínískar leiðbeiningar um notkun á þess- um lyfjum fyrir fullorðna. Full- yrðingin er röng eða „ónákvæm“. Á laugardag fjallaði Morgun- blaðið um þá „ónákvæmni“ sem fólst í því að í sama kafla fjárlaga- frumvarpins segir að nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja eigi að nota meira af þessum lyfjum en nokkur önnur þjóð. Reynt hafi verið að ná notkuninni niður með ýmsum ráðum en það ekki tekist, nema að litlu leyti. Einar segir að það verði útfært frekar á milli umræðna um frum- varpið á Alþingi hvaða leiðir verði farnar í þjónustu við þennan hóp. Í því samhengi hefur meðal ann- ars verið rætt um stofnun sér- staks teymis á geðsviði Lands- spítalans sem muni hafa það hlutverk að stýra meðferð fyrir hópinn. Lyfjameðferð verður því ekki útilokuð fyrir þá sem þurfa á því að halda, heldur sé ætlunin að tryggja að heild- stætt mat fari fram þeg- ar annað dugar ekki. spara 250 milljónir. Í ljós kom að þarna var átt við að spara ætti 250 milljónir í almennum lyfja- kostnaði, ekki með nýja kerfinu. Varð til í fjárlagavinnunni Einar Magnússon, lyfjamála- stjóri velferðarráðuneytisins, segir að orðalagið í frumvarpinu sé mjög ónákvæmt að þessu leyti. Þarna sé sennilega átt við að í lyfjaskrá Lyfjastofnunar komi fram að þessi lyf séu ekki ætluð fullorðnum. „En það er alveg rétt að notkun fyrir fullorðna er í klín- ískum leiðbeiningum,“ segir hann. Velferðarráðuneytið sé ekki ánægt með þetta orðalag í frumvarpinu en það hafi orðið til í fjárlagavinnunni. „Það hefur ver- ið tekist á um orðalag á þessu,“ segir hann en vill ekki segja nán- ar hvaðan orðalagið sé komið. Einar bendir á að Íslendingar Ónákvæmni á ónákvæmni ofan  Röng fullyrðing í fjárlögum um klínískar leiðbeiningar um ADHD fyrir fullorðna  Á að spara 220 milljónir 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Klínísku leiðbeiningarnar sem um ræð- ir koma fram í ritinu Vinnulag við grein- ingu og meðferð athyglisbrests með ofvirkni (ADHD) sem embætti land- læknis gaf út í mars 2012. H. Magnús Haraldsson, sérfræðingur í geðlækningum á geðsviði Landspít- alans, tók þátt í að semja ritið. Hann segir að í vissum tilfellum, þegar búið sé að reyna aðrar aðferðir, geti verið rétt að gefa fullorðnum metýlfenidat- lyf. Þessar klínísku leiðbeiningar séu sambærilegar þeim sem m.a. sé stuðst við í Noregi og Svíþjóð. Hann bendir á að rannsóknir hafi staðfest að fullorðnir geti verið með ADHD og að metýlfenidatlyf gagnist við meðferð þeirra. Þó að í lyfjaskrá komi fram að lyfin séu aðeins ætluð börnum og unglingum sé alls ekki óalgengt að lyf séu notuð á annan hátt en mælt sé fyrir í lyfjaskrá. Þannig hafi t.a.m. mörg þunglyndislyf verið notuð gegn kvíðaröskunum, þrátt fyrir að í lyfjaskrá kæmi ekki fram að þau mætti nota með þeim hætti. Nú væru mörg þessara lyfja skráð þannig að þau virkuðu einnig gegn kvíðaröskunum. Í dag greiðir fullorðinn einstaklingur rúmlega 6.000 á mánuði fyrir rítalín eða concerta. Án greiðsluþátttöku myndi mánaðarlegur kostnaður hlaupa upp í 22-27.000 krónur, samkvæmt upplýsingum frá Lyfju. „Ef það á að hætta að niðurgreiða þessi lyf að fullu held ég að það þýði að margir verði að hætta að taka þau. Og það getur haft býsna afdrifaríkar af- leiðingar fyrir þá sem sannarlega þurfa á þeim að halda,“ segir Magnús. Rannsóknir staðfesta gagnsemi KLÍNÍSKAR LEIÐBEININGAR SAMBÆRILEGAR OG Í NOREGI OG SVÍÞJÓÐ Karlmaður á fimmtugsaldri var sak- felldur í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að hafa margsinnis áreitt stjúpdóttur sína kynferðislega og haft við hana samræði og önnur kyn- mök þegar hún var barn. Maðurinn var að auki sakfelldur fyrir að hafa haft í sinni vörslu talsvert magn af grófu barnaklámi og var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 8 ár og til að greiða stjúpdóttur sinni 2,5 milljónir króna í miskabætur. Ríkissaksóknari gaf út ákæru á hendur manninum 13. júní síðastlið- inn en í málinu var hann borinn sök- um af stjúpdóttur sinni og dóttur. Var hann fundinn sekur um „mörg gróf og alvarleg kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var á aldrinum 11-18 ára“, eins og segir í niðurstöðu dómsins, en sýknaður af ákærum um að hafa framið kynferð- isbrot gegn dóttur sinni. Skýrslur brotaþola fyrir dómi þóttu í öllum meginatriðum greinar- góðar og trúverðugar og þótti hún hafa gefið trúverðuga skýringu á því af hverju hún dró það svo lengi sem raun bar vitni að skýra frá misgjörð- um ákærða gagnvart henni. Ákærði neitaði í fyrstu allri sök en gekkst síðar að hluta til við þeirri háttsemi sem hann var ákærður fyrir. Þó vildi hann meina að þau brot sem hann var tilbúinn að gangast við hefðu átt sér stað þegar stjúpdóttir hans var orðin 16 ára gömul og með hennar samþykki. Við húsleit á heimili foreldra mannsins var m.a. lagt hald á 24 geisladiska sem sýndu börn á kyn- ferðislegan eða klámfenginn hátt. Viðurkenndi ákærði að „hann ætti örugglega eitthvað af þessu sjálfur“ en framburður hans um þetta ákæruefni þótti ruglingslegur og átti hann í erfiðleikum með að veita af- dráttarlaus svör. Dæmdur í 8 ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot  Nauðgaði og áreitti stjúpdóttur sína ítrekað í mörg ár Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fjárhagsleg endurskipulagning Sveit- arfélagsins Álftaness er nú á lokastigi og hefur tekist að minnka skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins um meira en helming frá því sem var á árinu 2009. Jafnframt hefur tekist að snúa rekstri sveitarfélagsins við úr neikvæðum í jákvæðan á skömmum tíma. Íbúar Álftaness og Garðabæjar ganga til kosninga um sameiningu sveitarfélaganna þann 20. október næstkomandi. Ef sameining verður samþykkt tekur hún gildi 1. janúar 2013. Þá yrðu skuldir sameinaðs sveit- arfélags um 95% af tekjum og er áætl- að að þetta hlutfall lækki í 64% árið 2017 en það mun vera með því lægra sem þekkist á landinu. „Skuldir sveitarfélagsins voru orðn- ar allt of miklar en á árinu 2010 var sett sérstök fjárhaldsstjórn sem hefur unnið með bæjarstjórn að úrbótum,“ segir Snorri Finnlaugsson, bæj- arstjóri á Álftanesi. „Óhætt er að segja að verulegur árangur hafi náðst. Skuldir og skuldbindingar Álftaness voru í árslok 2009 um 7,2 milljarðar en þessi tala er komin nið- ur í 3,2 milljarða ef af sameiningu verður. Þar með er eiginfjárstaðan orðin jákvæð á ný því bókfærðar eignir okkar í árslok 2012 eru áætlaðar um 3,4 milljarðar króna,“ segir Snorri. Stakkaskipti í rekstri Rekstur Álftaness hefur einnig tek- ið stakkaskiptum en halli var á rekstri fyrir fjárhagsliði árið 2008 upp á um 130 milljónir króna. Á síðasta ári var afgangur upp á 240 milljónir króna fyrir fjármagnsliði og stefnir í að hann verði 277 milljónir í lok þess árs. Um 400 milljóna jákvæður viðsnún- ingur hefur því orðið í rekstri sveitar- félagsins á fjórum árum, að sögn Snorra. Eignir Álftaness nú umfram skuldir  Gjörbreytt skulda- og rekstrarstaða  Kosið um sameiningu 20. október Frá Álftanesi. Selfossi | Sigríður Fanney Isaksen fagnaði í gær 100 ára afmæli sínu. Sigríður er til heimilis að Blesastöðum á Skeiðum en er fædd á Stokkseyri. Þaðan fluttist hún ung til Reykjavíkur og kynntist manni sínum, Reidar Isaksen, norskum sjómanni og bjuggu þau í Reykjavík alla sína búskapartíð. Sigríður er hress og segir það gaman að vera gömul. Fékk hún fjölda gesta í heimsókn í gær og var slegið upp afmælisveislu fyrir Sigríði og aðra heimilismenn að Blesastöðum í tilefni þessa merkisdags. Á myndinni er Sigríður ásamt þremur af barnabarnabörnum sín- um, þeim Vilhelmínu, Hörpu og Agnesi. Fagnaði með fjölda gesta á hundrað ára afmælinu Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Gaman að verða gömul

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.