Morgunblaðið - 18.09.2012, Side 12

Morgunblaðið - 18.09.2012, Side 12
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ekkert einhlítt svar er við þeirri spurningu hvaða gjaldmiðil sé best að festa gengi krónunnar við eða taka upp,“ segir í riti Seðlabanka Ís- lands, Valkostir Íslands í gjaldmið- ils- og gengismálum, sem kom út í gær. Megináhersla er lögð á það í ritinu að skoða kosti og galla þess að leggja af krónuna og taka upp evru með aðild að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu. Einnig er fjallað um kosti og galla aðildar að öðrum myntsvæðum, upp- töku annars gjaldmiðils auk annars konar gengistenginga. Þá er „fjallað um reynslu Íslendinga af núverandi fyrirkomulagi peninga- og geng- ismála og hún borin saman við reynslu evruríkja eftir aðild, í að- draganda fjármálakreppunnar og í kjölfar hennar,“ eins og segir í for- mála Þórarins G. Péturssonar, aðal- hagfræðings Seðlabanka Íslands. Fleiri kostir koma til álita en evr- an, eigi að festa krónuna við annan gjaldmiðil eða taka hann upp, sam- kvæmt skýrslunni. Þeir erlendu gjaldmiðlar sem skoðaðir eru auk evru í því sambandi eru Bandaríkja- dalur, norrænu krónurnar þrjár, þ.e. sú danska, norska og sænska, breska pundið og Kanadadalur. Bent er á að norrænu gjaldmiðl- arnir gætu komið til greina yrði evr- an ekki fyrir valinu. Með því væri þó verið að tengjast mun minna mynt- svæði sem vegi töluvert minna í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar en evrusvæðið. Af norrænu myntunum þykir danska krónan að ýmsu leyti álitlegust. Það er m.a. vegna þess að gengi hennar er tengt evru innan mjög þröngra marka. Með tengingu við dönsku krónuna yrði Ísland því óbeint aðili að evrusvæðinu, þótt ábatinn yrði minni en af upptöku evru. Tenging við dönsku krónuna eða upptaka hennar yrði að vera ein- hliða ákvörðun íslenskra stjórn- valda. Þátttaka Dana í ERM-II kemur í veg fyrir að dönsk stjórn- völd geti gert tvíhliða samning við íslensk stjórnvöld um gengissam- starf eða notkun dönsku krónunnar. Ekki einhlítt hvaða leið er best „Ekki verða á þessu stigi dregnar einhlítar niðurstöður um það hvaða leið er best fyrir Íslendinga í gjald- miðils- og gengismálum,“ skrifar Már Guðmundsson seðlabankastjóri í lokaorðum kafla um stefnuna í gjaldmiðils- og gengismálum. Hann bendir m.a. á að víða í ritinu sé að finna niðurstöður sem bendi til þess að val á gjaldmiðils- eða geng- isstefnu skipti ef til vill minna máli fyrir efnahagslega velferð og stöð- ugleika en ætla mætti miðað við um- ræðuna um þessi mál. Már nefnir til dæmis hvernig ríki komu út úr fjár- málakreppunni og hversu hætt er við eignaverðsbólum innan og utan myntbandalags, en um það er fjallað í skýrslunni. Þá segir Már að ein af ástæðum þess að erfitt sé að komast að ein- hlítri niðurstöðu nú um hvaða kost Íslendingar ættu að velja í gjaldmið- ils- og gengismálum sé óvissa um hvernig þeim tveim kostum sem helst virðast koma til greina muni reiða af á næstunni. Þar er annars vegar um að ræða endurbætta umgjörð um krónuna og losun hafta á fjármagnshreyfingar, og hins vegar aðild að ESB og evru- svæðinu. „Það virðist því skyn- samlegt að halda um hríð áfram á þeirri braut sem fetuð hefur verið að undanförnu að þróa og skýra þessa tvo kosti, annars vegar með því að vinna af krafti að endurbættum ramma um krónuna og hins vegar í gegnum aðildarumsókn Íslands að ESB,“ skrifar Már. Langur aðdragandi Viðfangsefni skýrslunnar hefur lengi verið í deiglunni. Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra óskaði eftir því með bréfi 22. apríl 2009 að Seðlabankinn „fari yfir kosti og galla þess að breyta þeirri peningastefnu sem unnið hefur verið eftir hér á landi og geri tillögur til stjórnvalda um mögulegar breytingar á pen- ingastefnunni og þeim markmiðum sem peningastefnunni eru sett með hliðsjón af því mati“. Nánari skýringar á erindinu fylgdu í bréfi forsætisráðherra 2. júní það ár, samkvæmt bréfi Svein Harald Øygard, þáverandi seðla- bankastjóra, til forsætisráðherra þann 30. júní 2009. Bréfinu fylgdi greinargerð um hugsanlegar breytingar á umgjörð og framkvæmd peningastefnunnar. Tekið var fram að hana bæri ekki að skoða sem endanlega niðurstöðu Seðlabankans og boðað að bankinn áformaði að gefa síðar út ítarlega skýrslu um fyrirkomulag peninga- mála á Íslandi, einkum með hliðsjón af hugsanlegri aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu. „Stefnt er að því að skýrslan komi út fyrir lok vetrar 2009-2010,“ segir í bréfinu. Í formála skýrslunnar sem kom út í gær kemur fram að Seðlabankinn hafi hafið vinnu við ítarlegt rit um valkosti Íslendinga í gjaldmiðils- og gengismálum seinni hluta árs 2010 og hefur verið unnið við það síðan með hléum. Fjallað var um þann kost að búa áfram við sveigjanlegt gengi á grundvelli eigin gjaldmiðils í ritinu Peningastefnan eftir höft sem Seðla- bankinn gaf út í desember 2010. Óvissa um helstu gjaldmiðlakosti  Ekkert einhlítt svar er um við hvaða gjaldmiðil sé best að festa gengi krónu eða taka hér upp  Óvissa er um kostina sem þykja vænlegastir, evruna eða endurbætta umgjörð krónu og losun hafta Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Már Guðmundsson seðlabankastjóri (t.v.) og Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur og skýrsluritstjóri (t.h.) fylgdu skýrslunni úr hlaði. Valkostir Íslands » Seðlabanki Íslands gaf út í gær ritið Valkostir Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum, og er það 7. sérrit bankans. » Ritið er 622 blaðsíður og skiptist í 25 kafla, auk formála ritstjóra og útdráttar úr meg- inköflum. » Hægt er að lesa ritið á vef Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? LAMPAÚRVAL Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum 2.590Ryco LDL-MD418A lampim.grind 4x18W T8 62x60x8 cm án peru 7.990 , Ryco LCB-T5003 T5 lampi 13W með 1 8 m snúru 59 cm Ryco LDL-MD236A lampi m.grind 2x36w T8 122x30x7,5cm án peru 6.990 Ryco LCL-M1036 T8/G13 lampi 36W 122 cm 2.490m/peru Ryco lampi án peru hvítur spegill 2x36W 4.690 Ryco LCL-M2 T8 lampi 2x36W 113 cm IP30 7.990 Þrátt fyrir að Ísland hafi færst nær því að vera heppilegur aðili að evr- ópska myntsvæðinu þá er Ísland hins vegar enn í þeim hópi Evrópuríkja sem minnstan ábata hefðu af slíkri aðild, ásamt þjóðum á borð við Nor- eg, Bretland og jaðarríki evrusvæð- isins. Þetta kom fram í máli Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabankans, þegar hann kynnti skýrslu Seðlabankans um valkosti Ís- lands í gjaldmiðils- og gengismálum. Þórarinn benti ennfremur á að Ís- land stæði frammi fyrir „ákveðinni valþröng“ þar sem hægt væri að færa bæði góð rök fyrir því að halda áfram með krónu sem gjaldmiðil og ganga í Evrópusambandið og taka upp evru í kjölfarið. Hins vegar sagði hann að ekki væri til nein „hagfræðileg for- skrift til að komast að niðurstöðu hvor kosturinn sé betri“ og bætti við að slíkt færi eftir því hvaða áhættu- þætti menn mætu mikilvægari en aðra í þeim efn- um. Aðspurður gaf Már Guðmunds- son, seðlabanka- stjóri, ekki mikið fyrir þann valkost að Ísland tæki einhliða upp ann- an gjaldmiðil. „Einhliða upptaka annarrar myntar hefði verulega áhættu í för með sér. Við mælum ekki með því,“ sagði Már, og benti á að slíkur valkostur væri einkum ekki heppilegur þegar um væri að ræða þjóðir sem Ísland á hlutfallslega lítil utanríkisviðskipti við. Már rifjaði upp ummæli Martins Wolf, hagfræðings og pistlahöfundar Financial Times, um að allir „kostir í gjaldmiðlamálum væru slæmir. Ég held að þessi skýrsla hafi leitt það í ljós,“ sagði Már. Hann benti hins veg- ar á að sá ávinningur sem fengist með aðild að evrusvæðinu væri meðal ann- ars aukin milliríkjaviðskipti – en ut- anríkisviðskipti Íslands eru hlutfalls- lega fremur lítil borið saman við önnur ríki – sem hefði jákvæð áhrif á þjóðartekjur á mann. Auk þess sem aðgangur að stærri fjármagnsmark- aði skilaði sér í lægra vaxtastigi og myndi binda enda á gengisáhættu. Möguleg aðild að evrusvæðinu hefði aftur á móti einnig ýmsa áhættu í för með sér. Már benti á að í því samhengi skipti gengissveigjanleiki líklega mestu máli, þar sem Ísland gæti ekki lengur brugðist við efna- hagsáföllum með því að lækka raun- laun í gegnum gengið og verðbólgu. Núverandi kreppa á evrusvæðinu er einnig stór áhættuþáttur, en Már sagði að á þessari stundu væri erfitt segja fyrir hvort evrusamstarfið myndi líða undir lok. hordur@mbl.is Skýrslan sýnir að „allir kostir í gjaldmiðlamálum eru slæmir“  Í hópi ríkja sem hefðu minnstan ábata af evruaðild Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.