Morgunblaðið - 18.09.2012, Síða 27
stofnaði dixielandhljómsveit sem lék
á Hótel Borg og sumarið 1976 var
hann með hljómsveit á Hótel Sögu
með Gunnari Ormslev, Guðmundi
Steingrímssyni, Edwin Kaaber og
Lindu Walker.
Árni hóf kennslu við Tónlistar-
skólann á Egilsstöðum 1976 og
kenndi fyrir austan til 1999. Þar
kenndi hann á píanó, gítar, blokk-
flautu og tónfræði og sinnti um tíma
tónmenntakennslu við grunnskólann
og stjórnaði kórum.
Fræg djasshátíð á Egilsstöðum
Árni kom á fót Djasshátíðinni á
Egilsstöðum sem fyrst var haldin
1988 og var síðan framkvæmdastjóri
hennar í 18 ár. Hátíðin var mjög vel
sótt og hafði mikil áhrif á tónlistarlíf
á Austurlandi. Hún vakti athygli
langt út fyrir landsteinana og var
kynnt í Fest-pass, en þar voru
skráðar 150 virtustu hátíðir í Evr-
ópu á hverju ári. Á djasshátíðinni
komu fram heimsþekktir djassleik-
arar á borð við Tríó Peters Gullins,
Finn Ziegler, Sven Asmundsen og
Oliviér Antunes. Vernharður Linnet
hefur kallað Árna Austfjarðagoðann
eftir þessi djasshátíðaafrek hans.
Árni flutti aftur til Reykjavíkur
1998, er nú trompetleikari í Öðlinga-
hljómsveit FÍH, undirleikari Gerðu-
bergshússins og fer með prestum og
kórfélögum á hjúkrunarheimili.
Fjölskylda
Árni kvæntist 31.12. 1976 Kristínu
Axelsdóttur, f. 31.7. 1942, fyrrv.
skrifstofumanni. Hún er dóttir Axels
Gunnarssonar, verslunarmanns í
Reykjavík, og Áslaugar Gunn-
arsdóttur húsfreyju.
Dóttir Árna er Una, f. 24.4. 1949,
starfsmaður atvinnuráðuneytis, gift
Einari Jónssyni og á hún fimm börn.
Dóttir Árna og f.k.h., Sigríðar
Sveinbjarnardóttur, er Soffía, f.
3.10. 1949, húsfreyja, gift Sigurði
Karlssyni og eiga þau fjögur börn.
Börn Árna og Kristínar eru Ísleif-
ur, f. 20.12. 1976, starfsmaður Sec-
uritas en kona hans er Kristín Þór-
arinsdóttir; Áslaug Hildur, f. 27.7.
1979, í fæðingarorlofi en maður
hennar er Hörður Már Lúthersson
og eiga þau eina dóttur.
Systkini Árna: Gísli Guðmundur,
f. 18.5. 1926, d. 13.3. 2009, hrl. í
Reykjavík; Ásdís, f. 9.12. 1928, d.
14.10. 2002, húsfreyja í Reykjavík;
Hildur Sólveig, f. 8.7. 1934, d. 28.12.
1969, skrifstofumaður í Reykjavík.
Foreldrar Árna voru Ísleifur
Árnason, f. 20.4. 1900, d. 7.8. 1962,
borgardómari og prófessor í lögum
við HÍ, og Soffía Gísladóttir John-
sen, f. 1.6. 1907, d. 28.5. 1994, hús-
móðir.
Úr frændgarði Árna Ísleifssonar
Soffía Andersdóttir
húsfr. í Eyjum
Gísli Stefánsson
kaupm. í Eyjum, af Selkotsætt
Anna Sigríður Árnadóttir
húsfr. í Eyjum
Jóhann Jörgen Johnsen
kaupm. og útgerðarm. í Eyjum
Björg Pétursdóttir
húsfr.
Sveinn Arason
b. á Gunnfríðarstöðum
Guðbjörg Benjamínsdóttir
ljósmóðir
Árni
Ísleifsson
Ísleifur Árnason
borgardómari og prófessor við HÍ
Soffía Gísladóttir Árnason
Johnsen
Gísli J. Johnsen
útgerðarm. í Eyjum og stórkaupm. í Rvík
Anna Ásdís Johnsen
húsfr. í Eyjum og í Rvík
Hildur Solveig Sveinsdóttir
húsfr. á Geitaskarði
Árni Á. Þorkelsson
hreppstj, og dbrm. á Geitaskarði
Þorkell Þorsteinsson
b. á Barkarstöðum
Árni
Johnsen
Sigfús Johsen
bæjarfógeti í
Eyjum
Guðni H. Johnsen
útgerðarm. í
Eyjum
Ágústa Möller
húsfr. í Rvík
Jakob Þ. Möller
fyrrv. yfirm. hjá Mann-
réttindaskr. Sþ í Genf
Baldur
Johnsen
læknir
Skúli Johnsen
héraðslæknir í Rvík.
umdæmi
Ingibjörg
Johnsen
húsfr. í Eyjum
Árni Johnsen
alþm.
Sigfús
félagsmálastj.
í Garðabæ
Árni Sigfússon
bæjarstj. í Reykjanesbæ
Þorsteinn Sigfússon
eðlisfr. og prófessor
Í sveitinni Árni með heimalninginn
að Móbergi fyrir tæpum 80 árum.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012
Bjarnveig Bjarnadóttir, for-stöðukona Ásgrímssafns,fæddist 18. september árið
1905. Foreldrar hennar voru Bjarni
Bjarnason, ættaður frá Skaftafelli,
og Guðlaug Hannesdóttir frá Skip-
um við Stokkseyri. Hinn þjóðkunni
listmálari Ásgrímur Jónsson og
Guðlaug voru systrabörn. Bjarnveig
var einnig skyld Einari Jónssyni
myndhöggvara frá Galtafelli.
Að loknu hefðbundnu barna- og
unglinganámi hóf Bjarnveig nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík og út-
skrifaðist þaðan. Eftir það starfaði
hún um fimm ára skeið hjá Bæj-
arsímanum þar til hún gifti sig árið
1928 Jóhannesi Loftssyni kaup-
manni. Þau eignuðust synina Loft og
Bjarna Markús. Þau skildu og ólust
synirnir upp hjá móður sinni. Hugur
þeirra beggja beindist að flugnámi
og luku þeir báðir flugnámi og störf-
uðu við það alla tíð.
Bjarnveig var mikill listunnandi
og bar heimili hennar merki um fág-
aðan smekk og listrænan áhuga.
Hún safnaði fjölda listaverka eftir
þekktustu myndlistarmenn þjóð-
arinnar, ekki síst Ásgrím frænda
sinn.
Hún starfaði um árabil við vél-
ritun og lestur prófarka hjá Ragnari
Jónssyni kenndum við Smára. Hann
var forstjóri Helgafells og mikill vel-
gjörðarmaður lista- og menningar-
starfsemi í landinu.
Ásgrímur Jónsson listamaður arf-
leiddi þjóðina að öllum eigum sínum,
húsi við Bergstaðastræti og 500 full-
gerðum listaverkum, auk fjölda
verka sem ekki voru fullfrágengin.
Bjarnveig gegndi forstöðu Ásgríms-
safns sem opnað var almenningi
1960. Hún skráði öll verkin. Mörg
verkanna var ekki hægt að lagfæra
hér á landi og þurfti að senda til
listasafns í Kaupmannahöfn með
ærnum tilkostnaði. Verkefnið fjár-
magnaði hún með útgáfu listaverka-
korta af mörgum þekktustu mynd-
um Ásgríms og vakti það verðskuld-
aða athygli. Hún fór með ófáa nem-
endahópa úr skólum borgarinnar í
kynnisferðir um Ásgrímssafn.
Bjarnveig lést 26. apríl 1993.
Merkir Íslendingar
Bjarnveig
Bjarnadóttir
90 ára
Ingimar Jörgensson
Jóhanna Elín Kjærnested
85 ára
Helga Runólfsdóttir
Sigurbjörn Árnason
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
80 ára
Björg Arnþórsdóttir
Jóhann Ágústsson
Sigrún Theódórsdóttir
75 ára
Sesselía Björk
Guðmundsdóttir
70 ára
Bára Sigurðardóttir
Birgir Kristjánsson
Björn H. Jóhannesson
Grétar Vésteinsson
Helga I. Þorkelsdóttir
Sævar Baldursson
Vésteinn Vésteinsson
Yonggang Li
60 ára
Ásdís Hildur Jónsdóttir
Guðbjörn Ásgeirsson
Guðný Benediktsdóttir
Gunnar Heimdal
Magnússon
Halldóra S.
Matthíasdóttir
Jón Heimdal Magnússon
Snorri Gunnlaugur
Bogason
Ævar R. Kvaran
50 ára
Bjarni Þorbergsson
Eva Margrét Jónsdóttir
Garðar Jónsson
Guðrún le Sage de
Fontenay
Guðrún Ottósdóttir
Gyða Rafnsdóttir
Herdís Kristrún
Harðardóttir
Jose Alberto Valencia
Palmero
Jose Baracina Balana
Jóhann Baldursson
Jón Þór Einarsson
Laufey Ásta Breiðdal
Sigmar Ólafsson
Sóley Sverrisdóttir
Valdimar Kúld
Björnsson
Viktor Pétursson
Þuríður Þorláksdóttir
40 ára
Bjarni Ágúst Sigurðsson
Bjartey Sigurðardóttir
Dariusz Adam Feliksiak
Dóra Ingibjörg
Valgarðsdóttir
Hildur Þóra Stefánsdóttir
Jónas Bjarki Björnsson
Lajos Kiss
Magnús Jóhannesson
Óttar Gautur E. Erlingsson
Páll Kristjánsson
Rósa Vigfúsdóttir
Sigríður Hyldahl
Björnsdóttir
Steingrímur Sigurðsson
Svavar Birkisson
30 ára
Anna Maria S. Basalan
Birgir Þór Svavarsson
Brynhildur Ósk
Guðmundsdóttir
Kristjana Guðjónsdóttir
Sólveig Júlíana
Guðmundsdóttir
Supak Chhetri
Til hamingju með daginn
30 ára Ólöf ólst upp í
Grindavík, lauk MA-prófi í
þróunarfræði frá HÍ 2011
og er nú í fæðingarorlofi.
Maki: Magnús Oppen-
heimer, f. 1984, fjármála-
ráðgjafi í New York.
Sonur: Óskar Fulvio
Magnússon, f. 2012.
Foreldrar: Ágústa Ósk-
arsdóttir, f. 1958, skrif-
stofumaður hjá Vísi hf. í
Grindavík, og Pétur Haf-
steinn Pálsson, f. 1959,
framkvæmdastjóri Vísis.
Ólöf Daðey
Pétursdóttir
30 ára Kristín ólst upp í
Vindási í Landsveit, lauk
lyfjafræðiprófi frá HÍ og er
lyfjafræðingur hjá Actav-
is.
Maki: Trausti Jóhanns-
son, f. 1982, nemi í skóg-
fræði við Landbúnaðarh.
Börn: Antía Eva, f. 2008,
og Hrafnhildur Erla, f.
2012.
Foreldrar: Margrét Gísla-
dóttir, f. 1951, starfar á
leikskóla, og Bragi Guð-
mundss., f. 1950, smiður.
Kristín Birna
Bragadóttir
30 ára Margrét lauk prófi
í snyrtifræði og er snyrti-
fræðingur í Bláa lóninu.
Maki: Jóhann Helgason,
f. 1984, viðskiptafræð-
ingur hjá Vísi í Grindavík.
Börn: Helgi Hafsteinn, f.
2008, og Kamella Kristín,
f. 2012.
Foreldrar: Ágústa Ósk-
arsdóttir, f. 1958, skrif-
stofumaður hjá Vísi hf. í
Grindavík, og Pétur Haf-
steinn Pálsson, f. 1959,
framkvæmdastjóri Vísis.
Margrét Kristín
Pétursdóttir
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður