Morgunblaðið - 18.09.2012, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.09.2012, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2012 Það er gott dæmi um hvaðímyndunarafl okkar erþrátt fyrir allt virkt aðtveir leikarar, sem skipta varla um föt og hafa enga sérstaka leikmuni sér til aðstoðar, geti leik- andi haldið stórum sal hugföngnum í meira en tvær klukkustundir. Til þess að þetta heppnist þarf þó bæði góða sögu og afburðaleikara og það á við í þessu tilviki. Með fulla vasa af grjóti gerist í þorpi á Írlandi þar sem verið er að taka upp stór- mynd og bæjarbúar hafa margir at- vinnu af því að vera aukaleikarar í henni. Í verkinu er því eiginlega ver- ið að snúa Hollywood-mynd á röng- una, að sýna það sem gerist raun- verulega hjá aukaleikurunum á milli þess sem glansmyndin er búin til. Andstæðan er svo söguþráður stór- myndarinnar, stjörnur hennar, leik- stjóri, aðstoðarleikstjóri og örygg- isvörður – fólk sem lifir í einhvers konar gerviheimi. Í verkinu er dregin upp mynd af bágu atvinnuástandi og takmörk- uðum tækifærum þorpsbúa, veikum vonum og brostnum draumum. Að- alpersónurnar eru þeir Jake Quinn, leikinn af Stefáni Karli Stefánssyni, og Charlie Conlon sem Hilmir Snær Guðnason túlkar. Til viðbótar bregða þeir félagar sér í gervi þrett- án persóna þannig að segja má að þetta sé mannmörg sýning. Jake Quinn er fæddur og uppalinn á staðnum. Hann hefur freistað gæf- unnar í Bandaríkjunum en komið heim aftur með skottið á milli lapp- anna. Charile Conlon hefur flosnað upp og á að baki skipbrot og áföll. Sá fyrrnefndi er afar þungur og fullur ásakana í eigin garð og annarra vegna alls sem miður fer, hinn er hálfgerður trúður sem reynir að slá sem flestu upp í grín. Undir niðri býr þó erfið reynsla. Þeir Hilmir Snær og Stefán brill- era í þessari sýningu, nákvæmlega eins og þeir gerðu í lok árs 2000 og allar eru persónurnar eftirminnileg- ar. Ég nefni sérstaklega Mickey, gamlan og þrautreyndan aukaleik- ara sem Stefán Karl leikur og Jack Cambell, öryggisvörð Caroline, sem Hilmir Snær fyllir vel út í. Hilmir Snær leikur einnig Fin, sem er óör- uggur og með smávægilegt stam, af mikilli snilld þannig að maður þekkir samstundis persónuna. Sérstaklega er gaman að því hvernig þeim félögum tekst að túlka konur. Hilmir Snær gerði kvik- myndastjörnunni Caroline Giovanni svo góð skil að það myndaðist í al- vöru rafmagnað andrúmsloft á milli hennar og Jake Quinn. Stefán Karl var líka mjög skemmtilegur sem hin metnaðarfulla Aisling. Hún er þriðji aðstoðarleikstjóri en stefnir hærra. Sýningin er öll afar vel útfærð og skiptingarnar renna fullkomlega. Þar má þakka Ian McElhinney, hin- um þrautreynda leikstjóra verksins sem hefur leikstýrt því víða við góð- an orðstír og meðal annars þegar það var sýnt á Íslandi síðast. Eitt af því sem gerði þessa sýn- ingu sérstaklega skemmtilega var hvernig þeir félagar spiluðu á salinn og hvernig áhorfendur voru dregnir inn í verkið. Meðal annars var einn áhorfenda, nauðugur, viljugur gerð- ur að þátttakanda við talsverðan fögnuð viðstaddra. Þá er dansatriði þeirra félaga frábærlega glæsilegt og skemmtilegt. Í stuttu máli var þetta því eftirminnilegt kvöld með góðu verki og enn betri leikurum. Brillera „Þeir Hilmir Snær og Stefán brillera í þessari sýningu, nákvæmlega eins og þeir gerðu í lok árs 2000 og all- ar eru persónurnar eftirminnilegar“ segir m.a. í gagnrýni um leiksýninguna Með fulla vasa af grjóti. Einn plús einn verða 15 Með fulla vasa af grjóti bbbbn Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jon- es. Leikarar: Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson. Útfærsla leik- myndar og búninga: Elín Edda Árnadótt- ir, lýsing: Halldór Örn Óskarsson, þýð- ing: Guðni Kolbeinsson. Leikstjórn: Ian McElhinney, aðstoðarleikstjóri: Selma Björnsdóttir. Frumsýning á stóra sviði Þjóðleikhússins 15. september 2012. SIGURÐUR G. VALGEIRSSON LEIKLIST Nýtt bókauppboð er hafið á vefnum Uppbod.is og er elsti prentgrip- urinn á því bók eftir Arngrím Jóns- son „lærða“ um Ísland, prentuð og gefin út í Amsterdam árið 1643. Á uppboðinu má finna yfir hundrað bækur og kennir á því ým- issa grasa. Meðal annars má finna bókina Íslenzkt gullsmíði eftir Björn Th. Björnsson, uppselda ætt- fræðiritið Kjósarmenn eftir Harald Pétursson og ljóðabókina Hlutabréf í sólarlaginu eftir Dag Sigurðarson, að því er fram kemur í tilkynningu. Af fræðibókum má nefna Kuml og haugfé eftir Kristján Eldjárn og á uppboðinu er einig nokkuð af íslensku prenti frá gömlu prent- stöðunum á Ís- landi, m.a. Hól- um í Hjaltadal, og eru þær bæk- ur flestar í upp- runalegu bandi. Ein Biblía er á uppboðinu, prentuð í Viðeyjarklaustri árið 1841. Uppboðið stendur til 30. sept. Elsta bókin frá árinu 1643 Bók Arngríms Jónssonar frá 1643. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég flutti þessa dagskrá fimm sinn- um sl. vor og viðtökurnar urðu svo gríðargóðar að ég tímdi ekki að kveðja þetta verkefni. Í kjölfarið ákvað ég að gefa þetta bara út og halda sýningum áfram,“ segir Krist- jana Skúladóttir, leik- og söngkona, sem nýverið sendi frá sér geisladisk- inn Söngkonur stríðsáranna. Á plöt- unni flytur Kristjana 14 dægurlög sem vinsæl voru á styrjaldarárunum við undirleik djasstríós sem skipað er þeim Gunnari Hrafnssyni bassaleik- ara, Vigni Þór Stefánssyni píanóleik- ara og Matthíasi Hemstock trommu- leikara. Að sögn Kristjönu skipa frásagnir stóran sess á tónleikunum. „Raunar er kannski ekki réttnefni að kalla þessa dagskrá tónleika, því þetta er miklu meira en tónleikar. Ég er leik- kona og ég nálgaðist lögin með þeim hætti. Þannig bý ég til stemningu með því að vera í kjól frá þessum tíma og með réttu greiðsluna og förð- unina sem og nokkra leikmuni á svið- inu. Ég fór því inn í þetta verkefni með því að leika þetta tímabil. Þó ég sé alls ekki að reyna að stæla þessa söngkonur þá dettur maður óneit- anlega inn í karakter í söngnum, en milli laga segi ég frá þeim. Þetta voru konur sem stóðu á hliðarlínunni í átökum síðari heimsstyrjaldarinnar. Með söng sínum skildu þær oft á milli þess hvort hermenn, örmagna á sál og líkama, gæfust upp eða ekki. Þær voru á staðnum, gáfu af sér eins og þær gátu og hvöttu hermennina áfram í baráttunni,“ segir Kristjana, en meðal laga sem hún flytur eru „Lili Marlene“ sem var einkennislag Marlene Dietrich, „La Vie en Rose“ sem Edith Piaf samdi textann við og flutti með eftirminnilegum hætti, „We’ll meet again“ sem Vera Lynn gerði ódauðlegt og „Ennþá man ég hvar“ sem Hallbjörg Bjarnadóttir flutti. Með glampa í augum „Ég segi líka frá því hvað var að gerast í tónlistarlífinu hér heima á Ís- landi á þessum árum, en með her- námsliðinu barst ný og spennandi tónlist,“ segir Kristjana. Spurð hvað hafi heillað hana við þessa tónlist seg- ir Kristjana hana hafa fylgt sér frá blautu barnsbeini. „Það hefur örugg- lega haft eitthvað að segja að ég á svo fullorðna foreldra og mamma mín heitin fékk alltaf glampa í augun þeg- ar flutt voru lög frá þessum tíma í út- varpinu. Þessi tónlist hefur alltaf heillað mig og höfðað mjög sterkt til mín. Ég er búin að syngja þessi lög frá því ég var krakki og er núna fyrst að koma þessu frá mér.“ Sem fyrr segir flytur Kristjana söngdagskrá sína í Iðnó um þessar mundir. Næsta sýning verður sunnu- daginn 23. september kl. 20. Tónlist sem lengi hefur heillað  Söngkonur stríðsáranna gefnar út Leikrænt Kristjana Skúladóttir heiðrar söngkonur stríðsáranna. Ítalarnir Augusto Contento, Gian- carlo Grande og Michael Aust komu á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, fyrir fjórum árum og sóttu sérstakan hugmyndamark- að, Sound on Sight, þar sem fram- leiðendur kynntu hugmyndir sínar að tónlistartengdum myndum. Varð þá til hugmyndin að heimildarmynd- inni Parallax Sounds, eða Hljóða- hliðrun og Ítalarnir fundu sér sam- starfsfólk og efldu samböndin, skv. tilkynningu frá hátíðinni. Myndin verður sýnd á RIFF í ár en hátíðin hefst 27. september. Í Parallax Sounds er fjallað um post-rock tón- listarsenuna í Chicago og hvernig borgarlandslagið þar hafði áhrif á tónlistina. Myndin var fjármögnuð með sk. fjöldafjármögnun (crowd funding) í gegnum crowd-funding- síðuna Kickstarter, að því er fram kemur í tilkynningunni. Frekari upplýsingar á riff.is. Parallax Sounds á RIFF Hljóðahliðrun Úr heimildarmyndinni Parallax Sounds eða Hljóðahliðrun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.