Morgunblaðið - 05.01.2013, Qupperneq 51
2010 vegna veikinda. Síðan hafa
systkini hans rekið þar félagsbú.
Halldór flutti í Búðardal 1998 og
hefur búið þar síðan en hefur enn
lögheimili á Breiðabólstað, á nokkrar
rollur og er í sveitinni yfir sauðburð,
við heyskap og fer í göngur.
Tónlistin lokkar og laðar
Halldór festi ungur kaup á
harmóniku og hóf að leika fyrir
dansi, einkum í félagsheimilinuá
Staðarfelli og í Búðardal. Hann hóf
kennslu við Tónlistarskólann í Dala-
sýslu við stofnun skólans, 1976, var
fastráðinn 1984 og var skólastjóri
hans 1994-2008.
Halldór hefur verið kirkjuorg-
anisti í meira en hálfa öld. Hann hóf
að spila í Staðarfellskirkju 1957 og
var síðan orgelleikari þar og við
Hvammskirkju, á Skarði og í Dag-
verðarnesi en er nú organisti hjá
sóknarprestinum í Dalaprestakalli.
Halldór var einn af stofnendum
Nikkólínu, félags harmónikuleikara í
Dalasýslu, árið 1981, hefur leikið og
starfað með félaginu síðan og stjórn-
að hljómsveit þess. Þá hefur Halldór
stjórnað kirkjukórum í Dalasýslu og
stjórnað samkórum í Dölum, s.s.
Þorrakórnum og Vorboðanum.
Halldór var hreppstjóri á Fells-
strönd um árabil frá 1967 og sat í
sveitarstjórn þar til hrepparnir voru
sameinaðir í Dalabyggð. Hann var
formaður Ungmennasambands
Dalamanna 1958-66, var formaður
Búnaðarfélags Fellsstrandarhrepps
og sat í stjórn Kaupfélags Hvamms-
fjarðar um árabil.
Halldór var sæmdur fálkaorðunni
fyrir tónlistarstörf í héraði þann 17.
júní 2012.
Fjölskylda
Eiginkona Halldórs er Ólafía
Bjarney Ólafsdóttir, f. 20.3. 1938,
húsfreyja. Hún er dóttir Ólafs
Andréssonar frá Þórisstöðum í Gufu-
dalssveit, verkamanns í Borgarnesi,
og Þuríðar Ólafsdóttur, lengi hús-
freyju og bónda að Staðarfelli.
Börn Halldórs og Ólafíu Bjarn-
eyjar eru Sigrún Birna, f. 22.9. 1959,
bóndi og húsfreyja á Breiðabólstað
en maður hennar er Vilhjálmur
Baldur Bragason bóndi; Þórður
Karl, f. 27.11. 1960, fyrrv. bóndi á
Breiðabólstað, var kvæntur Önnu
Karen Söderholm og eru börn þeirra
Gréta Rún og Halldór Erik; Stein-
unn Helga, f. 10.12. 1961, starfs-
maður við Mjólkursamlagið í Búð-
ardal; Ólafur Kjartan, f. 7.4. 1963,
rekur bókhaldsstofu í Kópavogi en
kona hans er Helga Rut Baldvins-
dóttir og eru synir þeirra Halldór Óli
og Sigurður Baldvin; Inga Heiða, f.
16.1. 1976, verslunarstjóri í Lyfju í
Búðardal og er sonur hennar Björn
Kalman Þorgils.
Systkini Halldórs: Ingibjörg Hall-
dóra, f. 29.5. 1919, d. 31.8. 1936; Guð-
björg Helga, f. 11.10. 1920, d. 22.2.
2007, húsfreyja í Reykjavík; Friðjón,
f. 5.2. 1923, d. 14.12. 2009, alþm. og
ráðherra í Reykjavík sem söng með
kvartettinum Leikbræðrum; Sig-
urbjörg Jóhanna, f. 5.2. 1924, kenn-
ari, búsett í Hafnarfirði; Sturla, f.
31.7. 1925, fyrrv. bifreiðastjóri í Búð-
ardal.
Foreldrar Halldórs voru Þórður
Kristjánsson, f. 26.3. 1890, d. 19.5.
1967, hreppstjóri á Breiðabólstað, og
k.h., Steinunn Þorgilsdóttir, f. 12.6.
1892, d. 4.10. 1984, kennari og hús-
freyja.
Úr frændgarði Halldórs Þorgils Þórðarsonar
Halldór Þorgils
Þórðarson
Steinunn Jónsdóttir
húsfr. á Skarfsstöðum, systir Þórðar Jónssonar á Breiðabólstað
Sigmundur Grímsson
b. á Skarfsstöðum, af Ormsætt
Halldóra Sigmundsdóttir
húsfr. í Knarrarhöfn
Þorgils Friðriksson
oddviti og kennari í Knarrarhöfn
Steinunn Þorgilsdóttir
kennari og húsfr. á Breiðabólstað
Helga Jónsdóttir
húsfr. á Ormsstöðum
Friðrik Þorgilsson
b. á Ormsstöðum
Salóme Þorsteinsdóttir
á Leysingjastöðum í Hvammssveit
Jón Jónsson
húsm. í Skógum á Fellsströnd
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Breiðabólstað
Kristján Þórðarson
b. á Breiðabólstað
Þórður Kristjánsson
hreppstj. á Breiðabólstað
Jófríður Einarsdóttir
húsfr. á Breiðabólstað
Þórður Jónsson
b. á Breiðabólstað
Friðjón
Þórðarson
alþm. og
ráðherra
Þórður
Friðjónsson
forstjóri
Kauphallarinnar
Helga Þorgilsdóttir
yfirkennari við
Melaskóla
Ólafur Gaukur Þórhallss.
tónlistarmaður, faðir
Önnu Mjallar söngkonu
Salóme Kristjánsdóttir
húsfr. á Sveinsstöðum
Svavar Gestsson
fyrrv. ráðh., faðir
Svandísar ráðherra
Gestur
Sveinsson
b. á Grund á
Fellsströnd
Organisti og stjórnandi Halldór
með Þorrakórinn að Skriðulandi í
Saurbæ á Jörvagleði.
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2013
Tómas Guðmundsson fæddistað Syðri-Brú í Grímsnesi 6.1.1901, sonur Guðmundar Ög-
mundarsonar og Steinunnar Þor-
steinsdóttur.
Hann lauk embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ, sinnti málflutnings-
störfum 1926-29, starfaði við Hag-
stofu Íslands 1928-43, sinnti
útgáfustörfum og ritstörfum og orti
sum fegurstu ljóð tungunnar á síð-
ustu öld.
Tómas bjó við Laugaveginn á
námsárunum, á svipuðum slóðum og
Halldór Laxness og Sigurður Ein-
arsson í Holti en þeir Halldór lögðu
þá m.a. á ráðin um útgáfu bók-
menntarits. Síðar varð Tómas helsti
frumkvöðull að útgáfu Helgafells og
síðar Nýs Helgafells og einn stofn-
enda Almenna bókafélagsins. Þá
samdi hann og gaf út, ásamt Sverri
Kristjánssyni sagnfræðingi, tíu
binda verk með æviþáttum fólks frá
liðinni tíð.
Tómas er almennt talinn eitt allra
fremsta skáld þjóðarinnar á síðustu
öld. Hann var aðeins 24 ára er hann
sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók,
Við sundin blá, og varð þar með eitt
helsta skáld samtímans. Í miðri
kreppunni, 1933, sendi hann frá sér
ljóðabókina Fögru veröld sem seld-
ist samstundis upp í nokkrum upp-
lögum. Þó hann yrki þar einkum um
ástina, vorið, æsku og vín, er langt í
frá að hann sé einhæft bjartsýnis-
skáld. Hann orti frumleg og falleg
kvæði um dauðann og er oft dæmi-
gert skáld trega og söknuðar. Með
skáldskap sínum endurnýjaði Tómas
skáldmálið með því m.a. að færa það
nær talmáli og finna fegurð þar sem
aðrir sáu ljótleika. Ljóðabókin
Stjörnur vorsins kom út 1940, Fljót-
ið helga,1950 og Heim til þín, Ísland,
1981. Samtalsbók Tómasar og Matt-
híasar Johannessens, Svo kvað Tóm-
as, kom út 1960.
Tómas er oft nefndur Reykjavík-
urskáldið. Árið 1994 hóf Reykjavík-
urborg að veita Bókmenntaverðlaun
í hans nafni og 2010 var afhjúpuð
stytta af Tómasi, eftir Höllu Gunn-
arsdóttur myndhöggvara, við suð-
vesturenda Tjarnarinnar.
Tómas lést 14.11. 1983.
Merkir Íslendingar
Tómas
Guðmundsson
Laugardagur
85 ára
Bergur Guðmundsson
Esther Ósk Karlsdóttir
Gunnhildur Björnsdóttir
Jón Gestur Sigurðsson
Sigríður Benediktsdóttir
Sigvaldi Gunnarsson
80 ára
Einar Benediktsson
Hera A. Ólafsson
Jófríður Kr. Sigurðardóttir
Ólafur Jensson
75 ára
Gunnar Jóhannesson
Rannveig Randversdóttir
70 ára
Anna Lísa Michelsen
Ágúst Rósmann Morthens
Elínborg Eyþórsdóttir
Gígja Árnadóttir
Kristín Carol Chadwick
Sigurjón Einarsson
Sigurlín E.V. Thacker
Trausti Björnsson
Þorbjörn Sigvaldason
Þórður Klemensson
60 ára
Agnar Breiðfjörð
Þorkelsson
Arndís Jósefsdóttir
Arnhildur S. Magnúsdóttir
Droplaug G. Stefánsdóttir
Egill Jón Sigurðsson
Hallbjörn Kristinsson
Hólmar Henrysson
Magnús Magnússon
Malee Suwannatha
Ólafía Guðbjörg Ólafsdóttir
Ragnhildur Þórarinsdóttir
Sigurður Smári
Sighvatsson
50 ára
Björn Jóhann Ólafsson
Bryndís Sigurjónsdóttir
Halldór Magni Sverrisson
Kolbrún Jónsdóttir
Sigurður Skafti Davíðsson
Steinunn Guðjónsdóttir
Hansen
Þorbjörg Bjarnadóttir
40 ára
Ágúst Bergur Kárason
Áslaug Skeggjadóttir
Blanca Estela Cruz G.
Óskarsson
Díana Dröfn Heiðarsdóttir
Freydís Örlygsdóttir
Hilmar Kári Hallbjörnsson
Hlynur Hafliði Helgason
Hrefna Rún Gunnarsd
Malmberg
Jón Haukur Stefánsson
Kristbjörg Edda
Jóhannsdóttir
Kristján Georg Jósteinsson
Margrét Huld Einarsdóttir
Páll Hlöðver Kristjánsson
Rósa Lyng Svavarsdóttir
Þóra Björk Friðriksdóttir
30 ára
Anna Katarzyna Wozniczka
Anna Rut Bjarnadóttir
Arnar Geir Guðmundsson
Christine Hodits
Daniela Dobrin
Davíð Minnar Pétursson
Elsa Rún Gísladóttir
Erlendur Þór Ottesen
Eva Ruza Miljevic
Friðrik Brendan B.
Þorvaldsson
Guðmundur Valsson
Gunnlaugur Már Briem
Haukur Skúlason
Heiða Hrönn
Sigmundsdóttir
Ingunn Brynja Einarsdóttir
Jianzhen Shu
Karina Hanney Marrero
Margrét Björk Þór
Ólafur Haukur Hansen
Styrmir Jóhannsson
Sveinn Óskar Ásbjörnsson
Sunnudagur
90 ára
Skafti Þóroddsson
85 ára
Árný Oddbjörg Oddsdóttir
Emil Als
Guðfinna Steinsdóttir
Ingveldur Sigurðardóttir
80 ára
Magnús Kristinsson
75 ára
Garðar Árnason
Guðlaug Káradóttir
Hrafn G. Johnsen
Júlíus Egilson
Kristín Eiríksdóttir
Theodór Gunnarsson
70 ára
Margrét Einarsdóttir
Sigríður Alexandersdóttir
Sigríður Kolbeins
60 ára
Aðalsteinn Björnsson
Björg Jakobsdóttir
Einar Þór Lárusson
Gils Friðriksson
Guðríður Halldórsdóttir
Heidi Strand
Sigurbjörg Sigþórsdóttir
Svanlaug Jónsdóttir
Vilhjálmur Árnason
Þorbjörg Björnsdóttir
50 ára
Alfreð Hafsteinsson
Bjarney Hrafnberg
Hilmarsdóttir
Guðmundur Örn
Gunnarsson
Kristinn Þorbergsson
Linda Gunnarsdóttir
Margrét Gunnarsdóttir
Ragnheiður Ólafsdóttir
Steinunn Sveinsdóttir
Úlfar Ægir Þórðarson
Valborg Guðmundsdóttir
Valgeir Freyr Sverrisson
40 ára
Anna Dröfn Clausen
Hildigunnur Garðarsdóttir
Inga María
Sigurbjörnsdóttir
Jóna Elín Gunnarsdóttir
Kristinn Rúnarsson
Magnea Ólafsdóttir
Marianne Elisabeth Klinke
Páll Ingi Jónasson
Ramadan Kryeziu
Róbert Karel Guðnason
Sigríður Inga Pétursdóttir
Sigurður Ómarsson
Valdimar Magnússon
Þórir Geir Jónasson
Þórunn Lárusdóttir
30 ára
Atli Arnljóts Þórarinsson
Bjarki Ólafsson
Eggert Jóhann Árnason
Einar Bragi Hauksson
Esther Audorf
Eva Rós Stefánsdóttir
Friðrik Kristjánsson
Helena Einarsdóttir
Hjördís Sigurbjörnsdóttir
Ingunn Anna Hjaltadóttir
Ingvi Örn Ingvason
Ragnhildur
Sveinbjarnardóttir
Steinar Ingi Þorsteinsson
Veronika Gspandl
Til hamingju með daginn
bolaprentun
gluggamerkingar
prentun
Smiðjuvegur 42 Rauð gata 200 Kópavogur Sími:544 4545 www.signa.is signa@signa.is
skilti
signa.isBílamerkingar