Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þó nú sé janúar nýhafinn, jólahátíðin nýafstaðin og sól ekki á lofti nema örfáar klukkustundir á dag sjá landsmenn sumarið í hillingum. Þeir Eg- ill og Þráinn voru í óðaönn við að koma upp myndarlegasta 400 fm sólpalli þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins átti leið hjá. Þeir létu hvorki rigningu né jólaljósin sem lýstu upp skammdegið trufla smíðavinnuna sem mun væntanlega nýtast sólarunnendum á komandi sumri. Undirbúa komu sumarsins um hávetur Morgunblaðið/Golli Þrátt fyrir að jólin séu nýlega gengin um garð er vel hægt að huga að sumrinu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stjórn Sjávarorku ehf. hefur ákveðið að setja kraft í rannsóknir til undir- búnings sjávarfallavirkjun í innan- verðum Breiðafirði. Sett verður upp sjávarorkusetur í Stykkishólmi og er- lendum verksmiðjum boðin aðstaða til að prófa hverfla í Hvammsfirði. Sjávarorka stefnir að því að koma upp lítilli eigin tilraunavirkjun innan tveggja til þriggja ára. Sjávarorka ehf. hefur í rúman ára- tug athugað möguleika á virkjun sjáv- arfallastrauma í Breiðafirði. Gerðar hafa verið mælingar á dýpi, straum- um og sjávarhæð ásamt straumfræði- líkani af Hvammsfirði. „Við erum búnir að gera mat á heildarorkunni. Nú liggur fyrir að gera frekari straummælingar og velja líklega virkjanastaði fyrir litla til- raunavirkjun,“ segir Sigurjón Jóns- son, formaður stjórnar Sjávarorku en ákveðið var á stjórnarfundi í fyrradag að hefja þá vinnu. Einnig að stofna sjávarfallasetur í Stykkishólmi til að safna og halda utan um þekkingu um sjávarorku og bjóða erlendum fram- leiðendum aðstöðu til að prófa hverfla sína í Hvammsfirði. Sigurjón segir að fljótlega verði gengið frá ráðningu starfsmanns í verkefnið. Landsvirkjun gekk til liðs við Sjáv- arorku á síðasta ári með hlutafjár- framlagi og er nú stærsti hluthafinn ásamt RARIK og Skipavík. Sigurjón segir að það hafi styrkt fyrirtækið verulega. Umhverfisvæn virkjun Orkustofnun veitti Sjávarorku rannsóknarleyfi fyrir þremur árum. Er það fyrsta og eina leyfið sem gefið hefur verið út vegna sjávarfallavirkj- ana hér á landi. Leyfið tók aðeins til svæðis innan netalaga og fól ekki í sér fyrirheit um forgang að nýtingarleyfi. Sigurjón gerir sér vonir um að úr þessu verði bætt, eftir lagabreyting- ar. Hugmynd Sjávarorku byggist á svonefndum straumhverflum. Stríðir straumar á milli eyja og skerja í mynni Hvammsfjarðar yrðu virkjað- ir. Slík virkjun gerir stíflugarða óþarfa og hefur hverfandi áhrif á líf- ríkið, að sögn Sigurjóns. Þannig á all- ur fiskur að komast í gegn um hverfl- ana. Það hefur dregið úr hagkvæmni sjávarfallavirkjana að framleiðslan er sveiflukennd, fer eftir því hvernig stendur á falli. Þess vegna fæst lægra verð fyrir orkuna en úr virkjunum sem skila jafnari framleiðslu. Sigur- jón segir að bæta megi upp þessa van- kanta með samvinnu við eigendur vatnsaflsvirkjana. Með því að láta sjávarfallavirkjun spila á móti vatns- aflsvirkjun með miðlunarlóni megi spara vatnið í lóninu á meðan sjáv- arfallavirkjunin sé keyrð á fullu á fall- inu og eiga þá vatnsforða til að auka framleiðslu vatnsaflsvirkjunarinnar enn frekar á liggjandanum í Breiða- firði. Sérfræðingar hafa talið nokkuð í að sjávarfallavirkjanir yrðu samkeppn- isfærar í orkuverði hér á landi. Sig- urjón er bjartsýnn. „Það kæmi mér ekki á óvart að þetta yrði hagkvæmt innan fimm ára. Mikil þróun er í tæknibúnaði, það ræður miklu um hagkvæmnina að búnaðurinn nýti orkuna vel og sé áreiðanlegur.“ Kraftur í rannsóknir á sjávarorku  Sjávarorka ehf. setur upp sjávarorkusetur í Stykkishólmi  Erlendum framleiðendum boðin próf- unaraðstaða  Stefnt að lítilli tilraunavirkjun í Hvammsfirði á næstu tveimur til þremur árum Orka Mikill straumur er á milli eyja og skerja í mynni Hvammsfjarðar. Karl Vignir Þorsteinsson var í gærkvöldi úrskurðaður í héraðsdómi í tveggja vikna gæsluvarðhald. Karl Vignir er hnepptur í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhags- muna. Ekki fengust nánari upplýsingar um ástæður þess að farið var fram á gæsluvarðhald yfir Karli. Í tilkynningu segir að hann uni úrskurðinum og muni ekki áfrýja honum. Töluvert hefur verið fjallað um mál Karls Vignis í fjöl- miðlum undanfarna daga í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um kynferðisbrot hans. Grunsemdir um að Karl hefði framið nýrri brot en áður hefur komið fram kviknuðu við yfirheyrslur hjá lögreglu í gær. Í samtali við mbl.is um miðjan dag í gær sagði Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu, að lögreglan ætti von á að fá nýjar kærur eða tilkynn- ingar frá fórnarlömbum Karls Vignis, mál sem hugsanlega væru ekki fyrnd. Samkvæmt heimildum urðu nágrannar Karls Vignis í Hlíðunum varir við einhverskonar hópamyndun í garði við heimili hans. Þar munu nokkrir piltar hafa rætt um að komast inn í húsið. Þeir höfðu sig þó fljótlega á brott. »18 Grunsemdir um nýrri brot Karls Vignis kviknuðu Mynd/Pressphotos.biz Rannsókn Karl Vignir færður í gær til dómara sem úr- skurðaði hann í tveggja vikna gæsluvarðhald.  Úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald „Það eru um 45% af félagsmönnum Alþýðusam- bandsins sem hafa ekki fengið aukinn kaupmátt, hvorki á árinu 2011 eða 2012 og það eru allar lík- ur á að það verði ekki heldur á árinu 2013. Þess vegna hljóta allir að þurfa að finna leiðir með okkur til að mæta þessu,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eftir miðstjórnarfund í gær. Gylfi sagði við mbl.is að nú blasti það við ASÍ að meta hvort rétt væri að segja upp samningum núna og gera nýja samninga. Alveg ljóst væri að menn myndu ekki ná nýjum samn- ingi án átaka. Hinn kosturinn væri að bíða og búa sig undir átök á árinu 2014. Miðstjórnin krefst þess að stjórnvöld og atvinnulífið komi fram af ábyrgð í þeirri erfiðu stöðu sem blasi við. 45% fengu ekki aukinn kaupmátt Gylfi Arnbjörnsson  Ná ekki nýjum samningum án átaka LEIÐIN TIL HOLLUSTU Skyr.is drykkirnir standast þær ströngu kröfur sem gerðar eru til matvæla sem merktar eru Skráargatinu. Þú getur treyst á hollustu Skyr.is. www.skyr.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.