Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Hundurinn minn gekk fram á rjúpu
í neti. Þetta var um 50 sentimetra
hátt og örugglega hátt í 20 metra
langt þéttriðið nælonnet,“ sagði
Anna Margrét Sigurðardóttir, lyfja-
fræðingur í Neskaupstað. Hún var
að viðra hundinn sinn í skógræktinni
í Norðfirði undir lok nóvember sl.
þegar hún gekk fram á rjúpuna í
netinu sem var strekkt á milli trjáa
og lá niður við jörð. Netið var ramm-
lega uppsett og vandlega bundið við
trén. Anna Margrét var búin að
ganga þessa sömu leið nokkra daga í
röð og sagði að ekkert net hefði ver-
ið þarna daginn áður.
„Ég var þarna fyrir hádegi.
Netið hefur ekki verið uppi nema frá
kvöldinu áður,“ sagði Anna Margrét.
„Rjúpan var búin að berjast um og
orðin skorin inn í bringuna og blóð-
ug. Svo lenti hundurinn í því að fest-
ast í netinu og ég tók það niður.“
Anna Margrét sagði að netið
hefði verið það umfangsmikið að hún
hefði ekki getað komið því niður úr
skógræktinni og látið það liggja.
Hún fór þarna aftur daginn eftir og
sá þá spor eftir tvo menn og hund.
Búið var að fjarlægja netið. En hvað
varð um rjúpuna?
„Ég reyndi að bjarga henni en
henni var ekki viðbjargandi þannig
að ég aflífaði hana. Hún var svo illa
særð,“ sagði Anna Margrét.Hún lét
lögregluna vita samdægurs af net-
inu.
Jónas Vilhelmsson, yfirlög-
regluþjónn á Eskifirði, sagði að til-
kynning um netið hefði borist lög-
reglunni 29. nóvember síðastliðinn.
Lögreglumaður fór á vettvanginn.
„Því miður upplýstist málið
ekki. Það er pottþétt að netið var
sett þarna upp til þess að veiða rjúp-
ur,“ sagði Jónas.
Þetta á ekki að líðast
Ólafur Karl Nielsen, vistfræð-
ingur og rjúpnasérfræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands, sagði
að netið hefði ekki verið sett upp
vegna fuglamerkinga. Hann taldi
víst að það hefði verið notað til ólög-
legra veiða.
„Þetta er ólögleg veiðiaðferð og
á ekki að líðast,“ sagði Ólafur.
Fuglamerkingamenn nota stundum
net til að fanga fugla en víkja ekki
frá þeim á meðan þau eru notuð.
Ólöglegar netaveiðar á rjúpu í Norðfirði
Morgunblaðið/Ómar
Rjúpa Einhver strekkti net á milli trjáa í Norðfirði til þess að veiða rjúp-
ur. Aðferðin er ólögleg og á ekki að líðast, að sögn rjúpnasérfræðings.
Net var strekkt á milli trjáa í skógræktinni Blóðug og illa skorin rjúpa var föst í netinu Netið
sett upp til að veiða rjúpur, að mati lögreglu Ólögleg veiðiaðferð, segir rjúpnasérfræðingur
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Tíu manns, eða um helmingurinn
af þeim starfsmönnum sem eru
með skrifstofu í þeirri álmu Land-
spítalans við Hringbraut sem
myglusveppur hefur greinst, í hafa
verið mikið veikir undanfarið. Um
er að ræða ofnæmissjúkdóma í
öndunarfærum og ofnæmisbólgur í
nefholum, sumir hafa verið á
ströngum lyfjakúrum og aðrir hafa
auk þess farið í skurðaðgerðir á
nefholi í von um að losna við veik-
indin.
Veikindi Bjarna Torfasonar yf-
irlæknis hjarta- og brjósthols-
skurðlækninga á Landspítalanum
urðu til þess að myglusveppurinn
greindist í álmunni. „Ég hafði
versnað af einkennum í öndunar-
færum og frá nefholum þannig að í
fyrrasumar var gerð aðgerð á mér,
ég lagaðist lítið við það. Langvinnir
lyfjakúrar hjálpuðu lítið sem ekk-
ert því alltaf þegar ég mætti í vinn-
una varð ég veikur aftur. Ég var
farinn að tengja þetta við vinnuna
og nú finnst mér vera komin skýr-
ing á þessu öllu saman,“ segir
Bjarni. Skýringuna fékk hann þeg-
ar hann lét taka sýni á þriðju hæð-
inni, bæði úr vegg á vaktherbergi
skurðlækna og úr gólfi á skrif-
stofusvæðinu. Þessi sýni sýndu öll
lifandi myglusveppi af ýmsum toga
og mikinn raka í veggjunum.
„Við vitum ekki hversu umfangs-
mikill skaðinn er af þessum raka-
skemmdum og vitum ekki hversu
umfangsmikil áhrif þetta hefur haft
á starfsmenn. Á þessari hæð sem
er verst er u.þ.b. helmingur starfs-
fólksins með þessa sjúkdóma og
menn verða veikir þegar þeir koma
á staðinn,“ segir Bjarni. Sumir fóru
að finna fyrir einkennum fyrir
þremur árum, aðrir fyrir tveimur
en Bjarni segir að einkennin hafi
farið vaxandi og menn séu ansi
vissir um að rakinn og myglan sé
ástæðan.
Ekki hægt að lagfæra í hvelli
Skrifstofuálman er á hæðinni
fyrir ofan gjörgæsluna og þar fyrir
neðan liggja krabbameinssjúkling-
ar. Bjarni hefur áhyggjur af hæð-
unum fyrir neðan, enda leiti vatn
alltaf niður. Samkvæmt upplýsing-
um frá Landspítalanum hefur 2.
hæðin, þar sem gjörgæsludeildin
er, nú verið skoðuð af sýkingavörn-
um og byggingardeild LSH og
engin merki um sveppamyndun
hafi fundist þar.
Bjarni segir að allir á spítalanum
séu viljugir til að leysa vandamálið.
Það sé þó ljóst að ekki sé hægt að
laga húsnæðið í hvelli þannig að
starfsemi geti verið þar eins og
ekkert hafi í skorist. „Það tekur ef-
laust langan tíma, marga mánuði
eða ár, að lækna húsasóttina. Það
er ekki hægt að ætlast til þess að
fólk starfi í heilsuspillandi hús-
næði,“ segir Bjarni.
Flytja á starfsmennina úr þeim
herbergjum sem myglan greindist í
og koma þeim fyrir annarsstaðar í
húsinu.
Skorið niður í viðhaldi
Mjög hefur verið skorið niður á
viðhaldssviði Landspítalans á und-
anförnum árum að sögn Ingólfs
Þórissonar, framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs spítalans. „Fjár-
magnið sem við höfum nú til við-
halds húsa spítalans er um helm-
ingurinn af því sem það var fyrir
efnahagshrun,“ segir Ingólfur.
„Byggingar spítalans eru orðnar
gamlar og þurfa mikið viðhald. Við-
haldsféð okkar þyrfti að tvöfaldast
eða þrefaldast til að vel væri,“ bæt-
ir hann við. Um 300 milljónir eru
áætlaðar til viðhalds á byggingum
Landspítalans á árinu. 60 milljónir
fara í utanhússviðhald, um 240
milljónir fara í viðhald innanhúss
en inni í því eru ýmiskonar breyt-
ingar á húsnæði, málningarvinna,
gólfdúkaskipti og uppsetning á nýj-
um tækjum.
Rekstrarsviðinu var tilkynnt um
mygluna í skrifstofuálmunni um
hátíðirnar að sögn Ingólfs. Teymi
var strax sett saman til að skoða
mygluna og koma með tillögur að
aðgerðum og úrbótum. Ingólfur
segir að engin vitneskja sé um
myglu í öðru húsnæði spítalans.
Húsið viðkvæmt fyrir raka
Myglan greindist í elstu bygg-
ingu Landspítalans sem hafist var
handa við að byggja árið 1926. Ing-
ólfur segir að aðrar byggingarað-
ferðir hafi tíðkast þá. „Þetta er
hálfgerð samblanda af timburhúsi
og steyptu húsi og það er t.d. kork-
ur í einangrun. Þannig að húsið er
mjög viðkvæmt fyrir raka. Í sjálfu
sér á það ekki að koma neinum á
óvart að þetta húsnæði henti ekki
og við höfum oft bent á að það
hentar ekki fyrir okkar viðkvæm-
ustu starfsemi.“
Ingólfur segir að vitað hafi verið
af vandamáli með glugga á húsinu.
Ákveðið hafi verið í haust að end-
urnýja þá í sumar en viðhaldsféð
dugi bara til að taka hálfa fram-
hliðina, það allra nauðsynlegasta.
Spurður út í almennt ástand
bygginga Landspítalans, við
Hringbraut og í Fossvogi, svarar
Ingólfur að byggingarnar eigi það
allar sameiginlegt að vera orðnar
gamlar og þurfa mikið viðhald sem
ekki sé til fjármagn í að sinna.
„Síðasta sumar tókum við saman
brýnustu viðhaldsþörfina hjá okkur
og það er um milljarður króna. Í ár
völdum við að setja gömlu aðal-
bygginguna í forgang en við þurf-
um að áfangaskipta henni vegna
lítilla fjárveitinga og vinna hana á
nokkrum árum.“
Skemmdir Eins og sjá má af þessum myndum eru rakaskemmdir á veggjum og í glugga í þeirri álmu Landspítalans þar sem myglusveppurinn greindist.
Heilsuspillandi húsnæði
Myglusveppur í húsnæði Landspítalans talinn hafa valdið starfsmönnum veik-
indum Byggingar spítalans orðnar gamlar Fjármagn til viðhalds er lítið
Morgunblaðið/Golli
Formaður félags
íslenskra hjúkr-
unarfræðinga
segir að forstjóri
LSH og stjórn-
völd verði að átta
sig á því að nið-
urskurður und-
angenginna ára
hafi gengið of
langt.
„Hagsmuni og
öryggi sjúklinga er ekki hægt að
tryggja með of fáum, langþreyttum
hjúkrunarfræðingum, sem hafa tek-
ið á sig óhóflega vinnu fyrir óásætt-
anleg laun,“ segir Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, í pistli á heima-
síðu félagsins. Með ofangreindum
orðum svarar hún Birni Zoëga, sem í
viðtali í Fréttablaðinu í gær sagðist
vonast til að hægt yrði að leysa úr
þeirri vá sem fælist í rekstrar- og
mönnunarvanda spítalans með hags-
muni og öryggi sjúklinga að leiðar-
ljósi.
Meta þarf framlag hjúkrunar-
fræðinga að verðleikum
Elsa segir að ekki sé hægt að fást
við yfirvofandi vá nema til komi
verulegar kjarabætur til handa
hjúkrunarfræðingum. Í pistli sínum
segir Elsa að uppbygging og viðhald
á húsnæði og nýr tækjakostur á
Landspítalanum sé lítils virði án
hjúkrunarfræðinga, meta verði
framlag þeirra, menntun og færni að
verðleikum. Sem kunnugt er hefur
fjöldi hjúkrunarfræðinga á spítal-
anum sagt upp störfum.
Kallar eftir
verulegum
kjarabótum
Yfirvofandi vá ekki
leyst á annan hátt
Elsa B.
Friðfinnsdóttir
Enginn hefur verið handtekinn í
tengslum við nauðgun í Reykjavík
aðfaranótt sunnudags. Í fjölmiðlum
hefur komið fram að um hópnauðg-
un hafi verið að ræða en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu var aðeins
um einn geranda að ræða. Þó er ekki
útilokað að annar aðili hafi staðið
hjá, sá aðili hafi ekki tekið þátt í
árásinni en hinsvegar ekkert aðhafst
til að hjálpa þolanda. Verið er að
safna upplýsingum úr eftirlits-
myndavélum en að öðru leyti er mál-
ið óljóst að sögn lögreglu.
Einn gerandi
og rannsókn
stendur yfir
„Þetta er
grafalvarlegt
mál og sýnir
að þótt það
séu uppi
áform um að
byggja nýjan
spítala verð-
um við líka að
vera í við-
unandi hús-
næði, sem ekki er heilsuspill-
andi, fram að því að við hefjum
starfsemi á nýjum spítala,“ seg-
ir Bjarni Torfason.
Þarf viðun-
andi húsnæði
YFIRLÆKNIR LSH
Bjarni
Torfason