Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hafði sjálf verið einnaf smölunum árið áður ífyrstu leit Tungnamannaog vissi því út á hvað slík
fjallferð gengur. Fyrir vikið vissi ég
líka hvað ég vildi fanga á filmu og
hvað ekki,“ segir kvikmyndagerð-
arkonan Ólöf Hermannsdóttir sem
langaði til að festa á filmu minn-
ingabrot úr fjallferð og skellti sér
því aftur á fjall í haust, en án
hnakks og hests. Aftur á móti var
upptökuvél með í för og Ólöf tók
líka með sér aðstoðarkonuna Guð-
borgu Kolbeins sem á ættir að rekja
til Biskupstungna og er mikil hesta-
kona, rétt eins og Ólöf. „Ég greip
þetta gullna tækifæri feginshendi,
enda hafði mig alltaf dreymt um að
komast í fjallferð,“ segir Guðborg
og bætir við að féð sem kemur af
fjalli sé rekið í Tungnaréttir, en
ágóðinn af sölu myndarinnar rennur
einmitt til styrktar réttunum sem
nú er verið að endurbyggja.
Ógleymanlegt ævintýr
„Upphaflega ætlaði ég reyndar
einungis að filma í réttunum og
gera litla kvikmynd um þennan frá-
bæra dag sem réttardagurinn í
Tungunum er, en það endaði sem-
sagt á heilli fjallferð. Þó er í mynd-
inni heilmikið efni úr réttunum
sjálfum, söngurinn og allt atið,“ seg-
Á fjalli í fárviðri með
syngjandi smölum
Þær slógust í för með smölum Biskupstungnamanna í fyrstu leit síðastliðið haust
til að festa á filmu lífið í smalamennsku. Fárviðri skall á og leitarmenn þurftu að
halda kyrru fyrir í skálum í heilan sólarhring og réttum var frestað um dag.
Afrakstur ferðar er kvikmynd sem er ómetanleg heimild um óvenjulega fjallferð.
Morgunblaðið/Ómar
Á nýju ári Ólöf og Guðborg eru búnar að taka hross á hús fyrir veturinn.
Til byggða Safnið rennur yfir Tungufljótsbrú daginn fyrir réttir.
Af ýmsum ástæðum þarf fólk stund-
um að leita í hljóðbanka eftir hinum
ýmsu hljóðum. Þá er tilvalið að fara
inn á síðu sem heitir findsounds.com,
sem á íslensku gæti útlagst: finna
hljóð. Þarna er hægt að finna nánast
hvaða hljóð sem er, hvort sem það er
hundur að gelta, barn að hrópa, kona
að syngja eða hvað annað hljóð sem
fólk leitar að. Eina sem þarf að gera
er að slá inn leitarorð (reyndar á
ensku), t.d. dog barking, kid shouting
eða woman singing. Hægt er að hlaða
þessum hljóðum niður ef fólk vill
nota þau í einhverjum tilgangi, en
sumum finnst einfaldlega gaman að
sækja sér hljóð til að hlusta á.
Vefsíðan www.findsounds.com
Morgunblaðið/RAX
Gjamm Eitt af þeim hljóðum sem hægt er að sækja á síðuna er hundsgelt.
Hundgá, hróp í barni og fleira
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Eftir að hafa kýlt vömbina í marga
daga yfir hátíðarnar er ekki laust við
að löngun taki að sækja á í eitthvað
létt og ferskt. Svalandi þeytingur
með ávöxtum og nóg af klaka er t.d.
tilvalin leið til að byrja daginn. Í einn
góðan slíkan má t.d. setja hreinan
safa til móts við vatn. Eða búa til í
safavél safa úr selleríi, gúrku, gulrót-
um og engifer. Skella blöndunni síðan
í blandarann með spínati og frosnum
ananas. Ef þú vilt búa til spariútgáfu
má setja ferskan ananas eða mangó.
Fínt líka til að taka með sér í vinnuna
eða á flakk í bílnum.
Endilega …
… munið eftir
hollustunni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þeytingur Ananas er góður í drykk.
Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið
frumsýna næsta laugardag 12. janúar
nýtt íslenskt verk sem heitir Hjarta-
spaðar. Í þessu verki eru farnar nýjar
slóðir í leiklist á Íslandi en þetta er
fyrsta verkið sem leikið er með heil-
grímum án orða í sýningu í fullri
lengd. Verkið fjallar um drephlægileg
uppátæki eldri borgaranna á dvalar-
heimilinu Grafarbakka sem sanna svo
rækilega að lífið er ekki búið eftir átt-
rætt. Leikstjóri sýningarinnar er
Ágústa Skúladóttir sem hefur sett
mark sitt á íslenskt leikhúslíf með
uppsetningum sínum á Grímusýning-
unum Klaufum og kóngsdætrum og
Bólu-Hjálmari, Dýrunum í Hálsaskógi,
óperunni Töfraflautunni og Ævintýri
Múnkhásens. Hópurinn hefur skapað
ákaflega sjónræna sýningu þar sem
grímuleikur og hreyfingar miðla sög-
unni en ekki töluð orð. Þetta er
draumkenndur óður til elliáranna,
fullur af töfrum og ólíkindahætti sem
allir geta notið, óháð tungumáli,
heyrnartækjum og göngugrindum.
Ellilífeyrisþegar fá sérstakan afslátt
af miðaverði.
Hjartaspaðar í Gaflaraleikhúsinu
Leikararnir Allir verða með grímur.
Með heilgrímur
og án orða
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV
0113
RV birginn þinn - í skrifstofuvörum
Vönduðbréfabindi ímiklu úrvaliVerð frá
288 kr./stk.
Ljósritunar-prentpappír500 bl/búntVerð frá
499 kr.
12 stk.Trélitir
297 kr.
Reiknivélar10 stafa
1.598 kr.