Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 11
ir Ólöf. Guðborg segist hafa orðið ofurspennt þegar Ólöf bauð henni að koma með sér sem aðstoð- armanneskja. „Þetta var mitt tæki- færi til að upplifa fjallferð, sem mig hafði alltaf dreymt um. Ég gat ekki látið þetta framhjá mér fara og skellti mér með. Þetta var ógleym- anlegt ævintýr að vera í heila viku með þessum góða hópi smala og ráðskvenna.“ Bank um nótt á Hveravöllum Þær segja fjallferðina hafa ver- ið mjög óvenjulega, því slíkt óveður skall á að fjallmenn þurftu að halda kyrru fyrir í gistiskálum í heilan sólarhring og varð það til þess að réttunum var frestað um einn dag. „Við Ólöf fórum frá Hveravöllum á jeppanum klukkan átta um kvöldið skömmu áður en veðrið skall á. Við réttum sluppum því veðrið var orðið kolvitlaust þegar við komum í Gísla- skála. Enda voru björgunarsveitar- bílarnir sex tíma að komast þessa sömu leið inn úr seinna um kvöldið. Um nóttina lék húsið í Gíslaskála á reiðiskjálfi, við sváfum á efri hæð- inni og það hristist eins og það væri jarðskjálfti. Enginn fór út úr húsi ótilneyddur. Fjallmennirnir sem voru á Hveravöllum þessa nótt vöknuðu oft upp við bank, því þá voru veslings kindurnar sem þeir höfðu smalað fyrr um daginn að slá hornunum við húsvegginn, þær voru brynjaðar af snjó og klaka. Daginn eftir að veðrinu slotaði þurftu þeir sem voru á Hveravöllum að ríða í Gíslaskála og það var ekki auðvelt. Færðin var afar þung og allt á kafi í snjó. Þeir þurftu að skilja sjötíu kindur eftir á Hveravöllum sem voru sóttar seinna.“ Þurftu að pissa í fötur Á Hveravöllum er ekkert kló- sett inni í húsi og því þurftu smalar sem biðu þar af sér óveðrið að berj- ast á kamarinn, en flestir gáfust fljótt upp á því, slíkur var veður- hamurinn. Brá fólk þá á það ráð að pissa í fötur inni. Einn af smöl- unum, Klemenz Karl Guðmundsson, fékk senda þessa vísu frá Haraldi frænda sínum á Hólum á Rangár- völlum að kvöldi dagsins sem legið var inni: Yfir kaldan eyðisand engum fært í bili, frýs í koppum fúlnað hland úr fjallmönnum á Kili. Á kafi Gríðarlegur snjór lagðist að húsum í óveðrinu og lengi var mokað. Veðurhamur Smalinn Óskar á Bóli vindbarinn í óveðrinu á leið milli húsa. Filmað Ólöf eltir fjallkónginn sem skipar menn í leitir, Sævar á milli þeirra. Réttardagur Loftur fjallkóngur og fleiri reka féð inn í almenning í blíðu. Smalar Egill Jónasson og fleiri smalar leggja í hann á björtum degi frá Gíslaskála. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Norrænar myndasögur dagsins í dag verða til sýnis á Nordicomics Islands sýningunni sem hefst næsta laugar- dag, 12. janúar, kl. 15 í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur í Tryggvagötu. Á sýningunni er sjónum beint að norrænum myndasöguhöf- undum, þar á meðal frá Íslandi, Grænlandi og Álandseyjum. Þemu sýningarinnar snúa að frábrigðum og fjarlægðum milli fólks og landsvæða; túlkun aðkomumanns á ókunnugu umhverfi; og sagnfræðilegum og til- finningalegum landsvæðum norðurs- ins, frá persónulegu sjónarhorni höf- undarins. Nordicomics Islands sýningin ferðast á milli eyjaborganna Reykjavíkur, Nuuk, Maríuhafnar og Þórshafnar vorið 2013. Nákvæmar dagsetningar og nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Nordcomics: www.nordicomics.info Nordicomics Islands Norrænar myndasögur Mynd Ólafar, Þjófadalafjöllin, Minningabrot úr fjallferð Tungnamanna 2012, er 40 mín- útna löng og fæst á dvd-diski í Bjarnabúð í Reykholti í Biskups- tungum. Einnig er hægt að nálg- ast diskinn í gegnum facebook: Vinir Tungnarétta. Takmarkað upplag er til af myndinni og hvur að verða síðastur að ná sér í eintak. Minningabrot úr fjallferð DVD-DISKUR Á Krúsku færðu: heilsusamlegan mat, kjúklingarétti, grænmetisrétti, fersk salöt, heilsudrykki, súkkulaðiköku, gæðakaffi frá Kaffitár og fallega stemningu. Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI Næring fyrir líkama og sál

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.