Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 13
rannsóknargögn á fullnægjandi hátt
samkvæmt kröfum Orkustofnunar
og fá heimild til rannsókna á hverju
stigi, þannig að þær uppfylli kröfur
rannsóknaráætlunar. Orkustofnun
er heimilt að framlengja leyfið til
allt að tveggja ára í senn en há-
markstími leyfis til rannsókna skal
ekki vera meiri en 16 ár.
Uppfylli leyfishafi öll skilyrði á
hann forgang á að framlengja leyfi
til vinnslu kolvetnis í allt að 30 ár.
Leyfishafinn getur gefið eftir hluta
leyfissvæðisins að loknu hverju und-
irtímabili, þ.e. afmarkað tiltekið
svæði, og gefið annað eftir, að
fengnu samþykki Orkustofnunar.
Er leyfishöfum óheimilt að fram-
selja leyfið til þriðja aðila eða sam-
leyfishafa nema með samþykki
Orkustofnunar.
Leyfishafi getur sem fyrr segir
kært úrskurði Orkustofnunar til úr-
skurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindanefndar og skal ágreiningurinn
meðhöndlaður samkvæmt íslensk-
um lögum og skal dómstóllinn vera í
Reykjavík.
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
„Stjórnvöld geta ekki stöðvað ferlið
ef öll skilyrði eru uppfyllt. En það
er hægt að setja skilyrði, sem eru
málefnaleg, m.t.t. umhverfismála
og slíks, og leyfishafa verður að
gefast kostur á að uppfylla þau,“
segir Gunnlaugur Jónsson,
stjórnarformaður Kolvetna ehf.,
spurður um þau ummæli Stein-
gríms J. Sigfússonar, atvinnuvega-
og nýsköpunarráðherra, að þrátt
fyrir sérleyfi til rannsókna og
vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu
sé ekki í hendi að leyfi fyrir frekari
vinnslu og borunum fengist.
„Kerfið gengur út á að úthluta
vinnsluleyfum til aðila sem leggja á
grundvelli þeirra í mikinn kostnað
og taka um leið mikla fjárhagslega
áhættu. Í hverri tilraunaborun eru
minni líkur en meiri á að olía finn-
ist. Líkurnar á því geta t.d. verið
10-20% en kostnaðurinn getur verið
frá 100 og upp í 200 milljónir
bandaríkjadala [eða frá 13 og upp í
26 milljarða kr. á núverandi gengi].
Kostnaðurinn við hljóðendur-
varpsmælingar, eða það sem er
stundum nefnt jarðsveiflu- eða
bergmálsmælingar, er einnig veru-
legur. Rannsóknarleyfið kveður
annars vegar á um tvívíðar mæl-
ingar sem kosta á bilinu 5-10 millj-
ónir dala og hins vegar á um þrí-
víðar mælingar sem kosta svipað en
eru á afmarkaðra svæði,“ segir
Gunnlaugur og heldur áfram.
Réttur til vinnslu er forsenda
„Menn leggja ekki út í þennan
kostnað við rannsóknir og mæl-
ingar nema að hafa rétt til vinnslu í
kjölfarið. Íslendingar notast í þessu
efni við sömu aðferð og Norðmenn
og fleiri hafa gert. Þar sem leyfi
hafa verið veitt er staðið við þau.
Stjórnvöld geta þannig ekki tekið
ákvarðanir sem virða ekki rétt
leyfishafa til vinnslu. Lögin og leyf-
in bera það með sér að um sé að
ræða vinnslu. Þá má nefna að
leyfishafar borga ríkinu árleg
leyfisgjöld, sem að sjálfsögðu væri
ekki ef leyfin fælu ekki í sér skýr
réttindi sem geta reynst verðmæt.“
segir Gunnlaugur.
Verða að
fá umbun
Í olíunni Gunnlaugur Jónsson.
Leit að olíunni
kostar milljarða
EFLA verkfræðistofa kom að hönnun mann-
virkja við gerð fjögurra kílómetra langs vegar
sem nýlega var opnaður við hátíðlega athöfn í
nágrenni Stavanger í Noregi.
Vegurinn, Solasplitten, er fjögurra akreina og
tengir flugvöllinn í Sola við E-39 hraðbrautina.
Einnig tengir hann flugvöllinn betur við hverfið
Forus þar sem mörg af helstu tækni- og iðn-
aðarfyrirtækjum olíuiðnaðarins eru með skrif-
stofur og framleiðslu.
Á þessum fjögurra kílómetra kafla eru fern
mislæg gatnamót, tvær göngubrýr, ein jarð-
göng, 300 metra langur steyptur stokkur, und-
irgöng fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
EFLA hefur komið að hönnun frá upphafi og
annaðist meðal annars ofanvatnskerfi vegarins
og settjarnir. Ofanvatnsskurður var lagður í
stokk undir veginn og er hann þannig útfærður
að froskar og önnur smádýr eiga greiða leið þar
um. Settjarnir eru þrjár og hafa einnig það
hlutverk að miðla ofanvatninu inn í yfirlestuð
fráveitukerfi sveitarfélaganna. EFLA sá einnig
um hönnun á færslu allra lagna sveitarfélag-
anna. Á framkvæmdatímanum annaðist íslenska
verkfræðistofan samræmingu hönnunar og hélt
utan um allar breytingar sem gerðar voru á
hönnun.
Norska vegagerðin stóð fyrir framkvæmdinni
sem kostaði um 600 milljónir norskra króna sem
svarar til nærri 14 milljarða íslenskra króna.
Þótt vegurinn hafi verið opnaður fyrir umferð
er eftir að ljúka uppgræðslu og fleiru. Áætlað er
að öllu verði lokið um mitt ár.
EFLA tók þátt í hönnun Solasplitten
14 milljarða króna vegaframkvæmd tekin í notkun við Stavanger í Noregi
Ljósmynd/Ole Harald Dale
Brú Fern mislæg gatnamót eru á veginum.