Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 14
97 nemendaíbúðir fyrir ein-
staklinga munu rísa við Braut-
arholt 7, á 2.480 fermetra lóða-
svæði í Rauðarárholti, samkvæmt
tillögu að deiliskipulagi Reykjavík-
urborgar.
Kynningarfundur vegna deili-
skipulagsins var haldinn sl. þriðju-
dag. Íbúar í nágrenninu og rekstr-
araðilar gerðu athugasemdir við fá
bílastæði á svæðinu. Samkvæmt
skipulaginu er gert ráð fyrir átta
bílastæðum við bygginguna, þar af
tveimur fyrir fatlaða. Svæðið sem
um ræðir er nú bílastæðalóð.
„Fólki bregður við að fá hús al-
veg upp að svölunum sínum. Gert
er ráð fyrir fáum bílastæðum við
húsið en að auki hafa gestir notað
bílastæðin sem eru á reitnum,“
segir Helga Jónsdóttir, íbúi í Ás-
holti 24 og formaður húsfélagsins.
Hún sagðist hafa fengið fyrir-
spurnir frá íbúum, hvort og hvern-
ig hægt væri að mótmæla byggð-
inni. Húsfélagið mun funda áður
en frestur til athugasemda við
deiliskipulagið rennur út 23. jan-
úar næstkomandi.
Verkið verður ekki boðið út fyrr
en deiliskipulagsferli er lokið, sam-
kvæmt Hákoni Erni Arnþórssyni,
formanni FS.
Stúdentar noti strætó og hjól
Ætlast er til að stúdentar noti
fyrst og fremst almennings-
samgöngur og hjól sem ferðamáta,
samkvæmt tillögunni. „Þetta er
tækifæri til að snúa við þeirri þró-
un þar sem gert er ráð fyrir að
fólk eigi bíla,“ segir Margrét Leifs-
dóttir, arkitekt og verkefnastjóri
deiliskipulagsins.
Varðandi bílastæðin segir Hákon
þetta í samræmi við aðra stúd-
entagarða og bendir á að margir
nemendur séu bíllausir. Þá sé fjar-
lægðin frá háskólasamfélaginu
hentug til að hjóla eða ganga auk
þess sem strætósamgöngur séu
góðar. Markmið með byggingu
stúdentagarða á þessum stað er að
færa mannlíf inn á svæðið og þétta
byggð sem áður var iðnaðar- og at-
vinnuhúsnæði, samkvæmt tillög-
unni. Hákon bendir á að þetta sam-
ræmist stefnu borgarinnar um
þéttingu byggðar.
Biðlistar munu styttast
„Biðlistar munu að sjálfsögðu
styttast eitthvað en að sama skapi
hefur eftirspurn verið að aukast og
þeir lengjast ár hvert. Eftir að út-
hlutun lauk nú í haust voru t.d.
rúmlega 1.000 manns eftir á bið-
lista, sem eru fleiri en nokkru sinni
áður,“ segir Hákon.
thorunn@mbl.is
97 íbúðir fyrir nemend-
ur á deiliskipulagi
Ætlast til að stúdentar noti almenningssamgöngur
Nemendaíbúðir Húsin verða á tveimur hæðum og snúa inn að torgi/innigarði. Lagt er til að útlit húsanna verði
brotið upp í smærri einingar sem eru í mælikvarða miðborgarinnar og til að koma í veg fyrir einsleitt yfirbragð.
Stúdentaíbúðir við Brautarholt 7
Loftmyndir ehf.
Laugavegur Laugavegur
Brautarholt
M
jölnisholt Ásholt
S
túfholt
Þv
er
ho
lt
Stakkholt
Þv
er
ho
lt
Stórholt
Brautarholt 7
Fyrirhugaður
byggingareitur
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Flugför Landhelgisgæslunnar fá í
dag gefin út ný lofthæfisskírteini.
Með þeim á að taka af allan vafa um
að flugförin og áhafnir þeirra hafi
heimild til þess að fljúga út fyrir 12
mílna landhelgi til að geta sinnt lög-
bundnu hlutverki sínu innan efna-
hagslögsögunnar.
„Ég vil ítreka að það eru engar
skorður í nýju reglugerðinni og eng-
in takmörk á flugi utan land- og loft-
helgi, en orðalag sem hefur verið í
þessum lofthæfisskírteinum er að
valda misskilningi núna. Flugmála-
stjórn telur því ástæðu til að breyta
því orðalagi þar sem þetta orðalag
hefur verið í þessum skírteinum í
mörg ár,“ segir Valdís Ásta Aðal-
steinsdóttir, upplýsingafulltrúi
Flugmálastjórnar Íslands.
Á við um allan flugflotann
Valdís segir að skírteinin verði
gefin út á allan flugflota Landhelgis-
gæslunnar, þar með talið TF-SYN,
sem í dag er eina loftfar Gæslunnar
sem hefur leyfi frá EASA, Flugör-
yggisstofnun Evrópu. Hin loftförin,
TF-SIF, TF-LIF og TF-GNA,
starfa í dag einungis eftir leyfum frá
íslenskum flugmálayfirvöldum.
Eftir fréttir á mbl.is í fyrrakvöld
og á forsíðu Morgunblaðsins í gær
sendi Flugmálastjórn frá sér yfirlýs-
ingu þar sem segir meðal annars:
„Engar nýjar skorður hafa verið
settar með nýju reglugerðinni varð-
andi leitar- og björgunarhlutverk
Landhelgisgæslunnar og flugrekst-
ur á þyrlum hennar. Afla þarf viðeig-
andi leyfa sé ætlunin að fljúga í loft-
helgi annars ríkis eins og áður.“
Í yfirlýsingunni segir einnig: „Á
alþjóðlegu flugsvæði við Ísland, fyrir
utan lofthelgi Íslands, þarf ekki sér-
staka heimild og engar skorður eru í
nýju reglugerðinni við flugi utan 12
mílna eins og gefið er til kynna í frétt
Morgunblaðsins.“
Heimildir blaðsins traustar
Morgunblaðið áréttar að frétt
blaðsins á forsíðu þess í gær byggist
á traustum heimildum manna sem
þekkja mjög vel til málsins.
Í fréttinni kom fram að loftför
Gæslunnar hefðu fengið nýja skrán-
ingu um síðustu áramót og heyrðu
nú undir íslenska reglugerð en ein-
ungis eitt þeirra undir reglugerð
EASA. Haft var eftir heimildum að
sá flugstjóri sem flygi loftfari sem
ekki heyrði undir EASA út fyrir
landhelgi bryti með því reglur og
jafnvel tryggingaskilmála og óvíst
væri hvort áhöfnin væri tryggð.
Sú staðreynd að í dag verða gefin
út ný lofthæfiskírteini sýnir að ekki
lá skýrt fyrir að heimilt væri að
fljúga öllum flugflota Gæslunnar út
fyrir 12 mílna lofthelgi. Með útgáfu
nýrra skírteina staðfestir Flugmála-
stjórn raunar þennan misskilning
sem sagður er hafa verið til staðar og
að ástæða hafi verið til þess að eyða
honum með útgáfu nýrra lofthæfis-
skilríkja á allan flugflota Gæslunnar.
Ekki áður valdið misskilningi
Morgunblaðið hefur jafnframt
heimildir fyrir því að það sé rúmt ár
síðan málið kom upp og að það hafi
síðan verið hérlendis í meðförum hjá
Flugmálastjórn og Landhelgisgæsl-
unni en einnig komið inn á borð inn-
anríkisráðuneytisins. Þá hefur blaðið
heimildir fyrir því að Landhelgis-
gæslan hafi gert athugasemdir við
málið og verið í samskiptum við inn-
anríkisráðuneytið fyrir áramót
vegna þess. Lögmaður Landhelgis-
gæslunnar sendi síðast erindi til
ráðuneytisins í gærmorgun.
Leitað var svara við því hvort ekki
hefði verið ástæða til að yfirfara loft-
hæfisleyfi flugflotans af hálfu Flug-
málastjórnar áður en breytingin átti
sér stað um áramót. Í svari upplýs-
ingafulltrúa Flugmálastjórnar kom
fram að orðalagið hefði ekki áður
verið mistúlkað og því væri fyrst nú
verið að endurskoða leyfin.
Loftför Gæsl-
unnar fá ný loft-
hæfisleyfi í dag
Orðalag sagt hafa valdið misskilningi
Rúmt ár síðan málið kom til vinnslu
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Á hafi úti Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar við æfingastörf á hafi úti.
KEMUR HEILSUNNI Í LAG 20% AFSLÁTTUR Í JANÚAR
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA / FÆST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT