Morgunblaðið - 10.01.2013, Page 16

Morgunblaðið - 10.01.2013, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Árið 2012 var mjög hlýtt, sér- staklega um landið vestanvert. Þannig var árið það sjöunda hlýjasta frá upphafi mælinga í Stykkishólmi, en þær spanna síðustu 177 árin. „Ekkert lát virðist vera á hlýind- unum miklu sem hófust skömmu fyr- ir aldamót,“ segir Trausti Jónsson veðurfæðingur í ítarlegu veðuryf- irliti ársins 2012 sem hann hefur tekið saman og birt er á vef Veð- urstofu Íslands. Í Reykjavík er árið það 17. í óslit- inni röð ára þar sem árshitinn er yfir meðallagi og það 14. á Akureyri. Meðalhitinn í Reykjavík var 5,5 stig og er það um 1,2 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 og í meðallagi sé miðað við árin 2001 til 2010. Á Akureyri var meðalhitinn 4,3 stig. Það er 1,1 stigi ofan með- allags. Meðalhiti ársins 2012 mældist hæstur í Surtsey, 6,8 stig, og 6,6 stig á Garðskagavita. Á vegagerð- arstöðvunum var meðalhitinn hæst- ur á Steinum undir Eyjafjöllum, 6,7 stig. Lægsti meðalhiti ársins mældist á Brúarjökli -2,1 stig og -1,9 stig á Gagnheiði. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal, 1,1 stig og 1,3 stig í Svartárkoti í Bárðardal. Á vegagerðarstöðvunum var meðalhiti lægstur á Öxi og Fjarðarheiði, 0,2 stig. Hæsti hiti ársins mældist á Eski- firði 9. ágúst, 28,0 stig. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist 26,2 stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði 10. ágúst. Lægsti hiti ársins mældist á Brúarjökli 2. apríl, -25,7 stig. Í byggð mældist hiti lægstur í Svart- árkoti á jóladag, 25. desember, -24,6 stig. Á mannaðri stöð mældist hiti lægstur á Grímsstöðum á Fjöllum 19. desember, -20,0 stig. Hæsti há- markshiti ársins í Reykjavík mældist 21,3 stig þann 16. ágúst. Hæsti há- markshiti ársins á Akureyri mældist þann 9. ágúst, 24,4 stig. Lægsti lágmarkshiti ársins í Reykjavík mældist þann 3. janúar, -7,9 stig. Lægsta lágmark ársins hef- ur aldrei orðið jafnhátt í Reykjavík frá upphafi mælinga, segir Trausti. Á Akureyri mældist lægsta lágmark -12,3 stig þann 18. mars. Er það líka óvenjuhátt ársgildi en var lítillega hærra árið 2005 [-11,9]. Úrkoma í Reykjavík mældist 966,6 millimetrar en það er um 21% yfir meðallagi, þar af féllu 70,4 mm á einum degi 29. desember. Úrkoma hefur aldrei mælst svo mikil á einum sólarhring í Reykjavík. Úrkoma á Akureyri mældist 578,9 mm og er það um 18% yfir meðallagi en óvenjuúrkomusamt var þar í sept- ember og nóvember. Sólskinsmet féllu Árið var sérlega sólríkt bæði suð- vestanlands og á Norðurlandi. Sól- skinsstundir mældust 1.587 í Reykjavík á árinu og hafa aðeins einu sinni mælst fleiri. Það var árið 1924. Þetta var þrettánda árið í röð sem sólskinsstundafjöldi er yfir með- allagi áranna 1961 til 1990. Á Ak- ureyri mældust sólskinsstundirnar 1.415 og hafa aldrei mælst fleiri á einu ári. Þetta er nærri 140 stundum meira en áður hefur mest mælst á einu ári á Akureyri. Þó eignaðist ár- ið þar ekkert mánaðarmet. „Ekkert lát á hlýindunum miklu“ Meðalhiti á nokkrum veðurstöðvum 2012 Reykjavík 12. heitasta ár af 142 mældum Stykkishólmur 7. heitasta ár af 177 mældum Bolungarvík 13. heitasta ár af 115 mældum Grímsey 13. heitasta ár af 139 mældum Akureyri 18. heitasta ár af 131 mældum Egilsstaðir 21. heitasta ár af 58 mældum Dalatangi 22. heitasta ár af 74 mældum Teigarhorn 17. til 18. heitasta ár af 140 mældum Fagurhólsmýri 22. heitasta ár af 110 mældum Kirkjubæjarklaustur 23. heitasta ár af 86 mældum Stórhöfði 14. til 15. heitasta ár af 135 mældum Hveravellir 4. heitasta ár af 47 mældum Hæll 13. til 14. heitasta ár af 132 mældum Eyrarbakki 20. heitasta ár af 117 mældum Meðalhiti á viðkomandi veðurstöð 2012 (°C) Meðalhiti á viðkomandi veðurstöð 1961-1990 (°C) 5,4° 5° 4,2° 3,7° 4,3° 3,7° 4,4° 4,5° 5,5° 5,3° 5,8° 0,6° 4,7° 5,1° 4,2° 3,5° 2,9° 2,4° 3,2° 2,9° 3,5° 3,7° 4,6° 4,5° 4,8° -1,1° 3,6° 4,1°  Árið 2012 fer í veðurannála sem hlýtt, sólríkt en úrkomusamt  Árið reyndist vera það 7. hlýjasta í Stykkishólmi síðan mælingar hófust fyrir 177 árum Lögreglan á Suðurnesjum og Reykjanesbær hafa að undanförnu unnið að því að endurnýja sam- komulag við veitingamenn í Reykjanesbæ. Samkomulagið er að nokkru leyti byggt á samkomulagi sem gert var árið 2007, en hefur þó verið uppfært í ljósi reynslunnar af því. Í nýja samkomulaginu styttist af- greiðslutíminn m.a. á fimmtudögum umtalsvert, en þar er gert ráð fyrir að stöðunum sé lokað eigi síðar en kl. eitt og allri áfengissölu lokið klukkan eitt. Gestir skulu hafa yfir- gefið veitingastaðinn eigi síðar en einni klukkustund eftir lokun. Um helgar og almenna frídaga er veitingamönnum heimilt að hafa opið í síðasta lagi til hálffimm að nóttu, þannig að ekki verði hleypt inn á staðinn eftir kl. hálffimm og allir gestir hafi yfirgefið veitinga- staðinn kl. fimm. Þá skal áfengis- sölu lokið kl. hálffimm, samkvæmt upplýsingum frá Reykjanesbæ. Morgunblaðið/Svanhildur Reykjanesbær Nýtt samkomulag milli lögreglu og veitingamanna. Breyta af- greiðslu- tímanum  Samið við veitinga- hús í Reykjanesbæ Hafnarfjarðarbær hefur ekki áhuga á að byggja viðbyggingu við Ás- landsskóla í einkaframkvæmd, en skólinn sjálfur var byggður í einka- framkvæmd. Eyjólfur Sæmunds- son, formaður fræðsluráðs Hafnar- fjarðar, segir við mbl.is að brýnt sé að stækka skólann því íbúum hafi fjölgað og eigi eftir að fjölga. Á sínum tíma var talsvert um að sveitarfélög fjármögnuðu opinberar byggingar í einkaframkvæmd, m.a. skóla. Eftir hrun keyptu sveitar- félögin sumar þessar byggingar. Þannig eignaðist Hafnarfjarðarbær opinberar byggingar eftir að Nýsir varð gjaldþrota. Áslandsskóli er hins vegar enn í einkaframkvæmd og er, eftir því sem best er vitað, eini grunnskólinn á höfuðborg- arsvæðinu í einkaframkvæmd. Hús- næðið er í eigu FM-húsa ehf. og fé- lagið á einnig lóðina við skólann þar sem fyrirhugað er að byggja við hann. „Bærinn hefur ekki umráð yfir lóðinni, en hann hefur ekki áhuga á að bæta þessari viðbyggingu við í einkaframkvæmdina. Við erum að skoða hvaða lausnir eru mögulegar í málinu, en þetta flækir það,“ segir Eyjólfur. egol@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Áslandsskóli Skólinn var á sínum tíma byggður í einkaframkvæmd. Vilja ekki byggja við í einkaframkvæmd  Talið brýnt að stækka Áslandsskóla PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 18 16 www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind LÁTTU FAGMENN META GULLIÐ Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku á þessu sviði. Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri skartgripagæðum. Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og framleiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri. Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum. Það skiptir mestu máli. Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki. Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18. Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði. Útsalan hefst í dag kl. 10 Klappastíg 44 - sími 562 3614 Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni • Nýtt kortatímabil ÚTSALA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.