Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Skýrslan er algerlega skýr og
nefndin gekk eins langt í að álykta
afdráttarlaust um sannleiksgildi
þessara frásagna og mögulegt var.
Við höfum upplýsingar um það að
aðrir sem dvöldust þarna hafi verið
mjög sáttir við umfjöllun nefndar-
innar,“ segir Róbert Spanó, formað-
ur Vistheimilanefndar, um gagnrýni
vistmanna á Kumbaravogi á skýrslu
nefndarinnar.
Þær Erna Agnarsdóttir og María
Haraldsdóttir gagnrýndu skýrslu
Vistheimilanefndarinnar í viðtali í
Kastljósi á þriðjudagskvöld, meðal
annars á þeim forsendum að brot
Karls Vignis Þorsteinssonar gegn
börnum á Kumbaravogi hefðu varla
verið nefnd í henni.
Þá eru þær ósáttar við það orðalag
nefndarinnar að „meiri líkur en
minni“ hafi verið á því að börnin hafi
þurft að sæta kynferðisofbeldi af
hálfu Karls Vignis.
Karl Vignir ekki kallaður til
Róbert segir að nefndinni hafi
ekki verið ætlað að fjalla um sekt
manna eða sýknu. Hún hafi ekki haft
lögregluvald og hafi aðeins getað
skyldað yfirmenn og starfsfólk vist-
heimila á fund sinn.
Nefndarmönnum hafi verið kunn-
ugt um kæru og játningu Karls
Vignis hjá lögreglu árið 2007 og það
komi fyrir í skýrslunni. Nefndin hafi
aldrei falast eftir því að Karl Vignir
kæmi fyrir hana enda hefði neitun
hans aldrei getað haft áhrif á nið-
urstöðu hennar.
Dró ekki úr sannleiksgildinu
Hvað varðar athugasemdir við
orðalag nefndarinnar segir Róbert
að gerð hafi verið grein fyrir því í
bréfi árið 2009 til þeirra vistmanna
sem þær gerðu. Í því sagði:
„[N]efndin [leggur] á það áherslu
að ekki er rétt að álykta svo af þess-
ari umfjöllun í áfangaskýrslu nefnd-
arinnar að dregið sé á nokkurn hátt í
efa sannleiksgildi frásagna um ein-
stök tilvik sem lúta að þessum
þætti.“
Nefndinni ekki ætlað að
fjalla um sekt eða sýknu
Kumbaravogur Vistheimilanefndin taldi að „meiri líkur en minni“ hefðu
verið á að börn á Kumbaravogi hefðu verið misnotuð kynferðislega.
Vistmenn á
Kumbaravogi
ósáttir við skýrslu
Vistheimilanefnd
» Nefndin var skipuð árið
2007 til að fjalla um vistheim-
ilið Breiðavík en verkefni henn-
ar var síðar víkkað út.
» Hún skilaði áfangaskýrslu
sinni um Kumbaravog árið
2009.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ekki gilda sérstakar reglur fyrir
karla sem vinna á leikskólum
Reykjavíkurborgar um umgengni
við börn samkvæmt upplýsingum
frá skóla- og frístundasviði borg-
arinnar.
Í Danmörku eru karlkyns starfs-
mönnum víða settar ýmsar skorð-
ur í starfi, þeim meinað að skipta
á börnum og hugga þau. Þá er
jafnvel algengt að nýir leikskólar
séu innréttaðir með glerveggjum
til að vernda karlana gegn orð-
rómi um að þeir sæki í störf með
börnum til að geta misþyrmt þeim
kynferðislega að því er segir í
frétt Jyllands-Posten um síðustu
helgi.
Eins og kveðið er á um í æsku-
lýðslögum þurfa þeir sem sækja
um störf í skólum eða með börnum
hjá borginni að veita heimild fyrir
því að sakaskrá þeirra sé skoðuð.
Þar að auki er spurst fyrir um um-
sækjendur og leitað meðmæla eins
og almennt gerist samkvæmt upp-
lýsingum skóla- og frístundasviðs.
Almenn regla á leikskólum sé að
starfsmenn séu aldrei einir með
börnunum. Starfsfólk fari ekki
skipulega á námskeið sem fjalla
um kynferðislega misnotkun en
samtökin Blátt áfram hafa komið á
flesta vinnustaði þar sem unnið er
með börnum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barn Almennar reglur gilda fyrir starfsmenn á leikskólum borgarinnar.
Sömu reglur fyrir
karla og konur
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Viðbrögðin hafa verið sterk frá því
á mánudag. Það er búið að hringja
mjög mikið hingað og skrifa, bæði
vegna ofbeldis þessa manns og ann-
arra, ekki síst vegna umfjöllunarinn-
ar,“ segir Guðrún Jónsdóttir, tals-
kona Stígamóta, um viðbrögð við
umfjöllun um kynferðisbrot Karls
Vignis Þorsteinssonar í fjölmiðlum
síðustu daga.
Hún segist þó ekki hafa tölu á
þeim fjölda sem hafi hringt enda hafi
starfsmönnum Stígamóta ekki gefist
tími til að taka það saman í annrík-
inu. Margir sem hringt hafi hafi ósk-
að eftir viðtali hjá samtökunum.
„Við höfum galdrað tíma sem ekki
var til svo að hægt sé að koma fólki
að,“ segir Guðrún.
Hún segir að fólk hafi hringt sem
hafi orðið fyrir barðinu á Karli en
ekki gert sér grein fyrir því hversu
stórtækur hann var og hafi ef til vill
ekki látið sér detta í hug að hægt
væri að gera nokkuð í málinu eða ná
fram réttlæti.
„Svo hefur þetta mál auðvitað ýtt
við fólki sem hefur verið beitt ofbeldi
af öðrum. Oft þarf eitthvað svona til
þess að fólk leiti sér hjálpar. Við-
brögðin hafa verið ansi mikil.“
Algengt sé að fólk leiti sér hjálpar
í kjölfar sterkrar umfjöllunar um
slík mál á opinberum vettvangi og
nefnir hún sem dæmi afhjúpanir um
kynferðisofbeldi innan þjóðkirkj-
unnar og kaþólsku kirkjunnar.
„Það kemur við fólk og því finnst
gott að svona mál skuli loksins tekin
alvarlega eftir að það hefur hvað eft-
ir annað reynt að ná eyrum þeirra
sem ráða. Því finnst gott að eitthvað
það gerist sem veldur því að byrjað
er að hlusta,“ segir Guðrún.
Búa til tíma handa fórnarlömbum
Fjölmargir hringt og skrifað Stígamótum í kjölfar mikillar umræðu um kynferðisbrot gegn börnum
Umfjöllunin hefur ýtt við mörgum sem hafa verið beittir ofbeldi af öðrum, segir talskona samtakanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stígamót Margir hafa sett sig í samband við samtökin síðustu daga.
Karl Vignir Þorsteinsson starf-
aði aldrei með börnum og ung-
lingum á vegum Reykjavíkur-
borgar. Kemur það fram í
yfirlýsingu sem borgin hefur
sent frá sér vegna fjölmiðlaum-
fjöllunar um meint brot Karls
Vignis.
Fram kemur í yfirlýsingunni
að Karl Vignir Þorsteinsson
starfaði við heimaþjónustu fyrir
aldraða hjá Reykjavíkurborg á
tímabilinu 1989 til 2002 og að
ekki sé vitað til þess að hann
hafi gerst brotlegur í starfi.
„Hafi einhver orðið fyrir
miska af hálfu Karls Vignis Þor-
steinssonar á meðan hann
gegndi starfi hjá Reykjavík-
urborg er viðkomandi hvattur til
að koma ábendingum á framfæri
varðandi meint brot hans, hjá
þjónustumiðstöð Laugardals og
Háaleitis í síma 411 1500,“ segir
í yfirlýsingu Reykjavíkurborgar.
Starfaði aldrei með
börnum og ungling-
um hjá borginni
Mjög léttir, hljóðlátir, litríkir og kröftugir hárblásarar. Aðeins 350 gr. og 14 cm. Ársábyrgð.
HÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU
VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR
REDKEN ONLY SALON
SALONVEH
HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI
s. 568 7305 • salonveh.is
ÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR
VELECTA HÁRBLÁSARAR
NOTAÐIR AF FAGMÖNNUM
Losaðu þig við byrðina - aðeins 350 grömm