Morgunblaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Nýlega voru 17 nemendur útskrif-
aðir frá Ráðgjafarskóla Íslands
eftir nám á haustönn. Fór út-
skriftin fram við hátíðlega athöfn
í Háskóla Íslands.
Allur hópurinn er að vinna við
ýmis umönnunarstörf, ráðgjöf eða
handleiðslu í samfélaginu.
Alls hafa 250 nemendur lokið
prófi frá Ráðgjafarskóla Íslands
síðan hann var stofnaður um
haustið 2004.
Vorönnin hefst mánudaginn 21.
janúar nk. og er að verða full-
bókað í þá önn, segir í tilkynn-
ingu.
17 ráðgjafar
útskrifaðir
Ráðgjafar Útskriftarhópurinn frá Ráðgjafarskóla Íslands. Skólastjórinn Stefán Jóhannsson er lengst til vinstri.
Útgjöld Sjúkra-
trygginga Ís-
lands (SÍ) vegna
geðrofslyfja fara
lækkandi. Sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá stofn-
uninni um
notkun þessara
lyfja á árinu 2012
lækkuðu útgjöld ríkisins um 83
milljónir króna á sex mánaða tíma-
bili.
SÍ segir, að lækkunin sé vegna
reglugerðarbreytingar sem tók
gildi hinn 1. júní 2012. Breyting-
arnar fólu í sér að stofnunin tekur
nú einungis þátt í greiðslu hag-
kvæmustu pakkninga geðrofslyfja.
Stofnunin segir að miðað við
stöðuna nú megi ætla að árlegur
sparnaður geti orðið allt að 150-200
milljónir króna
Heildarkostnaður vegna geðrofs-
lyfja árið 2011 var 756 milljónir
króna. Enn á eftir að tryggja kostn-
aðarlækkun upp á 450 milljónir
vegna lyfja í heild í samræmi við
forsendur fjárlaga 2013.
Í kjölfar breytinganna hefur tals-
verður fjöldi dýrari geðrofslyfja
lækkað í verði. Munar þar langmest
um Quetiapin Mylan en lyfið hefur
lækkað um allt að 69% að sögn SÍ.
Á síðastliðnum 12 mánuðum hafa
um 10 þúsund einstaklingar fengið
ávísuð geðrofslyf sem er svipaður
fjöldi og árið áður.
Kostnaður vegna
geðrofslyfja lækkar
Árleg þemaráðstefna Vestnorræna
ráðsins verður haldin á Ísafirði 14.
til 17. janúar undir yfirskriftinni
„Vestnorræn heilbrigðiskerfi;
áskoranir og möguleikar“.
Um 40 vestnorrænir og norskir
stjórnmála-, háskóla- og fræðimenn
taka þátt í ráðstefnunni en mark-
mið hennar er að veita innsýn í heil-
brigðiskerfi Íslands, Grænlands og
Færeyja, á hvaða hátt þau séu ólík
og greina hvaða vandamálum þau
standi frammi fyrir auk þess að
rannsaka hvaða tækifæri felist í
auknu samstarfi landanna.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
verða ráðherrar heilbrigðismála
landanna þriggja auk sérfræðinga
og embættismanna.
Skoða samstarf
Vestur-Norðurlanda
um heilbrigðismál
Forsætisnefnd Josef Motzfeldt, forseti
Vestnorræna ráðsins, og varaforsetarnir
Ólína Þorvarðardóttir og Henrik Old.
Þriggja klukku-
tíma samspil
slökunar og frið-
sælla hljóma
verður í Guðríð-
arkirkju klukkan
20-23 á föstu-
dagskvöld.
Fram kemur í
tilkynningu, að
danski tónlistar-
maðurinn
Dreamhub leiki slökunar- og hug-
leiðsluhljóma en hann hafi reglu-
lega staðið fyrir sambærilegum
kyrrðarstundum, m.a. í Vor Frue
Kirke í Kaupmannahöfn.
Gestir eru hvattir til að taka með
sér grjónastóla, bangsa eða bækur
og láta fara vel um sig og upplifa
innri frið og ró.
Kyrrðarstund í
Guðríðarkirkju
Dreamhub.
Borgartún • Fákafen • Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Heilsusprengja
Heilsan í fyrirrúmi árið 2013!
20% afsláttur af öllum NOW
bætiefnum fimmtudag til
sunnudags
20%
afsláttur!
Yfir 200 tegundir!