Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 20

Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Miklir umhleypingar hafa verið norðanlands í vetur og gríðarlegur klaki hefur myndast á túnum víða. Mörgum er í fersku minni hve tún, knattspyrnu- og golfvellir fóru illa sumarið 2011 og útlitið er vægast sagt ekki gott núna. En allt er reynt til að koma í veg fyrir miklar skemmdir.    Stórvirkar vinnuvélar sjást ekki oft á viðkvæmum grasvöllum en hafa brunað um bæði golfvöllinn að Jaðri og Þórsvöllinn síðustu daga, m.a. veghefill!    KA-völlurinn hefur sloppið mjög vel, þar er snjór en enginn klaki að sögn Sævars Péturssonar fram- kvæmdastjóra félagsins. En Þór og Golfklúbbur Akureyrar hefðu hæg- lega geta boðið fólki á skauta upp á síðkastið hefði áhugi verið á því!    Hitakerfi er undir aðalvellinum á svæði Þórs og var vatni hleypt á hann í gær í þeirri von að bræða það sem vinnuvélarnir náðu ekki af klak- anum. Að sögn Rögnvalds Jóns- sonar vallarstjóra var víða 20 cm þykkur klaki á grasinu og allt upp í 30 cm áður en hafist var handa.    Knattspyrnufélag Akureyrar varð 85 ára á þriðjudaginn, 8. jan- úar. Haldið verður upp á það með glæsilegri veislu í KA-heimilinu á laugardagskvöldið en kl. 14.00 þann dag verður tekin fyrsta skóflustunga að gervigrasvelli sem lagður verður sunnan við KA-heimilið í sumar.    Íris Ólöf Sigurjónsdóttir verður í listamannsspjalli í Flóru í Hafnar- stræti 90 kl. 20-21 í kvöld en sýningu hennar á staðnum er einmitt að ljúka. Allir eru velkomnir.    Friðgeir Einarsson leiklistar- maður er í vinnustofu hjá Leikfélagi Akureyrar um þessar mundir. Hann vinnur að fyrirlestrarleikverki sem frumsýnt verður á LÓKAL leiklist- arhátíðinni í haust og sýnt hjá LA á næsta leikári. Friðgeir verður með kynningu á vinnu sinni kl. 12-13 á morgun, föstudag. Allir eru vel- komnir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ótrúleg sjón Klaki hefur verið skafinn af knattspyrnuvöllunum tveimur á Þórssvæðinu með ýtum og veghefli. Hömlur og klakabrynja ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Eignarhaldsfélag Landsbank- ans, Hömlur, hefur yfirtekið allar fasteignir Hótels sólar ehf. á Ak- ureyri. Þetta kom fram á sjónvarps- stöðinni N4 í gærkvöldi.    Um er að ræða margar eignir í grennd við Ráðhústorgið, auk Hafn- arstrætis 67, gamla Skjaldborgar- hússins, þar sem nú er Hótel Akur- eyri og Kjarnalundar í Kjarnaskógi.    Eignirnar verða settar í sölu þegar yfirtökuferlinu er lokið. Brunabótamat þeirra í heild er yfir 800 milljónir króna skv. frétt stöðv- arinnar.    Stundum er sagt að grasið sé grænna hinum megin. Það á ekki alltaf við en knattspyrnumenn og kylfingar á Akureyri geta með sanni sagt að grasið sé grænna hin- um megin á Íslandi um þessar mundir. Reykárhverfi við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit hefur fengið nýtt nafn og heitir nú Hrafnagilshverfi. Örnefnanefnd hefur samþykkt þessa breytingu. Nefndin samþykkti nöfn sautján nýbýla á liðnu ári en hafnaði tveimur. Nafnið Reykárhverfi hefur verið við lýði í um það bil tuttugu ár eða frá því fljótlega eftir að hverfið fór að byggjast á landi úr jörðinni Hrafna- gili. Í rökstuðningi örnefnanefndar kemur fram að nafnið hafi ekki öðl- ast sess í daglegu tali íbúa á svæðinu. Þéttbýlið hafi ýmist verið kallað Hrafnagilshverfi eða einfaldlega Hverfið. Nafnbreytingin var gerð að tillögu sveitarstjórnar Eyjafjarðar- sveitar, að undangenginni skoðana- könnun íbúa. Örnefnanefnd samþykkti eina breytingu á nafni lögbýlis á síðasta ári. Það er Suðurá í Mosfellsbæ sem áður hét Reykjahlíð garðyrkja. Nefnin samþykkti og sendi til þing- lýsingastjóra heiti sautján nýbýla. Tveimur nöfnun var hafnað, að því er fram kemur í ársskýrslu örnefna- nefndar, vegna þess að þau féllu ekki að þeim venjum sem ráðið hafa nafn- giftum býla hér á landi. Annað þótti aukinheldur ekki í samræmi við ís- lenska málvenju. Nöfnin sem samþykkt voru eru þessi: Árprýði er byggð úr landi Efri-Grófar í Flóahreppi, Bjarna- staðir úr landi Hamrahóls og Syðri- Hamra í Ásahreppi, Egilsstaðatjörn úr landi Egilsstaða í Flóahreppi, Espiholt og Espilundur úr landi Espihóls í Eyjafjarðarsveit, Hest- hagi úr jörðinni Þórisstöðum í Grímsnesi, Kaldaðarnes II úr landi Kaldaðarness, Klofahólar úr landi Litla-Klofa í Rangárþingi ytra, Lómsstaðir úr landi Hamarsholts í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Lækja- brekka úr landi Höskuldsstaða í Breiðdalshreppi, Mosheiði úr landi Litlu-Sandvíkur í Árborg, Skeið úr landi Hemlu I í Rangárþingi eystra, Skógarás úr jörðinni Ási III í Ása- hreppi, Stekkatún úr landi Miðhúsa í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Sörla- tunga úr landi Haga II í Rangárþingi ytra, Tungubotnar úr landi Kjóa- staða I í Bláskógabyggð og Vonar- land úr landi Vestri-Grundar í Ár- borg. helgi@mbl.is Hverfið heitir Hrafnagilshverfi en ekki Reyká  Örnefnanefnd samþykkir heiti 17 býla Morgunblaðið/Skapti Hrafnagil Fjölsótt handverkshátíð er haldin á hverju ári á Hrafnagili. Örnefnanefnd » Verkefni örnefndanefndar er að úrskurða um nafn nýbýlis og breytingu á nafni býlis. » Nefndin fjallar um tillögu sveitarstjórnar um lögfestingu á nafni á nýju þéttbýli eða þorpi. » Þá úrskurðar hún um hvaða örnefni skuli sett á landakort, þar sem ágreiningur kemur upp. Engin merki fundust um flúoreitrun í beinum grasbíta í Reyðarfirði þrátt fyrir hækkun á flúorgildi í grasi síð- astliðið sumar. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Alcoa-Fjarðaáli en þar segir að rannsóknum á heilsufari grasbíta í Reyðarfirði, sem ráðist var í í kjölfar bilunar á mengunarvarn- arbúnaði Fjarðaáls síðastliðið sumar, sé nú lokið. Í skýrslu dýralækna sem skoðuðu beinsýni úr ellefu kindum frá bænum Sléttu segir að tennur og kjálkabein hafi engin merki sýnt um flúoreitrun. „Þó var flúor í beinum yfir þúsund míkrógrömm á hvert gramm af bein- ösku og sýndi rannsóknin jafnframt fram á að meðalstyrkur flúors hefur aukist frá árinu 2006, eða áður en Fjarðaál hóf framleiðslu,“ segir í til- kynningunni. Sigurður Baldursson, bóndi á Sléttu, segir að sér hafi ekki verið kynntar rannsóknarniðurstöðurnar en hann sé rólegur þar sem ástandið sé vaktað og sýni tekin úr grasi á sumrin og heyi á veturna. „Ég er alveg rólegur ennþá. Maður bíður bara eftir sumrinu, að sjá hvernig það verður, hver staðan verð- ur þá,“ segir Sigurður. Hann segir þó skorta á upplýsingar, t.d. hafi hann aldrei fengið svör við því hvers vegna flúormagnið reyndist lægra í heysýn- um en grassýnum frá liðnu sumri. „Ég myndi hafa áhuga fyrir því að fara nákvæmlega yfir útkomuna úr þessum rannsóknum og ræða þetta í hörgul. Hvað þarf að gerast til að það skapist hættuástand? Mér er það ekki ljóst, hvar hættumörkin liggja,“ segir hann. Í tilkynningunni frá Fjarðaáli segir að í sjónrænni skoðun dýralæknis á þrjátíu grasbítum á svæðinu hafi ekk- ert bent til þess að þeir hefðu orðið fyrir flúoreitrun vegna tímabundinn- ar flúoraukningar í útblæstri frá ál- verinu. Þar sem hluti þeirra éti enn hey af umræddum túnum í Reyðar- firði verði þó áfram fylgst með ástandi bústofnsins. holmfridur@mbl.is Fundu engin merki um flúoreitrun  Vill nánari skýringar á niðurstöðunum Sauðfé Áfram verður fylgst með ástandi grasbíta á svæðinu. Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2878 • Opið mán.- fös. kl. 11.00-18.00 og lau. 11.00-15.00 friendtex.is • praxis.is • soo.dk Útsöluvörur - Frábær tilboð ÚTSALA 40-70% AFSLÁTTUR ÖLL BARNAFÖT 50-70% Afsláttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.