Morgunblaðið - 10.01.2013, Síða 32

Morgunblaðið - 10.01.2013, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 ✝ RögnvaldurÓmar Gunn- arsson fæddist í Reykjavík 16. júní 1957. Hann lést á Landspítalanum 4. janúar 2013. Foreldrar hans voru Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir, fædd 26. mars 1940 og Gunnar Konráð Berg Guðnason, fæddur 26. september 1937, dá- inn 6. febrúar 2010. Systur Óm- ars voru Anna Rúnarsdóttir, fædd 2. desember 1963, Sigrún Rúnarsdóttir, fædd 23. ágúst 1965 og Erla Vigdís Rúnars- dóttir, fædd 16. júní 1982. Ómar ólst til 12 ára aldurs að mestu leyti upp hjá afa sínum og ömmu, Rögnvaldi Ámunda- syni og Sigrúnu Jónsdóttur í Vatna- hverfi, A-Húna- vatnssýslu. Flyst þá til Reykjavíkur til móður sinnar og fósturföður, Rúnars Ársælssonar. Ómar stundaði sjó- mennsku frá 15 ára aldri á hinum ýmsum togurum og bátum, þar til hann lét af störfum vegna heilsubrests. Útför Ómars fer fram frá Breiðholtskirkju í dag, 10. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. Jarðsett verður í Gufu- neskirkjugarði. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Með þessum ljóðlínum kveðj- um við okkar ástkæra bróður, mág og frænda. Þín verður sárt saknað. Anna, Sigrún, Erla Vigdís og fjölskyldur. Rögnvaldur Ómar Gunnarsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar Okkur langar að minnast Ingu frænku okkar sem var okkur afar kær. Ef litið er yfir farinn veg eru margar góðar minningar sem sitja eftir og þær ætlum við að geyma í hjörtum okkar. Heimsóknir og aðstoð Ingu, Magga, Hlyns og Skúla í sveitina vetur, sumur, vor og haust eru okkur ómetanlegar. Þá fylltist búrið hennar ömmu af alls kyns góðgæti, allt varð hreint og fínt og líf og fjör einkenndi dagana. Inga var ævinlega tilbúin til að leggja öðrum lið og hlífði sér hvergi til verka. Allt sem hún tók sér fyrir hendur var unnið af alúð og vel- vild. Inga bjó ein systkinanna í Reykjavík lengst af og í gegnum árin hefur verið ómetanlegt að eiga fjölskylduna á Þinghólsbraut að. Eins konar stoppistöð okkar stórfjölskyldunnar. Þangað er og verður alltaf gott að koma. Okkur systrum er það minnisstætt er við Ingunn Jónsdóttir ✝ Ingunn Jóns-dóttir fæddist á Sólvangi í Fnjóska- dal 30. desember 1950. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 28. des- ember síðastliðinn. Útför Ingunnar fór fram frá Kópa- vogskirkju 4. jan. 2013. vorum á íþróttamót- um í Reykjavík og heimþrá gerði vart við sig, þá var Inga óðara komin með op- inn faðminn. Öll þau skipti sem Inga var okkur til staðar eru ómetan- leg, hvort sem um var að ræða gómsæt matarboð, kaffihúsa- ferðir, búðarráp eða spjall um lífið og tilveruna. Elsku Inga, við ætlum svo sannarlega að taka þig til fyrirmyndar í lífi okkar og starfi. Þú munt ávallt vera með okkur í huga og hjarta. Elsku Magnús, Hlynur, Skúli og Guðrún Katrín, hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Hver lítil stjarna, sem lýsir og hrapar, er ljóð, sem himininn sjálfur skapar. Hvert lítið blóm, sem ljósinu safnar, er ljóð um kjarnann, sem vex og dafnar. Hvert lítið orð, sem lífinu fagnar, er ljóð við sönginn, sem aldrei þagnar. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Líney, Silja, Hrönn og Arnar Geir. Svo hlý og góð að börnin hænd- ust að henni. Svo skipulögð og vönduð í vinnubrögðum að börnin tömdu sér aga og góð vinnubrögð. Fagmanneskja fram í fingur- góma sem smitaði margan nem- andann af áhuga á matseld og hollu líferni. Já, skólasamfélagið hér í Smáraskóla hefur misst mikið við fráfall Ingunnar Jónsdóttur heim- ilisfræðikennara. Ég kynntist Ingunni fyrst fyrir rétt rúmum þremur árum er ég kom til starfa hér við skólann. Hæglát en föst fyrir og stutt í glettnina. Hún var einn af mátt- arstólpum þessa samfélags og hafði einna lengstan starfsaldur þeirra starfsmanna sem nú starfa við skólann. Fagmennska, snyrti- mennska og öguð vinnubrögð hennar voru eftirtektarverð. Og börnin fundu svo vel fyrir hlýju hennar og hjartagæsku. Þau sakna nú góðs kennara. Fyrir tveimur árum var tekin ákvörðun af skólastjórnendum hér við skólann að ganga til liðs við verkefnið Heilsueflandi grunn- skólar. Í tengslum við það verk- efni var myndaður stýrihópur og þar var Ingunn mikilvægur hlekk- ur m.a. vegna yfirgripsmikillar þekkingar sinnar og reynslu á sviði heimilis- og heilsufræði. Í vor sem leið fór starfsmanna- hópurinn í fræðslu- og skemmti- ferð til Vestmannaeyja. Þar var Ingunn m.a. fremst í flokki vaskra starfsmanna sem klifu Heima- klett. Dreif aðra áfram þegar þeir voru að því komnir að gefast upp á göngunni og fyllti þá af krafti til að sigrast á klettinum. Hún hafði mikla unun af útivist og göngu- ferðum í íslenskri náttúru. Það var okkur mikið áfall af heyra af veikindum hennar stuttu áður en mætt var til vinnu til að undirbúa yfirstandandi skólaár. En hún bar sig vel og af eftirtekt- arverðu æðruleysi tókst hún á við vágestinn. En baráttan var frekar stutt og snörp. Þegar við, nokkrir starfsmenn skólans, heimsóttum hana hinn 20. desember með gjafir og hugheilar jóla- og batakveðjur frá nemend- um skólans var mjög af henni dregið. Þrátt fyrir það var stutt í glettnina og hún gat ekki varist brosi og glampi kom í augu henn- ar þegar ég sagði henni að við hefðum alveg verið í vandræðum með kakódaginn okkar á aðvent- unni þar sem hennar hefði ekki notið við. Við hefðum farið nærri því að klúðra deginum m.a. með alltof miklum innkaupum. Hugur okkar og hlýjar hugsan- ir eru hjá elskulegum eiginmanni hennar, Magnúsi Skúlasyni, drengjunum þeirra tveimur og aldraðri móður Ingunnar. Missir þeirra sem og nánustu aðstand- enda er mikill. Við erum full þakklætis fyrir að hafa fengið að ganga með Ingunni þennan spöl á hennar alltof stuttu ævigöngu. Við erum ríkari fyrir það að hafa fengið að njóta hlýju hennar, hjartagæsku og fag- mennsku. Blessuð sé minning hennar. Friðþjófur Helgi Karlsson, skólastjóri Smáraskóla. Ef ég þyrfti að útskýra tilfinn- ingar mínar til hennar Guðlaugar Marteinsdóttur í fáum orðum myndi ég hætta núna því það yrði vonlaust verkefni. Guð gefur okk- ur foreldra við fæðingu sem leiða okkur í gegnum lífið sem best þeir geta. Sjaldan getur maður sagt að hin „ógurlega“ tengdamamma sé í raun ástrík og í miklu uppáhaldi. Mamma Lóló er fyrir mér sú manneskja. Hún studdi mig í gegnum margar erfiðar stundir, var sú sem ég gat ætíð leitað til þrátt fyrir mína bjöguðu ensk-ís- lensku tungu. Hún baðaði allt og alla þá sem á hennar vegi urðu í ást sinni en hafði samt alltaf pláss fyrir mig í hjarta sér og ég verð ávallt þakklátur fyrir það. Ég veit Guðlaug Marteinsdóttir ✝ Guðlaug Mar-teinsdóttir (Lóló) fæddist í Reykjavík 31. októ- ber 1931. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 17. des- ember 2012. Útför Guðlaugar fór fram frá Foss- vogskirkju 7. jan- úar 2013. að það eru aðrir fjöl- skyldumeðlimir og kærkomnir vinir sem líður eins og mér á þessum tíma- punkti og ég veit að mér verður fyrirgef- ið fyrir þessi sjálfs- elsku orð mín hér í dag. Ég elska þig mamma mín og ég mun alltaf sakna þín. Ef ég þyrfti að fljúga þúsund mílur, ég myndi fljúga þúsund til. Bara til þess að halda þér að mér, er þú opnar þínar dyr. Fjarveran mín ávallt fyllt með örlæti og ást. Ég er stoltur að kalla þig mamma mín, fyrir öllum heiminum að dást. Tíminn sem áttum við saman, hefur horfið burt á braut. Og tárin sem flæða þorna upp, er við komumst í gegnum þessa þraut. Nú er komin kveðjustund er ég flýg þús- und mílur til, Þar til við hittumst enn á ný elsku mamma mín, Þar sem ég svo kveð á þínar dyr. Þinn tengdasonur, Michael G. Whalley. Kveðja. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Jón V. Guðjónsson ✝ Jón Vilbergfæddist í Reykjavík 15. nóv- ember 1922 og lést 27. desember 2012 á Landspítalanum við Hringbraut. Jón var jarð- sunginn frá Sel- tjarnarneskirkju 4. janúar 2013. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við systkinin og börn okkar kveðjum Jón Vilberg með þakk- læti og söknuði í hjarta. Farinn er drengur góður. Sveinfríður Jóhannesdóttir, Hákon Jóhannesson og Helga Jóhannesdóttir. Selma var fædd og uppalin hér í sveitinni. Faðir hennar lést þegar hún var mánaðar- gömul og var hún skírð við kistu hans. Hún var yngst fimm alsystra. Tveggja ára fór hún að Seljanesi þegar móðir henn- ar fór í sambúð með Kristni Jónssyni. Árið 1953 flutti fjöl- skyldan að Dröngum. Þar ólst hún upp til fullorðinsára. Ung varð hún þátttakandi í önnum fólksins enda veitti ekki af, fjölskyldan stækkaði óðum og allir verkfærir urðu að leggja sitt af mörkum. Þetta mótaði hana og vinna í hennar augum var sjálfsagður hlutur. Á haustdögum árið 1961 kom hún að Steinstúni og tóku þau þá við húsforráðum, Ágúst Gíslason og hún. Það kom fljótt í ljós að hún var vel undirbúin að taka við húsmóð- urstörfum á venjulegu sveita- heimili, þar sem margt var unnið heima, m.a. matargerð ýmiskonar, sem frekar er sótt í búðir í dag. Það fjölgaði fljótt í heimili ungu hjónanna, þrátt fyrir það var hún liðtæk utan heimilis- verka, svo sem við heyskap, sauðburð, hún lá ekki á liði sínu. Þau hjónin voru hagsýn og vel var haldið um alla hluti, ekkert fór til spillis. Gestrisin voru þau og gjarnan gest- kvæmt á heimilinu, en alltaf nóg á borðum og heimilishald allt til fyrirmyndar. Þegar Selma kom að Stein- stúni var amma okkar bræðra, Ingibjörg Jóhannsdóttir, á heimilinu í hárri elli og þurfti mikla umönnun, lést árið 1967, Selma Jóhanna Samúelsdóttir ✝ Selma JóhannaSamúelsdóttir fæddist í Bæ í Tré- kyllisvík, Árnes- hreppi, 20. janúar 1942. Hún lést á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, Akranesi, 29. nóv- ember 2012. Útför Selmu fór fram frá Árnes- kirkju í Trékyll- isvík 8. desember 2012. hundrað og tveggja ára. Umönnun hennar var nokk- urs konar húsmóð- urskylda, þetta fórst Selmu vel úr hendi. Ég leyfi mér hér með að færa Ágústi og Selmu þakkir fjölskyld- unnar frá Stein- stúni fyrir þá miklu fórnfýsi. Ár- ið 1960 stofnuðum við Margrét heimili okkar í Kaupfélaginu í Norðurfirði. Við húsbænda- skiptin á Steinstúni ári síðar fór í hönd samgangur milli bæj- anna, sem staðið hefur í hálfa öld. Það er ljúft að minnast þess- ara ára, aldrei bar skugga á, börnin tíu voru eins og einn „systkinahópur“, þau gengu milli húsa til leikja að vild. Konurnar voru samrýndar, skruppu gjarnan framan af ár- um í heimsóknir á bæi í sveit- inni á köldum vetrardögum, annaðhvort gangandi eða á hestum meðan þeir voru til, ekki beðið eftir akfærum vegi. Við þessi tímamót er okkur hjónunum og börnum okkar þakklæti í huga fyrir þessi ár. Fyrir nokkrum árum greindist Selma með sjúkdóm, sem ekki varð læknaður, og sigraði að lokum, leiddi til þess að þau fluttu frá Steinstúni. Nú rýkur ekki lengur úr strompinum þar. Gott er samt til þess að vita, að enn er rekinn búskapur á Steinstúni, sem Guðlaugur Agnar, sonur þeirra, og Ragn- heiður Edda, kona hans, standa fyrir. Ég lýk hér með þessum síðbúnu kveðjuorðum. Hugur okkar hefur verið hjá Ágústi bróður mínum og fjölskyldunni. Skjótt hefur sól brugðið sumri, því séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri … Svo yrkir Bjarni Thoraren- sen. Minningin um Selmu mun lifa með okkur. Gunnsteinn Gísla- son frá Steinstúni. ✝ Þakka öllum þeim sem sýndu mér og fjölskyldu minni samúð vegna andláts eigin- konu minnar, RAGNHILDAR EINARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Reynihlíð á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri fyrir alla þá góðu umönnun er hún hlaut er hún dvaldi þar. Alfreð Jónsson. ✝ Elsku mamma, tengdamamma og amma okkar, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Grindavík, Lækjargötu 30, Hafnarfirði, lést laugardaginn 5. janúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 11. janúar kl. 13.00. Sóley Ólöf Hlöðversdóttir, Heiðar Jóhannsson, Bjarney Kristín Hlöðversdóttir, Ólafur Ingólfsson, Þórey Maren Sigurðardóttir, Óskar Thorarensen, Sveinbjörn S. Sigurðsson, Arndís Þorvaldsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, SÓLVEIGAR VIGDÍSAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Bankavegi 5, Selfossi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir kærleiksríka umönnun og hlýju. Sigfús Kristinsson, Aldís Sigfúsdóttir, Guðjón Þórir Sigfússon, Guðrún Guðbjartsdóttir, Kristinn Hafliði Sigfússon, Þórður Sigfússon, Selma Jónsdóttir, Sigríður Sigfúsdóttir, Baldur Guðmundsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.