Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Við fráfall Brynhildar systur minnar birtast minningar og minningabrot liðinna ára. Minn- ingar sem ylja í senn og vekja ljúfar tilfinningar til hennar og þess tíma sem við áttum saman. Ég segi; áttum saman, því Bryn- hildur var ekki bara systir mín, heldur einn minn besti vinur. Ég á minningar frá fæðingu hennar, pabbi æðandi um gólf, og víst búinn að raka sig þrisvar meðan á fæðingunni stóð, en Brynhild- ur fæddist heima í svefnherbergi foreldra okkar að Varmalandi. Ég á minningar í hugskoti mínu af því þegar Brynhildur byrjaði að ganga í stofunni heima, tím- anum í Kaupmannahöfn þar sem fjarveran frá heimahögunum þjappaði okkur saman, þegar pabbi var í framhaldsnámi í kennslufræðum þar. Við eignuð- umst lífsförunaut okkar á svip- uðum tíma, Brynhildur minn góða félaga Þór Ottesen sem hefur verið henni ástsæll og góð- ur félagi. Börnin komu í heiminn á svipuðum tíma og var mikill samgangur og vinfengi. Á þess- um árum var staðið að stofnun hjónaklúbbs, svo barnafólkið kæmist út að dansa, fara í leik- hús, útilegur og annað það sem gladdi andann. Ótaldar eru þær mörgu ferðir sem farnar voru til útlanda. Alltaf með börnin og dvalið í sumarhúsum þar sem hægt var að rækta fjölskylduna. En þar komum við að einum skemmtilegasta eiginleika Bryn- hildar, ræktarseminni. Í for- eldrahúsum var okkur kennt að rækta vinskap og tengsl við okk- ar nánustu, því þar færu þeir sem leita mætti til, bæði í gleði og sorg. Þetta gerði Brynhildur dyggilega. Hennar frændgarður og vinahópur var ekki bara stór heldur óvenju þéttur og sam- heldinn. Hennar vinir voru mínir vinir og mínir vinir hennar og á þann hátt deildi hún sínum vin- um svo ljós vináttunnar mætti vaxa og dafna, ljós sem lýsir nú yfir minningu hennar sem fag- urt vitni um vinfasta og trúa manneskju. Samband okkar var óvenju hreinskipt. Þegar upp komu ágreiningsmál og eða ann- að óhreinlyndi var bara hringt og spurt; er þetta rétt Ingvar? Á þann hátt voru mál leyst, kláruð og skilin eftir fyrir aftan okkur. Þegar Brynhildur sá hvert stefndi í sínum veikindum, átt- um við gott samtal, þar sem hún var að velta fyrir sér framtíðinni og hvert för hennar væri heitið. Þá skynjaði ég það sem ég þó taldi mig hafa vitað, hversu sterk persóna hún var og kær- leiksrík. Brynhildur fór í Verslunar- skólann og ætlaði sér að stunda verslunar- og skrifstofustörf. En kennarastarfið heillaði hana og eftir einn vetur við kennslu í Seljalandsskóla undir Eyjafjöll- um, snéri hún sér að kennara- námi og lauk því námi á undra- skömmum tíma. Brynhildur hóf síðan störf við kennslu og skóla- stjórnun sem hún stundaði til dauðadags og munu aðrir skrifa um það, sem til þess eru betur færir. Með þessum skrifum, viljum við Björg, þakka samveruna og vinsemdina á liðnum árum. Um leið og við vottum okkar góða vini Þór og börnum hans Ás- Brynhildur Ólafsdóttir ✝ BrynhildurÓlafsdóttir fæddist á Varma- landi í Borgarfirði 23. janúar 1956. Hún lést á líkn- ardeild LSH 18. desember 2012. Útför Brynhildar var gerð frá Nes- kirkju 4. janúar 2013. laugu, Brynju og Bjarka samúð okk- ar. Þinn bróðir, Ingvar Ólafsson. Það er sárt að kveðja kæra svil- konu, hana sem var svo dugleg og barð- ist hetjulega til síð- asta dags. Bryn- hildur var einstök kona, glæsileg, kraftmikil, ósérhlífin og hvers manns hugljúfi. Við hittumst fyrst þegar þau Þór mágur minn komu í heimsókn til okkar Sigga til Svíþjóðar 1978, með okkur tókst ómetanlegur vinskapur og fjölskyldur okkar tengdust órjúfanlegum fjöl- skylduböndum. Brynhildur var alltaf glaðlynd og bjartsýn, hún var foringi að eðlisfari og því góður stjórnandi, hún átti gott með að fá fólk til að vinna með sér og var frábær í mannlegum samskiptum. Það kom því engum á óvart sem til hennar þekktu að hún hafi valist til stjórnunar- starfa, kennarastarfið var henni í blóð borið, þar var hún á réttri hillu, því er það mikill missir fyr- ir starfsfélaga að sjá á eftir góð- um félaga og fagmanni. Nú síðari ár hittumst við líka oft á golfvellinum. Þar var það sama sagan, það sem hún tók sér fyrir hendur gerði hún vel enda ekki lengi að lækka forgjöfina, ég dáðist að því hvað hún var dugleg. Alltaf kom hún eins fljótt og hún hafði þrek til aftur út á golfvöll eftir erfiðar meðferðir. Fólk tók eftir því hversu dugleg hún var og hafði orð á því við mig. Ég var stolt af því að eiga Brynhildi sem vinkonu. Fjölskyldur okkar hafa átt ómetanlegar samverustundir í gegnum tíðina. Við Brynhildur vorum duglegar að taka okkur saman um að hittast af og til og aldrei stóð á því að Þór og Bryn- hildur væru til í að halda fjöl- skylduboðin heima hjá sér. Þau reyndust mér og fjölskyldu minni líka einstaklega vel við andlát Sigga. Með trega og tárum kveð ég og fjölskylda mín Brynhildi. Með okkur lifir minning um einstaka konu. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem) Elsku Þór, Áslaug, Brynja, Bjarki, Bjössi og Ólafur, okkar innilegustu samúðarkveðjur, megi guð gefa ykkur styrk í mik- illi sorg. Anna Kjartansdóttir og fjölskylda. Í dag minnumst við Brynhild- ar Ólafsdóttur, fyrrum samkenn- ara og vinar í Fellaskóla. Hún kom til starfa ung að árum á miðju skólaári í forföllum annars kennara, og bættist þar í hóp ungra kennara við skólann. Þá strax kom í ljós að um öflugan liðsmann var að ræða þó hún hefði ekki lokið formlegu námi á þeim tíma. Að námi loknu hélt hún síðan áfram að vinna við skólann. Brynhildur var alla tíð áræðin, skipulögð og tók snemma for- ystu í breytingastarfi sem leiddi til betri kennsluhátta, sannkall- aður frumkvöðull. Hún hvatti ávallt nemendur og samstarfs- fólk til góðra verka. Hún var hugmyndarík og afar listræn sem kom svo vel fram í öllu hennar starfi, m.a. lagði hún mikla áherslu á skapandi vinnu nemenda sinna og var ljósritun- arvélin henni lítt að skapi. Það kom því ekki á óvart þegar hún fluttist með fjölskyldunni tíma- bundið til Danmerkur að hún fór í nám í fatahönnun enda annáluð smekkkona á fatnað og alla hönnun. Brynhildur kenndi við Fellaskóla í yfir tuttugu ár og það einkenndi hana alla tíð hversu vel hún hélt utan um fólk- ið sem næst henni vann og lét hún sér sérstaklega annt um unga og nýútskrifaða kennara. Hún var dugleg að leiðbeina þeim og aðstoða eftir bestu getu. Hún bjó yfir þeim góðu eiginleik- um að ná vel til nemenda sinna og átti jafnan farsælt samstarf við foreldra. Síðustu árin í Fellaskóla tók hún að sér stjórnun og fórst það vel úr hendi. Okkur fannst það því eðlilegt framhald að þegar hún kvaddi skólann tók hún við stöðu aðstoðarskólastjóra við Álftamýrarskóla og varð síðar skólastjóri sama skóla. Það var mikil eftirsjá að Brynhildi úr kennarahópnum en við fögnuð- um því að hún fengi tækifæri til að taka að sér nýtt og krefjandi starf þar sem hæfileikar hennar fengju notið sín. Hugur okkar er hjá fjölskyldu Brynhildar og föður hennar Ólafs sem eitt sinn var einnig samstarfsmaður okkar við skól- ann. Blessuð sé minning Bryn- hildar Ólafsdóttur. F.h. vina og samstarfsfólks í Fellaskóla, Guðrún Bj., Margrét J., Ólöf I., Ólöf S. og Valgerður E. Ég byrjaði að kenna við Álfta- mýrarskóla haustið 2002, þá ný- útskrifuð frá Kennaraháskólan- um. Þetta sama haust hóf Brynhildur störf sem aðstoða- skólastjóri við skólann. Hún þaulvanur kennari, ég með enga reynslu. Við áttum það þó báðar sameiginlegt að standa frammi fyrir nýjum og spennandi verk- efnum og samhliða eftirvænting- unni fylgdi smá kvíðahnútur. Við áttum líka sameiginlegan afmæl- isdag og það fannst mér alltaf svo dásamlega skemmtilegt! Ég þurfti oft að leita til Bryn- hildar á þessum fyrstu árum. Oftast var það vegna nemenda eða foreldra. Ég var nýútskrifuð og vissi svo ósköp fátt en taldi mig geta allt! Á meðan ég sat inni hjá Brynhildi og tjáði mig um skólamál líkt og ég hefði kennt í fjörutíu ár, horfði hún á mig, brosti og hlustaði. Það var eins og hún vissi hvernig mér leið. Og ég veit að hún vissi hvernig það var að vera nýút- skrifuð, full af eldmóði. Hún vissi líka að framundan yrðu nokkrar hindranir á vegi mínum. Brynhildur gaf mér dýmæta gjöf. Hún hafði trú á mér. Við- mót hennar, hvatning og já- kvæðni varð til þess að ég þrauk- aði fyrstu árin og skildi hlutverk mitt sífellt betur. Smám saman fór ég að njóta þess að kenna og skynjaði hvar hæfileikar mínir lágu. Þegar ég ræddi við hana um að fara í framhaldsnám sagði hún umsvifalaust: „Gerðu það. Enginn vafi, við reddum þessu!“ Það voru yfirleitt viðbrögðin sem maður fékk frá henni. Og ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað mér þótti ægilega vænt um þau. Ég hitti Brynhildi síðast út í Berlín. Hefði ég vitað að það yrðu okkar síðustu samveru- stundir hefði ég sagt eitthvað öðruvísi, horft öðruvísi, hlustað öðruvísi. Vonandi fæ ég tækifæri til þess einhverntímann. Í miðjum súkkulaðihátíðum himnaríkis. Mig langar að þakka Bryn- hildi fyrir gjöfina sem hún gaf mér. Ég lofa að nýta hana áfram í mínu lífi og framsenda hana til annarra. Til fjölskyldunnar allrar sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Helga Helgadóttir. Elsku Binni bróð- ir og mágur. Það er erfitt að trúa því að þú sért búinn að kveðja okkur og ekki nema níu mánuðir síðan Bárður bróðir okkar kvaddi okkur. Þetta er mikill missir og stórt skarð í okkar fjölskyldu. Við eigum svo margar góðar minning- ar um þig og Ólöfu þína. Allar heimsóknirnar til ykkar voru eins og að koma heim; tekið á móti okkur með útbreiddan faðm og hlýju. Margt erum við búin að bralla saman, s.s. gæsaveiðar og sjóstöng á Mærudögum þar sem við fengum medalíu fyrir stærsta fiskinn. Og svo þegar við fórum til Björns í Lóni og fengum leyfi til að veiða, gormurinn í veiðihjólinu brotnaði í fyrsta kasti og þú sagð- ir: „Við förum bara heim í Bólu og lögum þetta, fiskurinn stækkar á meðan!“ Þú sagðist eiga gamla klukkufjöður sem við getum klippt úr og þar með var fjöðrin klippt til og hjólið lagað. Ég skil ekki enn hvernig þú fórst að því að koma þessu fyrir með þínum sveru puttum en þú varst úrræða- góður og handlaginn og alltaf tilbúinn til hjálpa. Þú hefur greinilega erft þessa lagni og hjálpsemi frá forfeðrum þínum. Takk fyrir allar dásamlegar samverustundir, þær lifa í minn- ingunni. Elsku Ólöf, börn, barnabörn og barnabarnabörn. Guð blessi ykk- ur á þessum erfiðu tímum. Kveðja, Elías og Lissý. Elsku afi, langafi og tengdaafi. Óteljandi góðar minningar hafa brotist um í kollinum á okkur síð- an við kvöddum þig. Eitt er víst að mikið eigum við eftir að sakna þín og þá er gott að ylja sér við minn- ingar um góðar stundir. Stundirnar allar í Bólu, sum- arbústað ykkar ömmu á ættar- óðalinu Sultum. Ófáar góðar mál- tíðir snæddar þar, mikið rætt og notið lífsins. Enda nutuð þið ykk- ar best þar umkringd börnum, barnabörnum, barnabarnabörn- um og fylgifiskum. Allar góðu heimsóknirnar ykkar til okkar, upp tröppurnar komst þú í öllum færum þrátt fyrir að eiga oft erfitt með það. Þegar við ungu hjónin Brynjar Þór Halldórsson ✝ Brynjar Þórfæddist á Siglufirði 14. maí 1938. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 20. des- ember 2012. Útför Brynjars fór fram frá Húsa- víkurkirkju 4. jan- úar 2013. áttum ekki skóhorn til að lána þér þá komst þú með heimasmíðað skó- horn búið til með þínum laghentu höndum og færðir okkur. Alltaf varst þú tilbúinn að hjálpa, ekki nema eitt stutt símtal og þú varst mættur hvort sem það var til að skutla Hildi Önnu í skólann ef mamman var föst með Erlu Þyri heima eða hjálpa tengda- afadótturinni inni í húsið þegar hún var búin að læsa sig úti. Hildur Anna og Erla Þyri langafadætur ykkar hafa nú held- ur betur fengið að njóta góðs af því að eiga góðan langafa. Í heilan vetur fengu þær að koma til ykkar í Litlahvamm tvo daga í viku í nokkrar klukkustundir til að brúa bilið milli vinnu foreldranna, al- veg sjálfsagt mál frá ykkar hendi. Þá lumaðir þú oftast á grænum Opal til að gefa þeim, stundum deildu þær með sér pakka en oft- ast var það heill pakki á hvora stelpu enda voru heimsóknirnar margar og stundum áttum við svolítið mikið af grænum Opal. Einnig var mjög vinsælt að fá afa Binna til að prenta út myndir í tölvunni til að lita. Í sumar fóruð þið með Hildi Önnu og Brynju Ósk nöfnu þína í eina af mörgum Kiwanis-útilegum. Þið aldursforsetarnir með flest börn- in, Ólöf hafði nú á orði að þetta yrði nú örugglega síðasta útilegan sem farið yrði í þar sem þú varst ansi þreyttur við að pakka í tjald- vagninn, en þú Kiwanis-maður af lífi og sál lést þig ekki vanta og ekki datt okkur í hug að sú yrði raunin. Ég, nafni þinn, á heldur betur eftir að sakna þess á komandi tíð að geta ekki hringt í minn besta mann, afa minn Binna, veiðifélaga minn og góðan vin minn og verið viss um að á hinni línunni værir þú svo sannarlega klár í slaginn hvernig sem viðraði, hvernig sem veiðiútlit var, maður gat alltaf treyst á að þú værir klár. Í haust komumst við ekki saman eins og mörg önnur haust heim að Ein- arsstöðum til að veiða rjúpu. Þú ætlaðir eins og í fyrrahaust að vera leiðsögumaður á bílnum fyr- ir mig, pabba og Balla, þar sem þú áttir orðið erfitt með að fóta þig í bröttum hlíðunum. Ástríðan fyrir veiðum og seiglan var endalaus. Aldrei að gefast upp. Einnig eig- um við félagar í Dalton eftir að sakna þess að mæta í skúrinn í Steinagerði og sjá þig kláran með svuntu, kaffi í brúsa og byrjaður að gera að bráðinni. Svona væri hægt að skrifa vel og lengi um þig en látum hér við sitja. Nú kveðjum við þig með sorg í hjarta en góðar minningar um góðan mann lifa með okkur áfram. Takk fyrir allt, elsku besti afi Binni. Brynjar, Kristey, Hildur Anna og Erla Þyri. Elsku afi Binni. Nú þegar þú ert farinn frá okkur hugsa ég um allar þær frábæru minningar sem ég á um þig. Útilegurnar með Kiwanis-klúbbnum Skjálfanda, alltaf var mikil tilhlökkun að fara í þær með þér og ömmu Ólöfu. Eins allar góðu stundirnar í sum- arbústaðnum Bólu í Sultum. Vænt þykir mér um þær minn- ingar um heimsóknir ykkar ömmu til mín í Reykjavík þegar ég bjó þar. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa mér með allt, ég mun ekki gleyma því þegar þú og Elli mágur þinn plokkuðuð naglana úr vetardekkjunum mínum fyrir mig, það þótti mér mikil hjálp. Ég er svo ánægð með að hafa flutt heim til Húsavíkur aftur og verið hér með þér þín síðustu ár. Þið amma eruð frábær. Bless elsku afi. Þín afastelpa Sylvía. Elsku Binni bróðir, með stóra faðminn. Eftir stutta sjúkrahús- legu hefur þú kvatt þennan heim. Þremur dögum áður sagðir þú: „Það er allt í fína hjá mér.“ Nei, aldrei kvartaðir þú, ekki einu sinni þegar þú lamaðist fyrir 35 árum eftir bakaðgerð og þér var sagt að þú mundir ekki ganga á ný. Með jákvæðni þinni og þraut- seigju fórstu á lappir og sýndir að ekkert er ómögulegt. Ég á svo ótal góðar minningar um ykkur Ólöfu í gegnum árin og svo þakklát að hafa átt ykkur að. Nú síðast í sumar dvaldi ég hjá ykkur í Litla-Hvammi í tvær vik- ur og var það með bestu sumarfrí- um sem ég hef átt. Sá þig hampa bikar fyrir sjóstöng á Mærudög- um. T.d. aksturinn að Jökulsár- gljúfrum o.fl. Það er ekki hægt að lýsa því hvað við erum þakklát systkinin fyrir að hafa verið hjá þér og kvatt þig elsku vinur og bróðir. Ólöf mín. Binni hefði aldei lifað það af ef þú hefðir farið á undan. Þú hugsaðir um hann og dekraðir alla tíð. Börnin ykkar bera því vitni hversu mikla alúð þið hafið veitt þeim. Ég gæti skrifað svo ótal margt og þegar hugurinn reikar get ég bara brosað og það færist yfir mig vellíðunartilfinn- ing. Takk fyrir allt og allt. Elsku Ólöf mín, Anna, Guðrún, Gunni og aðrir ástvinir. Megi Guð styrkja okkur öll. Sigurbjörg Halldórsdóttir (Sibba systir). Elsku langafi minn. Þá ertu kominn á betri stað og það sem eftir stendur eru allar góðu minningarnar um þig. Ég gleymi því aldrei hversu góður og yndislegur maður þú varst og hvað mér fannst gaman að koma á Krókinn að heimsækja ykkur langömmu þegar ég var lítil og hlusta á sögurnar sem þú sagðir, Jósef Sigfússon ✝ Jósef StefánSigfússon fæddist í Blöndu- dalshólum í Ból- staðarhlíðarhreppi 28. nóvember 1921. Hann lést á Heil- brigðisstofnuninni á Sauðárkróki 21. desember 2012. Útför Jósefs fór fram frá Sauð- árkrókskirkju 5. janúar 2013. eins og til dæmis söguna af gamla hestinum þínum, þar sem þú varst mikill hestamaður, og fórst stundum í hesthúsið. Ég gleymi heldur ekki þegar þú sagðir einu sinni að hestur- inn þinn væri eins og kviðslitin rolla, og mér fannst það svo fyndið að ég hló mig næstum máttlausa þegar ég heyrði af því, en það sem ég mun sakna mest af öllu ert þú, elsku afi. Stuttu áður en þú varðst engill fann ég á mér að eitthvað væri ekki eins og það átti að vera, því ég gat ekki hætt að hugsa um þig, og fór til ykkar nokkrum dögum seinna ásamt mömmu og ömmu. Það er dagur sem ég á aldrei eftir að gleyma. Við komum á sjúkrahúsið til ykkar ömmu, og þú sast í rúminu og hlustaðir á útvarpið, eins og þú varst vanur að gera. Við heilsuð- um þér og kysstum þig og ég sá að þér þótti mjög notalegt að fá okk- ur í heimsókn, þrátt fyrir veikind- in. Mamma og amma spjölluðu að- eins við þig á meðan ég sat þögul og virti herbergið ykkar fyrir mér, og nokkru seinna spurðir þú hvort ég væri ekki örugglega með og þá kom ég að rúminu þínu þar sem mamma og amma voru og þegar ég kom að rúminu, og þú sást mig, brostirðu svo fallega til mín með augunum, þessum fallegu, góð- legu bláu augum sem minntu mig helst á tvær perlur, sem var eitt af því fallegasta sem ég hef séð. Svo settist ég hjá þér og strauk þér um öxlina, og síðan tók ég um höndina á þér og fann að hún var köld og reyndi að halda á henni hita, og þrátt fyrir veikindi þín sá ég að þér fannst það gott að hafa mig hjá þér. Hvíldu í friði elsku langafi og þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Bryndís Ýrr Ingvarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.