Morgunblaðið - 10.01.2013, Síða 39

Morgunblaðið - 10.01.2013, Síða 39
ingar mætast á förnum vegi er viðbú- ið að hún stofni þar hóp og fari að skipta með honum verkum. Hún hik- ar ekki við að bjóða sig fram í skipu- lagningu viðburða fyrir vinahópa og verkefni af ýmsum toga. Ekkert for- eldrafélag sem verður á vegi hennar hefur sloppið við áhuga hennar. Hún sat í stjórn Ísaksskóla og hætti þar ekki fyrr en mörgum árum eftir að börn hennar höfðu lokið námi við skólann. Þá skipuleggur hún golfmót þótt hún geti tæpast talist til golfara. Fjölskyldu hennar þykir því stundum nóg um þessa félagslegu ofvirkni. Kristín er mjög hláturmild og í senn fádæma lífs- og veisluglöð og er stundum sagt að það taki hann tíu mínútur að kynnast fólki og bjóða því heim í kaffi og spjall. Þetta nýtist henni einkar vel í starfi. Kristín er mikil útvistarmann- eskja. Hún var í skátunum á sínum yngri árum, elti síðar börnin sín á skíða- og fótboltaæfingar og mót, ólst sjálf upp við gönguferðir um hálendið og prjónar án afláts. Á sumrum dvel- ur hún gjarna í Breiðafirðinum þar sem hún og fjölskyldan eiga athvarf. Kristín er með pungapróf og mót- orhjólapróf og draumurinn er að eignast vespu, þótt reiðhjólið hafi dugað vel á liðnum árum. Hún hjólar í kjól til vinnu yfir sumartímann og jafnvel á fundi fram og aftur um bæ- inn. Hjólið er Peugeot, 27 ára gamalt, 10 gíra og gengur enn. Fjölskylda Eiginmaður Kristínar er Kristján Kristjánsson, f. á Akureyri 28.6. 1962, upplýsingafulltrúi Landsbankans. Foreldrar hans eru Björg Þórð- ardóttir, f. 30.4. 1938, fyrrv. starfs- maður við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, og Kristján Kristjánsson, f. 18.12. 1932, auglýsingateiknari og fyrrv. framkvæmdastjóri. Kristín og Kristján kynntust 1989 en giftu sig í garðinum heima árið 2002. Það partí líður gestum seint úr minni, kannski sérstaklega fyrir mat- inn sem ekki kom. Börn Kristínar og Kristjáns eru Þórunn Bryndís, f. 2.4. 1992, nemi í sálfræði og spænsku við HÍ; Högni Hjálmtýr, f. 10.3. 1994, nemi við VÍ; Brynja Björg , f. 4.1. 2000, og Kári, f. 24.7. 2004. Systkini Kristínar eru Pétur, f. 8.4. 1965, framkvæmdastjóri Snerruút- gáfunnar; Bjarni, f. 2.5. 1957 (fóst- urbróðir), atvinnurekandi í ferða- þjónustu; Helga, f. 28.7. 1949 (samfeðra), kennari. Foreldrar Kristínar: Hjálmtýr Pétursson, f. 24.8. 1907, d. 24.10. 1974, kaupmaður kenndur við versl- unina Nonna á Vesturgötu, og Þór- unn Þórðardóttir, f. í Odda í Ögurvík 5.3. 1933, fyrrv. fjármálastjóri og far- arstjóri hjá Ferðafélagi Íslands. Úr frændgarði Kristínar S. Hjálmtýsdóttur Kristín S. Hjálmtýsdóttir Guðríður Hafliðadóttir húsfr. á Strandseljum Þórður Ólafsson útvegsb. í Odda í Ögurvík Kristín Svanhildur Helgadóttir kennari í Odda Þórunn Þórðardóttir fyrrv. fjármálastj. Karitas María Daðadóttirhúsfr. á Skarði Guðrún Hermannsdóttir húsfr. á Harrastöðum Þórður Þorsteinsson b. á Harrastöðum Helga Þórðardóttir húsfr. á Ytra-Leiti Pétur Hjálmtýsson b. á Ytra-Leiti Hjálmtýr Pétursson kaupmaður í Nonna við Vesturgötu Sigríður Jónasdóttir húsfr. á Svínhóli Hjálmtýr Magnússon b. á Svínhóli í Miðdölum Guðfinnur Einarsson útvegsb. við Djúp Einar Guðfinnss. útgerðarm. og forstj. í Bolungarvík Guðfinnur Einarsson forstj. í Bolungarvík Einar K. Guðfinnss. alþm. og fyrrv. ráðh. Hildur Einarsdóttir Einar Benediktsson forstj. OLÍS Helgi Guðjón Einarsson b. á Skarði í Skötufirði, bróðursonur Helga Hálfdánarsonar prestaskólakennara, föður Jóns biskups, og bróðursonur séra Guðjóns Hálfdánar- sonar, föður Hálfdánar vígslubiskups Helgi Guðjón Þórðarson verkfr. og fram- kvæmdastj. Guðrún Þórðard. kennari í Rvík Steinþór Guðbjartsson fréttam. við Morgunblaðið Ólafur Kristján Þórðarson b. á Strandseljum í Ögurhreppi Sólveig Ólafsdóttir húsfr. á Ísafirði, Rvík og í Selárdal Arnór Hannibalsson heimspekingur Jón Baldvin Hannibalsson fyrrv. alþm. og ráðherra Þóra Arnórsdóttir dagskrárgerðarm. Kolfinna Baldvinsdóttir dagskrárgerðarm. Hafliði Ólafsson b. í Ögri Halldór Hafliðason b. í Ögri Halldór Halldórsson form. Sambands íslenskra sveitarfélaga og fyrrv. bæjarstj. á Ísafirði Friðfinnur Ólafsson forstjóri Háskólabíós Björn Friðfinnsson ráðuneytisstj. Stefán Friðfinnsson fyrrv. forstj. Íslenskra aðalverktaka ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Skechers GOwalk fisléttir og sveigjanlegir Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Skóbúðin, Keflavík GO Like Never Before Björn Pálsson flugmaður fædd-ist að Ánastöðum í Norður-Múlasýslu 10.1. 1908. Hann var sonur Páls Jónssonar, bónda á Arnhólsstöðum í Skriðdal, og Sól- rúnar Guðmundsdóttur húsfreyju. Páll var sonur Jóns Jónssonar, bónda á Svínabökkum í Vopnafirði, og Guðlaugar Gísladóttur húsfreyju, en Sólrún var dóttir Guðmundar Péturssonar, b. á Hauksstöðum í Jökuldal, og Jóhönnu Jónasdóttur, húsfreyju þar. Björn var í Eiðaskóla og Sam- vinnuskólanum, tók þátt í svifflugi frá 1934, lærði vélflug hjá Agnari Kofoed-Hansen og Sigurði Jónssyni, lauk einkaflugmannsprófi, því fyrsta sem tekið var hér á landi, 1939, og atvinnuflugmannsprófi 1949. Björn rak sjúkraflugvél í sam- vinnu við SVFÍ 1951-1966 og rak Flugþjónustuna hf. með Flugfélagi Íslands frá 1966. Hann var upphafs- maður að sjúkraflugi hér á landi og líklega dáðasti flugmaður Íslend- inga. Með sjúkraflugi sínu í tæpan aldarfjórðung vann Björn ótrúleg af- rek við erfiðar og hættulegar að- stæður og bjargaði fjölda mannslífa. Í slíkum ferðum lenti hann vél sinni og tók á loft á túnum, árbökkum, í fjörum, á söndum og á ís á vetrum. Það varð til þess að farið var að merkja og nota sjúkraflugvelli víða um land. Sjúkraflug hans rauf alda- langa einangrun og jók mjög öryggi afskekktra byggða enda var hann dáður sem þjóðhetja um allt land. Björn var hugþekkur, glaðsinna og yfirvegaður. Hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa, var einn af stofn- endum Svifflugfélags Íslands 1936 og Flugmálafélags Íslands, átti sæti í Rannsóknarnefnd flugslysa og sat í stjórn slysavarnadeildarinnar Ing- ólfs. Björn var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar, gullmerki SVFÍ og gullmerki Flugmálafélags Íslands og var veitt sérstök viðurkenning frá danska ríkinu vegna sjúkraflugs til Grænlands. Björn fórst með vél sinni, TF- VOR, ásamt fjórum öðrum er vélin fórst í Búrfjöllum 26.3. 1973. Merkir Íslendingar Björn Pálsson 90 ára Ólöf Haraldsdóttir Ragnhildur Haraldsdóttir 80 ára Ásdís Ingvarsdóttir Guðmunda L. Sigvaldadóttir 75 ára Ágúst Sveinsson Guðlaug Guðlaugsdóttir Steinar Gunnarsson 70 ára Ásgeir Bragi Ólafsson Eydís Lilja Eiríksdóttir Kristín Einarsdóttir Kristján Jónsson Sigurður Steindórsson Sveinn Eggertsson Sveinn Guðbergsson 60 ára Ágúst Ólafsson Edda Ástvaldsdóttir Frímann Ottósson Hólmfríður S. Svavarsdóttir Hörður Ágústsson Jens Guðbjörnsson Kristín Einarsdóttir Ólafur Helgi Gunnarsson Selma Antonsdóttir Sigrún Ásdís Gísladóttir Sína Þorleif Þórðardóttir Zenaida Zanoria Antonio Þorsteinn Sigfússon Þórður Rúnar Magnússon Örlygur Stefánsson 50 ára Birgir Már Birgisson Björgvin Bjarnason Björn Halldór Sveinsson Guðlaugur Ingi Sigurðsson Guðmundur R. Gunnarsson Guðríður Þórðardóttir Hildur Kristjana Arnardóttir Íris Adolfsdóttir Jóhann Jóhannsson Linda Hrönn Arnardóttir Stefán Eiríkur Stefánsson 40 ára Agnieszka Elzbieta Lyczek Arnbjörg Sigurðardóttir Arunas Brazaitis Fehrida Crnac Gunnar Wiencke Hilmar Pétur Valgarðsson Ingibjörg Ragnarsdóttir Ingi Karl Ingólfsson Lovísa V. Guðmundsdóttir Ottó Einarsson Svanbjörg Helena Jónsdóttir 30 ára Aðalbjörg Silja Ólafsdóttir Atli Már Hreggviðsson Atli Þór Ingvason Ellen Inga Hannesdóttir Elva Rut Guðlaugsdóttir Erna Rós Símonardóttir Ingrid Adames Santos Ingvar Örn Ólason Ivan Örn Hilmarsson Ísak Fannar Sigurðsson Til hamingju með daginn 30 ára Þórhildur ólst upp á Húsabakka í Svarf- aðardal, lauk MSc.-prófi í jarðeðlisfræði við HÍ og er nú kennari við MA. Maki: Jóhann Þórhalls- son, f. 1980, sjávarútv.- og viðskiptafræðingur. Börn: Edda Júlíana, f. 2008, og Þórhallur, f. 2010. Foreldrar: Júlíana Lár- usdóttir, f. 1947, bóka- safnsfræðingur, og Björn Þórleifsson, f. 1947, d. 2003, skólastjóri. Þórhildur Björnsdóttir 40 ára Ragnar er gull- smiður hjá Jóni Sig- mundssyn gullsmið. Maki: Dísa Ragnheiður Tómasdóttir, f. 1977, hjá HN-Markaðssamskipti. Börn: Alexandra Sigrún, f. 1992; Ásta Margrét, f. 1995; Embla Dögg, f. 1998; Símon Tómas, f. 2002; Ísabella Eir, f. 2009, og Mikael, f. 2011. Foreldrar: Símon Ragn- arsson og Halldóra Arth- ursdóttir. Ragnar Símonarson 30 ára Vala ólst upp í Grafarvoginum, lauk at- vinnuflugmannsprófi og er nú flugumsjónarmaður hjá Air Atlanta. Maki: Rafael Cecchini, f. 1975, iðnnemi. Dætur: Elísabet Björk, f. 2007, og Ísabella El- ínborg, f. 2011. Foreldrar: Elínborg Bjarnadóttir, f. 1958, læknaritari, og Gaukur Pétursson, f. 1959, kaup- maður. Vala Gauksdóttir Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.