Morgunblaðið - 10.01.2013, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013
Kraumur tónlistarsjóður, sem hef-
ur á síðustu misserum styrkt ís-
lenskt tónlistarlíf með myndar-
legum hætti, auglýsir nú eftir
umsóknum fyrir verkefni á sviði ís-
lenskrar tónlistar sem ráðgert er
að eigi sér stað árið 2013.
Tónlistarfólk og hljómsveitir úr
öllum geirum tónlistar geta sótt um
stuðning fyrir verkefni sín. Um-
sóknarferlið er einnig opið fyrir
viðburði og fræðsluverkefni.
Umsækjendum er bent á að
kynna sér markmið Kraums, sem er
sjálfstæður sjóður á vegum Auroru
velgerðasjóðs, ásamt upplýsingum
um umsóknarferlið, á vefsíðunni
www.kraumir.is.
Morgunblaðið/Eggert
Verðlaunahafar Kraumur tónlist-
arsjóður styrkir tónlistarmenn.
Kraumur leitar
umsækjenda
Svar Maríu nefnist ný sýning um
ævi og störf hinnar heimskunnu óp-
erusöngkonu Maríu Callas. Hún er
sýnd með söng og leiklestri í Saln-
um í Kópavogi í kvöld, fimmtudag,
og aftur á laugardag. Báðar sýn-
ingarnar hefjast klukkan 20.
Höfundur handrits er Bylgja Dís
Gunnarsdóttir en verkið byggist á
bréfi frá aðdáanda sem fannst í fór-
um Callas eftir lát hennar. Í verk-
inu svarar Callas bréfinu og komast
leikhúsgestir að ýmsu um þessa
stórbrotnu söngkonu. Að sýning-
unni koma meðal annars María Dal-
berg, Ragnheiður Steindórsdóttir
og Bylgja Dís. Leikstjóri er Jamie
Hayes og Antonia Hevesi tónlistar-
stjóri.
Stórbrotin Söngkonan María Callas
er viðfangsefni sýningarinnar.
Verk um ævi
Maríu Callas
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er óhætt að segja að þetta verk
sé á mörkum vísinda, leikhúss og
dans,“ segir Leifur Þór Þorvaldsson,
höfundur og leikstjóri sýningar sem
nefnist Stundarbrot og frumsýnd
verður á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins í kvöld kl. 20, en sýningin er sam-
vinnuverkefni Borgarleikhússins og
sviðslistahópsins Sublimi.
Að sögn Leifs eru þrjú ár síðan
hann fékk hugmyndina að Stund-
arbroti og byrjaði undirbúnings-
vinnuna við sýninguna. Leifur út-
skrifaðist úr fræði og framkvæmd
við Listaháskóla Íslands árið 2009.
Hann hlaut mikið lof fyrir lokaverk-
efni sitt, Endurómun, og var t.d. til-
nefndur til Grímunnar sem danshöf-
undur ársins það ár ásamt döns-
urum verksins. Aðspurður segir
Leifur Stundarbrot vera rökrétt
framhald af Endurómun, en þó á
mun stærri skala.
„Verkið fjallar um tímann og stór-
ar spurningar eins og lífið og dauð-
ann. Við skoðum m.a. hvernig við
upplifum tímann og hvernig dagatal-
ið og klukkan eru oft í andstöðu við
það hvernig við skynjum tímann,“
segir Leifur og tekur fram að hann
hafi um langt skeið rannsakað tím-
ann og m.a. sankað að sér allskyns
greinum og bókum um efnið. „Texta-
brot úr þeirri heimildavinnu rata inn
í sýninguna í flutningi dansaranna.
Viðfangsefnið er mjög stórt og kall-
aði á sterka sjónræna upplifun. Sök-
um þessa valdi ég að nota dansara í
stað leikara, því mér fannst dans
henta betur til þess að túlka við-
fangsefnið,“ segir Leifur og bendir á
að hann sé ekki danshöfundur í
venjulegum skilningi.
Hver dansari með eigin tónlist
„Einmitt vegna þess að ég er ekki
danshöfundur sjálfur en er samt að
leikstýra dansverki þá horfi ég allt
öðruvísi á dansinn en danshöfundur
myndi gera. Ég vinn þannig með
dansinn frekar eins og stærðfræði-
formúlu en bara hreyfingar. Sem
dæmi þá vinnum við með sérstaka
tækni í sambandi við dansinn. Yf-
irleitt í danssýningum eru allir dans-
ararnir að hlusta á sömu tónlistina,
en í þessu verki er hver dansari með
sína eigin tónlist í eyrunum. Tíma-
setningin á tónlistinni er forrituð í
tölvu þannig að allar hreyfingar
dansaranna eru forritaðar. Í raun
má segja að við séum búin að búa til
klukku úr þessum fjórum döns-
urum,“ segir Leifur. Dansarar í
verkinu eru þær Ásrún Magn-
úsdóttir, Kara Hergils Valdimars-
dóttir, Védís Kjartansdóttir og Þyrí
Huld Árnadóttir, en tónlistina sem-
ur Lydia Grétarsdóttir.
Eitthvað óendanlega
áhrifamikið
Spurður um Sublimi segist Leifur
hafa stofnað hópinn í samvinnu við
Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur. „Við
höfum það að markmiði að vinna
með nýsköpun í íslensku leikhúsi.
Sýningar okkar eru tiltölulegar
óhefðbundnar og mínimalískar, en
eiga það sameiginlegt að rúma stór
heimspekileg viðfangsefni á borð við
tímann. Viðfangsefnin eru útskýrð á
mjög sjónrænan en jafnframt að-
gengilegan hátt. Markmiðið er að
áhorfendur komi út að lokinni sýn-
ingu með hugmyndir eða vitneskju
sem þeir höfðu ekki áður.“
En hvaðan kemur nafnið á sviðs-
listahópnum? „Sublimi er ístegund í
Suður-Ameríku sem seld er í And-
esfjöllum í kringum fornar rústir
Inkanna. Nafnið tengist einhverju
óendanlega áhrifamiklu. Hug-
myndin er sú að leikhúsgestir geti
með einum leikhúsmiða keypt eitt-
hvað óendanlega áhrifamikið með
sama hætti og fjallgöngumenn geta
keypt þennan ís í Andesfjöllum fái
þeir ekki þessa stórkostlegu upp-
lifun sem þeir leita að í fjallgöngunni
sjálfri.“
Verk á mörkum vísinda,
leikhúss og dans
Forritun „Tímasetningin á tónlistinni er forrituð í tölvu þannig að allar hreyfingar dansaranna eru forritaðar. Í raun má segja að við séum búin að búa til
klukku úr þessum fjórum dönsurum,“ segir Leifur Þór Þorvaldsson, höfundur og leikstjóri Stundarbrots.
Sublimi frumsýnir Stundarbrot í Borgarleikhúsinu Tíminn til skoðunar í
nýju sviðsverki Leifs Þórs Þorvaldssonar Rökrétt framhald Endurómunar
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
V
ig
n
ir
Jó
h
an
n
ss
o
n
Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Skipholt 50a | Sími 581 4020 | www.galleri l ist. is
einstakt
eitthvað alveg