Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 43

Morgunblaðið - 10.01.2013, Side 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Nýtt verk eftir myndlistarmanninn Ragnar Kjartansson, „The Visitors“, verður sett upp á annarri einkasýn- ingu hans í galleríinu Luhring Aug- ustine í Chelsea í New York sem opn- uð verður 1. febrúar næstkomandi. „Þetta er eitt myndbandsverk sýnt á níu skjám, níu kvikmyndir sem allar eru af mismunandi tónlistarmönnum, teknar upp á sama tíma í sama húsi. Þetta er stund við sólsetur í ágúst síðastliðnum, þar sem ég og nokkrir vinir mínir úr reykvísku tónlistarsen- unni tökum upp tónlist við epískar aðstæður,“ útskýrir Ragnar. Í raun sé þetta eins og fjölrása hljóðvers- upptaka í kvikmyndarformi. Ragnar leikur í verkinu lag ásamt fjölda manns við texta eftir Ásdísi Sif Gunnarsdóttur myndlistarmann. „Þetta er í rauninni ljóðræn mús- íkölsk framvinda sem er í gangi í klukkutíma, svolítið eins og mantra, eða löng gospelmessa ellegar sat- anistamessa,“ segir Ragnar. Spurður að því hvort verkið sé þá ekki í anda verka hans hin síðustu misseri segir Ragnar það að vissu leyti ólíkt þeim. „Þetta er ekki jafn hrein endurtekn- ing, þetta er meira sinfónísk eða mús- íkölsk endurtekning. Þetta er ekki ein mantra aftur og aftur, í raun miklu meiri uppbygging og fram- vinda.“ Flókið Um tökur á verkinu sá Tómas Örn Tómasson kvikmyndatökumaður en Ragnar hefur unnið mikið með hon- um. Tómas sá fagurfræðilega og tæknilega um tökur verksins og segir Ragnar tökurnar hafa verið flóknar. „Við vorum að undirbúa og æfa tón- listina í heila viku og höfðum svo einn dag til að stilla öllu upp fyrir kvik- myndatöku og taka upp,“ útskýrir Ragnar. Og til að heyra hver í öðrum voru listamennirnir með heyrnartól við flutninginn, hver í sínu herbergi, í gömlu sveitasetri Astoria-fjölskyld- unnar í Hudson-dal, í nágrenni New York. -Þú hefur ekki notað þessa aðferð áður, er það? „Nei, ég vann þetta verk samt dá- lítið upp úr verkinu sem við Davíð Þór Jónsson gerðum, „The End“, þar sem við vorum tveir að baksa í Klettafjöllunum. Mig langaði að taka þetta form aðeins lengra, að búa til sinematískt, malerískt tónverk þar sem áhorfandinn er umvafinn sama augnablikinu,“ segir Ragnar. Tónlist- armennirnir sem leika með Ragnari í verkinu eru Davíð fyrrnefndur, Kjartan Sveinsson, Gyða Valtýsdótt- ir, Kristín Anna Valtýsdóttir, Ólafur Jónsson, Þorvaldur Gröndal og Shah- zad Ismaily, auk íbúa hússins sem syngja í kór og skjóta við og við af fallbyssu. Sýnir með Munch -Hvernig var síðasta ár hjá þér, sýningar út um allar trissur? „Já, það eru búnar að vera sýn- ingar út um hvippinn og hvappinn, rosa gaman og pródúktíft, ekkert nema gott um það að segja,“ svarar Ragnar kátur. Við það má bæta að einkasafn á Ítalíu, Fondazione Sand- retto Re Rebaudengo, keypti sl. sum- ar málverk Ragnars frá sýningu hans á Feneyjatvíæringnum 2009, The End Venezia, 144 talsins. Sýning á völdum verkum Ragnars, Song, sem upphaflega var sett upp í Carnegie Museum of Art í Pitts- burgh í Bandaríkjunum í mars 2011, var sett upp í Miami og Boston á árinu og í september hlaut hann sjón- listaorðu Íslensku sjónlistaverð- launanna. Þá hélt hann tvær sýn- ingar í Migros-listasafninu í Zürich í Sviss, þar sem „The Visitors“ var frumsýnt, í nóvember og er þar með ekki allt upptalið. Það liggur beinast við að spyrja hinn víðfræga listamann hvað sé framundan á árinu 2013. „Það er sýn- ing í Moderna Museet í Malmö, þar er ég að fara að sýna með Edvard Munch. Ég og norski málarinn,“ seg- ir Ragnar kíminn en sú sýning verður opnuð 3. maí. „Þessi sýning er samtal milli verks míns „Scandinavian Pain“ og Munchs,“ segir Ragnar. Margar aðrar sýningar séu í bígerð en ekki komnar á það stig að gaspra megi um það í Morgunblaðinu. Miklu meiri uppbygg- ing og framvinda  Ragnar Kjartansson sýnir „The Visitors“ í New York Bað Ragnar syngur og spilar í baði í verki sínu The Visitors. Verkið var tekið upp á gömlu óðalssetri í Hudson-dal. Myndir úr verkinu eru birtar með leyfi listamannsins, Luhring Augustine, NY og i8 gallerís, Reykjavík. Virðulegt Davíð Þór leikur á flygil í The Visitors. Einbeiting Gyða Valtýsdóttir sellóleikari í The Visitors. luhringaugustine.com/artists/ ragnar-kjartansson Undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í ár verður háð 25. og 26. janúar í sjónvarpssal en úrslitakeppnin fer fram í tón- listarhúsinu Hörpu 2. febrúar. Fyrirkomulag keppninnar í ár verður með nýju sniði, skv. frétt á vef RÚV þar sem segir að at- kvæði áhorfenda muni gilda til helmings við atkvæði dóm- nefndar og að tvö lög muni heyja einvígi í lokakeppninni. Alls verði 12 lög í keppninni. Mun þetta vera svipað fyrir- komulag og í Danmörku og Sví- þjóð. Kynnar keppninnar í ár verða Guðrún Dís Emilsdóttir og Þórhallur Gunnarsson. Kynnir Guðrún Dís Emilsdóttir, jafnan kölluð Gunna Dís, mun kynna ásamt Þórhalli. Kosið milli tveggja laga Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Lau 12/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 26/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn Sun 20/1 kl. 13:00 37.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 39.sýn Sun 13/1 kl. 16:00 36.sýn Sun 20/1 kl. 16:00 38.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 40.sýn Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Lau 26/1 kl. 13:00 Aukas. Sýningar í janúar komnar í sölu! Macbeth (Stóra sviðið) Fim 10/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 11.sýn Fös 11/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn Mið 16/1 kl. 19:30 Aukas. Fim 24/1 kl. 19:30 10.sýn Aðeins sýnt út janúar! Athugið - stobe lýsing notuð. Ekki við hæfi barna. Jónsmessunótt (Kassinn) Lau 12/1 kl. 19:30 25.sýn Lau 19/1 kl. 19:30 27.sýn Sun 13/1 kl. 19:30 26.sýn Sun 20/1 kl. 19:30 28.sýn Frábær skemmtun! Síðustu sýningar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 12/1 kl. 13:30 9.sýn Lau 12/1 kl. 16:30 Aukas. Sun 13/1 kl. 15:00 12.sýn Lau 12/1 kl. 15:00 10.sýn Sun 13/1 kl. 13:30 11.sýn Sun 13/1 kl. 16:30 Aukas. Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn Fös 15/2 kl. 20:30 24.sýn Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Lau 9/2 kl. 20:30 23.sýn Lau 16/2 kl. 20:30 25.sýn Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi! Já elskan (Kassinn) Fim 10/1 kl. 20:00 6.sýn Nýtt íslenskt dansverk um margbreytileg mynstur fjölskyldna. Með fulla vasa af grjóti (Samkomuhúsið Akureyri) Lau 26/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 16:00 Sýningar á Akureyri Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mýs og Menn (Stóra svið) Fim 10/1 kl. 20:00 aukas Lau 19/1 kl. 20:00 9.k Fös 1/2 kl. 20:00 14.k Fös 11/1 kl. 20:00 5.k Sun 20/1 kl. 20:00 10.k Fös 8/2 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 aukas Fim 24/1 kl. 20:00 11.k Lau 9/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 6.k Fös 25/1 kl. 20:00 aukas Fös 15/2 kl. 20:00 aukas Mið 16/1 kl. 20:00 7.k Lau 26/1 kl. 20:00 aukas Lau 16/2 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 8.k Sun 27/1 kl. 20:00 12.k Sun 17/2 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 aukas Fim 31/1 kl. 20:00 13.k. Mið 27/2 kl. 20:00 Jólasýningin 2012. Meistaraverk eftir John Steinbeck. Sýningum lýkur í febrúar. Gulleyjan (Stóra sviðið) Sun 13/1 kl. 14:00 Sun 3/2 kl. 14:00 Sun 20/1 kl. 14:00 Lau 9/2 kl. 14:00 Lokas Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Aukasýningar í janúar! Gullregn (Nýja sviðið í janúar. Stóra sviðið í febrúar) Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Sun 10/2 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré Saga Þjóðar (Litla sviðið) Fös 11/1 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Síðustu sýningar. Stundarbrot (Nýja sviðið) Fim 10/1 kl. 20:00 frums Þri 15/1 kl. 20:00 3.k Þri 22/1 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 2.k Sun 20/1 kl. 20:00 4.k Framsækið sjónarspil á mörkum vísinda, leikhúss og dans Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið) Lau 12/1 kl. 13:00 1.k Sun 13/1 kl. 13:00 3.k Lau 19/1 kl. 13:00 5.k Sun 13/1 kl. 11:00 2.k Lau 19/1 kl. 11:00 4.k Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri Stundarbrot – frumsýning í kvöld!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.