Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 10.01.2013, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarmaðurinn Snorri Helga- son hefur tekið við starfi fram- kvæmdastjóra alþýðutónlistar- hátíðarinnar Reykjavík Folk Festival og verður sú næsta haldin í salnum Gym og Tónik á Kex Host- eli, 7.-9. mars nk. Áherslur verða aðrar á henni en á fyrri hátíðum sem haldnar voru árin 2008 og 2010 en það var Ólafur heitinn Þórðar- son, einn liðsmanna Ríós tríós, sem stofnaði hátíðina ásamt meðlimum hljómsveitarinnar South River Band. En hverjar eru hinar nýju áherslur? Snorri svarar því. „Hátíð- in var stofnuð af Óla Þórðar sem var með pabba í Ríó. Þegar Reykja- vík Folk Festival var haldin síðast var gerð á henni úttekt, talað við fólkið sem kom. Það var hópur hjá Háskólanum í Reykjavík í námi í verkefnastjórnun sem gerði skýrslu og þar voru ýmsar pælingar varð- andi framtíðina og festivalið og ein af þeim var að yngja áhorfendahóp- inn,“ segir Snorri. Gestirnir hafi einkum verið fastakúnnar Rósen- berg, South River Band spilað, KK og Halli Reynis, m.a. „Það er svo ótrúlega mikið að gerast hjá unga fólkinu, t.d. Of Monsters and Men, Ólöf Arnalds og allt þetta, margt spennandi að ger- ast í folk-inu. Okkur langaði til að blanda þessu saman, taka þessa gömlu senu með Savannatríóinu, Þremur á palli og öllu þessu dæmi og blanda því við þetta nýja, þetta sem er kallað ný-„folk“ af þessum poppspekúlöntum.“ Andstæður og rauðir þræðir Snorri segir ekki hægt að segja frá því hverjir koma fram á hátíð- inni þar sem það liggi ekki endan- lega fyrir. „Þetta eru þrjú kvöld og það verða svona þrjú til fjögur at- riði á kvöldi þannig að hvert atriði verður svolítið langt, lengra sett en er oft á svona festivölum, þetta er ekki beint svona „show-case“ festi- val þar sem reynt er að ná mörgum böndum,“ segir Snorri. Áherslan verði frekar lögð á að búa til and- stæður og rauða þræði fyrir hvert kvöld. „Ég held það gæti verið mjög gaman að reyna að blanda saman einhverjum af þessum gömlu og þessu nýja „folk“-i,“ segir Snorri. Sem dæmi um slíka blöndu nefnir hann Savannatríóið og Ás- geir Trausta. „Það er langt þarna á milli, þannig séð, en það er þessi rauði þráður. Það eru allir að koma úr sömu áttinni sem er „folk“- tónlist.“ -„Alþýðutónlist“ í íslenskri þýð- ingu? „Já, það er bara í fínu lagi. Það er mjög erfitt að finna beina þýðingu fyrir þetta,“ segir Snorri og tekur undir það með blaðamanni að „folk“ sé býsna stórt mengi. Miðasala á hátíðina hefst um næstu mánaðamót og þá mun liggja fyrir hverjir koma fram á hátíðinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdastjórinn Snorri Helgason mun bjóða upp á öðruvísi Reykja- vík Folk Festival, 7.-9. mars næstkomandi, á Kex Hosteli við Skúlagötu. Nýtt og gamalt „folk“ í bland  Snorri stýrir Rvk. Folk Festival Djasshljómsveitin Sound Post held- ur tónleika í kvöld kl. 20.30 á Café Haiti, Geirsgötu 7b, í Reykjavík. Hljómsveitina stofnaði íslenska tón- skáldið og kontrabassaleikarinn Haraldur Guðmundsson, sem býr og starfar í Salzburg í Austurríki en hann er þar í fleiri hljómsveitum, Ba- ad Roots, Groundfloor og The girl at the piano. Sound Post gaf út fyrstu breiðskífu sína í fyrra, Stories, sungna djassplötu með tónlist í anda Billie Holiday og var henni dreift í Þýskalandi og Austurríki af útgáfu- fyrirtækinu Timezone. Söngkona hljómsveitarinnar og eiginkona Har- alds er einnig íslensk, Harpa Þor- valdsdóttir sem hefur numið óperu- söng hjá Barböru Bonney í Mozarteum-tónlistarháskólanum í Salzburg. Á tónleikunum í kvöld koma fram með þeim Haraldi og Hörpu gítar- leikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson og trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliasen sem hafa verið áberandi í íslenska djass- og popp- geiranum. Kvartettinn flytur lög af fyrrnefndri plötu auk nýrra laga eft- ir Harald. Það verður því kvartett sem flytur gestum ilmandi djass í kvöld sem gestir geta skolað niður með rjúkandi kaffibolla. helgisnaer@mbl.is Djass Haraldur Guðmundsson og Harpa Þorvaldsdóttir koma fram á Café Haiti í kvöld með Andrési Þór og Magnúsi Trygvasyni Eliasen. Sound Post á Café Haiti www.falkinn.is ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... Raftæknivörur Mótorvarrofar og spólurofar Það borgar sig að nota það besta! E i n n t v e i r o g þ r í r 3 1 .3 0 1 Skynjarar Töfluskápar Hraðabreytar Öryggisliðar Aflrofar Iðntölvur th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 GOLDEN GLOBE TILNEFNINGAR m.a. BESTA MYND BESTI LEIKSTJÓRI - V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS -EMPIRE -H.S.S., MBL -T.V., SÉÐ OG HEYRT -H.V.A., FBL SÉÐ OG HEYRT/VIKAN SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ÍSLENSKT TAL STÓRMYNDIN SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ EFTIR NÁNAR Á MIÐI.IS GLEÐILEG NÝTT BÍÓÁR 2013 HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 6 L THE HOBBIT 3D KL. 5.40 - 9 12 LIFE OF PI 3D KL. 6 - 9 10 CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 9 SÍÐUSTU SÝNINGAR 16 HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 4 - 6 L THE HOBBIT 3D KL. 4.30 - 8 12 THE HOBBIT 3D LÚXUS KL. 4.30 - 8 12 LIFE OF PI 3D KL. 5.15 - 8 - 10.45 10 LIFE OF PI KL. 8 - 10.45 10 GOÐSAGNIRNAR FIMM KL. 3.40 - 5.50 7 THE HOBBIT 3D KL. 5.50 - 9 12 LIFE OF PI 3D KL. 8 - 10.20 10 HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 5.50 L THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.6-10 THE HOBBIT 3D Sýndkl.7-10:30 HVÍTI KÓALABJÖRNINN Sýndkl.6 LIFE OF PI 3D Sýndkl.8-10:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar “Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.” -Séð & Heyrt/Vikan 12 12 10 7 FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM ANG LEE SÝND Í 3D OG Í 3D(48 ramma) STÓRMYNDIN SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ EFTIR! Vinsælasta bíómyndin á íslandi í dag „Life of Pi er mikil bíóveisla og ekta jólamynd, falleg og upplífgandi“ -H.S.S., MBL „Life of Pi er mikil upplifun. Augnakonfekt með sál““ -T.V., S&H „Life of Pi er töfrum líkust” - V.J.V., Svarthöfði.is - EMPIRE - H.V.A., FBL -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.