Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 1

Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. J A N Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  18. tölublað  101. árgangur  VERÐLAUNIN KOMU SKEMMTI- LEGA Á ÓVART SÍÐUSTU TVÖ ÁR EITT ÖSKU- BUSKUÆVINTÝRI MIKILL SKÓLI AÐ VERA Í SINFÓNÍU- HLJÓMSVEIT TRAUST Í MARKI ÍÞRÓTTIR UPPLIFUN OG REYNSLA 10HLAUT LJÓÐSTAF JÓNS ÚR VÖR 38 Blæðingar Tjaran hefur hlaðist utan á dekkin og erfitt reynst að ná henni af.  Fjölmargar tjónstilkynningar höfðu borist Sjóvá í gær, sem tryggingarfélagi Vegagerðarinnar, vegna tjörublæðinga á vegum norð- an- og vestanlands síðustu daga. Nokkuð dró úr blæðingunum í gær en tjörukögglar sem losnuðu undan ökutækjum ollu einnig vandræðum í umferðinni. Á meðan ekki hefur tekist að finna orsakir blæðinganna er óljóst með bótaskylduna. Mest tjón hefur orðið á flutningabílum. Ýmsir samverkandi þættir eru taldir skýra þetta en böndin berast m.a. að lýsi sem notað hefur verið út í slitlagið sem mýkingar- og þynningarefni í stað terpentínu. Vegagerðin sendi síðdegis í gær frá sér yfirlýsingu þar sem vegfar- endur eru beðnir velvirðingar á „þessu ástandi“ og ökumenn hvatt- ir til að gæta varúðar. Varúðar- skilti verða sett upp á vegunum og steinefni dreift á valda kafla í næstu þíðu. »4 Biðjast velvirðingar á blæðingunum Eldgos í Heimaey » Gosið hófst rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt 23. janúar 1973. Því lauk 3. júlí sama ár. » Af um 1.350 húsum í bænum fóru 417 undir hraun og um 400 hús til viðbótar skemmdust. » Hinn 1. desember 1972 bjuggu 5.273 í Eyjum. Hinn 1. janúar 2012 bjuggu þar 4.194 manns. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nú, 40 árum eftir eldgosið í Heimaey, er meira íbúðarhúsnæði í bænum en var fyrir gos, að mati Páls Zóphóníassonar, fyrrverandi bæjartæknifræðings og bæjar- stjóra. Íbúar Vestmannaeyja eru nú um 20% færri en þegar fór að gjósa. Austurhluti bæjarins fór undir hraun og vikur lagðist yfir fjölda húsa. Af um 1.350 húsum fóru 417 undir hraun og um 400 hús til við- bótar skemmdust, að því er segir á vefnum Heimaslóð. Páll sagði að í ljósi hamfaranna væri ekki hægt að segja annað en að vel hefði tek- ist til við uppbygginguna eftir gos með samhentu átaki margra. Séra Kristján Björnsson, sókn- arprestur í Eyjum, sagði að eld- gosið væri nokkuð sem allir miðuðu við. „Það er allt fyrir eða eftir gos.“ Hann sagði að eldgosið hefði breytt verðmæta- og gildismati fólksins. „Hér leggur fólk meira upp úr hinum andlega sjóði en margir aðrir. Maður finnur greini- lega í samfélaginu að hér metur fólk vináttuna og lífið miklu meira en allar eigur. Það metur eignir á annan hátt en gengur og gerist. Hér eru allir tilbúnir að hjálpa öll- um.“ Í tilefni þess að í dag eru 40 ár frá því að jarðeldarnir komu upp á Heimaey gefur Morgunblaðið út 16 síðna sérblað um eldgosið. Þar er fjallað um náttúruhamfarirnar í máli og myndum og minningar fólks sem tengjast gosinu. MUppbygging í Eyjum » 16 Fleiri hús en færra fólk  Í dag eru 40 ár liðin frá því að Heimaey fór að gjósa  Vel tókst til við uppbygg- ingu í Vestmannaeyjum eftir gosið  Nú eru þar um 20% færri íbúar en fyrir gos Morgunblaðið/Ómar Nefndarfundur Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis á fundi. Skúli Hansen Heimir Snær Guðmundsson „Það er alveg ljóst að það umhverfi sem þarna er verið að höfða til er al- gjörlega framandi fyrir núverandi stjórnsýslu,“ sagði Tryggvi Gunnars- son, umboðsmaður Alþingis, um 15. grein stjórnarskrárfrumvarpsins á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd- ar Alþingis í gærkvöldi. Þá benti Tryggvi á að greinin, sem kveður á um upplýsingarétt fólks og aðgang þess að opinberum gögnum, væri með mjög víðtækt gildissvið eins og hún er sett fram í texta frumvarpsins. Í umsögn sinni um frumvarpið gagnrýnir Tryggvi m.a. skerðingar- ákvæðið í mannréttindakafla frum- varpsins en hann telur að það muni væntanlega leiða til þess að heimilt verði að takmarka eða skerða stjórn- arskrárvarin mannréttindi í fleiri til- vikum og á öðrum grundvelli en hægt er samkvæmt núgildandi stjórnar- skrá. Þá gerir Tryggvi fjölda athuga- semda við frumvarpið í umsögn sinni en hún er 41 blaðsíða að lengd. »14 Gerir fjölda athugasemda  „Algjörlega framandi fyrir núverandi stjórnsýslu“ Börnin í Hamarsskóla í Vestmannaeyjum voru að reisa heilmikið eldfjall úr pappír í einni skóla- stofunni í gær og nutu við það aðstoðar kennara. Það var gert í tilefni þess að í dag eru fjörutíu ár frá því að eldgosið braust út í Heimaey. Börnin í grunnskólum Vestmannaeyja voru einnig búin að gera veggmyndir sem sýndar verða í Sagn- heimum, safnahúsi Vestmannaeyja. Í dag verða opnaðar þar sýningar í tilefni afmælisins. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Börn í Vestmannaeyjum minnast Heimaeyjargossins fyrir 40 árum  Skuldir Orku- veitu Reykjavík- ur hafa gróft á litið hækkað um 7,3 milljarða síð- an í lok sept- ember vegna veikingar krónu. Skuldir í evr- um hafa hækkað mest eða úr 80,4 milljörðum í 86 milljarða. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir hina neikvæðu gengisþróun „saxa á eiginfjár- stöðu“ Orkuveitunnar. »2 Veiking krónu eykur á skuldabyrði OR Höfuðstöðvar OR. TILBOÐ á 1 lítra Kókómjólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.