Morgunblaðið - 23.01.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 23.01.2013, Síða 4
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vegagerðin, lögreglan á Blönduósi, Umferðarstofa og Sjóvá hafa síðustu daga fengið fjölda tilkynninga um tjón á ökutækjum vegna tjörublæð- inga í malbiki á löngum vegarkafla á Norðurlandi. Aðallega hefur þetta verið frá Holtavörðuheiði og austur að Blönduósi en einnig voru dæmi um blæðingar austar, sem og áVest- urlandi og Vestfjörðum. Þá voru öku- menn varaðir við tjörukögglum sem losnuðu af bílum, allt frá Hvalfjarð- argöngum og norður til Akureyrar. Líkt og tíundað hefur verið ítarlega á mbl.is fór fyrst að bera á þessum blæðingum að ráði sl. föstudag og ágerðist smátt og smátt. Klæðning hlóðst utan á dekkin og spýttist upp í hjólhlífar og bretti og utan á ökutæk- in, með tilheyrandi tjóni, óþægindum og ógnun við umferðaröryggið. Minna bar á nýjum tilkynningum í gær, að sögn lögreglunnar á Blöndu- ósi, en tjörukögglar sköpuðu áfram hættu á vegunum. Þannig voru öku- menn í Hvalfjarðargöngum varaðir við og þurfti Spölur að setja upp að- vörunarskilti í gærmorgun á meðan stórir kögglar voru hreinsaðir upp. Lögreglan taldi ástæðu til að vara ökumenn við í fyrrakvöld, eftir að borið hafði á blæðingunum í þrjá daga. Spurður hvort ekki hafi verið ástæða til þess fyrr segir Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, að ökumenn hafi verið varaðir við á sunnudagskvöld en ef- laust hafi mátt gera það fyrr. Lögreglan hafi þó ekki séð þetta strax með eigin augum og tilkynn- ingar ekki verið margar í fyrstu. Síð- an hafi þetta ágerst og valdið öku- mönnum tjóni. Kristján vonast til að fari að draga úr blæðingunum og tel- ur ekki ástæðu til að takmarka um- ferð, biður ökumenn bara að fara var- lega og miða ökuhraða við aðstæður. Lýsið ódýrara og mengar minna Vegagerðin er með ábyrgðartrygg- ingu hjá Sjóvá en í gær var enn óljóst um bótaskyldu þar sem orsök blæð- inga liggur ekki endanlega fyrir. Ýmsar kenningar eru uppi um hvað veldur þessu. Vegagerðin hefur talað um marga samverkandi þætti, eins og tíðarfarið þar sem skipst hefur á frost og þíða. Voru vonir bundnar við að ástandið lagaðist með lækkandi hitastigi. Einnig hefur verið bent á of- aníburð á salti og sandi og það bland- ast saman við tjöruna með þessum af- leiðingum. Verktakar sem unnið hafa við klæðningar í mörg ár, en vildu ekki koma fram undir nafni, fullyrtu í sam- tali við Morgunblaðið að líklega væri meginástæðan fyrir þessum blæð- ingum lífolían, eða lýsið, sem farið var að nota sem mýkingarefni í slitlagið í stað terpentínu. Var það gert af umhverfisástæðum fyrst og fremst, til að draga úr mengun, auk þess sem lífolían er ódýrari en terpentínan. Hún er unnin úr fiskafurðum hjá Lýsi hf. Allar klæðningar, sem lagðar voru yfir vegi sl. sumar, voru með lýsinu út í, þar á meðal í Húnavatnssýslunum. Einn verktaki benti á að terpentínan gufaði upp úr tjörunni eftir ákveðinn tíma en lýsið gerði það á mun lengri tíma, blandaðist meira saman við tjöruna og gæti orðið að leðju. Einnig virtust steinefnin ekki festast nógu vel við tjöruna og þá skapaðist aukin hætta á blæðingum. Miklar blæðingar sl. sumar Gunnar Helgi Guðmundsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Ak- ureyri, hefur kynnt sér vel íslenskar olíur til vegalagningar og var fulltrúi Vegagerðarinnar í starfshópi sem skilaði nýlega af sér seinni áfanga- skýrslu um efnið. Þar var sérstaklega tekið fyrir þynningar- og mýking- arefni úr lífolíum sem framleiddar eru úr afgangssteikingarolíu frá veit- ingastöðum og úr dýrafitu frá af- urðastöðvum. Lagður var 400 m lang- ur tilraunakafli skammt frá Húsavík með þessu efni og Gunnar segir eng- ar blæðingar hafa átt sér stað þar. Hann segir annað mýkingarefni, unnið úr lýsi, vera á klæðningunum um Húnavatnssýslur og víðar um land. Síðasta sumar hafi talsvert bor- ið á blæðingum, fljótlega eftir að nýtt slitlag var lagt með lýsinu saman við. „Þetta var til vandræða á nokkrum köflum á Vesturlandi og Norðurlandi og þurfti að sanda þá oftar en einu sinni. Annars er verið að skoða þessi mál og starfshópur kominn af stað að finna út úr þessu nákvæmlega. Lík- lega er þetta sambland af ýmsum þáttum en alveg ljóst að veðurfarið hefur þarna einhver áhrif.“ Vegagerðin og verktakar höfðu notast við terpentínu sem mýking- arefni í slitlag allt frá árunum í kring- um 1980. Fyrir um sjö árum voru gerðar tilraunir með repjuolíu og síð- an farið yfir í lífolíu úr fiskafurðum. Gunnar Helgi telur reynsluna al- mennt hafa verið góða til þessa en gefa þurfi lífolíu meiri tíma til að sanna sig. „Það bar á vetrarblæð- ingum með terpentínuna en alls ekki í þessu magni sem nú er að gerast. Þetta er með því svæsnasta sem við höfum séð núna,“ segir Gunnar Helgi en bendir einnig á stóraukna þungaflutn- inga um vegi landsins. Einn flutningabíll með tíu tonna öxulþunga jafnist á við 10 þúsund fólksbíla hvað varðar álag á vegina. Þetta aukna álag hafi áreið- anlega sitt að segja, sem og margir fleiri þættir. Blæðingar valdið miklu tjóni  Vegagerðin kannar orsakir tjörublæðinga á vegum norðanlands  Ýmsir samverkandi þættir  Böndin berast m.a. að lýsi í mýkingarefni slitlagsins  Fjöldi tjónstilkynninga hefur borist Sjóvá Tjón Margir bílar hafa orðið fyrir skemmdum vegna tjörublæðinga á norðurleiðinni. Rífa hefur þurft bretti undan bílum til að losa um tjöruna. Fjöldi tjónstilkynninga hefur borist til Sjóvár, sem tryggingarfélags Vegagerðarinnar. Tjörublæðingar á vegum Loftmyndir ehf. Blönduós Staðarskáli Hvalfjarðargöng Akureyri Víða tilkynnt um tjöruköggla á vegum: Tjara Ökumenn hafa þurft að stoppa för sína til að hreinsa tjöruna. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Guðmundur Magnússon hjá Sjóvá segir óljóst með bóta- skyldu vegna tjörublæðing- anna. Hvert mál verði skoðað fyrir sig. Hann á von á fleiri til- kynningum eftir því sem líður á vikuna. Guðmundur segir að finna þurfi út úr því hvað veldur þessum blæðingum, áður en ákvörðun verður tekin um bóta- skyldu eða afgreiðslu þessara mála. Hvetur hann ökumenn sem lent hafa í tjóni til að til- kynna það til næsta útibús Sjó- vár, þannig að hægt sé að skrá málin niður. „Það þarf að fá öll gögn upp á borðið áður en ljóst er hvar sökin ligg- ur. Þetta er mjög sérstakt mál og hefur komið upp á stórum veg- arkafla.“ Hvert og eitt mál skoðað BÓTASKYLDA ÓLJÓS Vinnumálastofnun hefur afskrifað 223 milljónir króna sem 4.735 einstaklingar fengu í ofgreiddar atvinnuleys- isbætur á árunum 2009 og 2010. Viðkomandi einstak- lingar fengu tilkynningu um afskriftirnar nú í byrjun janúar. Um er að ræða bætur er einstaklingar fengu á móti skertu starfshlutfalli. Eftir hrun var sett bráðabirgðaákvæði í lög þar sem heimild atvinnuleitenda til að hafa tekjur meðfram at- vinnuleysisbótum var rýmkuð til muna. Samhliða því voru atvinnurekendur hvattir til að minnka frekar starfshlutfall starfsmanna í stað þess að segja þeim upp. Markmiðið var að einstaklingar héldu að minnsta kosti í hluta starfshlutfalls og héldu þar með virkni á vinnumarkaði. Fylgja vilja löggjafans Vorið 2011 kom í ljós að hluti þeirra atvinnuleitenda sem nýttu sér úrræðið hafði fengið ofgreiddar atvinnu- leysisbætur, þar með safnað skuldum gagnvart Vinnu- málastofnun þrátt fyrir að vera langt innan tekjumarka að því er segir í svari frá Vinnumálastofnun. Ástæð- urnar voru margvíslegar, t.d. að umræddir einstakling- ar höfðu ekki látið stofnunina vita um t.d. breytt starfs- hlutfall eða launahækkun en ekki var talið að um væri að ræða bótasvik í þeim tilfellum. „Vilji löggjafans var alltaf sá að viðkomandi gæti haft þokkalega góðar tekjur ásamt því að fá bætur. Við náð- um ekki að fylgja því eftir þegar fólk hækkaði í launum miðað við það sem það hafði áætlað. En í ljósi þess hvernig hugur löggjafans var þegar lögin voru sett þótti okkur eðlilegt að afskrifa þessar skuldir,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstöðumaður stjórnsýslusviðs Vinnumálastofnunar. Vorið 2011 samþykkti stjórn Vinnumálastofnunar að afskrifa skuldir þeirra einstaklinga sem höfðu fengið greiddar atvinnuleysisbætur meðfram hlutastarfi á ár- unum 2009 og 2010. Hins vegar voru skuldir sem sann- arlega voru tilkomnar vegna svika áfram innheimtar. Þess má geta að Ríkisendurskoðun veitti stofnuninni heimild til afskriftanna. heimirs@mbl.is Afskrifa 223 milljónir  Vinnumálastofnun afskrifar ofgreiddar atvinnuleysisbætur  Komu til er einstaklingar fengu bætur á móti hlutastarfi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.