Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
S
infóníuhljómsveit tónlist-
arskólanna er samstarfs-
verkefni fimm tónlistar-
skóla á Reykjavíkur-
svæðinu; Tónlistarskól-
ans í Garðabæ, Tónlistarskólans í
Hafnarfirði, Tónlistarskóla Kópa-
vogs, Tónlistarskóla FÍH og Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Tónlistarskólinn í Garðabæ er nú
með í fyrsta sinn en einnig hefur
öðrum tónlistarskólum verið boðið
að senda nemendur í hljómsveitina.
Að þessu sinni leika þannig með
henni nemendur Listaháskóla Ís-
lands, Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar, Tónlistarskóla Seltjarnar-
ness, Tónlistarskólans í Reykjavík
og Skólahljómsveitar Grafarvogs.
Ögun í vinnubrögðum
„Aðalmarkmiðið er að gefa
nemendum sem komnir eru á fram-
haldsstig í tónlistarskóla færi á að
spila í sinfónískri hljómsveit og fá þá
upplifun og reynslu sem fylgir því.
Þetta er öðruvísi en annað sem
krakkarnir fást við í náminu þar sem
þau æfa sig meira ein en spila inn á
milli með kennara og smærri hóp-
um. Félagslegi þátturinn í tónlist-
arnámi er mjög mikilvægur rétt eins
og félagslegi þátturinn í samfélag-
inu, ekki síst á þessum aldri. Það er
mjög hvetjandi að vera innan um
krakka sem eru að gera það sama.
Eins þarf mikla ögun til að vera í
sinfónískri hljómsveit og þar skiptir
formfestan máli. Ég hugsa að ekkert
listform krefjist jafnmikillar ögunar
nema þá kannski ballettdans,“ segir
Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórn-
Mikill skóli að vera
í sinfóníuhljómsveit
Í Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna kemur saman hópur ungra tónlistarnema
á framhaldsstigi. Æfingar hafa staðið yfir nú í janúar og lýkur æfingatímabilinu
með tónleikum í Hörpu nk. sunnudag. Stjórnandi sveitarinnar, Guðmundur Óli
Gunnarsson, segir félagslega þáttinn í tónlistarnámi mjög mikilvægan og gott að
ungt fólk sem er að fást við það sama geti komið saman.
Stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson á æfingu með hljómsveitinni.
Framhaldsstig Í hljómsveitinni eru nemendur frá fermingu upp að tvítugu.
Kaffi er ekki sama og kaffi, það veit
hún Elda sem á og rekur kaffihús við
Reykjavíkurhöfn sem heitir Cafe
Haiti. Elda er alin upp á Haiti og faðir
hennar er kaffibóndi og hún flytur
beint inn sínar Arabica-kaffibaunir
frá æskuslóðunum og sér sjálf um að
brenna þær og mala. Hjá Eldu er m.a
hægt að fá tyrkneskan og arabískan
kaffidrykk. Á vefsíðunni cafehaiti.is
er hægt að lesa allt um kaffihúsið og
þar er líka hægt að panta kaffi beint
á netinu. Lonely Planet hefur komið
við hjá Eldu og segir fastagesti full-
yrða að þar fáist besta kaffi á land-
inu. Lifandi tónlist er fastur liður á
Café Haiti og nú á föstudagskvöld
mun franski vísnasöngvarinn Donas,
troða upp kl. 22.
Vefsíðan www.cafehaiti.is
Cafe Haiti Eva og Elda eru glaðbeittar þegar þær hella upp á kaffi.
Besta kaffið segja sumir
Skapandi umbreyting kallast fyr-
irlestur Dóru Ísleifsdóttur grafísks
hönnuðar og prófessors við Listahá-
skóla Íslands og Guðrúnar Lilju Gunn-
laugsdóttur hönnuðar hjá Stud-
iobility. Fyrirlesturinn er hluti af
fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar
Íslands í samstarfi við Listasafn
Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands.
Á fyrirlestrinum mun Dóra fjalla um
hugmyndir og kenningar um hönnun
og hönnunarferli en Guðrún Lilja m.a.
velta upp spurningunni: Hvernig verða
hönnuðir framtíðarinnar? Fyrirlest-
urinn fer fram í Hafnarhúsinu fimmtu-
daginn 24. janúar og hefst klukkan
20-21.30. Nánari upplýsingar má nálg-
ast áwww.honnunarmidstod.is.
Skapandi umbreyting
Hönnun og
hönnunarferli
Morgunblaðið/Golli
Íslenskt Hönnun í Hönnunarsafni
Íslands.
Sýningin Origami – Brot í brot opnuð
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
fimmtudaginn 24. janúar kl. 17.
Á sýningunni eru einstök og
heillandi pappírslistaverk eftir hjónin
Dave og Assiu Brill. Þau hafa hannað
fjölda bréfbrota, gefið út bækur,
fengist við kennslu og sýnt verk sín
víða um heim. Verk þeirra voru flutt
sérstaklega til landsins fyrir sýn-
inguna í Gerðubergi en listamenn-
irnir verða viðstödd opnunina. Þar
verða m.a. þekktustu verk þeirra svo
sem Saint George and the Dragon
eftir Dave og St. Basil á Rauða torg-
inu í Moskvu eftir Assiu. Sýningin er
samstarfsverkefni Gerðubergs og
Origami Ísland en þeir Björn Finns-
son og Jón Víðis eiga einnig verk á
sýningunni.
Í tengslum við sýninguna verður
haldið námskeið í origami helgina
26.-27. janúar þar sem Dave og Assia
sjá um kennsluna. Námskeiðið er ætl-
að hönnuðum, lista- og handverks-
fólki. Kennsla fer fram í Gerðubergi
laugardag og sunnudag kl. 9-16. Á
námskeiðið er takmarkaður fjöldi
þátttakenda, námskeiðsgjald er
28.000 kr.
Brot í brot í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Þekktir origami-listamenn
sýna verk sín á Íslandi
Orgami Falleg blóm gerð af öðrum listamanni sýningarinnar, Assiu Brill.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vélheflar
www.brynja.is - brynja@brynja.is
TRÉSMÍÐA-
VÉLARNAR
FÁST Í BRYNJU
LYKILVERSLUN VIÐ
LAUGAVEGINN
335.200 kr.
69.900 kr.