Morgunblaðið - 23.01.2013, Side 13

Morgunblaðið - 23.01.2013, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Ferðaáæ tlun FÍ 2 013 er komi n út Námskeið í vetrarfjallamennsku 9. febrúar Ferðafélag Íslands býður upp á námskeið í vetrarfjalla- mennsku laugardaginn 9. febrúar nk. Á námskeiðinu er farið yfir grundvallaratriði vetrar- fjallamennsku, búnað til fjallamennsku, leiðaval og snjóflóðahættu. Leiðbeint er um göngu í snjó og notkun ísaxar og ísaxarbremsu, göngu á mannbroddum og snjó- og ístryggingar. Fjallað um hnúta, línumeðferð, sig og létt snjó- og ísklifur. Skyndihjálp og óhöpp í óbyggðum 19., 21. og 26. febrúar Tími: Kl.18-22 í sal FÍ, Mörkinni 6. Ferðafélag Íslands býður upp á námskeið í skyndihjálp og óhöpp í óbyggðum. Verklegt námskeið fyrir göngufólk í skyndihjálp og viðbrögðum við óhöppum í óbyggðum. Eftir stutta upprifjun á grunnatriðum skyndihjálpar er lögð aðal- áhersla á raunhæf verkefni og fræðslu og frásagnir af slysum á Íslandi og þannig reynt að æfa viðbrögð við óhöppum. Námskeiðið endar á verklegri útiæfingu þar sem björgunarfólkið þarf að fást við slasaða sjúklinga. Ferðafélag Íslands Skráning á námskeiðin eru í síma 568 2533 eða í netpóst fi@fi.is Skráðu þig inn – drífðu þig út Námskeið í febrúar FUNDIR - MÓTTÖKUR - VEISLUR NÝTT ÁR - NÝTT UPPHAF Í Kjós Í sveitasetrinu við Laxá í Kjós er stór og vandaður veislu- salur sem tekur um 80 manns í sæti og með gistingu fyrir allt að 40 manns. A ð e i n s 2 5 m í n . f r á Reykjavík. Í Borgarfirði Í sveitasetrinu við Grímsá er glæsilegur salur sem tekur allt að 70 manns í sæti og gisting fyrir allt að 36 manns. Í húsinu er gufubað og heitur pottur svo hægt er að slaka vel á eftir góðan dag. Aðeins 50 mín. frá Reykjvaík. www.hreggnasi.is Nánari upplýsingar í 892-9263 eða julli@hreggnasi.is og 661-0413 eða doddi@hreggnasi.is Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra hefur falið refsiréttarnefnd að vinna að frumvarpi til breytinga á hegningarlögum sem þrengir og skerpir á klámhugtakinu. Hann kynnti þessi áform sín á ríkisstjórn- arfundi í gær. „Ný skilgreining skal taka mið af ákvæði norskra hegningarlaga og lagt er sérstaklega til að refsiréttar- nefnd fjalli um hvort ástæða sé til að bann nái einnig til vörslu kláms líkt og á við um klámefni sem sýnir misnotk- un á börnum,“ segir í minnisblaði ráð- herra. Þá hefur innanríkisráðherra óskað eftir tilnefningum í starfshóp sem að- ilar í lögreglunni, embætti ríkissak- sóknara og Póst- og fjarskiptastofnun koma til með að skipa. Starfshópnum er ætlað að „fara yfir hvernig tryggja megi lögreglu lagalegt úrræði til að bregðast við skaðlegu efni á netinu. Hópnum er gert að taka til sérstakrar skoðunar möguleg úrræði sem heim- ila lögreglu að knýja eiganda, hýsing- araðila eða fjarskiptafyrirtæki til að loka á dreifingu efnis“, stendur enn- fremur í minnisblaðinu. „Árið 2010 hóf Ögmundur samráð um meðferð kynferðisbrota í réttar- kerfinu. Ýmsir fagaðilar voru kallaðir til og vöktu margir athygli á að skír- skotun til kláms kæmi oft upp í brota- flokknum, bæði í mynstri ofbeldisins og sumir bentu á tengsl við tíðni,“ segir Halla Gunnarsdóttir, aðstoðar- maður Ögmundar. Þessi vinna byggist á tillögum und- irbúningshóps um hvernig sporna megi við klámvæðingu. Hópurinn fjallaði m.a. um klám út frá lagalegu, heilbrigðislegu og samfélagslegu sjónarhorni og hvert hlutverk stjórn- valda skyldi vera í þessum efnum. thorunn@mbl.is Frumvarp í bígerð þar sem klámhugtakið er þrengt  Ný skilgreining kláms tekur mið af norskum lögum Frumvarp Spornað við klámvæðingu. Óvissuástandi var aflétt á Landspítalanum í gær. Í máli Björns Zoëga, forstjóra LSH, í fyrradag kom m.a. fram að ef ekki biðu jafnmargir sjúklingar á LSH eftir hjúkrunarrýmum hefði ekki þurft að grípa til þessara aðgerða; að lýsa yfir óvissuástandi. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra svarar því til að fjöldi sjúklinga sem bíði eftir hjúkrunarrýmum gengi í bylgjum og listinn hafi vissulega lengst lítillega undanfarið. „Í þessu tilfelli er átt við fólk sem ætti að vera inni á hjúkrunarheimilum og er með vistunarmat. Fólk hefur rétt á að velja hvert það vill fara. Í sumum tilfellum hef- ur það neitað ákveðnum plássum. Fólkið vill ekki fara út fyrr en það kemst í rétt pláss en plássin eru vissu- lega fyrir hendi. Við höfum verið að ræða hvernig við tökum á þessu,“ segir Guðbjartur og bætir við að mark- miðið hljóti að vera að fólk hafi ekki val um að fá að vera á sjúkrahúsi ef hjúkrunarrými er í boði. En þá víkur málinu aftur að ástandi LSH. Guðbjartur var spurð- ur hvort aukafjárveiting væri á teikniborðinu til heilbrigðiskerfisins, m.a. með hliðsjón af fyrirhuguðum uppsögnum hjúkrunarfræðinga. „Það er verið að skoða lausnir í sam- bandi við hjúkrunarfræðingana,“ segir hann og vísar m.a. í „jafn- launaátak 2013“ sem hann og fjármálaráðherra kynntu í ríkisstjórn í gær. Átakinu er ætlað að vinna gegn launamun kynjanna, sem er mestur hjá heilbrigð- isstofnunum. thorunn@mbl.is Geta hafnað hjúkrunarrýmum Guðbjartur Hannesson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.