Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
Starfsfólk Ískrafts, sem er rafiðn-
aðarheildverslun í eigu Húsasmiðj-
unar, afhenti Fjölskylduhjálp Ís-
lands á dögunum 350 þúsund
króna peningagjöf.
Á árlegum haustfagnaði, sem Ís-
kraft heldur rafverktökum og
starfsmönnum þeirra, var haldið
uppboð sem að þessu sinni var til
styrktar Fjölskylduhjálpinni.
Gestir tóku virkan þátt í upp-
boðinu og söfnuðust samtals 270
þúsund í uppboðinu. Ískraft lagði
síðan til 80 þúsund til viðbótar,
svo gjöfin nam samtals 350.000
krónum.
Á myndinni, sem tekin var þeg-
ar gjöfin var afhent, er hluti
starfsfólks Ískrafts ásamt fulltrú-
um Fjölskylduhjálpar Íslands.
„Viljum við færa þeim hjartans
þakkir fyrir stuðninginn,“ segir í
frétt frá Fjölskylduhjálpinni.
Samtökin vekja einnig athygli á
því og úthlutun til skjólstæðinga
fari fram allan ársins hring og því
séu allar gjafir vel þegnar.
Starfsfólk Ískrafts
efndi til uppboðs
Fyrsta miðvikudagserindi ársins
2013 hjá Orkustofnun verður hald-
ið í dag, miðvikudaginn 23. janúar.
Erindið fjallar um endurbætur á
innrauðum hitaskanna og sýndar
verða fyrstu niðurstöður til-
raunamælinga á jarðhitasvæðunum
á Reykjanesi og Þeistareykjum.
Með styrk frá Orkusjóði tókst að
ljúka endurbótum á skannanum
þannig að hann er nú áreiðanlegt
rannsóknatæki. Höfundar eru: Kol-
beinn Árnason hjá Landmælingum
Íslands og Háskóla Íslands og Axel
Björnsson prófessor emeritus.
Flytjandi erindisins er Kolbeinn
Árnason. Erindið verður haldið í
fyrirlestarsal Orkugarðs kl. 12:00.
Mælingar með inn-
rauðum hitaskanna
Hrafnaþing hefjast að nýju eftir
miðsvetrarfrí. Fyrsta erindi á vor-
misseri verður haldið miðvikudag-
inn 23. janúar kl. 15.15. Þá mun
Trausti Baldursson líffræðingur á
Náttúrufræðistofnun Íslands flytja
erindi sitt Natura Ísland 2012-2015
– Flokkun vistgerða og kortlagning
búsvæða dýra og plantna.
Nánari upplýsingar um erindið
má finna á vef Náttúrufræðistofn-
unar. Hrafnaþing er haldið í húsa-
kynnum Náttúrufræðistofnunar að
Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, og
er öllum opið.
Ræðir flokkun vist-
gerða á Hrafnaþingi
STUTT
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þótt skammt sé liðið á árið hefur ver-
ið í ýmis horn að líta hjá Evrópu-
stofu. Miðvikudaginn 16. janúar fóru
Timo Summa, sendiherra ESB á Ís-
landi, og Henrik Bendixen, yfirmað-
ur Evrópusviðs hjá sendinefnd ESB
á Íslandi, yfir stöðu aðildarviðræðna
á fundi á Höfn á Hornafirði. Þá fór
Bendixen yfir stöðuna á fundi hjá
Rótarý-félagi á Egilsstöðum í sömu
viku. Mánudaginn 21. janúar ýtti
Evrópustofa úr vör myndbrota-
keppni í tilefni af eins árs afmæli
stofunnar. Er þar með fylgt eftir
ljósmyndakeppni Evrópustofu í
fyrra. Fyrstu verðlaun eru flugferð
fyrir tvo til Parísar ásamt gistingu.
Stefna á að gera tíu myndbönd
Birna Þórarinsdóttir, fram-
kvæmdastýra Evrópustofu, segir
frekari fundahöld fyrirhuguð.
„Við ætlum að halda ferðalögun-
um út á land áfram á næstu vikum.
Þá erum við að fara í loftið með stutt
skýringarmyndbönd á vef okkar um
Evrópusambandið, hvað það er og
hvernig það starfar. Efnið er heima-
unnið. Við stefnum á að gera allt að
tíu myndbönd.“
– Hvað geturðu sagt mér um pok-
ann sem þið hafið látið gera?
„Það sem við setjum í pokann er
allt efni sem við höfum gefið út á ís-
lensku. Framboð og eftirspurn ræð-
ur magninu. Við byrjuðum á að gera
500 poka. Þeir eru allir farnir. Þá
gerðum við 500 til viðbótar og sjáum
til hvað þeir endast lengi. Við gripum
til þessa ráðs til að gera kynningar-
efni okkar aðgengilegra fyrir fólk.
Við munum bæta í pokann eftir því
sem við gefum meira efni út á ís-
lensku. Það er hægt að sækja poka
og allt annað upplýsingaefni hjá okk-
ur á Suðurgötu og á skrifstofu okkar
á Akureyri. Svo höfum við poka með
okkur á fundum úti á landi.“
„Ávinningur innan seilingar“
Meðal efnis í pakkanum er bækl-
ingurinn Evrópusambandið – hvaða
þýðingu hefði það fyrir mig? Fjórir
einstaklingar, fjórar sögur. Formála
ritar Stefan Füle, stækkunarstjóri
ESB. Skrifar hann þar m.a.: „Dyr
ESB eru opnar og ávinningur sam-
einingar er innan seilingar ... Ég
vona innilega að þið verðið virkir
borgarar í Evrópusambandinu og
grípið þau spennandi tækifæri sem
fylgja ESB-aðild,“ skrifar Füle og á
við sameiningu Evrópu.
Síðan er rætt við fjóra einstak-
linga, pólskan bónda, búlgarskan
starfsmann fjarskiptafyrirtækis á
Kýpur, ungverskan þýskukennara
og slóvenska hjúkrunarkonu. Lýsa
reynslusögurnar því hvernig aðild að
ESB hefur gagnast þeim í leik og
starfi. Bæklingurinn er prentaður í
Belgíu.
Annað smárit sem fylgir með í
pakkanum er bæklingurinn Hvað
viltu vita? 10 algengar spurningar og
svör um innri markað ESB. Eru
kostir innri markaðarins þar tíund-
aðir. Enn annar bæklingur er ritið
Talað fyrir Evrópu: Tungumál
Evrópusambandsins. Eru þar rakin
dæmi af því hvernig ESB stuðlar að
aukinni málakunnáttu þegnanna.
Þá fylgir með í pakkanum motta
fyrir tölvumús með teikningum eftir
Halldór Baldursson skopteiknara,
þeim sömu og prýða pokann sjálfan.
Sex önnur smárit eru í pakkanum.
Meðal þeirra er bæklingurinn Efna-
hags- og peningamál, þar sem segir
að tekið hafi verið á evrukreppunni
af festu. „Fjármálakreppan sýndi
fram á annmarka í hagstjórnarkerfi
ESB og því voru reglugerðir þar að
lútandi nýverið endurbættar.“
Evrópustofa setur
fræðsluefni í poka
500 eintök þegar
farin út og nýja
upplagið jafn stórt
Morgunblaðið/RAX
Kíkt í pokann Átta bæklingar, ferðabæklingur, stuttermabolur, blaðra,
kúlupenni og músamotta eru í pokanum sem Evrópustofa lét gera.
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
… Heilsurækt fyrir konur
Nýtt!
bjóðum
nú einnig
upp á tri
mform
Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði.
Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því
ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca.
3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma
hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari
núna. Curves er frábær staður með frábæru
starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að
æfa þegar það passar mér best.
Paula HolmPaula Holm, 40 ára
Nýr
lífstíll á nýju ári
Bankastræti 2, Sími 551 4430
info@laekjarbrekka.is - www.laekjarbrekka.is
...í sögulegu umhverfi