Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 18

Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 18
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hlutabréfasjóður á vegum Stefnis sem fjárfestir í hlutabréfum sem skráð eru í Kauphöll, IS-15, hefur vaxið mikið eftir áramót. Sjóðurinn hefur vaxið í 15,5 milljarða króna en var 10,5 milljarðar við áramótin. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins má rekja um fjóra milljarða króna af þessari fimm milljarða aukningu til þess að fjárfestar hafi lagt nýtt fé í sjóðinn, þ.e. fjárfest í honum, og um einn milljarður sé vegna gengishækk- ana á markaði. Stefnir er í eigu Arion banka og rekur fjárfestingarsjóði. Lífeyrissjóðir eru afar áberandi á hluthafalistum skráðra félaga í Kaup- höll. Þeir hafa mikið fé undir höndum, sem fer vaxandi. Nú er mun meiri áhugi á hlutabréfum en verið hefur frá hruni. Það sést meðal annars á því að eignir hlutabréfasjóða hafa vaxið í 33,8 milljarða króna í nóvember úr 18,5 milljörðum við upphaf síðasta árs eða 83%, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum. Þessi þróun helgast meðal annars af miklum skorti á fjár- festingarkostum vegna gjaldeyris- hafta og að skuldabréfamarkaðurinn skilaði í fyrra – í fyrsta skipti frá hruni – ekki frábærri ávöxtun. Skuldabréfamarkaðurinn hækkaði um 6,6% á árinu 2012, samkvæmt skuldabréfavísitölu GAMMA. Fram hefur komið að á árunum 2008 til 2011 hafi ávöxtunin á skuldabréfamarkaði verið tæplega 17% á ári að nafnvirði. En í fyrra hækkaði Úrvalsvísitalan, sem mælir þróunina á hlutabréfa- markaðnum, um 16%. Sum fyrirtæki gerðu betur: Icelandair Group rauk upp um 61%. Auk þess hefur skráðum félögum fjölgað. Ekki er langt síðan Hagar, Eimskip, Reginn og Vodafone voru skráð á markað. Annar hvati er að inn- lánsvextir hafa ekki verið að veita góða ávöxtun. Vegna skorts á fjárfest- ingarkostum óttast þeir sem Morgun- blaðið ræddi við að bóla muni myndast á hlutabréfamarkaði. Margir hefðu viljað sjá fleiri skráningar á markað í kortunum, enda eru lífeyrissjóðirnir með fulla vasa fjár og mikið fé liggur á innlánsreikningur sem þarf að ávaxta. Fjárfestar leggja um fjóra milljarða í hlutabréfasjóð Morgunblaðið/Ásdís Mikill vöxtur Eignir hlutabréfasjóða hafa vaxið í 33,8 milljarða króna í nóvember úr 18,5 milljörðum við upphaf síðasta árs eða 83%.  Stefnir IS-15 vex frá áramótum Óttast bólu » Það að aukið fjármagn leiti á hlutabréfamarkaðinn nú er ekki einsdæmi. Erlendis hafa verið sagðar fréttir af hinu sama. » Hlutabréfasjóður Stefnis IS-15 sem fjárfestir í hlutabréf- um skráðum í Kauphöll, hefur vaxið í 15,5 milljarða króna en var 10,5 milljarðar við áramót- in. » Fjárfestar óttast bólumynd- un á hlutabréfamarkaði. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Stuttar fréttir ... ● Greiningardeild Arion banka spáir 0,10% lækkun á vísitölu neysluverðs í janúar, en gangi spáin eftir mun árs- verðbólga mælast 3,8% samanborið við 4,2% í desember. Helstu áhrifa- þættir fyrir lækkuninni eru útsöluáhrifin og minni gjaldskrárhækkanir en al- mennt hafa verið síðustu ár. Áfram sé flugliður vísitölunnar talinn vera mesti óvissuþátturinn en hann sveiflist einna mest í verðmælingum Hagstofunnar. Spáir verðhjöðnun í janúar Verðbólgan á evrusvæðinu mældist 2,2% í desember miðað við sam- ræmda vísitölu neysluverðs og var hún óbreytt frá fyrri mánuði. Verðbólgan mældist aðeins meiri sé tekið mið af öllum ríkjum Evr- ópska efnahagssvæðisins (EES), eða sem nemur um 2,3%. Í desem- ber 2011 mældist verðbólgan á evrusvæðinu 2,7% en 3,0% sé miðað við EES, og hefur því talsvert dreg- ið úr verðbólgu í þessum nágranna- löndum okkar, samkvæmt því sem fram kemur í morgunkorni grein- ingar Íslandsbanka. Verðbólgan á evrusvæðinu er þó enn lítillega yfir 2% verðbólgu- markmiði Seðlabanka Evrópu en verðbólgan hefur verið yfir því marki allt frá því í desember árið 2010. Miðað við samræmdu vísitölu neysluverðs mældist verðbólgan 5,1% hér á landi í desember sl. Minnkaði hún mikið frá fyrri mán- uði þar sem hún hafði mælst 6% í nóvember, samkvæmt morgunkorni greiningar. „Í raun dró talsvert meira úr verðbólgu hér á landi en í löndum í kringum okkur. Þó trónir Ísland enn á toppnum með mestu verð- bólguna af ríkjum EES í desember, en sætinu er að þessu sinni deilt með Ungverjalandi. Þar hefur raun- ar verulega dregið úr verðbólgu að undanförnu líkt og hér á landi.“ Af löndum EES hafi verðbólgan mælst minnst í Grikklandi (0,3%) en næstminnst í nágrannalöndum okk- ar Svíþjóð (1,1%) og Noregi (1,1%). Sé Sviss, sem ekki er innan EES, hér meðtalið í samanburðinum hafi verðbólgan verið minnst þar en þar hafi tólf mánaða takturinn mælst neikvæður um 0,2% í desember. Minni verðbólga á evrusvæðinu Morgunblaðið/Styrmir Kári Verðbólga Evrusvæðið nálgast 2% verðbólgumarkmiðið óðfluga.                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./+ ,0,.1- +,2./, ,,.23- ,,./04 +/.151 +5-.-1 +.4401 +/1.44 +-0.1+ +,2.,, ,05.+1 +,/.5 ,,./,4 ,,./-+ +/.1/4 +52.+4 +.4442 +/-.05 +-+.0/ ,5,.35/1 +,2.35 ,05.13 +,/.12 ,,.//+ ,5.052 +/.-3, +52.3, +.44/ +/-.1, +-+.3- Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Fataskápur Hæð 2100 mm Breidd 800 mm Dýpt 600 mm 58,900 kr m vsk Tegund: Strúktúr eik TIL Á LAGER SKÁPATILBOÐ Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Hlutabréf hafa lækkað í verði í Kauphöllinni und- anfarna viðskiptadaga og nemur lækkun Úrvalsvísitöl- unnar á því tímabili tæplega 2%. Þessir lækkun nú kemur í kjölfarið á mikilli hækkun á hlutabréfamarkaði sem staðið hefur yfir undanfarnar vikur, samkvæmt því sem fram kemur í morgunkorni Íslandsbanka í gær. Þar kemur fram að Úrvalsvísitalan náði sínu hæsta lokagildi frá upphafi síðastliðinn miðvikudag þegar hún stóð í 1.164 stigum en vísitalan nær aftur til ársbyrj- unar 2009. Frá því í nóvemberbyrjun hafi vísitalan hækkað um 20%. Frá áramótum hafi Úrvalsvísitalan hækkað um 8% en til samanburðar hafi hún hækkað um rúmlega 16% allt árið í fyrra. „Af einstökum fé- lögum hefur Icelandair hækkað mest það sem af er árinu eða um tæplega 14%. Þá hefur Reginn hækkað um 11% og Eimskip um 10%.“ Lækkun undanfarna daga sé leiðrétting á þeirri miklu hækkunarhrinu sem hafi verið viðvarandi frá því um miðjan desember sl. Framundan sé uppgjörstíð en í næstu viku muni Marel birta afkomu sína fyrir fjórða ársfjórðung síðasta árs og í fyrstu vikunni í febrúar sé von á uppgjöri Icelandair. Félögin munu svo kynna uppgjör sín fyrir fjórða ársfjórðung koll af kolli út febr- úar. Nokkrir rauðir dagar Morgunblaðið/Styrmir Kári Kauphöllin Lækkun er skýrð sem leiðrétting eftir miklar hækkanir. ● Jón Ásgeir Jó- hannesson hefur verið skilgreindur sem yfirmaður þróunarverkefna í skipuriti 365 miðla. „Þetta er í sjálfu sér ekki nein ráðn- ing. Hann er áfram í ráðgjafahlutverki eins og hann hefur verið undanfarin ár, en ekki í fullu starfi,“ sagði Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Ari telur að staða Jóns Ásgeirs muni ekki hafa áhrif á um- fjöllun fréttadeilda og að þrátt fyrir að vera til rannsóknar eigi það ekki að úti- loka menn frá atvinnu. Jón Ásgeir Jóhannesson Yfirmaður þróunarverk- efna hjá 365 miðlum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.