Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
Harry Bretaprins, sem líkti því að
skjóta skæruliða í Afganistan við að
spila tölvuleik, er líklega orðinn
„geðveikur“, að sögn talibana.
„49 ríkjum með sína voldugu heri
hefur mistekist í baráttu sinni við
hermenn íslams og núna kemur
þessi prins og líkir þessu stríði við
leikina sína, Playstation eða hvað
hann kallar þetta,“ segir talsmaður
talibana, Zabiullah Mujahid, við
AFP-fréttastofuna.
Harry, sem er þriðji í erfðaröðinni
að bresku krúnunni, segist hafa fellt
talibana er hann var við hermennsku
í Afganistan í 20 vikur. Harry er
þjálfaður þyrluflugmaður. Hann
gegndi stöðu aðstoðarflugmanns og
hafði umsjón með skotvopnum þyrl-
unnar sem eru allt frá byssum til
flugskeyta og eldflauga. „Þetta er
skemmtilegt því ég er einn af þeim
sem elska að spila í PlayStation og
Xbox. Þannig að með mína þumal-
fingur tel ég mig koma vel að gagni,“
sagði Harry í viðtali á mánudag, eftir
að hann lauk dvöl sinni í Afganistan.
Segja prinsinn „geðveikan“
Talibanar í Afganistan gagnrýna ummæli Harrys prins
AFP
Þyrluflugmaður Harry prins í her-
stöð í Afganistan í nóvember sl.
Franskir og þýskir ráðamenn komu saman í Berl-
ín í gær til að minnast þess að hálf öld er liðin frá
því að Élysée-samningurinn var undirritaður til
að stuðla að sáttum og samstarfi milli Þjóðverja
og Frakka eftir síðari heimsstyrjöldina.
Charles de Gaulle, þáverandi forseti Frakk-
lands, og Konrad Adenauer Þýskalandskanslari
undirrituðu samninginn 22. janúar 1963. Ríkin tvö
gegndu síðar lykilhlutverki í þróun Evrópusam-
starfsins. Leiðtogar þeirra litu svo á að vin-
áttubönd ríkjanna myndu styrkjast með aukinni
efnahagslegri samvinnu og einingu þannig að
Merkel og Hollande sögðu eftir viðræðurnar að
ríkin myndu leggja fram sameiginlegar tillögur í
maí um aðgerðir til að stuðla að hagvexti á evru-
svæðinu. Þau lögðu áherslu á nauðsyn þess að
halda áfram nánu samstarfi ríkjanna þrátt fyrir
togstreitu sem hefur verið á milli þeirra vegna
ágreinings um hvernig bregðast eigi við skulda-
vanda evrulanda. Hollande hefur beitt sér fyrir
auknum ríkisútgjöldum til að ýta undir hagvöxt
og gagnrýnt þýsku stjórnina fyrir að leggja of
mikla áherslu á sparnað í ríkisfjármálum til að
minnka fjárlagahalla evruríkja. bogi@mbl.is
styrjaldir milli ríkjanna yrðu úr sögunni.
Afmælisins var minnst með vináttuhátíð sem
hófst með því að François Hollande, forseti
Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, ræddu við listamenn frá löndunum tveimur
í sendiráði Frakka í Berlín og um 200 unga náms-
menn í byggingu kanslaraembættisins.
Ráðherrar ríkisstjórna landanna tveggja héldu
einnig sameiginlegan fund í þýsku höfuðborginni.
Síðar um daginn sátu nær 400 franskir þingmenn
fund með þýskum þingmönnum í þinghúsinu í
Berlín.
AFP
Sögulegs samnings minnst
Vináttuhátíð Frá sameiginlegum fundi franskra og þýskra þingmanna í þinghúsinu í Berlín í gær í tilefni af afmæli Élysée-samningsins.
56 ára gömul
bresk kona,
Lindsay Sandi-
ford, var dæmd
til dauða í
Indónesíu í gær
fyrir að reyna að
smygla kókaíni
til landsins.
Dómurinn kom
mjög á óvart vegna þess að sak-
sóknarar vildu að konan yrði
dæmd í fimmtán ára fangelsi.
Sandiford var handtekin á flug-
velli á ferðamannaeyjunni Balí í
maí á liðnu ári þegar hún kom
þangað með flugvél frá Bangkok
og tæp fimm kíló af kókaíni fund-
ust í ferðatösku hennar.
Indónesísk yfirvöld segja að kon-
an hafi verið í fíkniefnasmyglhring
ásamt þremur Bretum og Indverja
sem hafa einnig verið handteknir.
Sandiford segist hafa neyðst til
að flytja kókaínið til að vernda
börn sín sem hefðu verið í hættu.
Dómstóllinn komst að þeirri niður-
stöðu að konan hefði ekkert sér til
málsbóta og hefði ekki játað glæp
sinn.
Verjendur konunnar sögðu lík-
legt að hún myndi áfrýja dómnum.
Hugo Swire, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bretlands, gagnrýndi
dóminn og sagði bresku stjórnina
vera andvíga dauðarefsingum.
Konan gæti óskað eftir því að for-
seti Indónesíu mildaði dóminn ef
áfrýjun dygði ekki.
INDÓNESÍA
Bresk kona dæmd
til dauða fyrir smygl
Helge Lund, for-
stjóri norska
orkufyrir-
tækisins Statoil,
hefur lofað um-
fangsmikilli
rannsókn á því
hvað fór úr-
skeiðis þegar
vopnuðum ísl-
amistum tókst að ráðast inn gas-
vinnslustöð í Alsír og taka tugi er-
lendra starfsmanna hennar í
gíslingu, þeirra á meðal Norð-
menn. Lund hefur einnig lofað að
niðurstöður rannsóknarinnar verði
birtar.
Statoil rekur gasvinnslustöðina
ásamt breska fyrirtækinu BP og
alsírska orkufyrirtækinu Sona-
trach. Að sögn Aftenposten segja
sjónarvottar að hryðjuverkamenn-
irnir hafi komið í gasvinnslustöð-
ina í bíl sem hafi verið í litum
Sonatrach. Einnig hafa komið
fram vísbendingar um að starfs-
menn Sonatrch hafi veitt íslamist-
unum upplýsingar um gasvinnslu-
stöðina fyrir árásina.
NOREGUR
Statoil lofar rann-
sókn á gíslatökunni
Endurvinnslutunnan
er raunhæfur valkostur!
Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2510 • gamar@gamar.is • endurvinnslutunnan.is
Kynnið ykkur vel hvaða valkostir eru í boði:
Þið eigið val um að panta Endurvinnslutunnuna frá Gáma-
þjónustunni en í hana má setja SJÖ flokka af endurvinnsluefnum.
Okkar lausn er umhverfisvæn, ódýr og sparar þér sporin.
Kynnið ykkur allt um Endurvinnslutunnuna á
endurvinnslutunnan.is
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
21
.8
50
/0
1.
13
Pappi
Pappír
Dagblöð/
tímarit
Fernur
Rafhlöður
Málmar
Plast-
umbúðir
Fyrir 7 árum hóf Gámaþjónustan hf. að bjóða upp á Endurvinnslutunnu á
höfuðborgarsvæðinu til flokkunar á heimilissorpi. Í hana mega fara SJÖ
flokkar af efnum, allt laust í tunnuna nema rafhlöður sem fara í þar til
gerða poka. Aðeins Endurvinnslutunnan bíður upp á þetta marga flokka
í sömu tunnu, sem er mikil hagræðing. Allt sem í Endurvinnslutunnuna
fer er síðan flokkað í móttöku- og flokkunarstöð Gámaþjónustunnar hf.,
baggað og gert klárt til útflutnings. Endurvinnsla okkar er ábyrg og
örugg!
ET+
Þarft þú að losna við raftæki?
Við sækjum stærri raftæki til viðskipta-
vina Endurvinnslutunnunnar þeim að
kostnaðarlausu.
Ekkert skrefagjald!