Morgunblaðið - 23.01.2013, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
Hægrimönnum og flokkum sem
höfða einkum til trúrækinna gyðinga
var spáð sigri í þingkosningum sem
fram fóru í Ísrael í gær.
Stjórnmálaskýrendur sögðu lík-
legt að Benjamin Netanyahu for-
sætisráðherra yrði falið að mynda
nýja ríkisstjórn eftir kosningarnar.
Stjórnarmyndunarviðræðurnar geta
tekið allt að sex vikur.
Sameiginlegum lista Likud, flokks
Netanyahus, og Yisrael Beitenu,
flokks þjóðernissinna, var spáð
mestu fylgi en talið var þó að flokk-
arnir myndu missa þingsæti. Þeir
fengu alls 42 sæti af 120 í síðustu
kosningum.
Verkamannaflokknum var spáð
næstmestu fylgi. Flokkurinn var að-
eins með átta
þingsæti en talið
var að hann
myndi styrkja
stöðu sína veru-
lega, einkum
vegna óánægju
launþega með
hækkandi verð-
lag. Leiðtogi
flokksins, Shelly
Yachimovich, hefur sagt að ekki
komi til greina að hann gangi í ríkis-
stjórn undir forystu Netanyahus.
Flokkur Bennetts í sókn
Flokkurinn Habayit Hayehudi
(Heimili gyðinga) kom mest á óvart í
kosningabaráttunni og honum var
spáð þriðja sætinu. Flokkurinn er
undir forystu Naftalis Bennett, auð-
ugs kaupsýslumanns, sem höfðar
einkum til trúrækinna gyðinga og
nýtur mikilla vinsælda meðal land-
tökumanna á Vesturbakkanum.
Bennett vill að stór hluti Vestur-
bakkans verði innlimaður í Ísrael og
er andvígur hvers konar friðar-
samningum sem fela í sér að stofnað
verði sjálfstætt Palestínuríki.
Flokkurinn fékk aðeins þrjú þing-
sæti árið 2009 en fylgi hans hefur
aukist mjög undir forystu Bennetts.
Hugsanlegar friðarumleitanir
voru ekki ofarlega á baugi í kosn-
ingabaráttunni. Kannanir bentu til
þess að kjósendurnir hefðu meiri
áhuga á félagslegum og efnahags-
legum vandamálum landsins.
Tveir miðflokkar hafa léð máls á
því að mynda stjórn með Netanyahu
ef hægriflokkarnir fá ekki meiri-
hluta á þinginu. bogi@mbl.is
Stefnir í nýja
hægristjórn
AFP
Bænagerð Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, baðst fyrir við
Grátmúrinn í Jerúsalem áður en hann greiddi atkvæði í þingkosningunum.
Naftali Bennett
Oft erfitt að mynda
meirihlutastjórn
» 38 flokkar á 34 listum berj-
ast um 120 þingsæti í kosning-
unum.
» Listarnir fá þingsæti í hlut-
falli við atkvæðafjölda og þurfa
aðeins tveggja prósenta fylgi
til að komast á þing.
» Þingsætin skiptast því á
marga flokka og stjórnarmynd-
unarviðræður eru oft erfiðar í
Ísrael. Þetta kerfi hefur stuðl-
að að pólitískum óstöðugleika.
» Aðeins sex af síðustu 18
þingum hafa getað lokið kjör-
tímabilum sínum.
Talið að Netanyahu haldi völdunum
Gibbon-apar í dýragarði í Peking sem var opnaður almenningi árið 1908 á
svæði sem tilheyrði áður keisarahöll. Öll dýrin í garðinum féllu úr hor í síð-
ari heimsstyrjöldinni nema þrettán apar og einn gamall emúi.
AFP
Apar í gömlum keisaragarði
Starfsmenn efna-
verksmiðju í
Rúðuborg í
Norður-
Frakklandi
reyndu í gær að
stöðva gasleka
sem hefur valdið
miklum óþef sem
fundist hefur allt
frá París til suð-
austurhluta Englands. Frönsk yf-
irvöld segja að gaslekinn sé mein-
laus þótt margir kvarti undan
höfuðverk og ógleði.
Fjölmargir hafa leitað til læknis
og enn fleiri lagt fram kvörtun til
heilbrigðisyfirvalda vegna ódauns-
ins sem þykir minna mjög á fúlegg.
Gaslekinn varð til þess að fresta
þurfti bikarleik í fótbolta milli liðs
Rúðuborgar og Marseille sem átti
að fara fram í gærkvöldi á fótbolta-
leikvangi sem er nálægt efnaverk-
smiðjunni.
Ekki er vitað hvað olli lekanum.
FRAKKLAND
Ólykt vegna gasleka
barst til Englands
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
www.falkinn.is
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Fyrir þá sem
hönnun