Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 23

Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Eldgos Aska liggur yfir Vestmannaeyjum árið 1973. Heimaey breytti svo sannarlega um svip í gosinu en unnið var að hreinsunarstarfi allt fram til ársins 1976. Ólafur K. Magnússon Mín fyrsta minning tengd Heimaeyjargos- inu var þegar ég sat, sex ára gömul, við eldhúsborðið á heimili mínu í Keflavík og skoðaði forsíðumynd Morgunblaðsins af gossprungunni. Mér þótti þetta svakalegt og ég man að ég vor- kenndi jafnöldrum mínum sem töpuðu öllum leikföngunum sínum alveg sérstaklega. Í dag eru 40 ár liðin frá þessum atburði, sem snerti okkur öll svo djúpt. Einum mestu náttúruhamförum Íslandssög- unnar, þar sem við vorum ræki- lega minnt á hversu öflug náttúran getur verið og hversu vanmáttug við mannfólkið erum þegar hún lætur á sér kræla. En gosið er ekki eingöngu merki um hrikalegar nátt- úruhamfarir, heldur einnig til merkis um magnaðan kraft, sam- stöðu og mátt mannfólksins, Eyja- manna og annarra, sem hjálpuðu til við uppbyggingu eftir gosið. Af 1.350 húsum í Eyjum fóru 417 undir hraun og önnur 400 skemmdust. Fræði- og vís- indamenn töldu að við tæki margra ára hreinsunarstarf, en bjartsýni og elja Eyjamanna átti sér lítil takmörk og þvert á spár var hreinsunarstarfi að mestu lok- ið í ágúst sama ár. Á ferðum mínum til Vest- mannaeyja verð ég þess alltaf vör hversu stóran sess eldgosið hefur í hug- um og hjörtum Eyja- manna. Þess verð ég líka vör þegar ég hitti brottflutta Eyja- menn víða um land. Þessi atburður bind- ur þá sameiginlegum böndum og þá skiptir litlu hvort þeir eru fæddir fyrir eða eftir gos. Eyjamenn eru stoltir af framgöngu sinni í gosinu og það mega þeir vera. Og í dag, 40 árum seinna, þá þökkum við fyrir á sérstakri þakkargjörðarathöfn sem haldin er í Vestmannaeyjum. Við þökk- um fyrir að ekki varð mannskaði. Við þökkum fyrir að kraftur Eyja- manna og annarra sem tóku þátt í uppbyggingunni á þessum tíma, hefur skilað sér í einu sterkasta byggðarlagi á Íslandi. Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur »En gosið er ekki eingöngu merki um hrikalegar náttúruham- farir, heldur einnig til merkis um magnaðan kraft, samstöðu og mátt mannfólksins … Ragnheiður Elín Árnadóttir Höfundur er alþingismaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Kraftur, dugn- aður og elja Eyjamanna Í dag eru 40 ár frá upphafi gossins á Heimaey. Eyjamenn og landsmenn flestir minnast þess nú þegar jörðin rifnaði í jaðri byggðarinnar í Vest- mannaeyjum og gló- andi hraun vall úr. Í ávarpi sínu við upphaf gossins sagði þáverandi biskup að varla hefði í annan tíma jafn mikill voði vofað yfir jafn mörgum Íslendingum á sama andartaki og þá nótt. Gosið á Heima- ey væri einn hrikalegasti atburður sem orðið hefði í sögu landsins. Það voru vafalaust orð að sönnu og mikil var sú mildi að ekki varð tjón á lífi íbúa, björgunarmanna og framtíð byggðar. Mögnuð sena Sjálfur var ég of lítill til að skilja að- stæðurnar sem ég upplifði gosnóttina, þá rétt tæplega fjögurra ára. Tilhugs- unin um þessa tíma hrærir þó ætíð upp magnaðri atburðarás í huga mér. Atburðarás sem lýsir hvernig lítið barn vaknar og lítur heimsviðburð við svefnherbergisgluggann. Sér eldgos nær en nokkrum er hollt. Verður vitni að geðbrigðum sem spanna allt frá ótta yfir í fullkomið æðruleysi. Fylgist með íbúum heils byggðarlags koma sér niður að skipshlið í fullkominni óvissu um hvað framtíðin komi til með að bera í skauti sér. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvað er raun- veruleg minning og hvar frásagnir, kvikmyndir og ljósmyndir hafa fyllt í eyðurnar. Ljóslifandi finnst mér þó standa mér í hugskoti hvernig úr hverju einasta andliti mátti lesa þau meitluðu skilaboð að til Eyja myndi fólk snúa aftur eins fljótt og verða mætti. Gosið var Eyja- mönnum erfitt Þeir sem ekki upp- lifðu þessa atburði hljóta að eiga erfitt með að skilja þær tætings- legu tilfinningar sem við Eyjamenn berum enn í dag til þessara hamfara. Ég vil gerast svo djarfur að halda því fram að gosið hafi verið okkur Eyjamönnum erf- iðara en seinni tíma söguskýring hef- ur viljað vera láta. Söguskýringin á sjálfsagt rót í því að við Eyjamenn dveljum ekki lengi við vandamálin en snúum þeim í verkefni. Hjá því verð- ur þó ekki horft að Eyjamenn urðu að hverfa í hendingskasti frá heimilum sínum með fátt annað með sér en föt- in sem þeir klæddust. Eignatjónið varð gríðarlegt og við tóku tímar full- kominnar óvissu. Fjölskyldur tvístr- uðust og fréttirnar sem bárust af heimahögum voru oftar en ekki þung- bærar. Samfélag byggt á kjarki Þeim mun ótrúlegri var sá kjarkur sem Eyjamenn höfðu til að bera þeg- ar þeir völdu að flytja aftur heim til Eyja. Að velja að takast á við það risavaxna verkefni að hreinsa bæinn af ösku og eignast á ný það samfélag sem var þeim svo kært. Að taka taf- arlaust í sátt þá óblíðu náttúru sem ógnað hafði bæði lífi og eignum. Að veðja á rjúkandi eldfjallaeyju sem framtíð sína og sinnar fjölskyldu. Undir gunnfánum samheldninnar sneru Eyjamenn aftur og byggðu það fyrirmyndarsamfélag sem í dag á sér ekki hliðstæðu. Það þurfti kjark, dáð og þor til að endurreisa byggð í Eyj- um. Af því áttu Eyjamenn nóg til að takast verkefnið. Þakkargjörð Ár hvert nota Eyjamenn 23. janúar til að færa þakkargjörð. Þá þakka þeir þá guðsmildi hversu vel fór við hrikalegar aðstæður. Í hörmung- unum sýndi hin íslenska þjóð hvers hún er megnug. Samhugurinn og drengskapurinn var alger. Fyrir það færum við Eyjamenn Íslendingum öllum þakkir. Á sama hátt réttu vina- þjóðir okkar Íslendinga Eyjamönn- um hjálparhönd, bæði í gosinu og því ógnvænlega verkefni sem við tók í kjölfar þess. Það voru vinahót sem Eyjamenn gleyma aldrei. Þeir Eyja- menn sem ekki fluttu til baka hafa síðan þá upp til hópa reynst sínum heimahögum vel. Það eru þeir sem svo oft mynda varðlínu um hagsmuni Vestmannaeyja sem um hefur mun- að. Öllum þessum aðilum færa Eyja- menn þakkir. Sjálfur færi ég sér- staklega því hugrakka fólki sem á tvísýnustu tímum byggðar í Eyjum sneri heim strax að gosi loknu, hreinsaði Eyjuna af ösku og byggði á ný samfélag sem ekki á sér hliðstæðu í veröldinni. 40 ár frá upphafi Heimaeyjagossins Eftir Elliða Vignisson » Gosið var einn hrika- legasti atburður sem orðið hefur í sögu landsins. Vart hefur í annan tíma jafn mikill voði vofað yfir jafn- mörgum Íslendingum. Elliði Vignisson Höfundur er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.