Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 30

Morgunblaðið - 23.01.2013, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 ✝ Ásta Svein-bjarnardóttir fæddist 9. júlí 1939 á Breiðaból- stað í Fljótshlíð. Hún lést 14. jan- úar 2013 á Land- spítalanum í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru sr. Svein- björn Högnason prófastur, f. 6. apríl 1898, d. 21. apríl 1966, og frú Þórhildur Þorsteinsdóttir, f. 20. janúar 1903, d. 21. des- ember 2003. Systkini Ástu eru: 1) Ragnhildur, f. 25. mars 1927, d. 19. apríl 2008, gift Jóni Kristinssyni, f. 1925, d. 2009. 2) Sváfnir, f. 26. júlí 1928, fyrri kona hans var Anna Elín Gísladóttir, f. 1930, d. 1974, seinni kona hans var Ingibjörg Þ. Halldórsdóttir, f. 1936, d. 2012. 3) Elínborg, f. 10. júní 1931, gift Guðmundi Sæmundssyni, f. 1932, d. 2005. Ásta giftist 30. september 1961 Garðari Steinarssyni flug- stjóra. Hann lést 6. nóvember 2007. Ásta og Garðar eign- uðust þrjú börn. 1) Hróðný, f. 7. apríl 1962, dóttir hennar og Friðriks Þórs er Ásta, f. 29. helstu hugðarefnum sem fólust í ræktun af ýmsum toga, bæði í gróðurhúsinu og garðinum. Fjölskylda og vinir skiptu hana miklu máli og hún hélt alla tíð tryggð við vinkonurnar frá æsku- og námsárunum. Einnig lagði hún mikið upp úr fjölskylduhefðum og tengslum við fólkið sitt. Ásta var virk í félagsstarfi á Seltjarnarnesi. Hún var í kvenfélaginu til ævi- loka, söng í fjölda ára með Sel- kórnum, var virk í Framsókn- arflokknum og sat meðal annars í ýmsum nefndum fyrir hans hönd. Ásta ferðaðist víða, bæði innanlands og utan ásamt eig- inmanni sínum og vinum. Hún hafði mikinn áhuga á sögu og fór á miðjum aldri í sagn- fræðinám í Háskóla Íslands. Mörg ferðalögin tengdust þessu áhugamáli hennar. Árið 2001 fluttu hjónin að Flyðrugranda 4 og áttu þar heimili til æviloka. Þau reistu sér jafnframt sumarhús á æskuslóðum Ástu í Fljótshlíð- inni þar sem hún undi sér best hin síðustu ár. Ásta verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, 23. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. júní 1982. 2) Þór- hildur, f. 15. júlí 1965, gift Björgvini Þórðarsyni, f. 14. janúar 1959, sonur þeirra er Garðar, f. 26. september 2001. Börn Björg- vins eru Hildur, f. 16. apríl 1983 og Haukur, f. 8. apríl 1989. 3) Páll, f. 9. júlí 1971, dóttir hans og Ernu S. Jónsdóttur er Dúna, f. 26. nóvember 2004. Dóttir Ernu er María Ösp, f. 15. apríl 1996. Ásta ólst upp á Breiðabóls- stað í Fljótshlíð hjá foreldrum sínum og systkinum. Að loknu námi í Skógaskóla fór hún í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi 1959. Eftir það starfaði hún meðal annars við bankastörf þar til þau hjónin stofnuðu heimili á Dvergasteini á Seltjarnarnesi. Ásta sinnti börnum og búi ásamt því að reka Áhaldaleig- una sf. ásamt manni sínum, systur hans og mági. Hjónin reistu sér hús að Vesturströnd 27 á Seltjarnarnesi og fluttist fjölskyldan þangað árið 1980. Þar gat Ásta sinnt sínum Þegar aldur færist yfir og ann- ríki starfsáranna linnir virðist tíminn ýmist hægja á sér eða þjóta hjá sem fljúgi fugl. Hið síð- arnefnda skynjum við með afger- andi hætti þegar ástvinir kveðja óvænt og um aldur fram. Ásta systir mín var allnokkrum árum yngri en við hin þrjú systkinin. Hún fæddist á sólríkum sumar- degi og glöggt er í minni að við eldri systkinin vorum send til að leika okkur við jafnaldra á næsta bæ meðan á fæðingunni stóð. Og ekki síður minnisstætt að sjá litlu systur nýfædda í faðmi móður okkar. Er hún óx úr grasi var hún áfram sólskinsbarn með ljósa lokka og létta lund – og sáði alla sína ævi fræjum gleði og góðvildar í sálir samferðafólks- ins. Ástu veittist létt að læra og eftir barnaskóla í heimasveit lauk hún námi í Skógaskóla og stúdentsprófi í MR. Öll skólaárin var hún heima á Breiðabólstað á sumrin við heyskap og önnur sveitastörf, en eftir stúdentspróf vann hún um skeið í Búnaðar- bankanum í Reykjavík. Á þeim árum kynntist hún lífsförunaut sínum, Garðari Steinarssyni flug- stjóra, og giftu þau sig árið 1961. Bjuggu þau sér fyrst heimili í Dvergasteini á Seltjarnarnesi en reistu síðan glæsilegt einbýlishús á Vesturströnd 27 og ræktuðu þar og prýddu í kringum sig af natni og myndarskap. Börn eign- uðust þau þrjú, sem í öllu bera uppruna sínum fagurt vitni. Eiga þau öll afkomendur og var Ástu það yndi mest að sinna um og fylgjast með uppvaxandi kynslóð komast til vaxtar og þroska. Síð- ustu árin bjuggu Ásta og Garðar sér heimili á Flyðrugranda 4 í Reykjavík. Ásta og Elínborg systir okkar voru ætíð mjög nán- ar, einnig eftir að þær fóru að búa syðra ungar að árum – studdu hvor aðra, ekki síst á síð- ustu árum þegar sjúdóma og ást- vinamissi bar að höndum. Þau Ásta og Garðar nutu þess að ferðast bæði utanlands og inn- an og fóru víða. Minnisstæðar eru heimsóknir þeirra til okkar að Kálfafellsstað í Suðursveit og aðdáun barna okkar sem þau heilluðu í ævintýraferðum inn á dal, út í Þrándarós í veiðiskap og yfir vötn og sanda að skoða ís- borgirnar á Jökulsárlóni. Það voru góðir dagar. Síðar urðu Ásta og Garðar dýrmætir tengi- liðir við þau af börnunum sem er- lendis hafa búið, svo tíðar ferðir sem þau áttu á þær slóðir. Ásta hélt jafnframt tryggð við æsku- slóðir og þau Garðar byggðu snoturt og vel búið sumarhús í landi Múlakots í Fljótshlíð og nefndu Garðarshólma. Minnis- stæð er vígsla og húsblessun bú- staðarins þegar stórfjölskyldan fagnaði nafngjöf hans í boði stoltra húsráðenda. Þar undi Ásta sér marga stund við að rækta og prýða í kringum sig, einnig eftir lát eiginmanns síns haustið 2007. Síðustu árin átti Ásta við al- varlegan sjúkdóm að stríða, en hélt þrátt fyrir það sínum hug- arstyrk og glaða viðmóti allt til endadægurs. Fjölskyldu hennar votta ég innilega samúð mína og fjölskyldu minnar – í þeirri trú að hún muni í nýrri tilvist uppskera eins og hér var til sáð. Megi henni áfram fylgja birta og bless- un Guðs. Í hans hendur felum við systur mína – og allt það sem henni var kært. Sváfnir Sveinbjarnarson. Í dag kveðjum við elskulega móðursystur okkar hana Ástu, sem nú hefur hlotið hvíld eftir langvinn og erfið veikindi. Margar góðar stundir koma upp í hugann enda var samgang- ur á milli heimila okkar nokkuð mikill, sérstaklega hér á árum áður þegar við vorum börn. Helgarheimsóknir, afmælisveisl- ur og jólaboð auk samveru í Fljótshlíðinni þegar amma bjó á Staðarbakka standa upp úr frá þessum árum. Ásta viðhélt tengingu við gömlu sveitina sína og fyrir u.þ.b. 10 árum hófust þau Garðar handa við að koma sér upp sum- arhúsi í landi Múlakots í Fljóts- hlíð. Í sumarhúsinu þótti þeim báðum gott að dvelja og þar gátu þau haldið áfram í ræktunar- störfum eftir að húsið á Vestur- ströndinni hafði verið selt með garðinum og gróðurskálanum sem þar voru. Ferðir austur í bú- staðinn á þessum seinni árum komu í stað ferða erlendis en á meðan heilsan entist voru þau hjónin víðförul og dugleg að skoða sig um á ókunnum slóðum. Ásta var elskuleg og góð heim að sækja. Ekki voru miklar líkur á að kvatt væri eftir heimsókn án þess að boðnar hefðu verið kræsilegar veitingar. Hún bjó sér og fjölskyldu sinni fallegt heimili og ræktaði garðinn sinn í mörgum skilningi þeirra orða. Þegar jarðnesk bresta böndin, blítt við hjörtu sorgum þjáð vonin segir: Heilög höndin hnýtir aftur slitinn þráð. Blessuð von, í brjósti mínu bú þú meðan hér ég dvel, lát mig sjá í ljósi þínu ljómann dýrðar bak við hel. (Helgi Hálfdánarson.) Hróðnýju, Þórhildi og Palla og fjölskyldum þeirra færum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Minningin um yndislega frænku lifir. Sæmundur og Þórhildur. Fallin er frá heiðurskonan Ásta Sveinbjarnardóttir. Ástu kynntist ég fyrir áratugum síðan og fann fljótt að hún var öflug og heil í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Leiðir okkar Ástu tvinn- uðust saman á margan hátt því hún var virk í starfi Kvenfélags Seltjarnarness og starfi fram- sóknarmanna á Seltjarnarnesi. Hún var jafnréttissinni í hjarta sínu og kvenréttindakona. Alltaf lagði hún gott til mála, var réttlát og víðsýn. Einnig lágu leiðir okk- ar saman í gegnum dóttur henn- ar og æskuvinkonu mína, Hróð- nýju Garðarsdóttur. Ein af mínum kæru minningum um Ástu er einmitt tengd Hróðnýju. Þannig var að fyrir þremur árum hittumst við æskuvinkonurnar, Hróðný Garðarsdóttir, Heiður Björnsdóttir og Anna Hrönn Jó- hannsdóttir, í sumarbústað fjöl- skyldu Ástu í Fljótshlíðinni á Suðurlandi. Ásta var þar einnig, kát og gestrisin að venju. Skyndilega verðum við varar við ref sem er að snudda í kringum maríuerluhreiður þar hjá. Ásta var þá úrræðagóð, brást hratt við og hljóp sem fætur toguðu með kúst á lofti, kom refnum frá og bjargaði hreiðrinu. Fannst okkur þetta skemmtileg og óvenjuleg sjón. Nú að leiðarlokum vil ég þakka Ástu fyrir hlýhug og góðar minningar bæði í einkalífi og fé- lagsstarfi. Einnig votta ég Hróð- nýju, Þórhildi og Páli og fjöl- skyldum þeirra mína dýpstu samúð vegna fráfalls hennar. Guð blessi minningu Ástu. Siv Friðleifsdóttir. „Minninganna töfratunga tal- ar málið sitt“ þegar traust og in- dæl vinkona er öll. Leiðir hafa lengi legið saman við leik, störf og hvers kyns ræktun anda og urta. Við vinkonurnar vorum stjórn Selkórsins í árdaga, segi og skrifa vorum stjórn, skemmt- um okkur og unnum vel saman. Stjórnarfundir voru tíðir, nær daglega, ákvarðanir margar, fæstar endanlegar, enda auðvelt að skipta um skoðun. Aðalatriðið var samt alltaf að syngja ekki falskt. Við eignuðumst börnin um svipað leyti og þau uxu úr grasi á Nesinu „litla og lága“. Við skipt- umst á áhyggjum, töluðum dugg- unarlítið um þær af því að konur eru svo skilningsríkar og vita að sumt er ekki hægt að leysa en lundinni hægist við að létta á sér. Eiginmennirnir bundust einnig órjúfanlegum vinaböndum, áhugasviðin féllu saman. Þau Ásta og Garðar Steinarsson flug- stjóri voru reyndar ótrúlega samhentar manneskjur og sam- heldnar. Nefndi maður annað hlaut nafn hins að fylgja. Myndir líða hjá: Ásta í altinum, lygnir augun- um, kann allt. Ásta við píanóið, gömlu slag- ararnir spýtast undan fingrum hennar. Ásta með Sýnisbók íslenskra bókmennta í útilegu, menningar- vaka í tjaldvagni. Ásta reigir sig og skýtur aug- unum í skjálg þegar hún hermir eftir skólstjórafrúnni sem heill- aðist af einum kórfélaganum. Ásta, rugluð og samanbitin, með öll skilningarvit lokuð, að spila golf á Kiðjabergi með plast- poka á höfðinu til varnar mýi. Ásta með svuntu á gamlaárs- dag, steikin í ofninum; sérrí á hraðbergi fyrir nýju ári og ævar- andi vináttu. Ásta svo fyndin! Ásta búin að loka sig inni á klósetti í Kaíró af því að hún þolir ekki tónlistina við magadansinn. Ásta vill ekki kæra herberg- isþjóninn í Luxor þótt ilmvatnið hennar minnki dag frá degi af því að kona þess grunaða á sennilega ekki ilmvatn. Ásta: „Já, það er svona …“ Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Ásta að leggja sig … les samt fróðleik um eldgamlan Fljóts- hlíðing eða einhvern biskup. Ásta, hljóðlát, full kímni; vin- kona með blik í auga og bros á vör. Ásta, umfram allt Ásta en þó auðvitað Ásta hans Garðars. Hvernig væri róður án sam- vinnu sjómannanna? Hvernig væru tónleikar án samhæfingar? Hvernig væri lífið án góðra sam- ferðamanna? Trúi að við höfum verið hvert öðru góðir samferða- menn hvort heldur var á ógleym- anlegum ferðalögum eða vegferð lífsins. Nú er skarð fyrir skildi hérna megin grafar en fylkingin hefur þést hinum megin. Hver veit nema þau hjónin, Ásta og Garð- ar, aki nú í karlsvagninum á vit nýrra ævintýra með Pólstjörn- una að leiðarljósi og Venus í vestri. Þau þurfa ekki lengur að draga dýnurnar út á veröndina á Garðarshólma á vetrarkvöldum til að fylgjast með stjörnunum. Þau tilheyra nú þegar þeirri óra- vídd sem mannlegur skilningur fær tæpast áttað sig á fyrr en í fyllingu tímans þegar við sjáumst á ný. „Við sjáumst síðar“ voru hinstu orð Ástu til Kristínar um leið og hendur þrýstust. Með þeim orðum, hlöðnum þakklæti fyrir allar góðar stundir og góð- um óskum, skal hún kvödd. Að- standendum er vottuð djúp sam- úð. Kristín og Haukur. Í dag kveðjum við Ástu Svein- bjarnardóttur með miklum sökn- uði og trega. Ásta var fædd og uppalin á Breiðabólstað í Fljóts- hlíð, flutti suður til náms og starfa og giftist Garðari Stein- arssyni flugstjóra sem lést fyrir aldur fram árið 2007. Ásta og Garðar voru alltaf nefnd í sömu andrá. Hugurinn reikar, aftur í tíma, til heimsókna þeirra austur til móður Ástu og annarra skyld- menna. Komu þeirra fylgdi eft- irvænting og gleði. Ýmislegt var brallað og alltaf var líf og fjör í sveitinni. Stundum var til dæmis farið í dagsferðir upp á hálendið á mörgum bílum. Ekið var eftir þröngum, bröttum og holóttum vegunum. Allir fóru með, ungir sem aldnir. Bundin voru vináttu- bönd, sem aldrei bar skugga á. Síðar þegar við, óhörðnuð ung- menni fluttum suður eitt af öðru, vorum við tíðir gestir á heimili Ástu og Garðars á Seltjarnar- nesi. Þar mætti okkur hlýja, gestrisni og velvild. Til Ástu var gott að leita með hin ýmsu úr- lausnarefni. Hún var vel lesin og fróð, um sögu lands og þjóðar, Ís- lendingasögurnar og bókmenntir almennt. Þannig má áfram telja. Hún ferðaðist einnig víða utan lands og innan. Hún unni tónlist og spilaði sjálf á hljóðfæri og söng í kórum. Það var því ætíð um nóg að spjalla og margt er að þakka. Ásta var traust, heilsteypt, æðrulaus og hjartahlý. Hún hafði sig ekki í frammi, en var mann- blendin og félagslynd. Það mátti treysta dómgreind hennar og skynsemi. Hún hafði jákvætt við- horf til manna og málefna, var lífsglöð og því stutt í hlátur og gleði. Hún var greiðvikin. Til dæmis bauð hún fram aðstoð við nám, en hún hafði reynslu af kennslu. Fyrir undirritaða gætti hún í lengri tíma ungbarns með- an ég stundaði fulla vinnu. Ásta var þá sjálf heima með ung börn sín. Ekki fannst henni það til- tökumál og ekki var við það kom- andi að ég fengi að greiða henni fyrir. Ásta og Garðar komu sér upp sumarhúsi í landi Múlakots í Fljótshlíð. Þau höfðu mikla ánægju af gróðursetningu þar og ræktun. Í þessum sælureit, í sveitinni fögru, dvaldi Ásta oft sumarlangt og um helgar með fjölskyldu sinni og vinum. Við þökkum af alhug dýrmæt- ar samverustundir og bjartar minningar. Systkinin frá Lambey og fjöl- skyldur þeirra senda börnum Ástu og ástvinum hennar öllum, innilegar samúðarkveðjur. Bless- uð sé minning Ástu Sveinbjarn- ardóttur. Guðbjörg Jónsdóttir. Ásta var vinkona okkar. Hún var vinkona Söru frá fjögurra ára aldri þegar þær bjuggu hvor á sínum bænum hlið við hlið í Fljótshlíðinni, Ásta á Breiðaból- stað og Sara á Sámsstöðum. Hún var vinkona okkar hinna frá ung- lingsaldri þegar við vorum allar fimm saman í Héraðsskólanum á Skógum. Við vorum herbergis- félagar á Skarði 1954-1955 og kenndum við okkur síðan við það herbergi. Árin í Skógaskóla voru okkur öllum dýrmæt og sérstæð. Við vorum þá að fara í fyrsta skipti að heiman og hugsa um okkur sjálfar og að vera frá fjölskyldum okkar. Einn dagur í eldhúsi Skógaskóla á vetri var gagnleg reynsla þó að það þyrfti að flysja kartöflur fyrir 100 manns. Skóla- stjórinn okkar fyrstu árin í Skógaskóla, Magnús Gíslason, var strangur uppalandi og skóla- meistari. Eiginkona hans, Britta, er okkur ekki síður minnisstæð en hún sá um listviðburði í skól- anum enda spilaði hún og söng fagurlega eins og Magnús gerði einnig. Britta sá líka til þess að öllum nemendum var fært súkkulaði og bakkelsi í rúmið hinn 13. desember á Lúsíudaginn að sænskum sið. Skólameistari síðasta árið í Skógaskóla var Jón R. Hjálmarsson sem bar með sér fríska strauma, nýkominn úr námi erlendis. Guðrún, kona hans, var okkur öllum hjálpar- hella og vinur í raun og hjúkraði okkur í veikindum. Minningar frá árunum í Skógaskóla eru ótal margar og minnisstæðar, gönguferðir að fossunum tveim, Skógafossi og Kvernufossi, klifur stráka til þess að komast á stelpugang, gróðursetning í fjallshlíðinni fyr- ir ofan skólann undir styrkri leið- sögn kennara okkar, Jóns Jósefs Jóhannessonar, og margar, margar fleiri. Öllum þessum minningum deildum við með Ástu. Við Skarðsverjar misstum sjónar hver af annari um tíma en tókum upp þráðinn aftur og höf- um hist reglulega í mörg ár og borðað saman góða máltíð, hlegið og orðið 15 ára aftur. Ásta var alltaf glöð þrátt fyrir erfið veik- indi síðustu árin og naut sín vel í okkar hópi. Við minnust hennar með þakklæti fyrir árin sem við áttum saman og söknuði og trega að hún skuli vera horfin úr hópn- um. Ásta var glaðlynd, greind og vel gerð manneskja, sterk og fal- leg kona sem vildi öllum vel. Hún var líka góð vinkona og skóla- systir. Kraftur Ástu birtist vel í ummælum föður Söru þegar hon- um varð að orði: „Ef ætti að gera Tindfjöll að túni teldi ég best að Ásta væri með ýtuna.“ Við vottum fjölskyldu Ástu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum einlæga samúð okkar. Skarðsverjar, Áslaug Ólafsdóttir, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Þorgilsdóttir og Sara Hjördís Sigurðardóttir. Það er komið að kveðjustund, hún Ásta vinkona okkar til margra ára er horfin til æðri heima, eftir að hafa háð harða baráttu við erfiðan sjúkdóm. Við, sem höfum verið með Ástu í saumaklúbb alveg frá árinu 1964, sitjum nú hnípnar og söknum þess sárt að hún verði ekki með okkur lengur, en um hana eigum við eingöngu góðar minningar. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með hetjulund hennar í baráttunni við veikindi sín, en þeim tók hún með miklu jafnað- argeði. Hún kvartaði aldrei og vildi heldur tala um „eitthvað skemmtilegt“ eins og hún orðaði það sjálf þegar við hittumst. Allt- af var hún jafn prúð, með hlýja, fallega brosið sitt og ekki talaði hún illa um nokkurn mann. Við höfum yfirleitt ekki haft saumaklúbb í desember, en að þessu sinni var það gert. Það vakti með okkur bjartsýni hvað Ásta sýndist vera hress og sér- staklega létt yfir henni og það var mikil gleði í klúbbnum. Þetta reyndist síðan verða okkar síð- asti klúbbur með elsku Ástu. Ásta var einstaklega vönduð kona, grandvör og vel af Guði Ásta Sveinbjarnardóttir ✝ Aðstandendur þakka öllum sem auðsýndu samúð og vinarhug vegna andláts JÓHÖNNU GÍSLADÓTTUR, Skúlagötu 40b, sem lést þriðjudaginn 1. janúar. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir frábæra umönnun. Ólafur Guðjónsson, Gísli Ólafsson, Elísabet Solveig Pétursdóttir, Viðar Ólafsson, Birna Björnsdóttir, Þórunn Ólafsdóttir, Sveinn Ingi Ólafsson, Gyða Þórðardóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.