Morgunblaðið - 23.01.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.01.2013, Qupperneq 35
Agnar situr í hreppsnefnd Akra- hrepps frá 1990 og hefur verið oddviti hreppsins frá 2002. Hann var formað- ur sóknarnefndar á Bíldudal og hefur setið í sóknarnefnd Miklabæjar- sóknar um árabil, sat í stjórn hesta- mannafélagsins Stíganda, í stjórn Sauðfjárræktarfélags Skagafjarðar, var formaður Veiðifélags Skaga- fjarðar, sat í áfengisvarnanefnd Akrahrepps og var stjórnarformaður Slátursamlags Skagfirðinga. Þá syngur hann í kirkjukór Silfrastaða- kirkjusóknar. Hestamaður og lestrarhestur Agnar er ekki innfæddur Skagfirð- ingur heldur ættaður úr Djúpi og af Skeiðum á Suðurlandi. Hann hefur engu að síður komið sér vel við Skag- firðinga enda sjálfur söngmaður og hestamaður: „Já ég hef mikinn áhuga á hestum, er sjálfur með hesta og hef um árabil farið í góða hestaferð á hverju sumri. Þá erum við að tala um viku til tíu daga ferð, oft hálendisferðir þótt það sé nú ekki alltaf. Maður fer mýkri höndum um landið á hestum, nær nánu sambandi við skepnurnar og landið og nýtur slíkra ferða miklu betur. Svo ekur enginn með pela upp á vasann þótt menn hafi hann gjarnan til taks á hestbaki. Ég er líka vanur að fara vestur á firði á hverju sumri. Ég get ekki látið sumar líða án þess að koma vestur í Djúp og berja augum Snæfjalla- ströndina og Grænuhlíð. Ég hef unun af að hlusta á góða karlakóra, les heilmikið og þá ekki síst skáldsögur íslenskra yngri höf- unda auk þess sem Þórarinn Eldjárn er í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Fjölskylda Agnar kvæntist 5.6. 1981 Döllu Þórðardóttur, f. 21.3. 1958, sókn- arpresti á Miklabæ og prófasti Skagafjarðar- og Húnavatnsprófasts- dæmis. Hún er dóttir Þórðar Arnar Sigurðssonar, fyrrv. deildarstjóra, og Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur, fyrrv. sóknarprests í Þykkvabæjar- prestakalli. Synir Agnars og Döllu eru Trostan, f. 25.11. 1981, kennari á Skagaströnd; Vilhjálmur, f. 15.5. 1985, rafvirki í Reykjavík, en kona hans er Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, nemi við HÍ, og er dóttir þeirra Freyja, f. 21.8. 2012. Systur Agnars eru Kristín Gunn- arsdóttir, f. 12.8. 1954, kennari, bú- sett í Reykjanesbæ; Ósk Gunnars- dóttir, f. 26.12. 1956, kennari, búsett í Kópavogi. Foreldrar Agnars: Gunnar Hall- dórsson, f. 30.5. 1924, d. 28.5. 2007, sjómaður í Bolungarvík, og k.h., Helga Guðmundsdóttir, f. 17.5. 1917, húsfreyja. Úr frændgarði Agnars Halldórs Gunnarssonar Agnar Halldór Gunnarsson Jón Einarsson b. í Vorsabæ á Skeiðum Kristín Jónsdóttir húsfr. á Blesastöðum Guðmundur Magnússon b. á kennari að Blesastöðum á Skeiðum Helga Guðmundsdóttir húsfr. í Bolungarvík Guðrún Eiríksdóttir húsfr. í Votumýri, af Reykjaætt Magnús Sigurðsson b. á Votumýri Jónas Jónsson b. í Svansvík við Ísafjörð í Djúpi Halldór Þorgeir Jónasson sjóm. í Bolungarvík Agnes Veronika Guðmundsdóttir húsfr. í Bolungarvík Gunnar Halldórsson sjóm. í Bolungarvík Margrét Bárðardóttir húsfr. í Kotum, af Arnardalsætt Guðmundur Ásgeirsson vinnum .í Kotum í Önundarfirði, af Eyrardalsætt Þorbjörg Ásgeirsdóttir húsfr. á Eiði við Hestfjörð Ásgeir Guðnason kaupm. og útgerðarm. á Flateyri Gunnar Ásgeirsson forstjóri Guðlaug Sigurðard. húsfr. á Ólafsvöllum Sigurður Eiríksson regluboði Góðtemplara- reglunnar Sigurgeir Sigurðsson biskup Pétur Sigurgeirss. biskup Eiríkur Jónsson bóndi í Vorsabæ Jón Eiríksson oddviti í Vorsabæ Helga Ragnhildur Eiríksdóttir ljósmóðir í Vorsabæ Vigdís Eiríksdóttir húsfreyja í MiðdalEiríkur Guðmundss. trésmiður í Rvík Sigríður Eiríksd. hjúkrunarfr. í Rvík Vigdís Finnbogad. fyrrv. forseti Einar Guðmundss. b. í Miðdal Guðmundur frá Miðdal Erró myndlistarmaður Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur og rithöfundur Egill Guðmundsson arkitek Eiríkur Jónsson hjá Íslenskum getspám Fyrsta og eina barnabarnið; Freyja Vilhjálmsdóttir. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is ALLT FYRIR ÖRYGGIÐ ENDURSKINS- OG VINNUFATNAÐUR Öllum þykir okkur mikilvægt að finna til öryggis í lífinu. Dynjandi hefur verið leiðandi á sviði öryggisvara síðan 1954. Dynjandi örugglega fyrir þig! Eyþór Stefánsson, tónskáld ogheiðursborgari Sauðár-króks, fæddist á Sauðár- króki 23.1. 1901 og átti þar heima allt sitt líf að undanskildum þeim ár- um er hann stundaði nám. For- eldrar hans voru Stefán Sigurðsson, sjómaður á Sauðárkróki, og Guðrún Jónasdóttir húsfreyja. Eyþór kvæntist 1936 Sigríði Önnu Stefánsdóttur frá Skógum í Þela- mörk en hún tók virkan þátt í störf- um Eyþórs bæði í leiklist og tónlist. Þau eignuðust eina dóttur, Guðrúnu Eyþórsdóttur, f. 1939, d. 1987. Eyþór hóf að syngja í Kirkjukór Sauðárkrókskirkju er hann var ell- efu ára. Hann stundaði tónlistarnám hjá Emil Thoroddsen og Páli Ísólfs- syni í Reykjavík 1928, lærði auk þess leiklist hjá Indriða Waage og stundaði framhaldsnám í tónlist og leiklist í Hamborg 1934. Eyþór var á langri ævi einn helsti menningarfrömuður Sauðkrækinga. Hann stundaði skrifstofu- og versl- unarstörf á Sauðárkróki á árunum 1923-48 en var jafnframt organisti og kórstjóri við Sauðárkrókskirkju 1929-72. Hann var söngkennari við Barna- og gagnfræðaskóla Sauðár- króks 1948-72 og skólastjóri Tónlist- arskóla Sauðárkróks frá stofnun 1964-74, var einn af stofnendum Lúðrasveitar Sauðárkróks og stjórnandi hennar fyrstu árin, einn stofnenda leikfélags á Sauðárkróki og lék og leikstýrði þar fjölda verka til 1976 er hann steig síðast á svið en þá hafði hann leikið 118 hlutverk fyrir leikfélagið. Þá starfaði hann auk þess mikið með ungmennafélag- inu Tindastóli. Eyþór var á tímabili formaður Kirkjukórasambands Skagafjarð- arprófastsdæmis, sat í stjórn Kirkjukórasambands Íslands og var sendikennari þess til kirkjukóra á Norður-, Austur- og Vesturlandi 1952-61. Hann var einn af stofn- endum Rotaryklúbbs Sauðárkróks 1948 og fræðslustúkunnar Mæli- fells. Eftir Eyþór liggur fjöldi sönglaga en sum þeirra hafa orðið klassísk, s.s. Lindin og Erla. Eyþór lést á Sjúkrahúsi Sauðár- króks hinn 3.11. 1999. Merkir Íslendingar Eyþór Stefánsson 90 ára Ásta Árnadóttir 80 ára Dagbjört Kristjánsdóttir Guðný Gunnarsdóttir Guðrún Ingimundardóttir Hilmar Örn Gunnarsson Jóhannes Sigurðsson Tómas Albert Holton 75 ára Alfreð Árnason Bergljót Gyða Helgadóttir Bergljót Rósinkranz Kristín Zoéga Lisebet Gestsdóttir 70 ára Hjördís Torfadóttir Sigurbjörg S. Jónsdóttir Þórir Jóhann Axelsson 60 ára Bjarnveig Gunnarsdóttir Grazyna Hruswicka Halla Guðrún Hallvarðsdóttir Kjartan Þröstur Ólafsson Sigurbjörn Björnsson Sævar Sveinsson Valgerður Kristín Gunnarsdóttir Vilberg Magnús Ármannsson Þorgrímur H. Isaksen Þórhallur Hauksson 50 ára Árni Geir Ingvarsson Árni Ólafur Hjartarson Ásdís Þóra Davidsen Eva Leila Banine Guðmundur Svavarsson Guðrún Ágústsdóttir Gunnar Steinþórsson Helga Einarsdóttir Ingvar Berndsen Kristín Lára Ásmundsdóttir Kristján Oddsson Margrét Ágústa Sigtryggsdóttir Miroslaw Stanislaw Werner Rósa Guðbjörg Kjartansdóttir Sigþrúður Inga Jónsdóttir Steinn Arnar Jóhannesson 40 ára Ainis Induss Auður Sigurðardóttir Berglind Viðarsdóttir Birgitte Bærendtsen Björn Haukur Einarsson Borgþór Hjörvarsson Hildur María Gunnarsdóttir Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir Jóna Sif Leifsdóttir Júlíana Bjarnveig Bjarnadóttir Margrét Elísabet Knútsdóttir Natália dos Santos Monteiro Ólafur Rúnar Ísaksson Valgerður Sigurjónsdóttir 30 ára Arnar Ágústsson Brynjar Sigurðsson Eva Björk Ómarsdóttir Joao Paulo Goncalves Portela Kári Þorsteinsson Mohamed Tatou Monica Otero Vidal Monika Szewczuk Mustapha Jobi Sigurður Vigfús Guðmundsson Sjöfn Hannesdóttir Svava Lóa Stefánsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sigurbjörn býr í Stykkishólmi, er sjómað- ur og flugnemi við Keili. Maki: Lilja Nótt Sævars- dóttir, f. 1985, nemi. Börn: Andrea Rós, f. 2002; Sævar Þór, f. 2005, og Marinó Ýmir, f. 2012. Foreldrar: Helga Kristín Högnadóttir, f. 1961, tækniteiknari og versl- unarmaður, og Álfgeir Marinósson, f. 1960, pastor í Hvítasunnukirkj- unni í Stykkishólmi. Sigurbjörn Hans Álfgeirsson 40 ára Þórunn lauk stúd- entsprófi frá FNV og er fjár- málafulltrúi hjá Sveitarfé- laginu Skagafirði. Maki: Ingvar Páll Ingvars- son, f. 1972, bygging- artæknifræðingur. Börn: Sara Rut, f. 1994; Tinna Björk, f. 1997, og Bjarni Páll, f. 1998. Foreldrar: Hrönn Gunn- arsdóttir, f. 1958, og Sveinn Hlynur Þórsson, f. 1956, d. 1985. Fósturfaðir: Rögn- valdur Valbergsson, f. 1956. Þórunn Elva Sveinsdóttir 30 ára Ragna er við- skiptafræðingur við fjár- máladeild Vodafone. Maki: Funi Magnússon, f. 1983, microsoft sharepo- int sérfræðingur. Synir: Einar Frosti, f. 2006, og Sindri Hrafn, f. 2011. Foreldrar: Þorbjörg Skúla- dóttir, f. 1961, kennari, og Stefán Hjálmarsson, f. 1948, sagnfræðingur en fósturfaðir er Gunnar Jón Sigurjónsson, f. 1956. Ragna Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.