Morgunblaðið - 23.01.2013, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.01.2013, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. „Svakalegt að lenda í svona“ 2. Ísland hefði farið í undanúrslit 3. Daníel hellir niður mjólkinni 4. Anna Mjöll giftir sig á Íslandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Barnabók Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar, verður gefin út á Ítalíu af forlaginu Salani. Bókin kom fyrir skömmu út í Noregi á veg- um forlagsins Orkana og útgáfurétt- urinn hefur einnig verið seldur til Danmerkur, Finnlands og Eistlands. Barnabók Þórarins gefin út á Ítalíu  Sjónvarpsstöðin SkjárEinn mun bjóða upp á fréttaskýringaþætti Sölva Tryggvasonar, Málið, og gam- anþættina Hæ gosa með íslenskum texta í stafrænni sjónvarpsleigu stöðvarinnar, VOD. Stöðin hefur boðið upp á þættina Sönn íslensk sakamál með íslenskum texta, þannig að heyrnarlausir og -skertir geti notið þeirra. Þættir textaðir fyrir heyrnarlausa  Hallfríður Ólafsdóttur flautuleikari, Daði Kolbeins- son óbóleikari og Peter Maté píanóleikari frumflytja verk eftir Huga Guð- mundsson í dag í hátíðarsal Háskóla Íslands á tón- leikum sem hefjast kl. 12.30. Einnig verða flutt verk eftir Jacques Ibert og Madeleine Dring. Ný íslensk verk flutt á háskólatónleikum Á fimmtudag Gengur í suðaustan 8-15 m/s með slyddu eða rigningu S-til á landinu og hita 0 til 6 stig. Bjart að mestu N- lands og frost 0 til 5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-15 m/s, hvassast syðst á land- inu. Stöku skúrir eða él S- og A-lands, en bjart með köflum annars staðar. Hiti 0 til 5 stig, en um og undir frostmarki N-til. VEÐUR „Hlynur Bæringsson lagði hart að mér að vera með landsliðinu og ég gerði mér grein fyrir því að þetta yrði einstakt tækifæri fyrir mig,“ sagði Justin Shouse meðal annars í samtali við Morgun- blaðið en hann gaf frá sér möguleikann á landsliðssæti síð- asta sumar af persónulegum ástæðum. »4 Fyrirliðinn lagði hart að Shouse Tvær knatt- spyrnukonur úr Val gætu verið á leið í at- vinnumennsku á Norðurlönd- unum því Kristín Ýr Bjarnadóttir fór til Svíþjóðar í gær þar sem hún skoð- ar aðstæður hjá úrvalsdeild- arliðinu Mallbacken og Rak- el Logadóttir fer til Noregs í næstu viku og æfir þar með liði Medkila. »1 Tvær Valskonur á leið í atvinnumennsku? „Ég held að þetta mót komi íslenska landsliðinu til góða. Aron Krist- jánsson er að byggja upp nýtt lið og sú reynsla sem ungu mennirnir fengu á mótinu á eftir að nýtast liðinu í framtíðinni,“ sagði Lars Christian- sen, fyrrverandi landsliðsmaður Dana í handknattleik, meðal annars þegar Morgunblaðið settist niður með hon- um í Barcelona. »3 Lars Christiansen bjart- sýnn fyrir hönd Íslands ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir er fyrsti Vestmannaeyingurinn sem fæddist eftir gos – kom í heiminn á fæðingardeild Landspítalans nokkr- um klukkutímum eftir að ósköpin hófust í Eyjum eða kl. 12.20 hinn 23. janúar 1973. „Gosið hefur fylgt mér alla tíð vegna þess að ég heiti þessu nafni sem ég heiti og er Vest- mannaeyingur,“ segir Jóhanna Eld- borg. „Þegar ég held upp á afmælið minnast allir gossins og umræðuefn- ið hefur alltaf verið eldgosið að hluta til.“ Eyjamenn eru þekktir fyrir dugn- að og uppgjöf þekkist ekki í þeirra herbúðum. Hilmar Jónasson, faðir Jóhönnu, fór til dæmis tveimur dög- um eftir fæðinguna aftur út í Eyjar til þess að bjarga verðmætum og taka þátt í uppbyggingarstarfi. Boðberi bjartsýni Fæðing dótturinnar og millinafn hennar minna ekki aðeins á eldgosið heldur er hún boðberi bjartsýni – líf- ið heldur áfram. Jóhanna tekur und- ir það. „Í umræðunni á eftir kom fram að það að ég skyldi hafa fæðst hefði falið í sér ákveðna von, að mamma hafði verið komin í bæinn í tíma og fæðingin tekist vel. Fólk var mjög þakklátt fyrir það og ég hef oft upplifað það.“ Fjölskyldan flutti aftur til Eyja síðsumars og Jóhanna ólst þar upp, en flutti með foreldrum sínum upp á land þegar hún var 14 ára. „Það var hræðilegt,“ rifjar hún upp. „Það tók mjög stóran toll af allri fjölskyld- unni. Vestmannaeyjar eru ynd- islegur staður og þær eiga enn mjög sterkar taugar í mér. Ég er Vest- mannaeyingur og verð alltaf Vestmannaeyingur.“ Jóhanna býr með eiginmanni og tveimur sonum þeirra í Hafnarfirði. Hún segir að uppruninn hafi haft þar mikil áhrif. „Sjórinn skiptir höf- uðmáli úti í Eyjum, hann togar gíf- urlega í mig og við búum nánast niðri í fjöru auk þess sem tóm- stundir okkar tengjast sjónum. Sjór- inn er jafneðlilegur og blóðið sem rennur í æðum mér.“ Það er kraftur í Jóhönnu, sem er sjúkraliði að mennt en starfar sem dagforeldri. „Ég er adrenalínfíkill,“ segir hún og bendir á að fjölskyldan og vinir ætli á skíði í tilefni dagsins. „Við ætlum í reykvísku alpana, Blá- fjöllin, og svo verður boðið í skúffu- köku og kaffi.“ Jóhanna Eldborg og vonin  Fyrsti Vestmannaeyingurinn sem fæddist eftir gosið fyrir 40 árum Morgunblaðið/Golli Tímamót Mæðgurnar Ester og Jóhanna Eldborg með 40 ára úrklippubók. Ester Árnadóttir, móðir Jóhönnu Eldborgar, var mætt á fæðingardeildina um miðnætti og frétti fyrst af eldgosinu í Eyjum hjá læknum, þegar kom- ið var undir morgun. Hjónin fóru með dótturina á þjóðhátíð um sumarið og opnuðu leikskóla í Eyjum um haustið. „Fyrsta veturinn var þetta eins og að vera á stríðssvæði,“ segir hún. „Við bjuggum í gamla bænum, neglt var fyrir flesta glugga, engar götulýsingar til að byrja með og vikur fjúk- andi um allt.“ Hún segir að nafnið Eldborg hafi verið valið til að minnast gossins en mannanafnanefnd hafi hafnað því í fyrstu. „Það varð fátt um svör þegar ég benti á að þetta væri venjulegt nafn sem beygðist eins og Gullborg og Herborg. Nefndin óttaðist að nafnið yrði notað sem ættarnafn en gaf loks eftir.“ Móðirin gaf sig ekki MANNANAFNANEFND HAFNAÐI ELDBORGU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.