Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 1

Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 1
F I M M T U D A G U R 3 1. J A N Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  25. tölublað  101. árgangur  DJÚPIÐ MEÐ FLESTAR TILNEFNINGAR HAFTANEFND FUNDAR MEÐ AGS HÁTÍÐIN SÓNAR REYKJAVÍK HALDIN Í FYRSTA SINN VIÐSKIPTABLAÐ 50 LISTAMENN KOMA FRAM 38EDDUVERÐLAUNIN 40 Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar voru önnum kafnir við að yfirfara vélbúnað þyrlunnar Gnár í flugskýli Gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í gær, þegar ljósmyndara bar þar að garði. Um er að ræða reglubundna 500 flugtíma skoðun en áætlað er að henni verði lokið eftir um tvær vik- ur. Þá vildi þannig til að allur flugfloti Gæsl- unnar var í húsi í gærmorgun; þyrlurnar Gná, Líf og Syn, auk flugvélarinnar Sifjar. »2 Morgunblaðið/Árni Sæberg Gná í reglubundinni 500 flugtíma skoðun Flugfloti Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli  Grundfirð- ingar greiða nú sérstakt 0,125% álag á fast- eignaskatt í A- flokki, sem nú er 0,625% í stað 0,5% sem al- mennt er. Sig- urborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæj- arstjórnar, segir bæjarfélagið ekki hafa átt aðra kosti í stöðunni en að hækka álagið, vegna slæmrar skuldastöðu. „Grundarfjörður er í hópi skuldsettustu sveitarfélaga á landinu. Við fengum mjög rækilega rekstrarúttekt á síðasta ári. Hún sýnir einfaldlega að við erum búin að taka til í rekstri eins og kostur er og erum jafnframt að fullnýta tekjustofna,“ segir Sigurborg við Morgunblaðið. »4 Grundfirðingar greiða sérstakt álag á fasteignaskatt Kirkjufellið gnæfir yfir Grundarfirði. Laun á almennum vinnumark- aði hækka um 3,25% á morg- un og launataxtar hækka um 11 þúsund kr. Lágmarkslaun í landinu fyrir fullt starf hækka í 204 þúsund. Vegna þess eykst launakostnaður atvinnu- lífsins um 3,75% skv. áætlun Samtaka atvinnulífsins eða um 37 milljarða kr. og verður samtals um 980 milljarðar að meðtöldum kostnaði vegna tryggingagjalds, lífeyr- isiðgjalda o.fl. »6 Lágmarks- laun 204 þús. LAUN HÆKKA Á MORGUN Financial Times (FT) og Wall Street Journal (WSJ) hafa bæði fjallað um dóminn í Icesave-málinu í leiðurum. Yfirskrift leiðara WSJ er Icesave- sagan (The Icesave Saga). Hann hefst á því að Ísland riði enn á fót- unum eftir stórbrotið hrun banka- kerfis landsins haustið 2008. Ríkið sé enn að miklu leyti útilokað frá al- þjóðlegum fjármálamörkuðum og þegnarnir þurfi að búa við þungbær- ar hömlur á gjaldeyrisviðskiptum. Saga Icesave-málsins er svo rakin í stórum dráttum allt til dómsniður- stöðu EFTA-dómstólsins á mánu- dag. Leiðarahöfundur WSJ segir að þegar öngþveitið ríkti haustið 2008 hafi margar ríkisstjórnir reynt að bjarga öllum í sjónmáli. Í tilviki Stóra-Bretlands og Hollands hafi innistæðueigendur Icesave-reikn- inga fengið allar innistæður sínar. Þetta var gert, að því er sagt var, til þess að slá á mögulegt áhlaup á banka í löndunum tveimur. „Hvort það var nægileg ástæða eða ekki, þá var það ákvörðun þeirra, ekki Reykjavíkur, og það er rétt að Lond- on og Haag beri kostnaðinn af eigin björgunaraðgerðum,“ segir í lok leiðara WSJ. Í leiðara FT segir m.a. að dóm- urinn sé skýr um það að Evrópuregl- ur krefjist þess ekki að skattgreið- endur hlaupi undir bagga með einkareknum bönkum. »24 London og Haag beri kostnaðinn Morgunblaðið/SMJ Icesave Stórblöð fjalla um dóminn.  Þórdís Lóa Þórhallsdóttir á ásamt eigin- manni sínum, Pétri Jónssyni, sex Pizza Hut- veitingastaði í Finnlandi og einn hér á landi. Auk þess opnuðu hjónin í fyrra- sumar holl- ustujógúrtbar þar í landi undir nafninu Jogo og hyggjast opna ann- an í vor. Hún segir í ítarlegu viðtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins að Finnar séu mun rólegri og agaðri en Íslendingar. „Við erum alltaf eins og eldgos í kringum þá. En þeir kunna vel að meta orkuna í okkur,“ segir Þórdís Lóa. »Viðskipti Hyggjast stækka frekar í Finnlandi Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Baldur Arnarson Ómar Friðriksson „Það er grátt svæði í kringum þá sem eru skilgreindir atvinnulausir. Sumir þeirra sem eru starfandi eru vinnulitl- ir og geta nánast talist atvinnulausir. Þeir hafa kannski vinnu tvisvar í viku og vilja jafnvel vinna fulla vinnuviku. Svo erum við með hóp sem er ekki tilbúinn að vinna strax en segist vera atvinnulaus,“ segir Ólafur Már Sig- urðsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands. Tilefnið er nýjar tölur Hagstofunn- ar um stöðuna á vinnumarkaði en þær leiða m.a. í ljós að fólki sem stendur utan vinnumarkaðar hefur fjölgað um 4.200 frá 2009. Í lok árs 2012 voru 41.600 í hlutastarfi og 47.600 voru ut- an vinnumarkaðar. Vinnuaflið skreppur saman Til samanburðar var vinnuaflið áætlað 176.800 manns á fjórða árs- fjórðungi í fyrra og voru það 2.000 færri en árið 2009. Starfandi einstak- lingum fjölgaði hins vegar um 3.000 í 168.400 í lok síðasta árs og er það jafnt fjölgun fólks í fullu starfi. „Samkvæmt vinnumarkaðsrann- sókn Hagstofunnar, sem nær til 16-74 ára, er hópurinn sem stendur utan vinnumarkaðar andstæðan við þá sem eru á vinnumarkaði, það er hvorki starfandi né virkir í atvinnu- leit,“ segir Ólafur og útskýrir að fólk sé ekki skráð atvinnulaust ef það er ekki tilbúið að byrja að vinna innan tveggja vikna eða er ekki í atvinnuleit. MFækkun fólks »12 Fá ekki fullt starf  Einstaklingar í hlutastörfum halda atvinnuleysinu niðri  Skortir samt meiri vinnu  47.600 utan vinnumarkaðar –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.