Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fræðsla Þeim Kristjáni Hermanni Þorkelssyni, Guðríði Jóhannsdóttur, Agli Fannari Halldórssyni og Guðnýju Rós
Vilhjálmsdóttur finnst það jákvæð þróun í kynfræðslu að stuttmynd eins og Fáðu já sé aðgengileg fyrir ungt fólk.
er alltaf sama manneskjan, bæði
fyrir og eftir að ofbeldið á sér stað.“
Guðríður: „Það er lítið talað um
það við okkur hvernig maður á að
bregðast við í þessum aðstæðum,
bæði sem einstaklingur sem verður
fyrir þessu eða aðstandandi.“
Vitið þið sjálf hver eru ykkar
mörk?
Egill: „Ég á ekki í erfiðleikum með
að tjá mig og hef ekki lent í neinum
erfiðum aðstæðum með það. En ég
held að ég myndi aldrei gera neitt
sem ég myndi ekki vilja gera til að
þóknast öðrum.“
Kristján: „Ég hef aldrei sest niður
og hugsað sérstaklega hver eru mín
mörk. Maður veit bara hvað maður
vill og hvað ekki.“
Guðríður: „Maður áttar sig líka
betur á eigin mörkum eftir því sem
maður upplifir meira bæði í sam-
böndum og kynlífi. Maður finnur
þau með því að prófa sig áfram með
einhverjum sem maður treystir.“
Fræðsla frá jafningjum
Hvar hafið þið hlotið bestu
fræðsluna er varðar kynlíf?
Guðný Rós: „Það er örugglega
meðal vina.“
Kristján: „Ég myndi ekki segja að
maður læri mikið um kynlíf í skól-
anum nema hvað er typpi og hvað er
píka. Maður lærir miklu meira af því
að deila sögum og spjalla við vini.“
Guðný Rós: „Síðan lærir fólk oft
mikið í samböndum, lærir inn á hvað
annað og þarfir beggja.“
Egill: „Ég held að maður læri
langmest af því að tala við vini sína.
Gott námsefni í skólum er mjög tak-
markað og mjög ábótavant.“
Guðríður: „Það þarf kannski að
vera ólík nálgun í grunnskólum og
menntaskólum af því að kynferð-
isleg virkni er orðin svo miklu meiri
í menntaskólum.“
Kristján: „Það vantar efni í grunn-
skólana sem vekur áhuga hjá
krökkum. Ekki einhver vandræða-
legur kennari úti í horni sem bendir
á myndir af kynfærum með priki.
Ef það kæmi einhver
ungur inn sem myndi
nálgast grunn-
skólanema sem jafningi
en ekki sem kennari
held ég að hann myndi
ná góðum árangri í fræðslu.“
Haldið þið að ungt fólk í dag sé
með óraunhæfar hugmyndir um
kynlíf?
Guðríður: „Að einhverju leyti. Það
kom til dæmis upp í umræðum hjá
okkur áðan að manneskjur sem
byrja að stunda kynlíf mjög ungar
og manneskjur sem ákveða að bíða
hafa mjög ólíkar hugmyndir um
kynlíf. Manneskja sem byrjar of
ung upplifir oftar það sem var
kannski ekki í lagi.“
Kristján: „Ég held samt að ein-
staklingur sem er í vinahópi þar
sem margir hafa prófað að stunda
kynlíf finni fyrir pressu að gera það
líka.“
Guðríður: „Krökkum finnst oft
vandræðalegt ef þau hafa ekki sofið
hjá og þora ekkert að tjá sig um
það. En það er samt mikilvægt að
allir viti að það er í lagi að bíða.“
Kristján: „Það er ekkert hægt að
alhæfa um kynlíf. Þú getur ekkert
skrifað á blað svona er kynlíf og það
á að vera svona, þú átt að byrja á
þessum aldri og gera þetta eða hitt.
Þetta er alltaf samkomulag sem þú
átt með þeim sem þú stundar kynlíf
með.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Fjarðarkaup
Gildir 31. janúar - 1. febrúar verð nú áður mælie. verð
Svínahnakki úrb., kjötborð ............................... 1.198 1.598 1.198 kr. kg
Svínalundir, kjötborð........................................ 1.598 2.398 1.598 kr. kg
Nautahakk pakkað .......................................... 1.298 1.598 1.298 kr. kg
Kjarnafæði ísl. heiðarlamb ............................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Ísfugl kalkúnasn. m/sítrónugr. .......................... 1.659 1.958 1.659 kr. kg
Ísfugl kalk.lund. m/sesam/teriy........................ 2.498 2.949 2.498 kr. kg
Hamborgarar 115 g, 2 stk. pk........................... 420 504 210 kr. stk.
Findus wok grænmeti, 500 g ............................ 349 598 349 kr. pk.
Hagkaup
Gildir 31. janúar - 3. febrúar verð nú áður mælie. verð
Holta leggir ferskir ........................................... 779 1.198 779 kr. kg
Holta kjúklingalundir........................................ 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Ísl. lamb læri stutt ........................................... 1.499 2.098 1.499 kr. kg
Ísl.naut hamb. m/brauði, 4 stk. ........................ 699 979 699 kr. pk.
Ísl. naut hakk 4% ............................................ 1.699 2.098 1.699 kr. kg
Maísbrauð ...................................................... 299 415 299 kr. stk.
Mini kleinuhringir............................................. 299 399 299 kr. pk.
Kjarval
Gildir 31. janúar - 3. febrúar verð nú áður mælie. verð
Holta kjúkl.borg. m/brau., 2 stk........................ 498 598 498 kr. pk.
SS rifsberjal. lambalæri ................................... 1.679 2.398 1.679 kr. kg
SS hangiálegg í boxi, 115 g.............................. 498 589 498 kr. pk.
Meistara rúlluterta brún ................................... 848 998 848 kr. stk.
Kjötís mjúkís, súkk. og vanillu ........................... 498 649 498 kr. ltr
Egils pilsner í dós, 0,5 ltr.................................. 98 119 98 kr. stk.
Krónan
Gildir 31. janúar - 3. febrúar verð nú áður mælie. verð
Ungnauta Entrecote erlent................................ 2.698 4.598 2.698 kr. kg
Ungnauta Rib eye erlent ................................... 2.135 4.270 2.135 kr. kg
Lambafille m/fiturönd...................................... 3.589 4.298 3.589 kr. kg
Grísakótilettur ................................................. 998 1.469 9.98 kr. kg
Lambalærissneiðar.......................................... 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Krónu kjúklingalasagna.................................... 998 1.098 9.98 kr. kg
Goða súrmatur í fötu, 1,2 ltr ............................. 1.998 2.498 1.998 kr. kg
Nóatún
Gildir 1. - 3. febrúar verð nú áður mælie. verð
Lamba Prime, kjötborð ..................................... 2798 3.498 2.798 kr. kg
Lambahr. m/villisv., kjötborð ............................ 1.998 2.498 1.998 kr. kg
Þorramatur fjölskyldubakki ............................... 3.198 3.998 3.198 kr. stk.
ÍM kjúklingalundir............................................ 2.198 2.649 2.198 kr. kg
H&G veislusalat .............................................. 449 578 449 kr. pk.
Meistara hjónabandssæla ................................ 639 869 639 kr. pk.
Dalahringur hvítm.ostur, 200 g ......................... 499 568 499 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 31. janúar - 1. febrúar verð nú áður mælie. verð
Fjallalambs lambalæri, kjötb. ........................... 1.498 1.798 1.498 kr. kg
Fjallalambs lambahryggur, kjötb. ...................... 1.998 2.198 1.998 kr. kg
Ísfugls kjúklingur 1/1, ferskur ........................... 919 1.149 919 kr. kg
Kornmo hafrakex, 225 g................................... 179 235 796 kr. kg
Homeblest súkkul.kex, 300 g ........................... 298 349 994 kr. kg
Daloon kínarúllur, 6 stk. ................................... 698 919 698 kr. pk.
Milka mjólkursúkkulaði, 100 g.......................... 209 298 2.090 kr. kg
Ristorante Mozzar. pitsa, 355 g ........................ 598 689 1.685 kr. kg
LU Bastogne kanilkex, 260 g ............................ 398 498 1.531 kr. kg
Helgartilboðin
Sýningar á stutt-
myndinni Fáðu já
fara nú fram í
menntaskólum
landsins og efstu
bekkjum grunnskóla. Myndinni
er ætlað að útskýra á einfaldan
hátt mörk kynlífs og ofbeldis og
er það gert á jafnrétt-
isgrundvelli. Í mörgum skólum
hafa verið teknar upp umræður
í kjölfar sýningar myndarinnar
þar sem ungu fólki gefst kostur
á að ræða opinskátt um þessi
mörk.
Handritshöfundarnir Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir, Brynhildur
Björnsdóttir og Páll Óskar
Hjálmtýsson vilja líka með
mynd sinni benda á hversu mik-
ið klámvæðingin hefur ýtt undir
ranghugmyndir fólks um kynlíf
og mikilvægi þess að allir beri
virðingu fyrir sjálfum sér í nán-
um samskiptum. Í myndinni er
lögð áhersla á að allir fái já áður
en kynlíf er stundað svo að
reynslan verði bæði jákvæð og
skemmtileg fyrir alla aðila. Er
þetta útgangspunktur höfunda
sem sýna það á áhrifaríkan hátt
í myndinni að þögn er ekki alltaf
sama og samþykki. Myndin er
aðgengileg á faduja.is.
Kynlíf og
sjálfsvirðing
FADUJA.IS
ASKJA NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · Sími 590 2160 · notadir.is Opið frá kl.10-18
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
12
-0
91
3
Gæða-
bíll
Kia Sorento EX Luxury
Árgerð 2012, 197 hestafla dísilvél, 2199 cc,
ekinn 20.000 km, 6 ár eftir af ábyrgð.
Ásett verð: 6.990.000 kr.
Tilboðsverð: 6.690.000 kr.
Mánaðarleg afborgun: 54.900 kr.**
Bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, íslenskt leiðsögukort,
heilsársdekk, 17” álfelgur, Bluetooth, hleðslujafnari að aftan,
hraðastillir, rafdrifnir speglar, leðurákæði og margt fleira.
Eyðir frá aðeins 7,4 l/100 km í blönduðum akstri.*
*Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
**Miðað við 3.500.000 kr. útborgun í peningum eða með uppítökubíl ásamt láni frá ERGO
til 84 mánaða. Árleg hlutfallstala kostnaðar: 11,64%. Vextir: 9,70%.