Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Þær verða settar upp á lykilsam- göngustöðum og ljósleiðaranet sem sveitarfélagið á notað þannig að gögnin fari beint til lögreglu,“ segir Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Sveitarfélagsins Árborgar, spurður út í samstarf sveitarfélagsins við lögregluna í Árnessýslu um upp- setningu þriggja öryggis- og eftir- litsmyndavéla á Selfossi. Bæjarráð samþykkti samhljóða á 124. fundi sínum hinn 24. janúar síð- astliðinn að setja umræddar vélar upp og byggðist ákvörðunin meðal annars á fyrra samráði milli sýslu- mannsembættisins og sveitarfé- lagsins um málið, en hugsunin er að myndavélarnar séu settar upp bæði í öryggis- og forvarnarskyni. Eyþór segir að lögreglan hafi með þessu beinan aðgang að myndavélunum og sjái einnig um vistun gagna. Fælir frá og vistar gögn „Ég held að þetta sé nánara sam- starf við lögreglu heldur en hefur verið gert áður milli sveitarfélaga og lögreglu. Með þessum hætti er bæði ákveðinn fælingarmáttur og líka möguleiki á að afla sönnunargagna. Þetta eru myndavélar sem geta náð myndum af bíl- númerum í myrkri,“ segir Eyþór. Gerður verður sam- starfssamningur um málið milli sveitarfé- lagsins og lögregl- „Það er mjög brýnt að afnema gjaldeyrishöftin sem allra fyrst. Ég tel að það sé raunhæft markmið en við þurfum ekki að kasta krónunni,“ sagði Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, um stöðu ís- lensku krónunnar. Fjallað er um hana í drögum að ályktun um efna- hags- og viðskiptamál sem lögð verður fyrir landsfund Sjálfstæðis- flokksins í febrúar. Þar segir m.a.: „Íslenska krónan í höftum getur ekki verið framtíðargjaldmiðill þjóð- arinnar ef stefnt er að því að Íslend- ingar eigi kost á því að taka þátt í alþjóðlegri samkeppni og afla þjóð- inni tekna á alheimsmarkaði.“ Þá er lagt til að hafist verði handa við að taka upp alþjóðlega mynt á Íslandi. Bjarni taldi margt vera ágætt í drögunum að ályktuninni. Hann kvaðst þó vera mjög ósammála því að hverfa frá íslensku krónunni og taka upp einhverja alþjóðlega mynt í hennar stað. „Verkefni okkar næstu árin er að endurheimta stöðugleika í efnahags- lífinu á grundvelli íslensku krónunn- ar. Það gerum við með því að hefja nýtt vaxtarskeið, loka fjárlagagat- inu, lækka vexti og halda verðbólgu í skefjum,“ sagði Bjarni. „Ég hef ekkert á móti því að menn ræði val- kosti í gjaldmiðilsmálum. Ég hef hins vegar ekki neina trú á að lands- fundur Sjálfstæðisflokksins komist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að hverfa frá íslensku krónunni. Ég mun að minnsta kosti ekki styðja það.“ Bjarni sagði gjaldeyrishöftin vera yfirlýsingu um að við hefðum ekki trú á virði gjaldmiðilsins. Það skað- aði fjárfestingarstigið. Hann sagði ómögulegt að fyrirbyggja alla áhættu við afnám gjaldeyrishaft- anna. „Verkefnið er að lágmarka áhætt- una og við vitum hvaða vandamál þarf að leysa. Þau eru þrotabú bankanna, aflandskrónurnar, endur- fjármögnun fyrirtækja eins og Landsbankans og Orkuveitu Reykjavíkur og einhverra sveitarfé- laga. Það þarf að eyða pólitískri óvissu, bæta rekstrarumhverfið og laga skattkerfið þannig að fjárfestar fái á ný trú á efnahagskerfinu. Tal um að taka upp nýjan gjaldmiðil án þess að grípa til þessara ráðstafana er út í hött.“ gudni@mbl.is „Brýnt að afnema gjaldeyrishöftin sem allra fyrst“  Formaður Sjálfstæðisflokksins ósam- mála því að kasta íslensku krónunni Morgunblaðið/Kristinn Formaður Bjarni Benediktson vill afnema gjaldeyrishöftin sem fyrst. Í fréttatilkynningu frá Alþýðu- sambandi Íslands í gær kom fram að hækkanir hins opinbera á gjald- skrám og neyslusköttum um síð- ustu áramót hafi aukið enn álögur á heimilin í landinu. Þannig höfðu op- inberar hækkanir 0,4% áhrif til hækkunar á verðlagi í janúar, sam- kvæmt verðbólgutölum Hagstof- unnar. Þá segir að mest áhrif hafi hækkanir á fasteignagjöldum (sorphirðugjald, holræsagjöld og vatnsskattur) haft, en fram kemur að flest sveitarfélög hafi hækkað þessi gjöld um áramót og að hækk- unin nemi að jafnaði 7,3%, en áhrif- in af því til hækkunar á vísitölu neysluverðs hafi numið alls 0,13%. Neysluverð hækkaði um 0,13% vegna fasteignagjalda Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Grundarfjörður er í hópi skuldsett- ustu sveitarfélaga á landinu. Við fengum mjög rækilega rekstrarút- tekt á síðasta ári. Hún sýnir einfald- lega að við erum búin að taka til í rekstri eins og kostur er og erum jafnframt að fullnýta tekjustofna. Þetta álag á fasteignagjöldin er til tveggja ára á meðan við erum að vinna okkur út úr erfiðustu skulda- stöðunni,“ segir Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar, um þá ráð- stöfun að leggja 0,125% álag á fast- eignaskatt í A-flokki sem nú er 0,625% í stað 0,5% eins og lögin heimila almennt. „Við fórum hins- vegar þá leið á síðasta ári að við fjölguðum gjalddögum til að létta fólki þetta aðeins,“ segir Sigurborg. Fasteignareigandi í Grundarfirði hafði samband við blaðið og vakti at- hygli á því að hann þyrfti nú að greiða 19.371 krónu á mánuði í fast- eignagjöld en í fyrra hafi gjöldin fyr- Greiða álag á fasteignaskatt  Grundfirðingar greiða 0,125% hærri fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði en 2012  Forseti bæjarstjórnar segir ekki aðra kosti í stöðunni vegna mikilla skulda ir sömu fasteign og þjónustu verið um 13.800 krónur. Hann segir þetta álíka nú og af sambærilegri eign sem hann eigi á höfuðborgarsvæðinu. „Það er ekki trúverðugt ef við er- um að reyna að ná samningum við okkar lánardrottna og erum ekki að nýta tekjustofna eins og kostur er heima fyrir,“ segir Sigurborg. Hún segir sveitarfélagið ekki eiga aðra kosti en bendir jafnframt á að það hafi áhrif á framlög úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga hvort tekjustofn- ar séu nýttir til fulls. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður Fasteignaskattur í A-flokki hækkaði í 0,625% 2013. „Þetta er mjög gott verkefni og við gerum okkur miklar væntingar um að þetta takist vel til og verði mikil hjálp í þessu,“ segir Ólafur Helgi Kjart- ansson, sýslumaður Árnesinga, um samstarfið við sveitarfélagið Árborg. „Það er því miður alltaf talsvert um að það séu bæði innbrot og önnur af- brot og við teljum okkur með þessu móti geta fengið gleggri mynd af að- stæðum,“ segir Ólafur. Hann segir þetta hjálpa lögreglunni á niðurskurð- artímum og að lögreglumenn séu mjög áhugasamir um að leita leiða svo að sem bestur árangur verði af þeirra störfum. Um reynslu af sambærilegum vélum í Hveragerði segir Ólafur: „Við höf- um því miður ekki haft alveg jafn mikið gagn af þeim og við vildum, en þær hafa haft mikinn fælingarmátt.“ Ólafur segir samstarfið við Árborg ganga lengra þar sem lögreglan geti haft eftirlit með rauntímamyndum. Hefur mikinn fælingarmátt LÖGREGLUSTJÓRINN Í ÁRNESSÝSLU Ólafur Helgi Kjartansson unnar sem felur einnig í sér ákvæði um kostnaðarskiptinguna. „Okkar tæknideild er í samskiptum við lög- regluna varðandi verkaskiptingu og það verður gengið frá samningi á næstu dögum,“ segir Eyþór. Á að styðja við bak löggæslu – En er eitthvert sérstakt tilefni fyrir þessu samstarfi? „Það eru kannski nokkur tilefni. Það má nefna sem dæmi að það hafa verið þjófnaðir í hesthúsum og verið erfitt að rekja slík mál. Svo hafa komið upp mál í sveitarfélaginu eins og í öðrum sveitarfélögum og við sjáum fyrir okkur að þarna sé verið að nútímavæða málin. Svo er rétt að geta þess að lögreglan er fáliðuð um allt land – ekki síst í Árnessýslu og þetta er til að styðja við bakið á lög- gæslunni. Þó að það sé ekki á okkar borði beint.“ – Hver er áætlaður kostnaður? „Við ákváðum að verja allt að tveimur milljónum í þetta sinnið og síðan er kostnaður sjálfsagt hjá lög- reglunni líka.“ Í minnisblaði, sem lagt var fram á fundi bæjarráðs um málið, segir að lögreglan muni geta fylgst með um- ferð um bæinn á rauntíma. Þar segir einnig: „Til samanburðar er það þannig í Hveragerði og Reykholti, þar sem vélar hafa verið settar upp, að þar getur lögregla nálgast upp- tökur fyrir ákveðin tímabil.“ Eyþór telur að önnur sveitarfélög gætu tekið upp samskonar samstarf við lögreglu og nú er gert í Árborg. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Öryggi og forvarnir Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum 24. janúar 2013 að leggja tvær milljónir til upp- setningar á öryggismyndavélum á þremur stöðum á Selfossi í samvinnu við lögreglustjóraembættið í Árnessýslu. Öryggismyndavélar settar upp á Selfossi  Á að fæla frá brotamenn  Styður við fáliðaða lögreglu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.