Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 15

Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Borgartún • Fákafen • Hæðasmári www.lifandimarkadur.is OKKAR LOFORÐ: Lífrænt og náttúrulegt Engin óæskileg aukefni Persónuleg þjónusta HEILSUSPRENGJA Ofurfæði með 20% afslætti fimmtudag til sunnudags Ofurfæði gefur þér orku og þrek til að takast á við daginn. Lifestream Ofurfæði hefur aldrei verið vinsælla en nú, enda er ofurfæði skilgreind sem fæða með óvenju hátt næringargildi. Kynning á Lifestream frá kl. 11:30 - 14:30. Fimmtudag í Hæðasmára 6. Föstudag í Borgartúni 24. Laugardag í Fákafeni 11. Naturya Bættu einni skeið af ofurfæði í þeytinginn þinn til að breyta honum í næringarbombu. Kynning á Naturya ofurfæði frá kl. 11 - 13. Fimmtudag í Fákafeni 11. Föstudagur í Borgartúni 24. 20% afslátt ur! 20% afslátt ur! Landsfundur Samfylking- arinnar verður haldinn í Vals- heimilinu að Hlíðarenda í Reykjavík um helgina. Fund- urinn hefst kl. 14.00 á föstudag með ræðu Jó- hönnu Sigurð- ardóttur, formanns Samfylking- arinnar. Síðan verður mælt fyrir ályktunum og lagabreytingum og málefnanefndir starfa. Fundinum verður fram haldið kl. 9 á laugardagsmorgun og klukkan 10 verður rætt um „ESB í fókus“. Klukkan 11.30 verður formanns- kjöri lýst, en kosið var rafrænt milli Árna Páls Árnasonar og Guðbjarts Hannessonar. Á laugardegi fara einnig fram kosningar í embætti varaformanns, ritara, gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar. Fundur hefst á sunnudag kl. 10 og þá verða umræður og afgreiðsla mála. Fundinum verður slitið kl. 14.30 en áður mun nýkjörinn for- maður flytja stefnuræðu. Á sunnu- degi fara einnig fram kosningar í framkvæmdastjórn, flokksstjórn, verkalýðsmálaráð og að auki eru tveir skoðunarmenn reikninga kjörnir. Forseti þingflokks jafn- aðarmanna á Evrópuþinginu, hinn austurríski Hannes Swoboda, ávarpar landsfund Samfylking- arinnar á laugardagsmorgun kl. 10.00. Hann er sérstakur gestur fundarins. sisi@mbl.is Formaður kynntur á laugardag Jóhanna Sigurðardóttir  Samfylking heldur landsfund um helgina Þyrla Landhelg- isgæslunnar sótti síðdegis í gær göngumann sem hafði fallið í Þver- fellshorni í Esj- unni. Talið var að maðurinn hefði runnið um 60 metra niður hlíð- ina. Óskað var eftir aðstoð þyrlu klukkan 15.29 í gær. Maðurinn var kominn um borð í þyrluna klukkan 16.25 og var lent með hann við Land- spítalann í Fossvogi klukkan 16.32. Í gærkvöldi var líðan mannsins góð eftir atvikum og var hann ekki alvar- lega slasaður. Um 40 undanfarar björg- unarsveita af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út vegna slyssins. Þeir voru ýmist á leið upp Esju eða á bið- svæði þegar útkallinu lauk. Slasaðist í Esjunni Fréttablaðið Tíminn verður borið út til 119 þúsund heimila í dag en það er fyrirtækið Heilsíða ehf. sem stendur að baki útgáfunni, sem og nýjum og endurbættum frétta-, af- þreyingar- og lífsstílsvef á vefsvæð- inu timinn.is. Það er Helgi Þorsteinsson, eig- andi og framkvæmdastjóri Heilsíðu ehf., sem ritstýrir miðlunum en hann hefur tekið lénið timinn.is, sem er í eigu Framsóknarflokksins, á leigu til þriggja ára. „Það verður ráðinn annar ritstjóri seinna meir en við erum þrjú núna á ritstjórn; ég og tveir blaðamenn, sem voru ráðnir úr hópi umsækjenda,“ segir Helgi. Hann segir blaðið munu koma út annan hvern fimmtudag til að byrja með en tíminn muni leiða í ljós hvort grundvöllur verði fyrir viku- legri útgáfu. Í leiðara fyrsta tölublaðs segir m.a. að Tíminn vilji vera blað sem leggur áherslu á framfarastefnu í landsmálum, miðill „sem talar fyrir uppbyggingu, fjárfestingu og fram- förum á öllum sviðum atvinnulífs“. Helgi segist enn sem komið er standa einn að útgáfunni en til standi að fá fleiri fjárfesta að rekstrinum. Hverjir það verða muni skýrast í fyllingu tímans en enginn feluleikur verði viðhafður um það. holmfridur@mbl.is Tíminn endurvakinn á netinu og kemur á pappír aðra hverja viku  Ritstjórinn leggur áherslu á framfarastefnu í landsmálum Tíminn Helgi Þorsteinsson ritstjóri með fyrsta eintakið af blaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.