Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 24

Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Birgir Ár-mannssonvakti at- hygli á því á þingi í vikunni að ekki væri nóg að benda á alþjóðlegar stofnanir eins og Steingrímur J. Sigfússon hefði gert. Ekki einungis alþjóðlegar stofnanir þyrftu að draga lærdóm af dómnum í Icesave-málinu held- ur einnig ríkisstjórn Íslands, sem ráðherrann hefði gleymt að nefna. Ríkisstjórnin hefði ekki aðeins unnið ítrekað að því að koma Icesave-samn- ingum í gegnum þingið heldur hefði hún hvað eftir annað bar- ist gegn þjóðaratkvæða- greiðslum um málið. Þetta sé nauðsynlegt að rifja upp, sér- staklega þegar í hlut eigi stjórnmálamenn sem státi af því að vera hinir mestu lýðræð- issinnar og helstu stuðnings- menn þjóðaratkvæðagreiðslna. Því miður er það svo að rík- isstjórn Íslands hyggst ekkert læra af málinu, hún hyggst ekki biðjast afsökunar á mál- inu og þaðan af síður hyggst hún segja af sér út af málinu, þó að augljóst sé að sjaldan hefur nokkur ríkisstjórn – ekki einu sinni sú sem nú situr – haft skýrari forsendur til að segja af sér. Í fyrirspurn Unnar Brár Konráðsdóttur á þingfundi degi síðar til Steingríms J. kom fram að í hans huga hefur ekkert gerst í Icesave-málinu sem kallar á að hann endur- skoði afstöðu sína. Unnur Brá spurði að því hvort ráðherrann væri enn þeirrar skoðunar að rétt hefði verið af ríkisstjórn- inni að reyna að koma Svav- arssamningunum óséðum í gegnum þingið og fór Stein- grímur með nákvæmlega sömu röksemdir og hann gerði á þeim tíma sem hann sagði þá samninga glæsilega nið- urstöðu. Ekki hafi verið um neitt annað að ræða en semja og að réttlætanlegt hafi verið að pukrast með innihald samning- anna þar sem við- semjendurnir hafi viljað hafa efni þeirra trún- aðarmál. Þegar Sigurður Ingi Jó- hannsson bar fram næstu fyr- irspurn til Steingríms kom enn betur í ljós hversu forhertur hann er í málinu. Steingrímur hafnar hluta þeirra útreikn- inga sem birtir hafa verið vegna þess að hann er búinn að láta núvirða kostnaðinn og þá telur hann að Svavarssamning- arnir hefðu kostað 137 millj- arða króna nú og síðustu samn- ingarnir tæplega helming þeirrar fjárhæðar. Þetta telur hann viðráðanlegar upphæðir og er jafn sannfærður og fyrr um að rétt hefði verið að hengja Ice-save-skuldaklafann á þjóðina. Í þessum nýju tölum Stein- gríms gleymist að vísu að á þeim tíma sem hann gerði samningana var útlitið enn verra en þær gefa til kynna þar sem óvissan um endurheimtur voru miklar. Mat manna var að kostnaðurinn yrði hæglega mörg hundruð milljarðar króna en ekki „aðeins“ 137 milljarðar króna, ef marka má tölur Steingríms. Hvor niðurstaðan sem er hefði þó vitaskuld verið skelfi- leg fyrir þjóðina enda munar um minna ef slíkar fjárhæðir streyma út úr hagkerfinu. Og auðvitað er líka skelfilegt að ráðamenn skuli enn vera þeirrar skoðunar að þeir hafi ekkert gert rangt þegar svo augljóst er orðið að þeir hafa ekki aðeins tekið ranga afstöðu heldur einnig stórhættulega af- stöðu á öllum stigum málsins. Meginatriðið er að þjóð- arhagur var aldrei settur í önd- vegi í þessu máli, einungis rík- isstjórnin og aðildarumsóknin að Evrópusambandinu, en eins og margoft hefur komið fram getur hvorugt án hins verið. Stjórnarliðar eru sömu skoðunar um Icesave-samningana nú og fyrr} Forhertir sem fyrr Í fundargerðsamningshóps um aðild að ESB segir: „Skrifað hefur verið undir samning um IPA- aðstoð við ESB. Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti er meg- instyrkþegi aðstoðar og hefur umsjón með framkvæmd samningsins en stýrihópur um stofnanauppbyggingu tryggir samhæfingu og samstarf við framkvæmd hans sem og sam- ráð við hagsmunaaðila.“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er ráðherrann sem á í hlut. En á flokksráðs- fundi VG hinn 20. nóvember 2010 var m.a. samþykkt svohljóðandi álykt- un: „Þar til þjóðin hefur tekið sína ákvörðun þarf að tryggja að ekki verði gerðar neinar breytingar á stjórnsýslunni eða íslenskum lögum í þeim eina tilgangi að laga íslenska stjórnkerfið fyrirfram að reglum Evrópusambandsins. Ekki verði heldur tekið við styrkjum, sem beinlínis eiga að undirbúa aðild.“ Óheilindum virðast engin takmörk sett. Óheilindi í uppmælingu} Geta ekki svikið meir en þeir hafa lofað Á hugamenn um íslenska pólitík hafa ekki komist hjá því að verða varir við að nokkuð hefur fækkað í liðssveit vinstri-grænna síðustu misserin. Einn strokumanna, Jón Bjarnason, sem þekktur er fyrir kát- broslega afturhaldsstefnu, ber sig sérlega illa í nýlegu viðtali við Morgunblaðið. Hann telur sig greinilega misskilinn hugsjónamann og nefnir nokkra brotthlaupna félaga sína á nafn og virðist telja að þar sé einnig sérstakt hug- sjónafólk á ferð. Hér eru nöfnin sem hann nefnir: Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daða- son, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Lilja Mósesdóttir. Ekki verður nú beinlínis sagt að þessir þingmenn hafi talað sig inn í hjörtu þjóðarinnar – nema þá Lilja Mósesdóttir sem stofnaði eigin flokk en hljópst síðan einnig á brott úr honum þegar fylgið fór verulega að dala í skoð- anakönnunum. Um daginn sagði Hjörleifur Guttormsson svo skilið við vinstri-græna. Flokkurinn er hvorki nægilega vinstri- sinnaður né nógu grænn fyrir Hjörleif sem neyðist sjálf- sagt til að skila auðu í næstu konsingum. Segja má að vinstri-grænir hafi á tiltölulega skömm- um tíma losnað við afturhaldssamasta og þröngsýnasta kjarnann í flokknum. Það ætti að vera ýmsum fagnaðar- efni en svo ber við að sjálfstæðismenn hafa upphafið mikinn samúðargrátkór með strokumönnum. Þar er stefið á þann veg að Steingrímur J. Sigfússon hafi hrakið dugmestu og skynsömustu menn úr flokkn- um og sé að leggja eigin flokk í rúst. Hver maður sem hefur vott af raunveru- leikaskyni á að sjá að áðurnefndir stroku- menn eru ófærir um að vera í stjórnmála- flokki sem er í ríkisstjórnarsamstarfi og þarf að gera málamiðlanir. Málmiðlun er slíkur þyrnir í augum þeirra að þeir ákveða í reglu- bundnum dramaköstum að valda skaða í vinstrisinnaðasta flokki á Íslandi. Stroku- mennirnir berja sér á brjóst og segja flokkinn hafa komið illa fram við sig og sjálfstæðis- menn sýna þeim samúð og fella með þeim tár. Strokumennirnir eru svo einfaldir að þeir sjá ekki að tár sjálfstæðismanna eru krókódíla- tár. Sundrung innan herbúða andstæðingsins hentar sjálfstæðismönnum en það sjá stroku- mennirnir ekki því þeir eru of uppteknir af sjálfskipuðu píslarvætti sínu og halda því áfram að leita huggunar í faðmi hægrimanna. Hægrimenn, sem yfirleitt kunna listina að standa saman út á við, geta nú hallað sér aftur og horft á menn sem telja sig einlæga vinstrimenn sundra vinstrihreyf- ingunni í landinu – enn og aftur. Sjálfstæðismenn dunda sér við að klappa strokumönnunum sem telja sig eiga svo óskaplega bágt. Hægri kratar andvarpa svo af feginleik því þeim líður svo miklu betur þegar vinstra afturhaldið er orðið landlaust. Þannig má segja að strokumenn úr hópi vinstri-grænna séu að gleðja ansi marga með brott- hvarfi sínu. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Píslarvætti strokumanna STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Skúli Hansen skulih@mbl.is Framkvæmdastjórn Evr-ópusambandsins lítur svoá að þótt dómur EFTA-dómstólsins í Icesave- málinu sé mikilvægur hafi hann eng- in áhrif á stöðu innistæðutrygginga í aðildarríkjum sambandsins. „Eftir að hafa rannsakað dóm- inn stendur framkvæmdastjórnin við túlkun sína á núverandi innistæðu- tryggingakerfi Evrópusambands- ins,“ segir Stefaan De Rynck, tals- maður Michel Barnier innri- markaðsstjóra ESB. Framkvæmdastjórnin mun líta svo á að Evrópudómstóllinn, dóm- stóll Evrópusambandsins, sé ekki bundinn af rökstuðningi og nið- urstöðum EFTA-dómstólsins um að íslenska ríkið beri ekki ábyrgð á skuldbindingum Tryggingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta. Í dómi EFTA-dómstólins kom raunar fram að hann miðaði við þær reglur sem giltu þegar íslenska bankakerfið hrundi. Síðan hafi verið gerðar breytingar á regluverki fjár- málakerfisins sem miðuðu að því að auka vernd innistæðueigenda. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins var með svokallaða meðalgöngu í Icesave-málinu. Í munnlegum málflutningi sínum fyrir EFTA-dómstólnum bað málflytjandi framkvæmdastjórnarinnar dóminn að tryggja fordæmi sem kæmi í veg fyrir að önnur Evrópuríki íhuguðu að yfirgefa innstæðutryggingakerfið ef eitthvað bjátaði á. Þá hafnaði hann því að Íslendingar hefðu ekki getað borgað, þar af leiðandi hefði beiting neyðarlaganna verið ónauðsynleg. Kerfið gildir þrátt fyrir hrun Að sögn De Ryncks eiga inni- stæðutryggingakerfi aðildarríkja ESB einnig við þegar um kerfishrun er að ræða. „Aðildarríkjum ESB ber skylda til að tryggja að innistæðu- eigendur njóti fullrar og skilvirkrar verndar, jafnvel á erfiðum kreppu- tímum,“ segir De Rynck og bætir við: „Allir innistæðueigendur innan Evrópusambandsins hafa síðan árið 2010 notið tryggingar upp að allt að 100 þúsund evrum. Aðildarríkin bera lagalega ábyrgð á því að slíkar tryggingar fyrir innistæðueigendur séu heiðri hafðar.“ Þá bendir De Rynck á að fram- kvæmdastjórnin hafi samþykkt til- lögu árið 2010 sem miðar að því að styrkja enn frekar vernd innistæðu- eigenda, einkum með því að efla fjár- mögnun innistæðutryggingasjóð- anna og stytta greiðslutímabilið til innistæðueigenda. „Við eigum von á því að ná sam- komulagi um þennan mikilvæga texta, sem og um tillöguna um fjár- hagslega endurskipulagningu bankastofnana, við Evrópuþingið og ráðherraráðið fyrir júní, í þeim til- gangi að styrkja innistæðutrygg- ingakerfin enn frekar,“ segir De Rynck og bætir við að fram- kvæmdastjórnin muni skoða nið- urstöðu EFTA-dómstólsins nánar og athuga hvort hann geri það að verkum að sá texti sem nú er samið um þarfnist nánari útskýringa. Hinn raunverulegi skuldari Þá segir De Rynck fram- kvæmdastjórnina vera ánægða með yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands þess efnis að mik- ilvægt sé að hafa í huga að greiðslur úr þrotabúi Lands- bankans muni halda áfram að skila sér óháð niðurstöðu dómsins. „Það er reiknað með því að Icesave-kröfurnar verði greiddar að fullu af hinum raunverulega skuldara, þrotabúi Landsbank- ans,“ segir De Rynck. Afstaða ESB í Ice- save-málinu óbreytt AFP Evrópusambandið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stendur við túlkun sína á evrópureglum um tryggingasjóði innistæðueigenda. „Þetta er sigur bæði fyrir lög og efnahagslega skynsemi,“ segir í leiðara Financial Times þar sem fjallað er um niðurstöðu EFTA- dómstólsins í Icesave-málinu. Í leiðaranum, sem birtist á vefsíðu fjölmiðilsins í fyrradag, segir einnig að dómurinn sé skýr um það að Evrópureglur krefjist þess ekki að skattgreiðendur hlaupi undir bagga fyrir einka- rekna banka. Jafnframt segir í leiðaranum að dómurinn sýni það fortakslaust að ef íslenski innistæðutryggingasjóðurinn var ófullnægjandi samkvæmt stöðl- um ESB, þá gildi hið sama um sjóði allra aðildarríkja ESB. Þá segir þar að íslensk stjórnvöld hafi sýnt fram á að þau höfðu lagalega rétt fyrir sér og að Evrópa ætti að við- urkenna að þau höfðu nokkuð til síns máls hvað stefnumótun varðar. Dómurinn sigur fyrir lög LEIÐARI FINANCIAL TIMES Stefaan De Rynck

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.