Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Líkamsrækt Göngu- og hjólastígakerfi Reykjavíkur gagnast vel til þess að auka andlega og líkamlega vellíðan og þá skiptir ekki máli hvernig fólk fer frá einum stað til annars. Kristinn Þegar litið er til baka yfir árið 2012 þá einkenndist það af mikilli fjölgun erlendra ferðamanna, ekki síst yfir vetrarmánuðina, baráttu gegn óhóflegum skattahækkunum, s.s. á gistinguna, bílaleigur og innan- landsflug auk þess sem unnið var gegn miðstýringu og miklum hvata til að flytja viðskipti frá fyrirtækj- unum til hins opinbera. Sú barátta stendur enn yfir. Menn voru þó þakklátir fyrir að fá frí frá nátt- úruhamförum. Mikil markaðssetning er nú annan veturinn í röð undir yfirskriftinni „Ísland allt árið“ en stjórnvöld leggja fram 300 milljónir á ári 2011- 2014 gegn því að fyrirtæki og sveit- arfélög jafni þá upphæð. Ljóst er að átakið hefur áhrif og var t.d. 30% aukning erlendra ferðamanna yfir síðustu fjóra vetrarmánuðina en aukningin var rúmlega 19% yfir allt síðasta ár. Þessi mikla aukning á sér ýmsar skýringar. Það er mikið fjallað um Ísland í fjölmiðlum er- lendis, eldgosið í Eyjafjallajökli vakti gríðarlega athygli á landinu, aukning hefur verið á sætaframboði hjá Icelandair og síðan er ljóst að markaðsherferðin Ísland allt árið hefur mikil áhrif. Það eru að vonum miklar umræður í þjóðfélag- inu um svo mikla fjölgun erlendra ferðamanna og spurt hver þolmörkin séu. Það byggist mikið á því hvernig ferðamenn muni í framtíðinni dreifast um landið og yfir árið, hvernig okkur auðnast að byggja upp og vernda fjölsótta ferðamannastaði og ekki síst skapa nýja. Það er oft haft á orði að ferðamenn séu orðnir fleiri en landsmenn. Það má til sanns vegar færa þegar skoðaðar eru samtal- stölur en það eru nú ekki allir hér samtímis svo umræðan er oft svolítið ruglingsleg. Ferðaþjón- ustan skapar u.þ.b. 20% allra gjaldeyristekna þjóðarinnar og skapar atvinnu um nær allar byggðir landsins. Það er því brýnt að hún fái að blómstra. Verkefnin framundan Það eru mörg mikilvæg verkefni í gangi og verða fyrirferðarmikil á nýbyrjuðu ári. Fyrst skal telja Ísland allt árið með það markmið að jafna árstíðasveiflu í rekstri fyrirtækja. Ísland er sann- arlega ævintýraland, jafnt að vetri sem sumri, en aukin vetrarferðaþjónusta gerir þó auknar kröfur til öryggismála og betra upplýsingaflæðis til ferða- manna um veður og færð enda margir ferðamenn óvanir því veðri sem getur skollið á yfir vetr- armánuðina hér á landi. Þarna þarf starfsfólk fyrirtækjanna að vera á verði og benda gestum sínum á mikilvæga vefi, s.s. safetravel.is, veður.is og vegagerdin.is. Stóraukið framlag ríkisins til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða næstu þrjú árin gefur ný og betri tækifæri til að vernda og byggja upp fjölsótta ferða- mannastaði og skapa nýja. Víða er náttúran farin að láta á sjá auk þess sem mikil vöntun er víða á skipulagi af hálfu sveitarfélaga. Þetta er ein stærsta áskorunin í ferðaþjónustunni í dag. Markaðssetning Vakans er stórt verkefni en mörg fyrirtæki eru nú í umsóknarferli auk þess sem nokkur hafa nú þegar fengið flokkun. Ferða- menn kalla eftir auknum gæðum og er Vakinn einstakt tæki til þess að bjóða gestum aukin gæði og fylgir honum mikil fræðsla fyrir fyrirtækin. Það hefur verið kallað á auknar rann- sóknir í ferðaþjónustu en það eru allir orðnir langþreyttir á því að benda stjórnvöldum á hversu litlu fé er var- ið í rannsóknir í ferðaþjónustu í sam- anburði við margar aðrar atvinnu- greinar, s.s. landbúnað, sjávarútveg og iðnað. Í miðri umræðunni var tilkynnt að Hagstofan ætlaði að hætta við að gera ferðaþjónustureikninga vegna sparnaðar en það eru grunnrann- sóknir í ferðaþjónustu. Það er að auki mikil þörf á t.d. þolmarkarann- sóknum og markaðsrannsóknum svo eitthvað sé talið. Það telst til verkefna þessa árs að ræða við nýja ríkisstjórn um að vinda ofan af miklum skattahækkunum, síauknu flækjustigi í skattkerf- inu og ásælni hins opinbera í rekstur einkafyr- irtækjanna. Sem dæmi um auknar flækjur þá munu gististaðir gefa út reikninga með allt að fjór- um tegundum virðisaukaskatts eftir 1. september nk. Það er ekki nóg með að stjórnvöld hlusti ekki á atvinnulífið, þau hlusta ekki heldur á eindregin til- mæli skattyfirvalda um að flækja ekki skattkerfið. Skattar og gjöld á innanlandsflug hafa rúmlega tvöfaldast síðustu 3 árin enda eftirspurn farin að dragast saman. Unnið er að því að hnekkja áform- um ríkisvaldsins og sveitarfélaga um að sveit- arfélög taki gjald af fyrirtækjunum fyrir að fara um svæði sín með ferðamenn í reglubundnum ferðum. Sem dæmi má líka nefna að unnið er að því að einokun verði á flugrútunni til Keflavík- urflugvallar í umsjá Samtaka sveitarfélaga á Suð- urnesjum. Þetta brýtur í bága við tilskipun ESB um þessi mál. Baráttan fyrir því að tekið verði fast á sívaxandi fjölda leyfislausra fyrirtækja er í gangi og er vonast til að loks verði eitthvað gert. Senni- lega er leyfislausi og svarti bransinn eini geirinn í atvinnulífinu sem fær að blómstra óáreittur. Framtíð ferðaþjónustunnar byggist á að greinin búi við rekstrarumhverfi sem er samkeppnishæft við þau lönd sem við keppum við og berum okkur helst saman við og að stjórnsýslan og stoðkerfið gangi í takt við þróunina í atvinnulífinu. Eftir Ernu Hauksdóttur » Það eru að vonum mikl- ar umræður í þjóðfélaginu um svo mikla fjölgun erlendra ferðamanna og spurt hver þolmörkin séu. Erna Hauksdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan í upphafi árs Nú segir Bloomberg-fréttaveitan að Ísland hafi unnið Icesave-málið og sparað sér 335 milljarða og vitnar til upplýsinga Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Þeir segja jafnframt að ís- lenska ríkisstjórnin hafi reiknað með og talið víst að hún yrði dæmd til að borga þessa upphæð. Mánudagurinn var því sigurdagur Íslands og Íslend- inga. Nú er eðlilegt að spurt sé hverj- ir hafa verið barðir sem öfgamenn síðustu árin hér á landi? Og sagðir tefja fyrir og seinka endurreisn Ís- lands? Í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni fordæmdu forráðamenn ríkis- stjórnarinnar forseta Íslands fyrir að vísa málinu í dóm þjóðarinnar. Jafn- framt voru þingmenn stjórnar- andstöðunnar sakaðir um málþóf og strákapör. Ég verð nú að segja að vel vann stjórnarandstaðan og forsetinn fyrir kaupi sínu þessa daga eða 335 milljörðum sem spöruðust. Í hinni síðari þjóðaratkvæðagreiðslu stóð Sigmundur Davíð, formaður Fram- sóknarflokksins, enn uppréttur með flokk sinn og vildi ekki að þjóðin sín greiddi ólögmætar kröfur. Hann var sakaður um hina verstu hluti og Ís- landi var spáð gjaldþroti og hörm- ungum af hámenntuðum sérfræð- ingum og forkólfum í íslensku atvinnulífi. Lesið hvað efnahags- spekingarnir Gylfi Magnússon, Þórólfur Matthíasson, Þorvald- ur Gylfason o.fl. sögðu á þessum tíma. Lesið einnig hvað for- ystumenn atvinnulífs- ins sögðu. Þökk sé forseta vorum Forseti Íslands tap- aði mestu af fylgi vinstrimanna, sinna fyrrverandi félaga, og hefur verið sakaður nánast um land- ráð af hálfu þeirra sem lengst hafa gengið. Varðmaður landsins sem þorði að ganga fram þegar ráðherra brast kjark og vilja, hefur sætt harðri gagnrýni. Það heyrist að svo kalt sé og ill sambúðin að baráttumennirnir fyrir Icesave í röðum stjórnarliða og flestir ráðherrarnir hunsi boð forset- ans á stórum dögum á Bessastöðum. Og erfiður var víst ríkisráðsfund- urinn á gamlársdag að fregnir segja. Sneri það víst að öðru umdeildu máli, stjórnarskránni, þar er málflutning- urinn á Alþingi haldinn Icesave- heilkenninu. Hinu má ekki heldur gleyma að Ögmundur Jónasson var nauðbeygður að yfirgefa ríkis- stjórnina og ráðherrastöðu af því að hann neitaði að beygja sig undir versta samning Íslandssögunnar og Lilja Mósesdóttir, Ás- mundur Einar Daðason og fleiri yfirgáfu flokk- inn sinn af sömu ástæðu. Þau áttu ekki að fá að fylgja sannfæringu sinni í þessu máli eða ESB- umsókninni. Þjóðin lét þrátt fyrir allan áróður stjórnarflokkanna og of- urvald þeirra á stærstu fjölmiðlum landsins aldrei rugla sig, hún ætl- aði ekki að borga skuldir sem hún hafði ekki stofnað til. „Skuldir óreiðumanna,“ eins og Davíð Oddsson orðaði svo vel. Sæludagar í Sviss Forseti Íslands fékk í síðustu viku óvægna umræðu enn og aftur í fjöl- miðlum hér heima þegar hann tók upp málstað Íslands og áminnti Evr- ópusambandið fyrir ólögmæta aðför að Íslandi og þann arma þrjót Gord- on Brown og breska ráðamenn hvernig þeir léku landið með hryðju- verkaárás og að setja saklausa þjóð á bekk með versta glæpalýð heimsins, talibönum og alkaítum. Ennfremur lýsti sá armi þrjótur Gordon Brown Ísland gjaldþrota haustið 2008. Ég hlustaði á þingmenn stjórnarliðsins í fjölmiðlum ræða um að forsetinn hefði enn skaðað hagsmuni landsins og Jóhanna og Össur ættu að lesa yf- ir allt það sem hann segði á erlendri grund. Ja hérna, eru menn hissa þó þeir sem ætluðu að greiða 335 millj- arða eða enn hærri upphæð, biðjist nú vægðar í umræðunni? Hver er svo skaðinn af öllu þessu fyrir Ísland? Er ESB og Bretland sérstaklega skaða- bótaskylt eftir þessa aðför? Það verða nú pólitískir leiðtogar okkar að meta blákalt. Ég taldi svo vera strax og hryðjuverkalögin voru sett á Ís- land haustið 2008. Síðan hafa mörg atriði og framganga þjóða og ESB staðfest þá skoðun mína o.fl. Við fengum ekki lán, meira að segja frændur á Norðurlöndum neituðu nema við greiddum reikninginn og kyngdum öllu saman. Lán til Íslands bera nú hæstu vexti og hærri en nokkur þjóð ber í dag. Þakkir, og hvað svo? Ég vil þakka öllum þeim, ekki síst fólkinu í land- inu, sem létu ekki misvitra stjórn- málamenn plata sig. Ennfremur for- seta Íslands fyrir að hafa aldrei hvikað frá því að fela þjóðinni að segja sitt og þora að brjóta allar hefð- ir forseta og ganga fram í fjölmiðlum erlendis og taka upp málstað þjóðar sinnar svo hart og faglega að nú skilja allir hvað orð hans og gerðir vógu þungt í að leiðrétta vitleysuna og undirlægjuháttinn hér heima. Ennfremur þakka ég Sigmundi Dav- íð Gunnlaugssyni hans staðfestu sem er afrek útaf fyrir sig, byrjandi í póli- tík en hefur nú sannað að hann og hans flokkur með ungan og nýjan þingflokk eru traustsins verðir. Það hefur verið ömurlegt að hlusta á for- ystumenn ríkisstjórnarinnar reyna að skáka honum út úr umræðunni með lágkúrulegum athugasemdum í þáttum stjórnmálaforingjanna. Síð- ast en ekki síst þakka ég ritstjóra Morgunblaðsins, Davíð Oddssyni, fyrir einstaka staðfestu og baráttu nánast upp á hvern dag fyrir málstað Íslands. Meti nú hver fyrir sig hver væru næstu viðbrögð hefði hann átt í sambærilegu stríði við andstæðing sinn í næsta byggðarlagi. Peninga- legur skaði upp á hundruð milljóna og yfirlýsingar sem aldrei hafa heyrst í samstarfi vestrænna þjóða fyrr. Yfirlýsingar sem sköðuðu mannorð og viðskipti íslenskra manna og fyrirtækja. Lögin og rétt- urinn voru okkar megin. Hvað segir það okkur? Eftir Guðna Ágústsson »Ég verð nú að segja að vel vann stjórn- arandstaðan og forsetinn fyrir kaupi sínu þessa daga eða 335 milljörðum sem spöruðust. Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra. 335 milljarðar eru miklir peningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.