Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 35
98, heilsugæslulæknir í Svíþjóð frá
1998 og er sérfræðingur í heim-
ilislækningum á Íslandi og Svíþjóð
frá 2001.
Guðmundur Karl var meðstofn-
andi og formaður stjórnar Dentix
hf., er hannaði og framleiddi hug-
búnað fyrir tannlæknastofur, með-
stofnandi og formaður stjórnar
Fiskmarkaðs Snæfellsness til 1993,
sat í stjórn Reiknistofu fiskmark-
aða til 1993, var varamaður í bæj-
arstjórn Ólafsvíkur, formaður
áfengisvarnarráðs Ólafsvíkur 1992-
93, meðstofnandi Óháða flokksins
sem var í framboði til sveit-
arstjórnar í Ólafsvík, var verk-
efnastjóri við gerð hugbúnaðar fyr-
ir heilsugæslustöðvar á vegum
Tryggingastofnunar ríkisins og
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytis 1989-93 (Hippocrates), og
kom af stað undirbúningsvinnu að
stofnun hugbúnaðarfyrirtækis inn-
an heilbrigðisþjónustunnar, síðar
Gagnalind (Sögukerfið).
Guðmundur Karl tók þátt í
björgunarleiðangri á Snæfellsjökli
1991 (CBS USA, Rescue 911) var
formaður íslenskra heimilislækna í
Skandinavíu um skeið, stofnandi og
formaður stjórnar Hvítra sloppa,
ráðningarfyrirtækis lækna og ann-
ars heilbrigðisstarfsfólks til Skand-
inavíu og starfar við fyrirtækið auk
læknisstarfa í Svíþjóð undanfarin
ár.
Fjölskylda
Guðmundur Karl kvæntist 17.7.
1978 Laufeyju I. Gunnarsdóttur, f.
7.10. 1954, þroskaþjálfa og ein-
hverfuráðgjafa við Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins ásamt sjálf-
stæðum rekstri. Hún er dóttir
Gunnars Páls Ingólfssonar, f. 26.5.
1934, kjötiðnaðar- og tónlistar-
manns í Reykjavík, og k.h., Lillýjar
Oktavíu Guðmundsdóttur, f. 13.9.
1934, verslunarmanns.
Börn Guðmundar Karls og Lauf-
eyjar eru Guðrún Halla, f. 9.11.
1974, kennari og fulltrúi í Reykja-
vík en maður hennar er Kristján
Smári Smárason hönnuður og eru
börn þeirra Lea Björt, Tandri Karl
og Frosti Þór; Tekla Hrund, f. 27.3.
1982, læknir í Svíþjóð en maður
hennar er Kjartan Hrafn Loftsson,
læknir í sérnám í Svíþjóð og eru
börn þeirra Álfrún Eva, Davíð Karl
og Eydís Klara; Gunnar Hákon, f.
20.1. 1991, nemi; Davíð Arnljótur, f.
14.7. 1992, nemi.
Albróðir Guðmundar Karls er
Bárður Sigurgeirsson, f. 13.11.
1955, sérfræðingur í húð- og kyn-
sjúkdómum í Kópavogi.
Hálfsystkini Guðmundar Karls,
samfeðra, eru dr. Björn, f. 14.4.
1953, sérfræðingur í lýtalækningum
í Malmö; Hjalti, f. 7.9. 1957, sér-
fræðingur í svæfingalækningum í
Svíþjóð; dr. Anna María, f. 8.8.
1960, þjóðfræðingur í Bandaríkj-
unum; Arnljótur, f. 20.1. 1964,
læknir í sérnámí í Svíþjóð og fil-
.mag. í indverskum fræðum; David
Abrahamsson Arnljots, f. 10.4.
1970, lögfræðingur í Stokkhólmi;
Þorsteinn, f. 12.1. 1984, læknir í
sérnámi í Reykjavík; Egill, f. 24.6.
1986, læknanemi erlendis.
Hálfsystkini Guðmundar Karls,
sammæðra: Anna Björg Hjart-
ardóttir, f. 10.2. 1959, heildsali í
Reykjavík; Björn Skorri Ingólfsson,
f. 6.2. 1970, ráðningastjóri, í Osló og
Reykjavík; Árni Ingólfsson, f. 2.2.
1971, tölvunarfræðingur í Noregi
og Hollandi; Guðrún I. Ingólfs-
dóttir, f. 6.7. 1972, hagfræðingur í
Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar Karls:
Snæbjörn Arnljóts Hjaltason, f.
17.12. 1928, lyflæknir í Norrköping
í Svíþjóð, og Guðrún Gréta Tóm-
asdóttir, f. 19.5. 1933, húsfreyja.
Úr frændgarði Guðmundar Karls Snæbjörnssonar
Bjarni Benediktsson
alþm. og form.
Sjálfstæðisflokksins
Guðríður Jónsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Jón Jónsson
b. á Þverá
Herbert Alfred Jónsson
verkam. í Neskaupstað
Tryggvi Þór
Herbertsson
alþm. og hagfræðingur
Guðmundur Karl
Snæbjörnsson
Hjalti Magnús Björnsson
stórkaupm. og konsúll í Rvík
Björn Jónsson
hákarlaform. á Karlsstöðum í Fljótum
Guðríður Hjaltadóttir
húsfr. á Karlsstöðum
Snæbjörn H. Arnalds
fyrrv. yfirlæknir í Nyköping í Svíþjóð
Guðrún Gréta
húsfr. í Rvík
Ovina Anne Margrét Arnljóts
húsfr. í Rvík
William Edvard Velschow
múrari, arkitekt og listmálari í
Kaupmannahöfn
Halldóra Arnljóts,
sem talin hefur verið fyrirmyndin
að ungfrúnni í Ungfrúnni góðu og
húsinu, eftir Laxness
Hólmfríður Sigurlína
Björnsdóttir
húsfr. í Rvík
Tómas Jónsson
b. í Elivogum og í Akureyjum í Breiðafirði
Jón Stefánsson
b. á Þverá í Blönduhlíð
Guðrún Pétursdóttir
húsfreyja
Sigríður Jónsdóttir
ljósm. og skáldkona, síðast í Rvík
Jón Þorvaldsson
b. á Stapa, af ætt Hrólfunga
Guðrún Elísabet Jóhannsdóttir
húsfr. á Stapa
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Einar fæddist í Vest-mannaeyjum og ólst þarupp hjá foreldrum sínum,
Gísla Jónssyni, útvegsbónda í Arn-
arhóli í Vestmannaeyjum, og k.h.,
Guðnýju Einarsdóttur húsfreyju.
Faðir Gísla var Jón, b. í Vestra-
Fíflholti í Landeyjum, Brandsson,
sem átti þrjátíu og eitt barn, bróðir
Þórðar á Kálfsstöðum, langafa Sig-
ríðar A. Þórðardóttur, fyrrv. alþm.
Móðir Gísla var Sólveig Gísladóttir, í
beinan karllegg af Þórði, biskupi í
Skálholti, Þorlákssyni, biskups á
Hólum Skúlasonar. Móðir Þorláks
var Steinunn Guðbrandsdóttir, bisk-
ups á Hólum Þorlákssonar.
Guðný var dóttir Einars, b. í
Arnarhóli í Landeyjum, í beinan
karllegg frá Fjalla-Eyvindi. Móðir
Guðnýjar var Salvör Snorradóttir af
Presta-Högnaætt.
Einar lagði stund á vélstjóranám í
Eyjum hjá Vigfúsi Jónssyni, var sér-
menntaður í öxuldrætti og skuthólk-
um og var með skipstjórnarréttindi
á þrjátíu tonna báta. Þá stundaði
hann nám við biblíuskóla í Svíþjóð
hjá Levi Belhreus 1946 og 1950.
Einar var lengi með eigin útgerð,
ásamt Óskari bróður sínum, auk
þess sem hann var á grafskipinu
Vestmannaey og á lóðsbátnum
Létti. Hann var fyrsti skoðunar-
maður björgunarbáta í Eyjum 1956-
70, vélaeftirlitsmaður fiskibáta í
Eyjum í tólf ár og eftirlitsmaður
Skipaskoðunar ríkisins í Eyjum í
fjórtán ár.
Einar gekk í hvítasunnuhreyf-
inguna sextán ára, var forstöðu-
maður Betel í Vestmannaeyjum í
tuttugu og tvö ár og síðan for-
stöðumaður Fíladelfíu í Reykjavík á
árunum 1970-90. Hann var af-
skaplega ástsæll leiðtogi, ræðumað-
ur af guðs náð og lengi einn skelegg-
asti og þekktasti predikari
hvítasunnuhreyfingarinnar hér á
landi.
Einar var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Guðný Sigurmundsdóttir
sem lést 1963 en þau eignuðust þrjú
börn. Seinni kona Einars var Sig-
urlína Jóhannsdóttir og eignuðust
þau eina dóttur.
Einar lést 14.5. 1998.
Merkir Íslendingar
Einar J.
Gíslason
90 ára
Hulda Ingvarsdóttir
Þórleif Guðjónsdóttir
85 ára
Ingveldur Guðlaugsdóttir
80 ára
Alfa Guðmundsdóttir
Elísabet Brynjólfsdóttir
Federica Paula Frank
Scholz
Friðrik Antonsson
Hildur Þórisdóttir
Rósinkranz Kristjánsson
Þóra Þorgeirsdóttir
75 ára
Ester M. Kaldalóns
Gunnhildur Gíslín
Guðjónsdóttir
Kristján Ágústsson
Lára Ágústa H. Kolbeins
María H. Jónsdóttir
70 ára
Bjarni Heiðar Johansen
Borghild Hansen
Guðrún Sigurðardóttir
Kristín Magnússon
Ólöf Sigurðardóttir
Sólveig Jóhannesdóttir
60 ára
Anna Sigurðardóttir
Bjarki Þór Skjaldarson
Friðleifur Kristjánsson
Hafdís Marvinsdóttir
Jóna Elín Benediktsdóttir
Jón Gíslason
Margrét Björk Ólafsdóttir
Stefanía Anna
Garðarsdóttir
Stefán Þórðarson
Ævar Guðmundsson
50 ára
Axel Hallkell Jóhannesson
Björn Berg Gunnarsson
Einar Geirtryggur Skúlason
Guðrún Hallgrímsdóttir
Gunnhildur Grímsdóttir
Hallgrímur Jökull Jónasson
Hanna María Ólafsdóttir
Magnús Rúnar Árnason
Sigurrós Helga Ólafsdóttir
40 ára
Björn Henry Kristjánsson
Hákon Már Örvarsson
Helgi Gunnarsson
Kristín Vilhjálmsdóttir
Sigrún Björk Jónsdóttir
30 ára
Adam Sawieljew
Anna Lilja Karelsdóttir
Björk Hjaltalín
Stefánsdóttir
Ester Bergsteinsdóttir
Ewelina Beata Deppe
Helga Þóra Ragnarsdóttir
Ingvar Ragnar
Snæbjörnsson
Ioulia Trofimova
Sigurður Grétar
Kristjánsson
Vesna Smiljkovic
Þorbjörn Helgi
Þorsteinsson
Til hamingju með daginn
60 ára Herdís ólst upp á
Akranesi, hefur unnið við
eigin fiskvinnslu og sat á
Alþingi fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn 2007-2009.
Maki: Jóhannes S. Ólafs-
son, f. 1948, fyrrv. útgerð-
armaður.
Börn: Þórður Már, f. 1973;
Lára, f. 1974; Ingunn Þóra,
f. 1981, og Guðjón, f. 1985.
Foreldrar: Þórður Guð-
jónsson skipstjóri og
Marselía Guðjónsdóttir.
Herdís H.
Þórðardóttir
40 ára Róbert ólst upp í
Grenivík frá sex ára aldri,
hefur lengst af stundað
sjómennsku og starfað
við fiskvinnslu og starfar
nú hjá Gjögri.
Börn: Þórey Ósk, f. 1994;
Daníela, f. 2004, og Kar-
en Fatima, f. 2005.
Foreldrar: Þorsteinn
Óskarsson, f. 1953, sund-
laugavörður á Akranesi,
og Þórey Aðalsteinsdóttir,
f. 1952, starfar á sambýli í
Grenivík.
Róbert
Þorsteinsson
30 ára Fannar ólst upp á
Rifi, lauk BA-prófi í heim-
speki, hagfræði og stjórn-
málafræði frá Bifröst
2010, og starfar við sjáv-
arútveg.
Maki: Guðný Ösp Ragn-
arsdóttir, f. 1983, lögm..
Börn: Þiðrik, f. 2009, og
Iðunn, f. 2012.
Foreldrar: Hjálmar Þór
Kristjánsson, f. 1958, út-
gerðarmaður á Rifi, og
Lydía Rafnsdóttir, f. 1960,
húsmóðir.
Fannar
Hjálmarsson
mbl.is/islendingar
ÚtsalaN
er komin á fulla ferð!