Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Sýning ljósmyndarans Paula Prats,
Found/Dot, verður opnuð í Skotinu
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag
kl. 12. Sýningin samanstendur af
tveimur ljósmyndaröðum, Found
og Dot. Found byggist upp á mynd-
um sem eru tvær myndir í einni;
skyndimyndir frá sjöunda áratugn-
um sem fundust á flóamarkaði í
Kanada, og myndir teknar af henni
sjálfri í dag, að því er segir í til-
kynningu. Dot er úrval mynda eftir
Paulu og segir um þá myndaröð að
titillinn breyti upplifun fólks af
heildinni, allar myndirnar séu
tengdar með punkti sem breyti um
lit, umfang og jafnvel lögun. Punkt-
urinn gefi innsýn í röðun ljósmynda
og hvernig mismunandi myndir
geti tengst á einfaldasta hátt og bú-
ið til reglu úr óreglu, eins og það er
orðað.
Paula Prats hlaut BA gráðu í
myndlist frá San Carlos listaháskól-
anum íValencia á Spáni og nam eft-
ir það ljósmyndun við háskólana
Emily Carr Art+Design í Vancou-
ver í Kanada og Middlesex í Lund-
únum. Hún hefur sýnt víða, m.a. á
Spáni, í Bretlandi, Kanada og
Mexíkó. Prats býr og starfar í
Reykjavík.
Fundin Hluti myndar í röðinni Found.
Ljósmyndir Prats
sýndar í Skotinu
Bíómyndin Djúpið fékk flestar til-
nefningarnar til Edduverðlaunanna í
ár, sextán talsins, en fast á hæla
myndinni kom Svartur á leik með
fimmtán. Tilnefningarnar voru kunn-
gjörðar í Bíó Paradís í gær.
Djúpið er tilnefnt í nær öllum
flokkum. Baltasar Kormákur er til-
nefndur sem leikstjóri ársins auk
þess að vera tilnefndur fyrir handrit
ársins ásamt Jóni Atla Jónassyni,
Ólafur Darri Ólafsson er tilnefndur
sem leikari í aðalhlutverki og Björn
Thors, Stefán Hallur Stefánsson og
Theodór Júlíusson allir tilnefndir fyr-
ir leik í aukahlutverki, Þorbjörg
Helga Þorgilsdóttir sem leikkona í
aukahlutverki, Ben Frost og Daníel
Bjarnason fyrir tónlistina í myndinni
auk þess sem Djúpið er tilnefnt sem
bíómynd ársins. Þar keppir hún við
Svartan á leik og Frost.
Svartur á leik er m.a. tilnefnd fyrir
besta handrit sem Óskar Þór Ax-
elsson skrifaði, en hann er jafnframt
tilnefndur sem leikstjóri ársins. Jó-
hannes Haukur Jóhannesson og Þor-
valdur Davíð Kristjánsson eru báðir
tilnefndir sem leikari í aðahlutverki
og Damon Younger og María Birta
Bjarnadóttir fyrir aukahlutverk.
Kvikmyndin Frost fær þrjár til-
nefningar, þ.e. sem besta myndin auk
þess Björn Thors og Anna Gunndís
Guðmundsdóttir eru tilnefnd sem
besti leikari og leikkona.
Þriðja þáttaröðin af Pressu fær
flestar tilnefningar í flokki leikins
sjónvarpsefnis. Þannig er Óskar Jón-
asson tilnefndur fyrir leikstjórn sína
á þáttunum, Kjartan Guðjónsson og
Sara Dögg Ásgeirsdóttir sem besti
leikari og leikkona í aðalhlutverki
meðan Þorsteinn Bachmann og Arn-
dís Hrönn Egilsdóttir eru tilnefnd
fyrir aukahlutverk.
Pressa etur kappi við Áramóta-
skaup sjónvarpsins 2012 og Mið Ís-
land sem besta leikna sjónvarpsefnið.
Í flokki heimildamynda eru til-
nefndar Amma Lo-fi: Kjallaraspólur
Sigríðar Níelsdóttur, Hrafnhildur –
Heimildamynd um kynleiðréttingu,
Hreint hjarta, Íslensku björg-
unarsveitirnar og Sundið. Í flokki
menningar- og lífsstílsátta eru til-
nefndar Djöflaeyjan, Hljómskálinn,
Kiljan, Með okkar augum og Tón-
spor.
Samtals sáu 28 einstaklingar í fjór-
um valnefndum (valnefnd um leikið
efni, sjónvarpsefni, heimildamyndir
og fagverðlaunanefnd) um að velja
tilnefningar úr innsendum verkum en
alls voru 102 verk send inn í Edduna.
Nú er hafin rafræn kosning Akadem-
íumeðlima en henni lýkur 13. febrúar.
Edduverðlaunahátíðin sjálf fer svo
fram í Hörpu laugardaginn 16. febr-
úar þar sem veittar verða 24 Edd-
ustyttur til þeirra sem þykja skara
fram úr í íslenska kvikmynda- og
sjónvarpsbransanum. Afhendingunni
verður sjónvarpað beint og í opinni
dagskrá á Stöð 2. Upplýsingar um til-
nefningar eru á eddan.is. silja@mbl.is
Djúpið oftast tilnefnt
Morgunblaðið/RAX
Spenna Gestir úr heimi kvikmynda og sjónvarps voru viðstaddir í gær þegar tilkynnt var um tilnefningar til Eddu-
verðlaunanna í ár. 24 Eddustyttur verða afhentar á verðlaunahátíðinni í Hörpu 16. febrúar næstkomandi.
Svartur á leik fylgir fast á hæla Djúpsins í flokki kvikmynda
Fjöldi tilnefndra verka
Flokkur 2013 2012 2011
Bíómyndir 7 8 8
Stuttmyndir 7 13 12
Heimildamyndir 17 14 19
Barnaefni 8 4 4
Sjónvarpsþættir 63 58 43
SÉÐ OG HEYRT/VIKAN
-EMPIRE
- V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS
RYÐ OG BEIN
ÁST
SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
MORGUNBLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
2 GOLDEN GLOBE TILNEFNINGAR
GOLDEN
GLOBE
BESTA
ERLENDA
MYNDIN
3 ÓSKARSTILNEFNINGAR 11 ÓSKARSTILNEFNINGAR
- H.S.S., MBL” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN
- S.S., LISTAPÓSTURINN” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ
-H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
FRÉTTABLAÐIÐ
VESALINGARNIR KL. 4.30 - 8 12
VESALINGARNIR LÚXUS KL. 4.30 - 8 12
DJANGO KL. 4.30 - 8 16
LIFE OF PI 3D KL. 5.15 - 8 10
THE HOBBIT 3D KL. 4.30 - 8 12
HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 3.30 L
CARMEN ÓPERA KL. 6 L
VESALINGARNIR KL. 5.50 - 9 12
DJANGO KL. 9 16
LIFE OF PI 3D KL. 6 - 10.20 10
ÁST KL. 8 - 10.20 L / RYÐ OG BEIN KL. 5.50 L
VESALINGARNIR KL. 6 - 9 12
DJANGO KL. 9 16
THE HOBBIT 3D KL. 6 12
VESALINGARNIR Sýndkl.5:40-9
DJANGO UNCHAINED Sýndkl.6-9:20
THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan 12
12
16
- H.S.S MBL
3 óskarstilnefningar
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. febrúar.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku & förðun
föstudaginn 15. febrúar
Í blaðinu verður fjallað
um tískuna vorið 2013 í
förðun, snyrtingu, fatnaði
og fylgihlutum, auk
umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
Tíska & förðun