Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 44

Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 44
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 31. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Íslendingar drápu elsta dýrið 2. Forsetinn vekur heimsathygli 3. Magnaðar endurkomur… 4. „Ég man þó öll partíin“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Luis Arreaga, sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, mun í dag slást í hóp yfir 100 uppvakninga í tilefni af forsýningu á fyrsta þætti þriðju þáttaraðar The Walking Dead í Bíó Paradís sem segir af lífsbaráttu fólks í heimi sem fullur er af uppvakn- ingum, þ.e. lifandi dauðum. Sendi- herrann mun veita verðlaun fyrir „bestu uppvakningana“ fyrir forsýn- inguna. Sérstök uppvakningaganga hefst á Hlemmi kl. 17.30 og endar í Bíó Paradís kl. 18. Verður þá boðið upp á léttar veitingar og forsýningu. Sjónvarpsstöðin SkjárEinn sýnir þættina og býður fyrirtækið sem hana rekur, Skjárinn, til forsýning- arinnar ásamt sendiráðinu. Sýningar á þriðju þáttaröð hefjast á SkjáEinum nk. sunnudag kl. 22. Sendiherra verð- launar uppvakninga  Uppselt er á 27 sýningar á söng- leiknum Mary Poppins í Borgarleik- húsinu og 28 sýningar af verðlauna- verkinu Tengdó. Þá hefur sala á fleiri verk, s.s. Gullregn, Mýs og menn og Sögu þjóðar einnig verið framar björtustu vonum. Alls er uppselt á 91 sýningu í húsinu fram á vor og eru þá ekki taldir með miðar þeirra sem eru með áskriftarkort, á sýningar sem eru ekki komnar í almenna miðasölu. Ef þeir eru hins vegar taldir með er uppselt á 101 sýningu eða á nær allar sýn- ingar hússins fram í maí. Fyrsti for- söludagurinn á Mary Poppins var söluhæsti dagurinn í sögu Borgarleik- hússins, skv. tilkynn- ingu frá leikhús- inu. Uppselt á 91 sýningu í Borgarleikhúsinu Á föstudag Austan 5-10 m/s syðst, annars hægari vindur. Stöku él úti við sjóinn, einkum SV-til, en annars skýjað með köflum. Frost 0 til 14 stig, kaldast í innsveitum NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 3-10 m/s. Stöku él við sjóinn, einkum sunnantil. Vægt frost inn til lands en annars frost- laust. VEÐUR Afrekssjóður ÍSÍ og Styrkt- arsjóður ungra og fram- úrskarandi efnilegra íþróttamanna úthluta 81 milljón króna til íþrótta- manna á þessu ári. Styrk- þegum á A-styrk fjölgar úr einum í fimm en þeim sem eru á B-styrk fækkar hins vegar úr ellefu niður í einn. Níu bætast við sem eru á C- styrk en einnig fá hin ýmsu landslið styrki og ungir íþróttamenn. »4 Fimm íþrótta- menn á A-styrk Grétar Rafn Steinsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, segir það vera mikla og skemmtilega lífsreynslu að búa í Tyrklandi og spila með þarlendu liði. Þar sé margt öðruvísi en hann hafi áður kynnst, menn eru lengi að jafna sig eftir tapleiki og fagna sigurleikjum lengi, en þjálf- unin sé mjög góð hjá Króat- anum Robert Prosinecki og aðstæður frá- bærar. »2-3 Mikil og skemmtileg lífsreynsla hjá Grétari Manchester komið á ný með sjö stiga forskot á Manchester City á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu. Liðið vann Southampton í gærkvöldi, 2:1, á heimavelli eftir að grannarnir gerðu aðeins jafntefli í fyrrakvöld. Wayne Rooney skoraði bæði mörk United í gær. Arsenal jafn- aði metin gegn Liverpool eftir að hafa verið tveimur mörkum undir. »1 United með sjö stiga forskot á nýjan leik ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þær voru 22, stelpurnar í fyrsta bekk Gagnfræðaskóla verknáms við Brautarholt í Reykjavík, rétt við gömlu Mjólkurstöðina, þegar þær hófu tveggja ára framhaldsnám árið 1957 og þær hafa haldið hópinn. Fyrst var það ein bekkjarsystranna sem bauð nokkrum þeirra heim til sín fimm árum eftir að þær luku náminu 1959. Seinna fóru þær að hittast á fimm ára fresti heima hjá hver annarri og ákváðu að kaupa veitingar frá veitingahúsi til þess að minnka álagið á gestgjafann. Og loks fóru þær að koma saman ýmist heima eða á veitingastöðum á tveggja ára fresti og nú tvisvar á ári þannig að samhygðin hefur enn aukist. Síðast voru þær í góðu yf- irlæti á Laugaási á þriðjudagskvöld en veitingamaðurinn þar er gamall skólabróðir þeirra, Ragnar Guð- mundsson. Allar eru fæddar 1942 nema ein 1943 og allar mættu nema þrjár sem ekki áttu heimangengt. „Þetta var eiginlega fyrsti verk- námsskólinn í Reykjavík og vísir að fyrsta fjölbrautaskólanum,“ segir ein kvennanna, Helga Magn- úsdóttir. „Hann varð síðar Fjöl- brautaskólinn við Ármúla. Þar sóttu þeir nemendur um sem höfðu lokið öðru bekk í unglingadeild skyldu- námsins en ekki ætluðu bóknáms- leiðina. Þarna voru 6-8 bekkir, hver með yfir 20 nemendur. Yfirleitt var þeim skipt eftir kyni og auðvitað var verið að horfa á hitt kynið, jafnvel reynt að gera gægjugat á milli kennslustofa! Í frímínútum var farið í sjoppuna, annaðhvort Javakaffi eða Kistufell, til að fá sér kók og prinspóló. Skipað var í deildir, okkar var kölluð saumadeild og námið tók tvö ár. En þarna var líka kennd tré- smíði, járnsmíði og þarna var sjó- vinnudeild. Síðan fór þetta fólk út á vinnumarkaðinn, margir fóru Iðn- skólann, Sjómannaskólann eða ann- að og urðu að uppistöðunni í at- vinnulífi þjóðarinnar.“ Góðir og glettnir kennarar Helga segir marga mjög góða kennara hafa verið í Verknáminu, þeir hafi líka verið glettnir og gam- ansamir. Hún minnist sérstaklega Magnúsar Jónssonar skólastjóra sem hafi bæði verið snjall kennari, skilningsríkur og notið virðingar allra, hann hafi alltaf gefið sér tíma til að tala við nemendur. Einnig séu minnisstæðir Gestur Magnússon íslenskufræðingur og Guðbjartur Gunnarsson enskukennari. „Í gamla bekknum okkar eru þrír kennarar, tvær hjúkr- unarkonur, tveir sjúkraliðar og tvær eru enn útivinnandi,“ segir Helga. Hún býr sjálf í Njarðvík og var þar kennari í nær fjóra áratugi, sú eina sem býr utan höfuðborgar- svæðisins. Samhygðin eykst með aldrinum  Bekkur úr Verknáminu útskrifaðist 1959 og hittist nú tvisvar á ári Morgunblaðið/Kristinn Halda hópinn Aftari röð frá vinstri: Jónína Ásmundsdóttir, Rannveig Laxdal, Margrét Pétursdóttir, Kolbrún Magnúsdóttir, Ólöf Soffía Jónsdóttir, Sólveig Ás- geirsdóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Ása Guðmundsdóttir, Jónína Sigurðardóttir, Ída Einarsdóttir, Kristín Axelsdóttir, Berglind Oddgeirsdóttir, Anna Kalmans- dóttir. Fremri röð: Regína Bragadóttir, Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, Bergþóra Skúladóttir, Auður Aradóttir, Ólafía Sveinsdóttir og Helga Magnúsdóttir. Hlutfallslega fóru mun færri í bóklegt langskólanám eftir grunnskólann á sjötta áratugn- um en nú gerist. Og fjölskyldur voru stærri, fleiri munnar sem þurfti að metta heima fyrir. „Þetta voru börn verkafólks, iðnaðarmanna og sjómanna, börn sem ekki fóru í að læra meira á bókina,“ segir Helga. „Ekki vegna þess að þau hafi verið verr gefin en hin sem fóru í menntaskóla eða annað. Þessir krakkar þurftu margir að vinna sjálfir fyrir skólavist- inni á sumrin. Foreldrarnir voru með stóran barnahóp á þessum tíma og mæðurnar unnu sjaldan mikið utan heimilisins.“ Fáir fóru alla leið í háskóla BREYTT SAMFÉLAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.