Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
H
elsta nýjungin hjá okkur
er aukin áhersla á ein-
staklingsmiðaða þjálfun
og andlega þáttinn,“
segir Þröstur Jón Sig-
urðsson, eigandi Sporthússins. „Á
nýjum námskeiðum verður fjallað
um breyttan hugsunarhátt í átt til
nýs lífsstíls, andlegt jafnvægi,
hreyfingu og hollt mataræði. Meðal
þess sem nú er í boði er námskeið
Báru Hilmarsdóttur heilunarmiðils
þar sem einblínt verður á andlegu
hliðina.
Fyrir þá sem vilja snúa við
blaðinu og taka upp heilbrigt líferni
skiptir höfuðmáli að breyta hugs-
unarhættinum. Sem betur fer hefur
orðið mikil vitundarvakning um
mikilvægi andlegs jafnvægis og nú
beinum við sjónum okkar að þess-
um hluta heilsuræktarinnar, til við-
bótar við líkamlega þáttinn.“
Gleði í jóga
Happy yoga er á meðal nýrra
námskeiða Sporthússins á and-
legum nótum. „Eins og nafnið gefur
til kynna er unnið eftir æfingakerfi
í happy yoga sem sameinar bætt
heilsufar og aukna hamingju. Á
námskeiðinu er notast við æfingar
sem byggðar eru á ævafornri vitn-
eskju um orkubrautirnar og hvern-
ig hægt er að efla starfsemi líffær-
anna með því að styrkja og auka
sveigjanleika í vöðvahóp hverrar
orkubrautar.
Með því að auka flæðið í vöðv-
unum eflum við jákvæð persónu-
einkenni; upplifum meiri hamingju
og vellíðan, losum okkur við nei-
kvæðar hugsanir, niðurrif og
streitu. Margt framúrskarandi
íþróttafólk um allan heim stundar
þessar æfingar og þakkar happy
yoga betri árangur.“
Blak í sandi
Sporthúsið státar af tveimur inn-
anhúss-strandblaksvöllum sem not-
ið hafa mikilla vinsælda, að sögn
Þrastar. „Þetta eru fyrstu vellirnir
sinnar tegundar hérlendis. Hita-
kerfi er í gólfi svo að djúpur, hvítur
skeljasandurinn er volgur viðkomu.
Vellina prýða stórar veggmyndir af
strönd, pálmatrjám og hafi svo
stemningin er suðræn og skemmti-
leg.“
Hann segir fjölbreytta tíma og
námskeið í boði hjá Sporthúsinu á
nýju ári, sem sniðin séu að þörfum
breiðs hóps viðskiptavina. „Allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi, hvort sem takmarkið er að
brenna hitaeiningum, styrkjast eða
móta líkamann.“
Konur í formi
„Á námskeiðinu Í gott form með
Sóleyju eru til dæmis leikfimitímar
fyrir konur vinsælir í aldurshópnum
40 til 80 ára. Sóley Jóhannsdóttir,
dans- og líkamsræktarkennari, hef-
ur stýrt þessu frábæra námskeiði í
fjöldamörg ár með ótrúlegum ár-
angri.
Einstaklingsmiðuð námskeið hafa
einnig orðið mjög vinsæl, þar sem
viðkomandi er metinn og horft í það
hvaða markmiðum hann vill ná. Þar
er markmiðasetning mikilvæg og
æfingar, erfiðleikastig og mataræði
aðlagað að hverjum og einum, því
við erum ekki öll eins.“
Kviður og rass
Rótgrónir tímar Sporthússins
verða á sínum stað, svo sem Body
pump, Spinning, Jóga og hinir
ýmsu þrektímar. „Meðal þess sem
hefur notið mestra vinsælda und-
anfarna mánuði er til dæmis
Zumba, Zumba Toning, Hot Yoga,
CrossFit, Fit Pilates og Tabata.
Meðal nýrra hóptíma má nefna
Foam Flex, Fit Toning, Buttlift og
CXWORX.
CXWORX er nýtt prógramm frá
Les Mills, þar sem notast er við
teygjur með handföngum til að
styrkja djúpvöðva, kvið og bak sem
og neðri hluta líkamans, rass og
læri. Teygjan myndar mótstöðu og
gerir það að verkum að vöðvarnir
stækka og lengjast.
Foam Flex er nýjung og gengur
ekki út á að æfa vöðvana heldur
mýkja þá, liðka og endurhlaða. Í
gegnum tíðina hefur fólk einbeitt
sér að því að þjálfa vöðvana, en
gleymst hefur mikilvægi þess að
vinna á þreyttum vöðvum og end-
urnýja orku líkamans. Foam Flex
er sjálfnuddandi meðferð sem fer
fram í upphituðum sal, þar sem not-
ast er við sérstakar rúllur úr frauð-
plasti.
Ólympískar lyftingar
Fit Toning er hóptími í anda
aerobic, sem margir æfðu hér á ár-
um áður, ásamt góðum lóða- og
styrktaræfingum. Í Buttlift er svo
áherslan lögð á neðri hluta lík-
amans og konur á öllum aldri sækja
þessa tíma, þar sem gerðar eru
hörkuæfingar fyrir rass og kvið. Við
buðum fyrst upp á buttlift í haust
og er skemmst frá því að segja að
þessi nýjung hefur slegið í gegn.“
Þröstur bætir við að ráðist hafi
verið í stækkun tækjasalar Sport-
hússins í Kópavogi til að mæta auk-
inni aðsókn. „Við endurbæturnar
var lögð mikil áhersla á aðstöðu fyr-
ir ólympískar lyftingar, laus lóð,
ketilbjöllur og annað sem nú er
hvað vinsælast um allan heim.
Þessu til viðbótar opnaði Sporthúsið
aðra líkamsræktarstöð í Reykja-
nesbæ með jafngóða aðstöðu til
lyftinga og samskonar úrval hóp-
tíma og námskeiða og í Kópavog-
inum.“
beggo@mbl.is
Strandblak Sporthúsið státar af tveimur innanhúss-strandblaksvöllum sem notið hafa mikilla vinsælda enda þeir fyrstu sinnar tegundar hérlendis.
Áherslan á andlega þáttinn
Í Sporthúsinu er ekki
einblínt á líkamlega
þjálfun heldur líka kapp-
kostað að efla hugann í
átt að nýjum lífsstíl.
Morgunblaðið/Ómar
Lykilatriðið Þröstur Jón Sigurðsson segir að fyrir þá sem vilji snúa við blaðinu og taka upp heilbrigt líferni
skipti höfuðmáli að breyta hugsunarhættinum.
Jafnvægi „Mikil vitundarvakning um mikilvægi andlegs jafnvægis og nú beinum við sjónum okkar að þessum
hluta heilsuræktarinnar, til viðbótar við líkamlega þáttinn,“ segir Þröstur Jón Sigurðsson hjá Sporthúsinu.
’Happy yoga er ámeðal nýrra nám-skeiða Sporthússins áandlegum nótum, en þaðsameinar bætt heilsufar
og aukna hamingju. „