Morgunblaðið - 03.01.2013, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ
A
nnað hugarfar og nýr lífsstíll. Þetta
er meginkjarninn í hugrænni atferl-
ismeðferð sem orðin er ríkjandi þátt-
ur í endurhæfingu á Reykjalundi.
„Reynslan er góð sé fólk tilbúið að
nálgast hlutina með breyttu hugarfari. Hver og
einn þarf að glöggva sig á styrk sínum en ekki
síður veikleikum og því sem veldur vanda. Nota
síðan þessa jákvæðu punkta til að ná árangri,“
segja þær Inga Hrefna Jónsdóttir forstöðusál-
fræðingur og Þórunn Gunnarsdóttir iðjuþjálfi á
Reykjalundi.
Áætlun fyrir hvern skjólstæðing
Fyrir tíu árum kom fyrsta útgáfa handbókar
Reykjalundarfólks um hugræna atferl-
ismeðferð (HAM). Þá hafði, að erlendri fyr-
irmynd, um nokkurt skeið verið unnið að þróun
þessa meðferðarúrræðis fyrir fólk sem glímir
við t.d. þunglyndi, kvíða og fleira slíkt. Og nú
nær þessi aðferð raunar einnig til fólks sem
kemur á Reykjalund til dæmis eftir slys, áföll,
vegna verkja, offitu, hjarta- eða lungna-
sjúkdóma svo eitthvað sé nefnt.
Starf á Reykjalundi er þverfaglegt og ein-
staklingsmiðað. Að endurhæfingu hvers ein-
staklings koma eftir þörfum iðjuþjálfi, hjúkr-
unarfræðingur, sjúkraliði, læknir,
sálfræðingur, félagsráðgjafi, næringarráðgjafi,
talmeinafræðingur, heilsuþjálfari og sjúkra-
þjálfari. Með samstarfi fólks úr þessum stéttum
er þróuð meðferðaráætlun fyrir hvern og einn
skjólstæðing, þar sem kostað er kapps að finna
heildstæða lausn þar sem breyttar áherslur í
daglegu lífi eru útgangspunkturinn.
„Fyrst eftir hrunið haustið 2008 var búist við
að margir þyrftu þá strax að leita sér andlegrar
hjálpar, enda var áfall þjóðarinnar mikið,“ segir
Inga Hrefna. „Það gerðist ekki þá, en nú finn-
um við að þunginn fer vaxandi. Fyrst eftir þess-
ar hamfarir einhentu margir sér í að slökkva
eldana og bjarga því sem hægt var. Slíkt reynir
hins vegar á og þegar fólk missir húsnæði, at-
vinnu og fleira – jafnvel eftir áralanga baráttu –
láta líkami og sál undan. Við sjáum mörg dæmi
þess núna og fólki í þessari stöðu sem hingað
kemur fjölgar.“
Meðferð með aðferðum HAM getur ýmist
verið hópstarf eða einstaklingsmeðferð. „Auð-
vitað geta allir tileinkað sér þær aðferðir sem
við byggjum á. Við þurfum öll öðru hvoru að
taka til í okkar ranni; til dæmis að horfa á þessi
daglegu viðfangsefni frá öðru sjónarhorni.
Þannig sjáum við oft að staðan er ekki jafn af-
leit og við teljum. Hins vegar höfum við sem
viðmið að hingað geti komið í meðferð fólk sem
hefur á einhvern hátt verulega skerta starfs-
getu og þar með lífsgæði,“ segir Þórunn.
Undirstrikar hún í þessu sambandi að á
Reykjalund komi fólk eftir tilvísun frá lækni
sem þá hefur metið stöðuna sem svo að end-
urhæfing fagfólks gagnist viðkomandi.
Breyti um takt
„Auðvitað þarf einstaklingur í djúpu þung-
lyndi mikinn stuðning. Lyf geta hjálpað en ekki
síður skiptir máli að fólk breyti um takt.
Glöggvi sig á því hvað skapar vanda og vanlíðan
og breyti samkvæmt því,“ segir Inga Hrefna og
heldur áfram:
„Til lengdar er betra að stokka spil tilver-
unnar en stóla um of á lyfin við þunglyndi og
kvíða og vera kannski í lausu lofti þegar þeim
sleppir. Hluti af HAM er svo að fólk þrói með
sér bakslagsvarnir; þar sem hugarfar, hreyf-
ing, mataræði og svo margt fleira skiptir máli.
Getur þetta bæði átt við um andleg og líkamleg
veikindi. Langvarandi verkir til dæmis reyna
óskaplega á andlega líðan fólks og þá skiptir
hugarfarið öllu máli.“
Á góðu róli eftir fyrstu meðferð
Allir verða að bera ábyrgð á eigin heilsu og
láti eitthvað undan er mikilvægt að bera sig eft-
ir björginni. Á síðasta ári var handbók Reykja-
lundar í HAM gerð aðgengileg á netinu. Hafa
margir nýtt sér þann möguleika til sjálfshjálpar
og reynslan er góð, skv. umsögn notenda.
„Þetta spyrst út. Við erum í góðu samstarfi
við til dæmis heilsugæsluna,“ segir Inga
Hrefna og bætir við að útfærslur á hugrænni
atferlismeðferð séu margar og miðist að því að
mæta einstaklingnum þar sem hann er stadd-
ur; sjálfshjálp með stuðningi nýtist sumum,
HAM-hópmeðferð öðrum en stundum þarf
HAM-einstaklingsmeðferð ásamt þverfaglegri
endurhæfingu. Nýjasta útfærslan á Reykja-
lundi sé HAM-eftirfylgdarnámskeið byggt á
núvitund. Reynslan sýni mikla þörf á slíku; eftir
fyrstu meðferð séu margir á góðu róli. Fljótt
geti þó fennt í sporin og þá sé upprifjun, aðhald
og stuðningur öllum mikilvægur.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjálp Inga Hrefna Jónsdóttir, til vinstri, og Þórunn Gunnarsdóttir eru meðal þeirra sem
leiða hugræna atferlismeðferð sem Reykjalundarfólki þykir hafa gefið mjög góða raun.
Hugræn atferlismeðferð er rauður
þráður í endurhæfingu og starfi á
Reykjalundi. Tekið til í eigin ranni.
Þeim fjölgar sem þurfa hjálp eftir
baráttu eftir efnahagshrunið. Eft-
irfylgd og stuðningur.
’Við þurfum öll öðru hvoru aðtaka til í okkar ranni; til dæm-is að horfa á þessi daglegu við-fangsefni frá öðru sjónarhorni.Þannig sjáum við oft að staðan er
ekki jafn afleit og við teljum.
Best að stokka spil tilverunnar
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Golfkennsla – líkamsþjálfun - golfhermir
Golfkennsla og líkamsþjálfun fyrir kylfinga í einum pakka hjá
golfkennaranum Hallgrími Jónassyni, íþróttafræðingi og
CHEK GPS þjálfara
• Líkamsþjálfun: stöðugleika-, styrktar- og liðleikaþjálfun,
lokaðir tímar 2. sinnum í viku
• Hópkennsla hjá PGA golfkennara, 6 sinnum í mánuði í Básum
• Aðgengi að líkamsræktarstöðinni Veggsport
• 1 klst. í golfhermi Veggsports á mánuði, 10-40% afsl.
af aukatímum, fer eftir golfpakka sem keyptur er
• Aðgengi að fróðleik og efni fyrir þátttkendur inná
Golfform.is/2013.
Golfpakki 1, verð kr. 35.000,- fyrir einn mánuð
Golfpakki 2, verð kr. 58.000,- fyrir tvo mánuði
Golfpakki 3, verð kr. 75.000,- fyrir þrjá mánuði
Golfpakki 4, verð kr. 84.000,- fyrir fjóra mánuði
Tryggðu þinn hámarks árangur í sumar.
Golfpakki