Morgunblaðið - 03.01.2013, Síða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
B
irna var um langt árabil
landsliðskona í sundi, og
í framhaldinu var hún
valin í landsliðið í frjáls-
um íþróttum. Síðustu
misserin hefur þríþrautin hins veg-
ar átt hug hennar allan og þá er
ekki að sökum að spyrja – hún hef-
ur verið valin í landsliðið í hjólreið-
um, en sú grein er ein þriggja sem
þríþrautin samanstendur af. Og
fyrst liggur beint við að spyrja:
hvað er svona skemmtilegt við þrí-
þrautina?
Hjólreiðarnar skemmtilegastar
„Ætli það sé ekki einmitt fjöl-
breytileikinn, að hafa þessar þrjár
greinar til að hamast í. Ætli það sé
ekki aðalmálið,“ svarar Birna. Að-
spurð um hvort hún eigi sér ein-
hverja uppáhaldsgrein innan þrí-
þrautarinnar hugsar hún sig um í
stutta stund. „Ég var náttúrulega
mjög lengi í sundinu hér áður, og
svo voru hlaupin stór hluti af frjáls-
um, svo líkast til eru það hjólreið-
arnar. Mér þykja þær einna mest
spennandi eins og er enda eru þær
ennþá tiltölulega nýjar fyrir mér.
Ég byrjaði ekki að hjóla fyrr en
síðasta vetur. En nú er ég kominn
með alvöru græju í hjólreiðarnar
og það er það sem mér finnst
skemmtilegast af þessu eins og er.“
Að sögn Birnu eru gríðarmiklar
æfingar að baki ástundun í þrí-
þraut enda þrjár greinar sem þarf
að gefa sér tíma til að æfa. „Það
fylgir þessu talsvert álag, bæði
hvað tíma varðar og æfingarnar
sjálfar. Maður þarf til að byrja með
að gefa sér tímann til þess og í
framhaldinu taka vel á æfingunum.
Það getur í rauninni hver sem er
prófað og lagt stund á æfingar, en
það þarf talsvert til að ná raun-
verulegum árangri í sportinu.“ Til
glöggvunar má geta þess að keppni
í þríþraut, svokallaður járnkarl,
samanstendur af 3,8 km sundi, 180
km hjólreiðaspretti og loks er
hlaupið maraþon sem nemur 42,2
km. Hálfur járnkarl er þar af leið-
andi sléttur helmingur af fram-
angreindu. Birna bætir þó við að
yfir sumartímann sé einnig boðið
upp á stuttar keppnir sem henti
þeir sem vilja iðka sportið og
keppa án þess að bjóða járnkarlin-
um birginn. „Ef fólk er á annað
borð að hreyfa sig eitthvað þá ætti
það vel að komast í gegnum slíka
keppni,“ bætir hún við.
„Þá eru syntir 400 metrar, 10
kílómetrar hjólaðir og hlaupið á
bilinu tveir og hálfur til þrír kíló-
metrar. En fyrir keppni í járnkarli
þarf að þjálfa sig í tvö ár að lág-
marki.“
Þríþrautin fer vaxandi
Að sögn Birnu eykst ut-
anumhaldið og umfangið í þríþraut-
inni sífellt og í krafti aukinna vin-
sælda er umgjörðin sífellt að verða
meiri og betri. „Það eru margir
farnir að stunda sportið núorðið og
fimm íþróttafélög starfandi með
virka og skipulagða þríþraut-
ardeild. Félögin skipta svo með sér
að halda mót yfir sumartímann.
Það er einmitt gaman að sjá um-
gjörðina taka á sig meiri mynd því
það eru ekki nema um tvö ár síðan
ákveðin vakning varð í þríþrautinni
svo þetta er ungt sport hér á
landi.“ Vöxturinn hefur þó verið
hraður og síðasta sumar varð tals-
verð sprenging í vinsældum og iðk-
un á þríþraut hérlendis. Með auk-
inni umræðu jókst þátttakan að
sama skapi, eins og Birna bendir á.
„Það er vonandi að sú þróun haldi
áfram. Ég sé að minnsta kosti ekki
annað en að þetta sé vaxandi sport
sem á helling inni ennþá hér á
landi.“
Aðspurð útskýrir Birna að yf-
irleitt sé ein grein af þremur æfð í
einu, en þó sé líka til í dæminu að
tvær greinar séu æfðar í einni lotu.
„Það er út af fyrir sig mjög gagn-
legt því það þarf að æfa það líka að
fara úr einni grein í aðra. Það að
fara af hjólinu eftir langan og
strangan sprett og fara beint í
hlaup er rosalega skrýtin tilfinn-
ing,“ segir Birna og hlær við.
„Fyrsti kílómetrinn af hlaupinu er
næstum eins og maður hafi aldrei
hlaupið áður. Vöðvarnir eru smá
tíma að átta sig á hreyfingunni og
manni líður hálf kjánalega til að
byrja með. Það er því nauðsynlegt
að æfa þessi skipti milli greina.“
Búnaðurinn sem þarf til
Að sögn Birnu þarf ekki endilega
að kosta miklu til svo hægt sé að
taka þátt í þríþraut en samt má vel
dælda veskið hressilega vilji menn
búa sig af alvöru. „Þetta er alveg
sportið fyrir dótafólkið sem finnst
gaman að kaupa sér eitthvað nýtt
og fínt,“ segir Birna og kímir við.
„Það er talsverður búnaður í þessu
og mestur kostnaðurinn liggur í því
sem snýr að hjólinu. Þú þarft vita-
skuld ekki að eiga dýrasta og flott-
asta hjólið og hver og einn verður
að ákveða það fyrir sig. Þú getur
fengið þér ágætis hjól fyrir 100.000
kall og þú getur líka fengið þér
hjól fyrir eina og hálfa milljón, ef
því er að skipta. Bilið er breitt en
kostnaðurinn er mestur þar enda
þarf líka skó og hjálm.“ Að auki er
keppnisfólk í þríþraut í sérstökum
göllum fyrir sundið sem einnig er
hægt að hjóla og hlaupa í, útskýrir
Birna. „Erlendis er aftur notaður
blautbúningur fyrir sundið enda fer
það fram í vötnum eða sjónum,
ólíkt hér heima þar sem við not-
umst við sundlaugar. Fyrir hlaupin
þarf svo hlaupaskó. Þannig að það
er samanlagt svolítill kostnaður í
þessu ætli maður út í sportið af al-
vöru. En þegar fólk mætir á sumr-
in til að prófa þá mætir fólk bara á
sínu fjallahjóli með barnastólinn á
bögglaberanum og öll flóran er
með. Enda þarftu ekki dýrasta
búnaðinn til að vera með, alls ekki,
og enginn ætti að vera hikandi við
að mæta þó græjurnar séu ekki all-
ar af dýrustu gerð. Það á ekki að
stoppa neinn.“
jonagnar@mbl.is
Þríþrautin er vaxandi sport
Uppáhald „Ég var náttúrulega mjög lengi í sundinu hér áður, og svo voru hlaupin stór hluti af frjálsum, svo líkast til eru það hjólreiðarnar. Mér
þykja þær einna mest spennandi eins og er enda eru þær ennþá tiltölulega nýjar fyrir mér,“ segir Birna Björnsdóttir þríþrautarkempa.
Þríþraut er krefjandi
íþróttagrein sem á ört vax-
andi vinsældum að fagna
hér á landi. Meðal þeirra
sem eru í fremstu röð iðk-
enda er Birna Björnsdóttir,
afrekskona í íþróttum til
margra ára.
Vinsældir Með aukinni umræða kemur athyglin og þríþrautin á sífellt meira fylgi að fagna. „Það er vonandi að
sú þróun haldi áfram. Ég sé að minnsta kosti ekki annað en að þetta sé vaxandi sport sem á helling inni.“
’Það fylgir þessu tals-vert álag, bæði hvaðtíma varðar og æfing-arnar sjálfar. Maður þarftil að byrja með að gefa
sér tímann til þess og í
framhaldinu taka vel á
æfingunum.
MEÐGÖNGUSUND
Sundleikfimi hjá sjúkraþjálfurum
Á Hrafnistu í Reykjavík - Opnir tímar
Kvöldtímar 2x í viku.
Dagtímar 3x í viku.
Nýtt: Jógatími eitt kvöld í viku
Sundið byrjar aftur 2. janúar 2013.
S. 859 2440 - www.medgongusund.is - medgongusund@medgongusund