Morgunblaðið - 03.01.2013, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29
Fyrir 4
1 msk kókosolía
1 laukur, saxaður gróft
2 hvítlauksgeirar, saxaðir gróft
2 g ferskt engifer, saxað smátt
1/2 msk cumin (ekki kúmen)
1 msk coriander
1 tsk kanill
1 tsk negull
250 g tómatar, saxaðir gróft
450 g sætar kartöflur, saxaðar gróft
1 stór gulrót, söxuð gróft
750 ml vatn
1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
1 gerlaus grænmetisteningur
20 g cashew hnetur, þurrristaðar á
pönnu
1 tsk cayenne pipar (má sleppa)
1 msk hnetusmjör (hreint og án við-
bætts sykurs)
Nokkur corianderlauf (má sleppa)
Aðferð Afhýðið laukinn, hvítlauk-
inn, engiferið, gulræturnar og sætu
kartöflurnar og saxið allt gróft.
Saxið tómatana einnig gróft.
Hitið kókosolíuna í stórum potti.
Hitið laukinn í um 7 mínútur eða þang-
að til hann er orðinn mjúkur. Ef vantar
meiri vökva á pönnuna, notið þá svo-
lítið vatn.
Bætið hvítlauk, engiferi, cumin,
coriander, kanil og negul saman við.
Bætið tómötunum, sætu kartöflun-
um og gulrótinni saman við. Hitið í um
5 mínútur.
Hellið 750 ml af vatni út í pottinn
ásamt grænmetisteningnum.
Látið suðuna koma upp og leyfið
þessu að malla í um 30 mínútur eða
þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
Takið súpuna af hellunni og látið
kólna í nokkrar mínútur.
Á meðan skuluð þið hita pönnu (án
olíu) og þurrrista hneturnar í um 2
mínútur.
Hellið súpunni í matvinnsluvél
ásamt þurrristuðu hnetunum og
hnetusmjörinu og blandið þangað til
allt er orðið vel maukað. Áferðin fer
eftir smekk ykkar þ.e. ef þið viljið hafa
grænmetisbita í súpunni getið þið
blandað hana skemur en maukið leng-
ur fyrir mýkri áferð. Einnig má nota
töfrasprota eða blandara.
Hellið súpunni nú í pottinn og hitið
vel.
Saltið og piprið eftir smekk.
Dreifið nokkrum corianderlaufum
yfir súpuna áður en hún er borin fram.
Súpan er ennþá betri daginn eftir.
Frysta má súpuna og hita upp síðar.
Nota má ósaltaðar jarðhnetur í
staðinn fyrir cashewhnetur.
Ef þið eruð ekki viðkvæm fyrir geri
getið þið notað venjulega, lífrænt
framleidda grænmetisteninga.
Austur-afrísk grænmetissúpa með
hnetum og sætum kartöflum
Vilt þú létta á líkamanum
eftir jólahátíðina?
Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Lifandi markaður, Lyf og heilsa, Lyfja, Apótekið,
Apótekarinn, Lyfjaborg, Siglufjarðarapótek, Lyfjaval, Reykjavíkur apótek, Apótek vesturlands,
Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Árbæjarapótek, Akureyrarapótek, Garðsapótek, Heilsuver,
Græni hlekkurinn, Góð heilsa gulli betri, Urðarapótek, Austurbæjar apótek, Rima apótek og Blómaval.
Safinn er unninn úr lífrænt ræktuðum birkilaufum:
• Losar bjúg úr líkamanum
• Léttir á liðamótum
• Losar óæskileg efni úr líkamanum
• Styrkir neglur, hár og húðina
• Gott að blanda safann með vatni, má drekka óblandaðnn
• Íslenskar leiðbeiningar
Lesið meira um
lífrænar vörur á
weleda.is
Þá er holt og gott að drekka Birkisafann frá Weleda
facebook.com weleda ísland
KRAFTGANGA Í ÖSKJUHLÍÐ
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna
Gleðilegt nýtt ár
Hæfileg hreyfing léttir lífið
• Frískt loft eykur ferskleika • Útivera eykur þol
Vetrarstarfsemin hefst miðvikudaginn 9. janúar n.k.
Innritun á tölvlupóstfanginu:
kraftganga@kraftganga.is og í gsm: 899 8199
Frekari upplýsingar á www.kraftganga.is
Kraftganga býður upp á heilbrigðisfræðslu fyrir starfsfólk fyrirtækjum og stofnunum
- áhugasömum er góðfúslega bent á að panta þá þjónustu með tölvupósti á:
kraftganga@kraftganga.is eða hringja í gsm: 899 8199
Fyrir 2
1 lúka rúsínur
1/2 lúka sveskjur, steinlausar
2 lúkur spínat
4 döðlur, saxaðar gróft
200 ml appelsínusafi (eða meira)
100 ml soja- eða hrísmjólk
2 bananar
2 msk haframjöl (má sleppa)
1 msk quinoa korn
1/2 msk cashewhnetumauk (má
sleppa)
Nokkrir ísmolar
Aðferð: Setjið ísmola út í bland-
arann og svolitla slettu af appels-
ínusafa. Blandið í nokkrar sekúndur.
Saxið sveskjur og döðlur og setjið
út í blandarann ásamt rúsínum og spí-
nati og öllum vökvanum. Blandið í 10
sekúndur.
Bætið banönum, haframjöli, quiona
og cashewhnetumauki út í bland-
arann og blandið í 20-30 sekúndur
eða þangað til drykkurinn er orðinn
silkimjúkur og þykkur.
Berið fram strax.
Nota má hnetusmjör eða sesam-
smjör (e. tahini) (enn meira járn!) í
staðinn fyrir cashewhnetumauk.
Nota má eplasafa í staðinn fyrir
appelsínusafa.
Haframjölinu má sleppa ef þið eruð
með glúteinóþol og eins má sleppa
cashewhnetumaukinu ef þið eruð
með hnetuofnæmi.
Járn í glasi