Morgunblaðið - 02.07.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.07.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is „Það var mjög gaman að flytja jómfrúræðuna í dag. Það var fín æf- ing að brjóta ísinn með fyrirspurn til menntamálaráðherra,“ segir Freyja Haraldsdóttir, varaþing- maður Bjartrar framtíðar sem flutti jómfrúræðu sína á Alþingi í gær í umræðum um störf þingsins. Freyja vakti athygli á því að breytingar á reglum Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna um náms- framvindu kæmu sér illa fyrir ákveðna hópa, til að mynda ein- stæða foreldra, fatlaða námsmenn og foreldra langveikra barna. Spurði hún hvernig ætti að tryggja að slíkum hópum yrði ekki mis- munað með nýjum reglum. Illugi lagði áherslu á að verið væri að breyta reglunum um náms- framvindu til samræmis sem áður var. Þá gat ráðherrann þess að hann ætti fund með forystumönn- um námsmannahreyfinganna þar sem málefni meðal annars fatlaðra og langveikra barna yrðu til um- ræðu varðandi breytingar á reglum LÍN. Lærir á hverri sekúndu „Það er mikill heiður að fá að starfa á Alþingi þó það sé bara í nokkra daga, mér er mjög umhug- að um að vanda mig og standa mig vel,“ segir Freyja sem bætir við að dagarnir sem hún hafi nú setið á þingi hafi verið góðir. Freyja situr á Alþingi fyrir Guðmund Stein- grímsson, formann Bjartrar fram- tíðar, til og með fimmtudegi. „Ég er að læra eitthvað nýtt á hverri einustu mínútu og ég við- urkenni að þetta er smá stress. En þetta mun þroska mann alveg pott- þétt.“ Vonast eftir betra aðgengi „Auðvitað er það ekki ásættan- legt að geta ekki flutt ræðu úr pontu í nútímasamfélagi. Við ætt- um að vera farin að átta okkur á því að fatlað fólk fari líka á þing. Það eru hinsvegar allir að gera sitt besta í stöðunni og það var allt í góðu,“ segir Freyja en hún flutti ræðuna úr sæti sínu þar sem hljóð- nema var komið fyrir og myndavél- arnar stilltar með öðrum hætti. „Ég veit af því að það er verið að vinna við að gera breytingar og ég vona að það gangi hratt og vel fyrir sig,“ segir Freyja, en hún vonar að breytingin verði á kjörtímabilinu, mikilvægt sé að gera breytingar sem þessar alls staðar í samfélag- inu og þar með talið á Alþingi. Átti sig á að fatlaðir fara líka á þing  „Ekki ásættanlegt að geta ekki flutt ræðu úr pontu í nútímasamfélagi“  Jómfrúræðan var fyrirspurn til mennta- og menningarmálaráðherra  Langar að vanda sig og standa sig vel Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Ræðumaður Freyja flutti ræðuna úr stól sínum en ekki úr pontu. Sunna Sæmundsdóttir sunnasaem@mbl.is Til stendur að reisa metangasverk- smiðju á næstu misserum. Áætluð staðsetning er í Álfsnesi, en þangað fer allt óflokkað sorp á höfuðborg- arsvæðinu, þar með talinn lífrænn úrgangur. Verkefnið er á vegum SORPU og fjárfestingin er áætluð upp á tvo milljarða króna. „Verk- smiðjan myndi spara okkur mikinn tíma. Það sem með henni vinnst er að metanið í verksmiðju myndast á þremur til fjórum vikum. Ferlið tek- ur allt frá tíu upp í þrjátíu ár, eins og staðan er í dag,“ segir Björn H. Hall- dórsson, framkvæmdastjóri SORPU. Þá verður einnig unnt að stýra framleiðslunni betur, hægt verður að stjórna atriðum líkt og hitastigi og pH-gildi. Þegar metanið er tekið upp úr urðunarhaugnum er hins vegar litlu hægt að stjórna. SORPA er eini metangasframleið- andi landsins, en í dag er metanið framleitt með þeim hætti að hauggas er tekið upp úr urðunarstaðnum og hreinsað. Við hreinsunina verður metanið eftir, en það myndar sjálft eldsneytið. Verksmiðjunni er ætlað að taka við öllum lífrænum úrgangi frá heim- ilum ásamt einhverju magni frá at- vinnulífinu, þó ekki sé komin ná- kvæm áætlun um endanlega stærð hennar. Björn segir eftirspurn eftir met- aneldsneyti sífellt vera að aukast. Notkun metaneldsneytis er í dag um 2.000 smábílaígildi, en ef bílarnir sem það nota eru taldir gerir það um 1300-1400 ökutæki. Metaneldsneytið telst vera um- hverfisvænni kostur en hefðbundið eldsneyti og einnig er það töluvert hagkvæmara. Miðað við verðlag eldsneytis í gær er rúmmetri af met- angasi um 39% ódýrari en lítri af bensíni, en metangasið var á 149 kr. og bensínið á 246 kr. Orkunýtingin er svo til sú sama. Framleiðslutími styttur um áratugi Sorphaugar Hér vinna starfsmenn að þjöppun sorphauganna í Álfsnesi.  Metangasverksmiðja fyrirhuguð í Álfsnesi  Fjárfesting fyrir tvo milljarða króna  Framleiðsla sem nú tekur áratugi tæki einungis nokkrar vikur  Ætlað að taka við öllum lífrænum úrgangi heimila Um 100 hjólabrettaiðkendur og stuðningsmenn íþróttarinnar tóku þátt í mótmælum á Ingólfs- torgi í gær. Þeim finnst að sér þrengt eftir að grasflöt, stólum og nú síðast stórum blómapotti var komið fyrir á torginu. Andri Sigurður Haraldsson segir að nú séu tvö höfuðvígi hjólabrettakappa að falla; Hjartagarð- urinn og Ingólfstorg, þar sem hjólabrettamenn- ingin hafi orðið til. Morgunblaðið/Golli Barist fyrir brettatorgi „Við fórum fyrst að græða landið upp í kringum Landeyjahöfn ár- ið 2007, en þá sáðum við mel- gresi. Árið 2010 kláruðum við svo að sá á öllu svæð- inu,“ segir Gúst- av M. Ásbjörns- son, héraðs- fulltrúi hjá Landgræðslu ríkisins. Svæðið er nú iðagrænt og ljóst að landgræðslan hefur tekist vel. „Það hefur sprottið mjög vel upp þarna, við höfum borið tilbúinn áburð á svæðið um það bil árlega og mun verkefnið klárast á þessu ári eða því næsta.“ Markmiðið er að svæðið standi undir sér sjálft. Auk melgresis var einnig sáð einhverju af lúpínu- fræjum, en lúpínan hefur látið á sér standa enn sem komið er. Búist er við lágum gróðri á svæðinu. „Það gætu í mesta lagi komist einhverjir víðirunnar í efri hluta svæðisins, en annars verður þarna aðallega gras.“ bmo@mbl.is Melgresið þekur Land- eyjasand  Uppgræðsla geng- ur vel  Lýkur í ár Stækkun á endurvinnslu- stöðvum Sorpu í Ánanaustum í Reykjavík og Blíðubakka í Mos- fellsbæ hefur verið samþykkt af stjórn félagsins, en áformin bíða þó enn staðfestingar eig- enda. Reisa á tvo móttökuskúra og breyta á móttökunni að skilagjaldsskyldum umbúðum að kröfu Endurvinnslunnar. Til stendur að hafa vélræna flokk- un sem les strikamerki og þarf því hvorki að flokka né telja dósir eða flöskur. Lesa merkin VÉLRÆN FLOKKUN Skannaðu kóðann til að sjá ræðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.