Morgunblaðið - 02.07.2013, Page 8

Morgunblaðið - 02.07.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 Sumarheftið komið út Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og menningu — hefur nú komið út í níu ár í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar. Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári — vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst í lausasölu í helstu bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum, en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr. Áskriftarsími: 698-9140. Björn Bjarnason skrifar:    Skömm þeirrasem stóðu að ákærunni að Geir H. Haarde er nú komin á spjöld mannrétt- indasögu Evr- ópuráðsins.    Málið er bletturfyrir íslenskt stjórnmálalíf og er í raun ótrúlegt að meirihluti þing- manna skuli hafa gengið erinda Steingríms J. Sigfús- sonar, formanns VG, í þessu máli.    Hann sagðist hafa greitt atkvæðimeð ákærunni „með sorg í hjarta“ en lét Þuríði Backman, flokkssystur sína og samþingmann frá NA-kjördæmi, verða sér enn frekar til skammar á Evrópuráðs- þinginu í Strassborg með séráliti við álitið að baki tillögunni sem þingið samþykkti föstudaginn 28. júní. Sagt var frá málinu í sjónvarps- fréttum ríkisins í kvöld.    Hið furðulega við þann frétta-flutning var að birtar voru myndir frá Brussel af byggingum Evrópusambandsins undir text- unum.    Varla er fréttastofan svo illa aðsér að hún geri ekki mun á Evr- ópusambandinu og Evrópuráðinu?    Ekki tók síðan betra við í frétta-tímanum þegar birt var viðtal við Martin Schulz, forseta ESB- þingsins, og ummæli hans um lýð- ræðisríki þýdd á þann veg að hann talaði um „lýðveldi“. Lýðræðisríki geta vissulega verið lýðveldi en þau geta einnig verið konungdæmi, lýð- veldi á íslensku er notað um stjórn- kerfi þar sem þjóðhöfðinginn er for- seti.“ Geir H. Haarde Með skömm í hjarta STAKSTEINAR Steingrímur J. Sigfússon Veður víða um heim 1.7., kl. 18.00 Reykjavík 10 léttskýjað Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 8 skýjað Nuuk 1 þoka Þórshöfn 10 alskýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 léttskýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 23 léttskýjað Brussel 17 heiðskírt Dublin 17 léttskýjað Glasgow 18 heiðskírt London 13 skýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 22 skýjað Vín 21 léttskýjað Moskva 22 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 17 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 11 léttskýjað Montreal 12 súld New York 14 skýjað Chicago 10 léttskýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:09 23:56 ÍSAFJÖRÐUR 1:57 25:18 SIGLUFJÖRÐUR 1:27 25:14 DJÚPIVOGUR 2:25 23:38 „Lögreglumenn upplifa ekki veruleikann eins og hann birtist í þessum tölum vegna þess að færri lögreglumenn eru til staðar nú en áður,“ segir Ólafur Örn Bragason, deildarstjóri hjá ríkislög- reglustjóra, um þá tölfræði afbrota sem greint var frá í Morgunblaðinu á laugardag. Þar kom fram að hefðbundnum ofbeldis- og auðgunarbrotum hefur fækkað hér heima jafnt sem erlendis á undanförnum árum, en Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglu- manna, sagði veruleika lögreglu vera annan í Morgunblaðinu í gær. „Gríðarleg fækkun í lögreglustétt síðustu ár út- skýrir þetta að hluta. Það er ekkert minna að gera hjá einstökum lögreglumönnum heldur þvert á móti meira álag á hvern og einn eftir niðurskurð.“ Breytt skráningarkerfi veldur misræmi Ólafur segir breytt skráningarkerfi geta valdið misræmi í mælingum líkt og Snorri talaði um, en lögreglan tók upp nýtt skráningarkerfi árið 2005. „Áður fyrr gat líkamsárás verið skráð þegar tveir menn voru að pústra og enginn slasaðist eða kærði. Í dag þarf hins vegar að liggja fyrir kæra eða alvarlegar afleiðingar til að það teljist vera líkamsárás.“ Ólafur bendir á að minniháttar líkamsárásum hefur fækkað frá 2007-2011 en á sama tíma er lítill marktækur munur á tíðni alvarlegra líkamsárása. „Slíkar árásir koma inn á borð rannsóknarlög- reglumanna og því finna þeir ekki fyrir þessari fækkun á minniháttar árásum.“ Alþjóðleg þróun nær líka til Íslands Minniháttar afbrotum fer fækkandi í Evrópu og Bandaríkjunum og Ólafur telur Ísland ekki vera undanskilið slíkri þróun. Hann tekur undir orð Helga um að aldursdreifing sé mikilvægur áhrifa- valdur þar sem hæsta tíðni afbrota er hjá fólki á aldrinum 15-25 ára. „Fjöldi einstaklinga í árgangi skiptir gríðarlega miklu máli og það endurspegl- ast í færri brotum.“ jonheidar@mbl.is Fækkun lögregluþjóna skýrir mun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.