Morgunblaðið - 02.07.2013, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17.
citroen.is
CITROËN C3
FRÁ 2.490.000 KR.
Einstaklega sparneytinn, lipur og þægilegur. Notar einungis frá 3,4 l/100 km í blönduðum akstri. Há sætisstaða,
gnótt rýmis og ríkulegur staðalbúnaður veita þér hámarks notagildi og frelsi. Auk þess fær hann frítt í stæði í Reykjavík.
C3MEÐ FRUMLEIKA KEMUR FRELSI
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu
Umferð einkaflugvéla og þotna er
nú aftur að aukast eftir að hafa dal-
að töluvert frá árinu 2008.
„Ísland er aftur að sjá aukningu, á
undan Ameríku og Evrópu, vegna
góðrar staðsetningar í Atlantshaf-
inu,“ segir Davíð Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Suðurflugs, sem þjón-
ustar einkavélar á Keflavíkur-
flugvelli. Hann segir viðskiptin hafa
dregist saman um 30% árið 2008, en
nú sjái hann aftur hæga stígandi.
„Við fórum hratt niður og förum
hratt upp aftur miðað við önnur
lönd.“
Farþegar eru sóttir á þyrlu
Mest er umferðin yfir sumarmán-
uðina, en Davíð segir töluvert um að
menn sem eigi slíkar vélar komi hér
við, fari í Bláa lónið, skoði Gullfoss
og Geysi eða aðrar náttúruperlur,
og haldi svo ferð sinni áfram. Þá
segir hann veiðitímann sem nú
stendur yfir vera mikinn annatíma
og koma þá stundum limmósínur
eða þyrlur að sækja ferðalangana
og flytja þá á réttan áfangastað.
„Fræga fólkið kemur einnig mikið í
gegn, en hér fær það að nota aðstöð-
una hjá okkur, fá sér sitt kaffi og
vera í friði fyrir ágangi fjölmiðla á
meðan bensíni er dælt á þotuna.“
Stórfyrirtæki eiga einkaþotur
Forstjórar og háttsettir starfs-
menn stórfyrirtækja líkt og Coca-
cola, Pepsi og Harley-Davidson eru
einnig algeng sjón, en Davíð segir
fyrirtæki af þeirri stærðargráðu
gjarnan hafa yfir einkaþotu að ráða
og þurfa að millilenda hér þegar
ferðin er löng.
Suðurflug veitir einnig sjúkra-
flugvélum sem hér þurfa að milli-
lenda þjónustu, en hann segir bein-
brotnu fólki á landinu eflaust fjölga
mikið í febrúar og mars þegar verið
er að sækja brotna Ameríkana í Alp-
ana. sunnasasem@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Einkaþotur Sex einkavélar lentu á Reykjavíkurflugvelli um liðna helgi.
Umferð einkavéla
færist í aukana
Dróst saman um 30% árið 2008
Þrátt fyrir heldur færri sólardaga í
júní en oft áður á Suðvesturlandinu
og úrkomu yfir meðallagi telst tíð-
arfarið í nýliðnum mánuði hag-
stætt, samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands.
Óvenjuhlýtt var á Akureyri, en
mánuðurinn mun líklega verða íbú-
um höfuðborgarsvæðisins minnis-
stæður vegna fárra tækifæra til að
njóta sólarinnar.
Óvenjuhlýtt á Akureyri
Meðalhitinn á Akureyri í júní-
mánuði var 11,4 stig og hefur ekki
verið jafn hár síðan í júní árið 1953,
eða í 60 ár. Aftur á móti mældist
meðalhitinn í Reykjavík 9,9 stig og
er það 0,6 stigum undir meðaltali
síðustu tíu júnímánaða.
Hæsti hiti mánaðarins mældist á
sjálfvirkri stöð á Skjaldþingsstöð-
um þann 10. júní, eða 22,8 stig.
Hæstur var meðalhiti mánaðarins á
Torfum í Eyjafirði, 11,7 stig.
Lægstur var meðalhitinn á Brúar-
jökli, 2,7 stig. Á láglendi var með-
alhitinn lægstur í Seley, 6,6 stig.
Lægstur mældist hitinn á Brúar-
jökli þann 2. júní síðastliðinn, 4,3
gráðu frost.
Bíða enn eftir sólinni
Reykvíkingar hafa beðið lengi
eftir sólinni, en óvenjusólarlítið var
í borginni í júní. Sólskinsstundirnar
mældust aðeins 121,7 í borginni en
á Akureyri var hins vegar óvenju-
sólríkt. Sólskinsstundir mánaðar-
ins mældust 260,6 og er það 84
stundum fleiri en í meðalári.
Kvartanir höfuðborgarbúa vegna
vætutíðar að undanförnu eru víst
ekki úr lausu lofti gripnar. Í júní
mældist úrkoma í Reykjavík 65,6
mm og er það 30 prósentum um-
fram meðallag. Úrkomudagar hafa
ekki verið fleiri í júní í Reykjavík
síðan 2003. Úrkoma á Akureyri
mældist 8,1 mm í júní og er það
rúmlega fjórðungur meðalúrkomu í
þessum mánuði. Þurrkmet voru
sett á nokkrum stöðvum um landið
norðaustan- og austanvert.
Hlýtt fyrri hluta árs
Hlýtt hefur verið fyrstu sex mán-
uði ársins, samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands. Meðalhiti í
Reykjavík þessa mánuði er 4,2 stig
og er það 1,1 stigi yfir meðallagi ár-
anna 1961 til 1990 en 0,1 stigi undir
meðallagi síðustu tíu ára.
Í Reykjavík er úrkoma það sem
af er ári um 9% yfir meðallagi, en í
meðallagi á Akureyri. Sólskins-
stundir það sem af er ári eru um
100 umfram meðallag í Reykjavík,
en um 50 umfram meðallag á Ak-
ureyri. larahalla@mbl.is
Nutu sólarinnar
sjaldnar en oft áður
140 fleiri sólarstundir í júní á Akureyri en í Reykjavík
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Setið og beðið eftir sólinni Reykvíkingar nutu 121,7 sólarstunda í nýliðnum
júnímánuði en á Akureyri mældust stundirnar 260,6. Á höfuðborgarsvæðinu
bíða því enn margir eftir sólinni og líta björtum augum til júlímánaðar.
Andstæður
» Meðalhiti á Akureyri mæld-
ist 11,4 stig í júní en 9,9 stig í
Reykjavík.
» Sólskinsstundir mældust
260,6 á Akureyri í júní en 121,7
stundir í Reykjavík.
» Úrkoma í Reykjavík mældist
65,6 mm í júní en aðeins 8,1
mm á Akureyri.