Morgunblaðið - 02.07.2013, Side 18

Morgunblaðið - 02.07.2013, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ráðgjaf-arhópuriðnaðar- og viðskiptaráðherra um mögulega lagn- ingu raforku- sæstrengs til Evrópu skilaði niðurstöðum í liðinni viku. Nið- urstöðunum fylgdu sérfræðiálit sem keypt höfðu verið auk til- lagna hópsins. Tillögurnar voru í meginatriðum þær að ástæða væri til að halda áfram að skoða málið og ræða við bresk stjórn- völd um möguleg tækifæri til orkusölu þangað. Af sérfræðiálitunum og skýrslu ráðgjafarhópsins fer ekki á milli mála að óvissan um raforkustrenginn er gríðarlega mikil, hvort sem litið er til hag- kvæmni eða tæknilegra þátta, en raforkustrengur héðan og til Skotlands yrði sá lengsti og dýpsti í heimi og þegar af þeirri ástæðu er óvissan mikil. Óvissan um áhrif á kostnað heimilanna í landinu er einnig töluverð, en þó er nokkuð ljóst að verð á raforku mundi hækka. Þá er umhverfisþátturinn einn- ig nokkurri óvissu háður, en þó má ætla að þrýstingur um aukn- ar virkjanir, hvort sem um er að ræða jarðhita-, vatnsafls- eða vindorkuvirkjanir, mundi aukast. Sem stendur er lítið sem ekk- ert hægt að segja um hag- kvæmni raforkustrengsins enda áætlaður kostnaður og áætlaðar tekjur á svo breiðu bili að litla vísbendingu gefur. Við alla þessu óvissu bætist nú, og hefur farið vaxandi, óvissa vegna orkubúskapar Breta og þeirra aðgerða sem þar kann að verða gripið til. Hér á landi hafa áhugamenn um könnun raforkusæstrengs ekki síst litið til þess að orkubúskap í Evrópu hefur farið hrakandi og að á Bretlandi er að óbreyttu spáð mögulegum orkuskorti á næstu árum. Þetta hljómar óneitanlega áhuga- vert fyrir mögulega orkusala, en þá er nauðsynlegt að hafa í huga þær að- gerðir sem Bretar kunna að grípa til vegna þessa ástands. Daginn eftir að ráðgjafar- hópurinn íslenski skilaði ráð- herra skýrslu sinni um raf- orkusæstreng fengu bresk stjórnvöld í hendur niðurstöðu jarðfræðikönnunar á mögulegu magni af gasi sem vinna mætti úr leirsteini (e. shale gas). Þetta jarðgas hefur valdið byltingu í orkubúskap Bandaríkjanna á síðustu árum og þó að Evrópa hafi stigið varlegar til jarðar í þessum efnum er ekki ástæða til að ætla að þar verði þessar auð- lindir látnar liggja óhreyfðar þrátt fyrir hækkandi orkuverð. Þetta má meðal annars lesa út úr bresku jarðfræðikönn- uninni og viðbrögðum við henni. Könnunin bendir til að meira sé af jarðgasi undir bresku landi en áður var talið og að þótt að- eins um tíundi hluti þess væri vinnanlegur gæti það uppfyllt gasþörf Breta næstu fjörutíu árin. Óvissan um magnið er mikil en ekki er ósennilegt að um sé að ræða töluvert meira gas en Bretar hafa unnið úr Norðursjó frá upphafi, eða fyrir rúmum fjórum áratugum. Breski orkumálaráðherrann segir niðurstöðurnar spennandi og að Bretland sé farið að taka þessa gasvinnslu alvarlega enda geti hún þýtt lægri orkureikn- ing fyrir neytendur. Eins og áður segir komst ís- lenski ráðgjafarhópurinn að því að ástæða væri til að skoða mögulegan raforkusæstreng nánar. Sjálfsagt er að gera það, en þó er óvissan slík og áhættu- þættirnir svo stórir, að óhjá- kvæmilegt er að farið verði gætilega og væntingum stillt mjög í hóf. Óvissan er óþægi- lega mikil og ábat- inn alls ekki vís} Raforkusæstrengur Vef-Þjóðviljinntelur að þing- mennirnir sem samþykktu að gefa út ákæru á hendur Geir Haarde hafi orðið sér til skammar: „Margir þessara þingmanna sitja enn á þingi. Tveir eru ráð- herrar. Eitt það versta við ákvörð- unina um ákæru var að margir þingmenn, sem hana tóku, virt- ust alls ekki skilja á hvaða for- sendum þeir mættu gera það. Margir þeirra töluðu nefnilega eins og þeir tækju ekki afstöðu til sektar eða sakleysis, það ætti bara að fá niðurstöðu um það fyrir lands- dómi. Slíkt er frá- leitt. Ákærandi má ekki gefa út ákæru nema hann telji meiri líkur á sak- fellingu en sýknu. Hann má ekki gefa út ákæru til að prófa. Eða til að friðþægja einhverjum. Eða af því að vitnaleiðslurnar geti orð- ið fróðlegar eða að það væri bara betra fyrir Geir að „fá að hreinsa sig“. Það er ótrúleg misnotkun á ákæruvaldi þegar þingmenn greiða atkvæði með ákæru, án þess að vera sjálfir alveg sann- færðir um sekt mannsins.“ Þetta er bæði rétt og satt. Það segir ekkert um lögin um Landsdóm að eftir 100 ár ákváðu pólitískir misindismenn að misnota þau } Urðu sér til skammar S tundum er sagt að skattarnir sem við greiðum í sameiginlega sjóði séu gjald fyrir siðað samfélag. Auðvitað kostar sitt að halda úti þjóðfélagi með styrka innviði vel- ferðar og þjónustu. Skýrara verður þetta varla og fyrir vikið borga flestir skattana sína án þess að röfla neitt að ráði. Þá er líka svo ljómandi gott að fólk getur, séu forsendur og skilyrði til staðar, fengið opinberan stuðning til alls mögulegs. Ef hlutirnir eru til þess fallnir að bæta mannlífið má oft fá klink í kassann. Öflugt menningarstarf er okkur al- veg bráðnauðsynlegt og listamannalaun nýt- ast skapandi fólki vel. Úr þess smiðju kemur margt ágætt sem gefur okkur alþýðunni tækifæri til þess að sjá tilveruna í nýju ljósi. Til þess er leikurinn líka gerður. Í síðustu viku skapaðist nokkur umræða um hvort starfsstyrkir sem rithöfundarnir Bjarni Bjarnason og Jónína Leósdóttir, makar tveggja ráðherra í fyrrverandi ríkisstjórn, nutu, hefðu verið fyrirgreiðsla og spilling af síðustu sort. Ekkert bendir til að svo sé, en hitt er annað; hverjir njóta opinbers stuðnings af þessum toga verður alltaf umdeilanlegt. Vargdýr eru alltaf snögg að finna bráðina. Almennt er umræðan um listamannalaunin eins og hún birtist okkur í síðustu viku þó alveg fáránleg. Hún er hins vegar auðskilin og hentar því vel þegar sýna skal pólitísk töfrabrögð Til þess að gera hefur verið nokkur almenn samstaða um listamannalaun og þess stuðnings sem kúnstverkið nýtur. Vissulega er deilt um blæ- brigðamun en meginlínurnar eru skýrar. Sama gildir um landbúnaðarmál. Fyrirkomulag þess stuðnings sem búskapur í sveitum landsins nýt- ur hefur verið óbreytt um árabil og er nokkuð almenn samstaða um það. Með góðum vilja má þó búa til glæp úr mál- inu. Á Alþingi sitja að minnsta kosti tveir mekt- arbændur, hvor úr sínum stjórnarflokknum, og eðlilega fá bú þeirra beingreiðslur úr ríkissjóði, en þær eru stuðningur við landbúnaðinn og jafnframt niðurgreiðsla á verði til neytenda. Þingbændurnir Haraldur Benediksson á Vest- ari-Reyni undir Akrafjalli og Ásmundur Einar Daðason á Lambeyrum í Dölum, eru því, svo röksemdirnar um listamannalaunin séu notuð, báðir á ríkisjötunni og þar með gjörspilltir. Eða finnst einhverjum svo vera? Ég held varla – enda sýnir þetta að umræðan um listamannalaunin er úti í hött. Öll njótum við velferðar og opinbers stuðnings á ein- hvern hátt og í flestum tilvikum á fullkomlega eðlilegum forsendum. Gamli maðurinn sem ég sá í apótekinu spurði um hve mikið tryggingarnar greiddu í lyfjaskammtinum. Foreldrarnir sem ég talaði við þurfa með barnið sitt til læknis og fá þjónustuna niðurgreidda. Og svo framvegis. Já, þetta er auðvitað ofboðsleg spilling, rétt eins og lista- mannalaunin og landbúnaðurinn. En svona án gríns, eigum við ekki að lyfta umræðunni á örlítið hærra plan? sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Á örlítið hærra plan STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Líf og fjör var hjá smábáta-sjómönnum um allt land ígær. Nýtt tímabil strand-veiða hófst með nýjum mánuði og í gær mátti hefja króka- veiðar á makríl. Fyrstu bátarnir héldu til makrílveiða í gærmorgun, en makríll hefur þegar gengið inn á Breiðafjörð og þar hefur frést af vaðandi makríl. Víðast hvar gaf til veiða í gær og samkvæmt upplýs- ingum um sjósókn á vef Landhelg- isgæslunnar voru hátt í 800 skip og bátar af öllum stærðum og gerðum á sjó um hádegi í gær. Áhugi umfram væntingar Alls koma 3.200 tonn af makríl í hlut báta sem stunda færaveiðar á makríl. Veiðunum er stýrt innan tveggja tímabila, þannig að í júlí má veiða allt að 1.300 tonn og frá 1. ágúst til vertíðarloka 1.900 tonn. Áhugi á veiðunum er langt umfram það sem búist var við og var sótt um leyfi fyrir alls 239 báta á vertíðinni. Í fyrra stunduðu 17 bátar færaveiðar á makríl. Ekki er ljóst hversu marg- ir skila sér til veiðanna í ár og eitt- hvað var um að nauðsynlegir papp- írar væru ekki til staðar þegar sótt var um leyfin fyrir um tveimur mán- uðum. Á strandveiðum er landinu skipt í fjögur veiðisvæði og á A- svæði frá Arnarstapa til Súðavíkur hefur leyfilegur hámarksafli náðst bæði í maí og júní. Veiðidagar í maí voru 11 og 9 í júní. Langflestir bátar eru skráðir til strandveiða á þessu svæði og hafa 232 verið notuð af alls 620 nýttum leyfum. Á hverju hinna svæðanna er fjöldi leyfa svipaður, eða um 130 á hverju svæði. Fyrningarnar bætast við Á þremur svæðanna hefur við- miðunarafli ekki náðst þó bátarnir hafi róið alla 30 leyfða veiðidaga í maí og júní. Tíðarfar hefur á stund- um verið erfitt fyrir minni báta á strandveiðunum auk þess sem fiskirí hefur verið tregt, t.d. á svæði C, norðaustursvæðinu. Þar er algengt að afli aukist er líður á sumarið. Fyrningarnar bætast við afla júlí- mánaðar, því samkvæmt reglugerð flyst heimildin á milli mánaða, allt til ágústloka, sé hún ekki fullnýtt. Á A-svæði er heimilt að veiða 858 tonn í júlí. Á svæði B, frá Norð- urfirði til Grenivíkur, má veiða 611 tonn í júlí og auk þess 97 tonn, sem ekki náðust í júní. Á svæði C, frá Þingeyjasveit til Djúpavogs, má veiða 661 tonn í júlí og auk þess 323 tonn frá júní, þar sem aðeins náðist að veiða 40% af leyfilegum afla mán- aðarins. Á svæði D, frá Hornafirði til Borgarbyggðar, má veiða 225 tonn í júlí og 323 tonn frá fyrra mánuði. Á Twitter-síðu Fiskistofu kom fram í lok síðustu viku að um 150 bátar hafi verið með umframafla á strandveiðum í maí. „Greiðsluseðlar á leið í heimabankann – samtals um 2,9 milljónir sem renna í ríkissjóð,“ sagði þar. Fjöldi minni báta á makríl og strandveiðum Morgunblaðið/Alfons Finnsson Strandveiði Flestir eru skráðir til veiðanna á Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Þar hefur hámarksafli náðst í maí og júní og veiðidagar verið skertir. Frá og með síðasta fimmtudegi, 27. júní, var það magn sem áætlað var til línuívilnunar á þorski uppurið. Línuívilnun reiknast því ekki á þorsk það sem eftir er af fiskveiðiárinu. Þetta er í fyrsta sinn sem þau 3.375 tonn af þorski sem ætluð eru til línuívilnunar dagróðrabáta nægja ekki til að fylla fiskveiðiárið, segir á heimasíðu Landssambands smábátaeig- enda, enda voru aflabrögð í þorski mjög góð í vetur og vor. Á þessu fiskveiðiári hafa 199 bátar á 52 stöðum allt í kringum landið fengið línuívilnun, en í fyrra voru bátarnir 217. Útgerðir á Bolungarvík, Suðureyri, Ólafsvík, Hellissandi, Hólmavík, Drangsnesi, Skagaströnd, Eyjafjarðarsvæðinu, Húsavík og Djúpavogi eru meðal þeirra sem hafa nýtt sér möguleika línuívilnunar. Línuívilnun í þorski hófst með fisk- veiðiárinu 2004/05 og er yfirstandandi fiskveiðiár því það níunda í röð- inni sem hún er við lýði. Öll fyrri ár hefur viðmiðunin dugað. Samkvæmt reglugerð geta dagróðrabátar á línuveiðum í einstökum róðrum landað afla umfram aflamark í þorski, ýsu og steinbít. Þessi heimild er bundin við ákveðið hámark í hverri tegund og skilgreind tímabil. Meðal skilyrða fyrir línuívilnun er að línan hafi verið beitt í landi og má þá landa 20% umfram þann afla sem reiknast til kvóta. Hafi lín- an verið stokkuð upp í landi má landa 15% umfram þann afla sem reikn- ast til kvóta. Línuívilnun í þorski uppurin 199 BÁTAR Á 52 STÖÐUM HAFA NÝTT SÉR LÍNUÍVILNUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.